Morgunblaðið - 26.03.2009, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009
FERMINGARTILBOÐ
H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík
588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16
Comfort Zone rúmin aðlaga sig á ótrúlegann hátt að líkamanum, hafa
einstaka þyngdardreifingu og veita slökun sem er á fárra færi.
COMFORT ZONE
• 5 svæðaskipt svefnsvæði
• 5 svæðaskipt pokagormakerfi
• 10 ára ábyrgð
• þrýstijöfnunarsvampiur í svefnsvæði
• Lagar sig að líkamanum
• Veitir góða slökun
• Steyptir kantar
• 20% stærri svefnflötur
• Þarf ekki að snúa
COMFORT ZONE
(120x200)
Verð 132.900 kr.
FERMINGARTILBOÐ
93.030 kr.
COMFORT ZONE
(97x200)
Verð 116.900 kr.
FERMINGARTILBOÐ
81.830 kr.
30%
AFSLÁTTUR!
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
og Ómar Friðriksson
ENGIN meginniðurstaða er í skýrslu Evrópu-
nefndar Sjálfstæðisflokksins um það hvort
sækja beri um aðild að Evrópusambandinu.
Ekki er þó útilokað að nefndin leggi eina eða
fleiri tillögur þar að lútandi fram á landsfundi
flokksins sem hefst í dag.
Í skýrslunni eru tíundaðar niðurstöður sjö
hópa sem unnið hafa með ólíka málaflokka og
eru hóparnir gjarnan klofnir í afstöðu sinni.
Hópurinn er fjallar um peningamálastjórn er
sammála um að skipta þurfi út krónunni fyrir
evru en klofnar í afstöðu til þess hvort hægt sé
að gera það einhliða eða eingöngu í gegnum að-
ild að ESB.
Sá hópur er fjallar um náttúruauðlindir Ís-
lands og yfirráð greinir frá þrenns konar sjón-
armiðum, að Ísland eigi ekkert erindi í ESB, að
aðeins verði samið um fullt forræði Íslands á
auðlindum sínum og í þriðja lagi að ekki sé þörf
á allsherjarundanþágu frá sjávarútvegsstefnu
sambandsins. Svokölluð meginregla um hlut-
fallslegan stöðugleika tryggi forræði hér-
lendra stjórnvalda yfir íslenskum kvóta. Hóp-
urinn telur það bjartsýni að fá verulegar
undanþágur frá sjávarútvegsstefnu sambands-
ins miðað við aðildarsamninga annarra ríkja
við ESB en formaður og varaformaður hópsins
mæla með því að flokksforystan fái heimild til
að ræða við aðra stjórnmálaflokka um aðild-
arviðræður.
Hugað sé að landbúnaði og sjávarútvegi
Athygli vekur að utanríkis- og öryggismála-
hópur nefndarinnar telur ekkert mæla á móti
aðild að sambandinu. Hópurinn sem fjallaði um
atvinnuvegi bendir hins vegar á að sérstaklega
þurfi að huga að tveimur atvinnugreinum í
hugsanlegum aðildarviðræðum, landbúnaði og
sjávarútvegi.
Þótt ekki séu lagðar skýrar línur í skýrsl-
unni varðandi hvort sækja eigi um aðild að
Evrópusambandinu eða ekki er ekki útilokað
að tillögur þar að lútandi komi fram á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins sem hefst í dag. Að
sögn Kristjáns Þórs Júlíussonar, formanns
nefndarinnar, er nefndinni heimilt að leggja
fleiri en eina tillögu fyrir landsfund flokksins ef
ekki hefur náðst samstaða í nefndinni.
Engin tillaga í ESB-skýrslu
Evrópunefnd Sjálfstæðisflokksins kynnir skýrslu sína á landsfundi í dag
Ólík sjónarmið innan mismunandi hópa Vilja evru í stað krónunnar
Í HNOTSKURN
»Aðild að ESB mun ekki þýða miklarbreytingar á málum er varða raf-
orku, vatn, jarðvarma, olíu og gas, að
mati náttúruauðlindahópsins.
»Almennt hafa hagsmunasamtök at-vinnuveganna litla trú á krónunni,
skv. skýrslunni.
»Kostnaður við aðild yrði 1% af þjóð-arframleiðslu.
GOTT útsýni er af Keili en ennþá betra þegar flogið er yfir og
Keilir sjálfur er í forgrunni. Keilir er einkennisfjall á vest-
anverðum Reykjanesskaganum og þekktur fyrir strýtumynd-
aða lögun sína. Hann sést víða af skaganum og höfuðborg-
arsvæðinu. Tindarnir á suðurhluta Reykjanesskagans draga
nokkurn dám af Keili, eins og sjá má. Á bak við fjöllin sést
suðurströnd skagans, nokkru austan við Grindavík. Keilir
varð til við gos undir jökli á ísöld og er því að miklu leyti úr
móbergi en lögun sína fær hann af gígtappa úr harðara bergi
á fjallinu miðju sem ver það gegn veðrun. Móbergið hefur þó
smám saman runnið niður hlíðarnar og myndað strýtuna sem
fjallið tekur nafn sitt af.
Fjöllin á Reykjanesi draga dám af Keili
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skuggar einkennisfjalls Reykjanesskagans styttast með hverjum degi
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ bað í gær skólameist-
ara Fjölbrautaskóla Suðurlands um að endurskoða þá
ákvörðun sína að vísa ekki úr skóla tveimur piltum sem
mestan þátt áttu í líkamsárás í skólanum í janúar síðast-
liðnum.
Piltarnir tveir voru í fyrradag dæmdir í tveggja mán-
aða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast í fyrra á pilt
með höggum og kúbeini.
Að sögn Katrínar Jakobsdóttur menntamálaráðherra
var það vegna dómsins yfir piltunum sem skólameist-
arinn var beðinn að endurskoða ákvörðun sína. Sam-
kvæmt lögum þarf hann hins vegar ekki að vísa piltunum
úr skólanum. Ráðuneytið hafði áður óskað eftir gögnum
og upplýsingum vegna málsins í kjölfar bréfs Vilmundar
Sigurðssonar, föður piltsins sem ráðist var á, um árásina
og viðbrögð skólayfirvalda. Hann hafði krafist þess að
þeim sem hlut ættu að máli yrði vísað úr skóla. Í svarbréfi
ráðuneytisins sagði að ekki væri ástæða til að kanna frek-
ar hvort skólameistari Fjölbrauta-
skóla Suðurlands, Fsu, hefði að þessu
leyti vanrækt starfsskyldur sínar.
„Ég held að við verðum að skoða
hvað við getum lært af þessu máli.
Hér hefur verið farið að öllum reglum
og þá hlýtur maður að spyrja sig hvort
reglurnar séu nógu góðar. Við munum
fara yfir þetta í ráðuneytinu. Það er
full ástæða til þess að skoða hvort
breyta þurfi lögunum,“ segir Katrín.
Spurð að því hvort henni sjálfri
finnist eðlilegt að árásarmennirnir verði áfram í skól-
anum segir hún: „Ég get svarað því þannig að ef ég
myndi lenda í svona atviki ætti ég mjög erfitt með að
mæta í skóla eða vinnu í framhaldinu. Ég held að allir
hljóti að hugsa þannig og þá hljótum við að velta fyrir
okkur hvað við getum gert til þess að bæta umhverfið fyr-
ir þá sem lenda í svona.“
Skólameistarinn, Örlygur Karlsson, kvaðst í gær vera
að hugsa málið. Tíma gæti tekið að fá niðurstöðu.
Skólameistari FSu end-
urskoði ákvörðun sína
Katrín
Jakobsdóttir
GRIPIÐ verður til víðtækra
aðhaldsaðgerða í rekstri
Orkuveitu Reykjavíkur og
dótturfélaga hennar. Hjör-
leifur B. Kvaran forstjóri
kynnti starfsfólki aðgerð-
irnar á fundi í gær.
Meðal annars verða laun
lækkuð, laun stjórnenda
lækka mest en laun undir
300 þúsund krónum á mán-
uði skerðast ekki. Ákvörð-
unin er tímabundin og haldnir hafa verið fundir
með forsvarsfólki stéttarfélaga starfsmanna
vegna hennar.
Aðhaldsaðgerðirnar koma til nú vegna áhrifa
efnahagskreppunnar á tekjur fyrirtækisins og
gjöld. Lögð verður áhersla á að verja grunn-
þjónustu fyrirtækisins og störf starfsfólks, skv.
tilkynningu frá OR.
Í samræmi við almennt samkomulag á vinnu-
markaði munu launahækkanir, sem ráðgerðar
voru 1. mars, ekki koma til framkvæmda. Þá
verða samningar um föst laun yfir 300 þúsund
krónum á mánuði endurskoðaðir. Jafnframt er
áformað að lækka laun stjórnarmanna OR.
Sparað í
rekstri OR
Hjörleifur B.
Kvaran