Morgunblaðið - 26.03.2009, Síða 7
Í HNOTSKURN
» Vigdís Hauksdóttir, lög-fræðingur hjá ASÍ tók
fyrsta sæti á framboðslista
Framsóknarflokksins í
Reykjavík suður.
» Vigdís segir að Gylfi Arn-björnsson hafi sagt að hún
yrði að velja á milli starfsins
og starfa hjá ASÍ.
» Framsóknarmenn hafagagnrýnt ASÍ harðlega
vegna málsins. „Áratugir eru
síðan fólk hefur a.m.k. op-
inberlega verið beitt þving-
unum og misrétti vegna
stjórnmálaskoðana,“ sagði
m.a. í yfirlýsingu frá flokkn-
um í gær.
lista stjórnmálaflokks og vera
starfsmaður Alþýðusambandsins.
Það var Vigdís sem óskaði eftir
starfslokum við þessar aðstæður og
varð það sameiginleg niðurstaða
okkar að þau yrðu þegar í stað.
Þótti mér miður að missa hana úr
starfi hjá lögfræðideild ASÍ enda
góður starfskraftur. Það hefur ekki
verið að því fundið þótt starfsmenn
ASÍ hafi sinnt pólitísku starfi. Í því
sambandi má nefna að Vigdís á
sæti í miðstjórn Framsóknarflokks-
ins, hefur verið varaþingmaður
flokksins og situr í nefndum og
ráðum á vegum flokksins. Nokkuð
sem okkur var fyllilega ljóst þegar
Vigdís var ráðin til starfa og við
töldum henni til framdráttar. Þegar
hins vegar svo er komið að fólk er
farið að leiða lista og á þingsæti
víst er rétt að leiðir skilji.“
Litið á þátttöku sem uppsögn
Vigdís sendi svo frá sér yfirlýs-
ingu undir kvöld þar sem hún seg-
ist hafa óskað eftir launalausu leyfi
við forseta ASÍ fram yfir kosn-
ingar. „Forseti ASÍ tjáði mér að ég
yrði að velja á milli starfs míns hjá
sambandinu og framboðsins og því
yrði litið á þessa þátttöku mína í
framboði Framsóknarflokksins sem
uppsögn af minni hálfu. Mér þótti
þetta skjóta skökku við í ljósi þess
að Gylfi hafði veitt öðrum starfs-
manni launalaust leyfi á meðan
hann væri í alþingisframboði fyrir
Samfylkinguna jafnframt því sem
fjöldamörg fordæmi eru fyrir því
að fólk í verkalýðshreyfingunni hafi
sinnt pólitískum störfum samhliða
störfum hjá hreyfingunni,“ segir
hún.
Gagnrýna ASÍ harðlega
vegna starfsloka Vigdísar
Ekki látin gjalda stjórnmálaskoðana sinna, segir forseti ASÍ
Gylfi Arnbjörnsson Vigdís Hauksdóttir
GYLFI Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
kvaddi sér hljóðs á aukaársfundi
sambandsins í gær til að gera grein
fyrir því hvers vegna Vigdís
Hauksdóttir hefði látið af störfum
sem lögfræðingur ASÍ í kjölfar
þess að hún tók 1. sæti á framboðs-
lista Framsóknarflokksins í
Reykjavík suður. Framsóknarmenn
gagnrýndu ASÍ harðlega í gær
vegna málsins.
Gylfi sagði það ekki eiga við nein
rök að styðjast, sem komið hefði
fram í viðtali við Vigdísi í DV, að
hún hefði verið látin gjalda stjórn-
málaskoðana sinna. Stjórn Lands-
sambands framsóknarkvenna for-
dæmdi í yfirlýsingu þá ákvörðun
forseta ASÍ að gera Vigdísi að
hætta störfum. „Með þessari
ákvörðun er ASÍ að sýna af sér
dæmalausa pólitíska misbeitingu
valds,“ sagði þar. Framsókn-
arflokkurinn sendi svo eftir hádegi
frá sér yfirlýsingu: „Það skýtur því
mjög skökku við að forseti ASÍ,
sem er áberandi áhrifamaður í
Samfylkingunni skuli neyða starfs-
mann sambandsins til að segja sig
frá starfi, vegna stjórnmálaþátt-
töku.“
Síðdegis sendi Gylfi frá sér yf-
irlýsingu þar sem hann segir m.a.
að Vigdís hafi hringt í hann 7. mars
sl. og tjáði honum að henni hafi
verið boðið þetta sæti á framboðs-
listanum.
„Við ræddum málin í mikilli vin-
semd og niðurstaðan var sú að það
færi ekki saman að leiða framboðs-
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
TAKA á aftur
upp sanngjarna
eignaskatta.
Þetta er ein
ályktananna sem
samþykktar voru
á landsfundi
Vinstrihreyfing-
arinnar – græns
framboðs, VG,
um síðustu helgi.
Þingflokkur
VG á að útfæra hvað sanngjarnir
eignaskattar eru, að sögn Lilju
Mósesdóttur, hagfræðings og
frambjóðanda flokksins.
„Það vannst ekki tími til þess að
ræða ítarlega hvað væru sann-
gjarnir skattar og þetta var látið í
hendur þingflokksins,“ segir Lilja.
Stækka þarf tekjustofninn
Hún getur þess þó að hugsunin
hafi fyrst og fremst verið sú að
taka upp eignaskatta í því formi
sem þeir voru til þess að stækka
tekjustofn ríkissjóðs í ljósi efna-
hagsástandsins. „Það var í um-
ræðunni að þeir yrðu eins og þeir
voru en það er ekki víst hvort það
verður niðurstaðan.“
Lilja bendir á að annars staðar á
Norðurlöndunum hafi skattstofn-
inn verið víkkaður út í fjármála-
kreppunni þar upp úr 1990. „Fyrst
og fremst var um að ræða tekju-
skattshækkun á hærri tekjur en
hún gekk til baka um leið og efna-
hagslífið fór að rétta úr kútnum
1994 til þess að örva enn frekar
þann vöxt sem var byrjaður. Við
munum hafa eignaskatta annars
staðar á Norðurlöndunum til við-
miðunar en þar hafa þeir verið um
tvö prósent.“
Eignaskattur féll niður hér á
landi frá og með álagningu 2006,
að því er kemur fram á vef rík-
isskattstjóraembættisins. Þar seg-
ir að eignaskatturinn vegna tekju-
ársins 2004 hafi verið 0,6 prósent.
Félög greiddu eignaskatt af öll-
um eignaskattsstofni. Hjá ein-
hleypingum var fríeignarmarkið
rétt undir fimm milljónum króna
en rétt undir 10 milljónum króna
hjá hjónum og sambýlisfólki.
Vinstri græn vilja
eignaskatta á ný
Lilja
Mósesdóttir
Eiga að vera sanngjarnir Ekki
vannst tími á landsfundi til útfærslu
Í HNOTSKURN
»Í ályktunum landsfundarVG segir að mikilvægt sé
að skattakerfið verði notað
markvisst til tekjujöfnunar
með þrepaskiptum tekjuskatti.
»Milliskattþrepið byrji ekkivið lægri tekjur en 500 þús-
und krónur.
»Kanna eigi kost þess aðskattleggja vaxtagreiðslur
úr landi.
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009
Þitt val •Það er
Hringdu
núna í síma
800 7000
og veldu þína
leið!
Lægsta
mínútuverðið
11,90 kr.
• Lægsta mínútuverð í GSM á
Íslandi, 11,90 kr. óháð kerfi
• Einn GSM vinur innan kerfis.
• Hentar þeim sem tala jafnan
lengi í hverju símtali.
• Nánari upplýsingar á siminn.is.
Sex vinir
óháð kerfi
• Veldu þér sex GSM vini
í hvaða kerfi sem er.
• Þetta er leiðin fyrir þá sem
hringja mest í sama fólkið
aftur og aftur.
• Nánari upplýsingar á
siminn.is.
Núll kr. mín.
í heimasíma
• Ekkert mínútugjald úr GSM
í alla heimasíma á Íslandi.
• Þrír GSM vinir innan kerfis.
• Nánari upplýsingar
á siminn.is.
eðaeða
Veldu þína leið og byrjaðu að spara!