Morgunblaðið - 26.03.2009, Page 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009
„FJÖLHÆFNI er styrkur Ice-
landair,“ sagði Birkir Hólm Guðna-
son, framkvæmdastjóri Icelandair,
þegar hann kynnti Seattle á vestur-
strönd Bandaríkjanna sem nýjan
áfangastað flugfélagsins á blaða-
mannafundi í gær. Það mun hefja
beint áætlunarflug fjórum sinnum í
viku milli Íslands og Seattle 22. júlí
næstkomandi.
Birkir sagði jafnframt að við
brotthvarf SAS af markaðnum milli
Skandinavíu og Seattle í sumar hefði
myndast tækifæri fyrir flugfélagið.
„Þetta er stór markaður sem við er-
um að fara inn á; mikið af gjaldeyr-
istekjum og hann er mjög mikilvæg-
ur, bæði fyrir Icelandair og
þjóðarbúið,“ sagði Birkir og bætti
við að stefnt væri að því að fljúga
með um 60.000 farþega á ári. Um
93% þeirra verði erlendir ferðamenn
og um 7% Íslendingar. „Þetta skapar
starfsvettvang fyrir um 100 starfs-
menn Icelandair og systurfélaga,“
sagði hann jafnframt.
Birkir bætti við að samkeppnis-
hæfni Icelandair á leiðinni milli
Seattle og Evrópu væri góð. Félagið
gæti boðið þriggja til fjögurra
klukkustunda styttri flugtíma en
aðrir gætu frá höfuðborgum Norður-
landanna og fleiri stöðum.
Meðalflugtími er sjö og hálf
klukkustund, sem er svipað og til Or-
lando í Flórída að sögn Birkis. Flog-
ið verður með Boeing 757-þotum,
sem eru sagðar hagkvæmari en þær
breiðþotur sem jafnan eru í förum
milli Seattle og Evrópu.
Seattle nýr áfanga-
staður Icelandair
Skapar vinnu fyrir 100 starfsmenn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hagkvæmar Boeing 757-þotur Icelandair þykja henta mjög vel í flugið.
Í HNOTSKURN
»Flogið verður frá Íslanditil Seattle á mánudögum,
miðvikudögum, föstudögum
og laugardögum kl. 17. Lent
kl. 16:45 að staðartíma.
»Frá Seattle verður flogið áþriðjudögum, fimmtudög-
um, laugardögum og sunnu-
dögum kl. 15:30. Lent kl. 6:45
á Keflavíkurflugvelli.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
ÖGMUNDUR Jónasson heilbrigð-
isráðherra kynnti í gær aðgerðir til
hagræðingar í rekstri svonefndra
Kragasjúkrahúsa, þ.e. Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja, St. Jósefs-
spítala í Hafnarfirði og Heilbrigð-
isstofnunar Suðurlands á Selfossi.
Hagræðing næst fyrst og fremst
með skertum kjörum en draga á
sem minnst úr allri þjónustu. Einn-
ig verður samstarf þessara stofnana
við Landspítalann aukið
Á fundi með blaðamönnum var þó
ekki útilokað að til einhverra upp-
sagna gæti komið. Draga á úr yf-
irvinnu og vaktagreiðslum til starfs-
manna, segja upp eða draga úr
verktakagreiðslum til lækna, hækka
aðstöðugjald þeirra, breyta verklagi
við mönnun aukavakta, fækka
stjórnunarstöðum, draga úr akst-
ursgreiðslum, hagræða í innkaup-
um, minnka rannsóknarkostnað og
skera niður náms- og ferðakostnað.
Innan ramma fjárlaga
Ráðherra sagði að með þessum
aðgerðum tækist stofnununum að
vera innan ramma fjárlaga. Sam-
anlagt þurfa Kragasjúkrahúsin að
skera niður um 400 milljónir króna
og Landspítalinn þarf að spara um
2,7 milljarða. Niðurskurður til heil-
brigðismála samkvæmt fjárlögum
nemur 6,7 milljörðum. Til viðbótar
nefndi ráðherra að lyfjakostnaður
yrði lækkaður um 1,3 milljarða og
framlög til heilsugæslu og öldrunar-
þjónustu minnkuð. Daggjöld til
öldrunarstofnana verða lækkuð um
1,4 milljarða og heilsugæslan á höf-
uðborgarsvæðinu þarf að skera nið-
ur um 240 milljónir.
Ráðherra benti á að launakostn-
aður væri 75-80% af rekstrarút-
gjöldum sjúkrastofnana. Bara með
því að lækka laun um 5% næðist
fram sparnaður upp á fjóra millj-
arða. Eingöngu yfirvinna á heil-
brigðisstofnunum nam 8,2 milljörð-
um á síðasta ári. Ögmundur
upplýsti svo í samtali við Sjónvarp
mbl.is að hann hefði afsalað sér ráð-
herralaunum.
Aðgerðir Ögmundur Jónasson kynnir aðgerðir til hagræðingar í rekstri sjúkrastofnana. Við hlið hans er Hulda
Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítalans, og Eyjólfur Eysteinsson frá hollvinasamtökum HSS á Suðurnesjum.
Spara með launalækkun
Fjórir millj-
arðar sparast með
5% lækkun launa
2.700
milljónir króna hjá
Landspítalanum
1.400
milljóna króna lægri dag-
gjöld til öldrunarstofnana
1.300
milljóna króna lækkun
á lyfjakostnaði
400
milljónir króna hjá
Kragasjúkrahúsunum
240
milljónir króna hjá
heilsugæslu höfuð-
borgarsvæðisins
SPARNAÐUR Í
HEILBRIGÐISKERFI
6.700
milljónir króna
Aðgerðir heilbrigðisráðherra á Kragasjúkrahúsunum
og Landspítalanum eru afrakstur vinnuhópa embætt-
ismanna ráðuneytisins, stjórnenda viðkomandi
sjúkrastofnana, sveitarstjórnarmanna og hollvina-
samtaka sjúkrahúsanna. Munu þessir hópar starfa
áfram við að útfæra frekara samstarf sjúkrahúsanna
og Landspítalans. Fulltrúar hópanna voru á blaða-
mannafundi með heilbrigðisráðherra og fögnuðu tals-
menn hollvinasamtakanna útfærslunni. Tekist hefði
að verja þjónustu stofnananna og störf sem flestra
starfsmanna.
Jafnframt tilkynnti Ögmundur Jónasson að sér-
greinalæknar utan sjúkrahúsa hefðu samþykkt að fresta boðaðri 9,8%
hækkun á einingaverði fyrir selda vinnu sem taka átti gildi 1. apríl. Sömu-
leiðis hefðu læknar á Ísafirði boðað að þeir myndu ekki þiggja greiðslur
fyrir að taka bakvaktir. Með því sparast um 12 milljónir króna. Ögmundur
sagði að svona róttækar breytingar næðust ekki fram nema með góðri
samvinnu við heimamenn og starfsfólk sjúkrastofnana.
Unnið með stjórnendum og hollvinum
Læknar taka á sig
kjaraskerðingu.
Ögmundur fær ekki ráðherralaun
MBL.IS | SJÓNVARP