Morgunblaðið - 26.03.2009, Side 15

Morgunblaðið - 26.03.2009, Side 15
Fréttir 15INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009 STUTT FRÆGT safn af íslenskum frímerkj- um verður boðið upp hjá uppboðs- fyrirtækinu Cavendish í London 23. apríl næstkomandi. Það er margra milljóna króna virði, að sögn Magna Magnússonar sem rekur Frímerkja- og myntverslun Magna á Laugavegi. Safnið átti Bretinn Angus Parker sem er látinn. Hann var ástríðu- fullur frímerkjasafnari og kortlagði nánast sögu póstþjónustu á Íslandi frá a til ö, þótt hann hafi aldrei til landsins komið. „Þetta safn er víð- frægt og þessi náungi var búinn að safna frá Íslandi í mörg ár og fékk verðlaun fyrir safnið sem hann sýndi hér,“ segir Magni Magn- ússon. Hann lýsir því hvernig Parker gætti verðmæta safnsins eins og sjáaldurs augna sinna. „Það var svolítið fyndið að hann þorði ekki að senda safnið með pósti,“ segir Magni. Jón Sólnes, bankastjóri á Akureyri, var í Lond- on og kom með safnið hingað en Magni varð sjálfur að fara út með það aftur í skjalatösku. Þá var Par- ker með ljósrit af safninu og fór yfir það hvort hver einasti hlutur hefði komið til baka. Búist við Íslendingum Magni reiknar með að Íslendingar mæti á uppboðið til að bæta inn í eigin frímerkjasöfn. Þótt uppboðið sjálft hefjist ekki fyrr en í lok apríl er hægt að skila skriflegum til- boðum nú þegar. Býst Magni við að safnið fari á margar milljónir króna og skýrir það með því hversu smátt upplag fyrstu íslensku frímerkjanna var. una@mbl.is Þorði ekki að senda frímerkin með pósti Safn Íslensk frímerki eru verðmæt vegna lítils upplags í upphafi.  Frægt safn íslenskra frímerkja á uppboði hjá Cavendish í London  Eigandinn gætti þess eins og sjáaldurs augna sinna Magni Magnússon Samfylking og Vinstri hreyfingin grænt framboð hafa komið sér saman um að Alþingiskosningar fari fram laugardaginn 25. apríl næstkomandi. Morgunblaðið mun daglega birta fréttir sem tengjast framboðum, próf- kjörum, kosningafundum o.fl. Kosningar 2009 Lækkun verður í maí Vegna frétta í blaðinu í gær um lækkun skulda heimilanna skal það leiðrétt að vísitala neysluverðs sam- kvæmt útreikningi í mars gildir til verðtryggingar í maí, ekki í næsta mánuði eins og sagði í fréttinni. Beð- ist er velvirðingar á þessu. Persónukjör Frétt Morgunblaðsins í gær um blaðamannafund forsætisráðherra mátti skilja svo að tvo þriðju hluta þingmanna þyrfti til að samþykkja frumvarp til stjórnlaga. Áréttað skal að ráðherrann átti við frumvarp um breytingu á kosningalögum, svokall- að persónukjör. LEIÐRÉTT FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavíkur- kjördæmi suður hefur verið sam- þykktur. Sjö efstu sætin skipa eft- irtaldir: 1. Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður 2. Ólöf Nordal, alþingismaður 3. Birgir Ármannsson, þingmaður 4. Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnmálafræðingur 5. Sigríður Ásthildur Andersen, lögfræðingur 6. Gréta Ingþórsdóttir, MA-nemi og fyrrverandi aðstoðarmaður forsætisráðherra 7. Grazyna María Okuniewska hjúkrunarfræðingur D-listi í Reykjavík- urkjördæmi suður Guðlaugur Þór Þórðarson VÖRÐUR – full- trúaráð sjálfstæð- isfélaganna hefur samþykkt fram- boðslista Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavíkurkjör- dæmunum. Fyrstu sjö sætin á listanum í Reykja- víkurkjördæmi norður er skipaður eftirtöldum: 1. Illugi Gunnarsson, alþingismaður 2. Pétur Blöndal, alþingismaður 3. Sigurður Kári Kristjánsson, alþingismaður 4. Ásta Möller, alþingismaður 5. Þórlindur Kjartansson, BA í hagfræði 6. Jórunn Ósk Frímannsd. Jensen, borgarfulltr. og hjúkrunarfr. 7. Guðrún Inga Ingólfsdóttir hag- fræðingur Illugi Gunnarsson D-listi í Reykjavík- urkjördæmi norður COLLAGENIST MEÐ PRO-XFILL KOLLAGEN ÁHRIF SKILA FYLLTARI HÚÐ GREINILEGUR ÁRANGUR. EKKERT INNGRIP. ENGIN ÁHÆTTA. NÝJUNG PRO-XFILL 7 ÁRA SÉRFRÆÐIÞEKKING SEM BEINIST AÐ 5 GERÐUM KOLLAGENS. HELENA RUBINSTEIN KYNNING Í LYF OG HEILSU KRINGLU 26. - 31. MARS Verðmæti kaupauka 12.600 krónur Einnig aðrar gerðir kaupauka *G ild ir m e ð a n b ir g ð ir e n d a st o g á k yn n in g u st e n d u r. G ild ir e k k im e ð 2 b lý ö n tu m . E in n k a u p a u k iá vi ð sk ip ta vi n . Kaupaukinn* þinn þegar þú kaupir tvær Helena Rubinstein vörur: - Snyrtibudda - Collagenist krem 15 ml - Collagenist augnkrem 3 ml - Prodigy farði 5 ml - Wanted gloss - Glorious maskari 2 ml - Silky eyes khol augnblýantur KJÖRDÆMISRÁÐ Frjálslynda flokks- ins í Norðaustur- kjördæmi hefur lok- ið við framboðslista sinn. 1. sæti listans skipar Ásta Hafberg Sigmundsdóttir verkefnastjóri, Axel Yngvason verka- maður 2. sætið og í 3. og 4. sæti eru Kári Þór Sigríðarson búfræðingur og Eiríkur Guðmundsson nemi. Ásta Hafberg efst í NA-kjördæmi Ásta Hafberg Sigmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.