Morgunblaðið - 26.03.2009, Blaðsíða 18
18 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009
GOOGLE-netfyrirtækið sagði í gær
að búið væri að loka fyrir aðgang
að YouTube-myndbandasíðunni af
hálfu Kínverja. Ríkisfréttastofan
Xhinhua í Kína sakar stuðnings-
menn Dalai Lama um að hafa sett
inn á vefinn falsað myndskeið þar
sem lögreglumenn sjást ganga í
skrokk á Tíbetum.
Líklegt er talið að átt sé við
myndskeið sem útlagastjórn Dalai
Lama setti inn á vefinn. Sýnir það
kínverska lögreglumenn ráðast inn
í Búddaklaustur í fyrra og berja
fólk sem mótmælir hernámi Kín-
verja. Talsmaður Google sagði að
fyrst hefðu menn séð að sendingar
frá Kína snarminnkuðu á mánudag
og á þriðjudag voru þær nánast
engar. Stjórnvöld í Peking ritskoða
með ýmsum hætti netsamskipti til
að stöðva gagnrýni. kjon@mbl.is
Kína lokar
YouTube
FRÉTTASKÝRING
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
Í MEXÍKÓ geisar blóðug styrjöld
og mannfallið bara á síðasta ári,
um 6.000 manns, var næstum jafn-
mikið og manntjón Bandaríkja-
manna í Írak sl. sex ár. Þar eigast
við 40.000 stjórnarhermenn og
handlangarar eiturlyfjabarónanna
og það, sem af er ári, liggja um
1.000 manns í valnum, óbreyttir
borgarar, hermenn, lögreglumenn,
blaðamenn og að sjálfsögðu liðs-
menn morðingjasveitanna.
Felipe Calderon, forseti Mexík-
ós, hefur lýst yfir stríði á hendur
eiturlyfjabarónunum og hann og
þjóðin hafa ekki efni á að tapa því.
Efnahagssamdrátturinn hefur
ekki farið mildari höndum um
Mexíkó en önnur ríki og nú er
skefjalaust ofbeldið farið að hafa
alvarleg áhrif á ferðamanna-
strauminn. Á það einkum við um
ferðamenn frá Bandaríkjunum en
stjórnvöld þar hafa varað fólk við
að leggja leið sína til Mexíkós.
Áhyggjur í Bandaríkjunum
Á blaðamannafundi Baracks
Obama Bandaríkjaforseta í fyrra-
kvöld hrósaði hann Calderon fyrir
það hugrekki að ráðast til atlögu
við eiturlyfjabarónana en Banda-
ríkjamenn hafa miklar áhyggjur
af, að óaldarinnar fari einnig að
gæta norðan landamæranna.
Vegna þess hefur Obama ákveðið
að fjölga verulega þjóðvarðliðum
við landamærin.
Ofbeldið og morðin eru flest í
bæjum og borgum skammt frá
bandarísku landamærunum enda
er meginmarkaðurinn fyrir eit-
urlyfin í Bandaríkjunum. Áætlað
er, að þangað sé smyglað eit-
urlyfjum frá Suður-Ameríku um
Mexíkó fyrir um 13 milljarða doll-
ara árlega.
Raunar er það svo, að morð-
verkin stórjukust eftir að stjórn-
arherinn lét til skarar skríða gegn
eiturlyfjahringunum en stjórnvöld
í Mexíkó segja, að það hafi verið
viðbúið. Mörgum glæpahópanna
hafi verið greidd þung högg,
margir foringjar þeirra og liðs-
menn verið felldir eða handteknir
og þá hafi tekið við blóðug barátta
innan þeirra og milli þeirra um
völdin.
Mikið að veði í stríðinu
Sumir óttast, að ástandið geti
leitt til borgarastríðs í Mexíkó en
stjórnvöld gera lítið úr því. Of-
beldið hefur ekki haft nein umtals-
verð áhrif á efnahagslífið eða
starfsemi helstu stofnana en ýmsir
ráðherrar viðurkenna, að mikið sé
í húfi. Gerardo Ruiz Mateos efna-
hagsráðherra sagði nýlega, að yrði
ekki tekið á eiturlyfjahringunum,
væri hætta á, að eiturlyfjabarón
yrði næsti forseti landsins.
Blóðug styrjöld í Mexíkó
Framtíð sjálfs mexíkóska ríkisins er í
húfi í stríðinu við eiturlyfjabarónana
Reuters
Í fjötrum Hector Huerta Rios, einn
eiturlyfjabarónanna, náðist í borg-
inni Monterrey í fyrradag. Hann er
sakaður um morð á lögregluforingja.
STJÓRN Baracks Obama í Banda-
ríkjunum vill nú fá víðtækari heim-
ildir til að taka ekki aðeins yfir
banka heldur líka ýmis fjármálafyr-
irtæki sem talin eru svo stór að
hrun þeira geti ógnað ríkinu. Er
bent á að hefðu heimildirnar verið
fyrir hendi myndi hafa verið auð-
veldara að taka af meiri festu á
málum tryggingarisans AIG.
Obama hélt fréttamannafund á
þriðjudagskvöld og reyndi að fylkja
þjóðinni að baki aðgerðum sínum
sem byggjast ekki síst á miklum
fjárstuðningi ríkisvaldsins við fyr-
irtæki til að hleypa lífi í efnahaginn
á ný. Óttast er að stóraukin seðla-
prentun til að fjármagna stuðning-
inn geti valdið óðaverðbólgu. For-
setinn sagði að í umræðum um
fjárlög, sem verða með einhverjum
mesta halla sem þekkst hefur í
manna minnum, væri hann reiðubú-
inn til málamiðlana á sumum svið-
um. En ekki öllum.
„Við gerðum aldrei ráð fyrir að
við myndum láta prenta fjárlaga-
frumvarpið og þeir [þingmennirnir]
einfaldlega ljósrita það og greiða
atkvæði,“ sagði Obama. En hann
myndi heimta að tekið yrði af krafti
á heilbrigðismálum, orkumálum og
menntamálum og gerð raunhæf til-
raun til að minnka fjárlagahallann.
Obama hugðist í gær hitta að máli
þingmenn demókrata sem hafa
sumir gagnrýnt tillögur stjórnvalda
en að vísu ekki jafn harkalega og
margir repúblikanar. Hinir síð-
arnefndu segja að stefna forsetans
bindi þjóðinni skuldaklafa er muni
sliga hana.
Mikið var spurt um kaupauka yf-
irmanna AIG sem hefur þegið millj-
arða dollara ríkislán. Margir fundu
að því að forsetinn hefði ekki
brugðist hratt við þegar málið kom
upp. Virtist fjúka í Obama þegar
hann var spurður um þessi seinu
viðbrögð. „Þetta tók nokkra daga
vegna þess að mér finnst betra að
vita hvað ég er að tala um áður en
ég tala,“ sagði hann höstugur við
fréttamanninn. kjon@mbl.is
Reuters
Í eldlínunni Obama á fréttamanna-
fundinum í Hvíta húsinu.
Obama í
orrahríð
SÍMAFYRIRTÆKI innan Evrópu-
sambandsins geta ekki lengur
ákveðið gjald fyrir SMS-skeyti frá
öðru landi. Nú hefur verið sett þak
á það og hámarksgjaldið verður
rétt rúmar 20 kr. ísl. Það þýðir í
raun 60% verðlækkun.
Það, sem olli því, að ESB ákvað
að grípa inn í verðlagningu síma-
fyrirtækjanna, var, að oft biðu fólks
himinháir reikningar vegna SMS-
sendinga er það kom heim úr fríi.
Verðþak verður einnig sett á
gjald fyrir netflutninga milli síma-
fyrirtækja. Frá 1. júlí nk. verður
það ein evra, 156 kr., fyrir mega-
bætið og 1. júlí 2011 lækkar það um
helming. Búist er við, að þessar
breytingar verði samþykktar á
Evrópuþinginu í apríl og síðan í
ráðherraráðinu. svs@mbl.is
SMS lækkað
um 60%
HOLLENSK smábörn í þvottabölum sem fylltir
hafa verið vatni til að leyfa þeim að slaka svolítið
á eftir að hafa fengið ungbarnanudd á námskeiði
fyrir ungar mæður. Í bölunum er reynt að líkja
eftir hlýjunni og þægindunum í móðurkviði.
Heimildarmenn segja að ungbarnanudd hafi ver-
ið stundað þegar í fornöld og einkum á Indlandi
en tiltölulega nýlega breiðst út til Vesturlanda.
Nuddið er m.a. sagt efla trúnaðartraust barnsins
og bæta svefninn. Námskeiðið fór fram í IJmui-
den, stærstu borginni í héraðinu Velsen í norð-
anverðu Hollandi.
Hollt að slaka á í volgu vatni eftir að hafa fengið nudd
Reuters
Sullað í Þvottabalalandi
RÚM milljón manna verður án mat-
væla í Darfur-héraði í Súdan í maí ef
ekki verður hægt að hefja á ný hjálp-
arstarf sem þrettán erlendar hjálp-
arstofnanir önnuðust þar til súdönsk
stjórnvöld vísuðu þeim úr landi.
Hætta er á miklum skorti á
drykkjarvatni innan tveggja til
þriggja vikna, að mati fulltrúa Sam-
einuðu þjóðanna og stjórnvalda í
Súdan.
Alls var 3.142 starfsmönnum
þrettán stofnana vísað úr landi eftir
að Alþjóðasakamáladómstóllinn gaf
út handtökutilskipun á hendur Omar
al-Bashir, forseta Súdans, sem sak-
aður er um stríðsglæpi í Darfur. Al-
Bashir sakar hjálparstofnanirnar
um að hafa njósnað fyrir dómstólinn.
Ameerah Haq, sem samhæfir
hjálparstarf SÞ, sagði að mjög erfitt
yrði að hefja hjálparstarfið að nýju í
Darfur, einu afskekktasta héraði
heims. „Allt að 650.000 manns hafa
ekki aðgang að fullri heilbrigðisþjón-
ustu núna.“
Allt að 300.000 manns hafa látið
lífið af völdum stríðsins í Darfur frá
febrúar 2003 og 2,7 milljónir hafa
flúið heimkynni sín. bogi@mbl.is
Rúm milljón manna í
hættu í Darfur-héraði
Hætta á vatnsskorti á næstu vikum og hungursneyð í maí
Í HNOTSKURN
» Forseti Súdans fór í heim-sókn til Egyptalands í gær
þrátt fyrir handtökutilskip-
unina á hendur honum.
» Egypskum stjórnvöldumber ekki lagaleg skylda til
að handtaka forsetann þar
sem Egyptar hafa ekki und-
irritað stofnsáttmála
Alþjóðasakamáladómstólsins.