Morgunblaðið - 26.03.2009, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 26.03.2009, Qupperneq 24
24 UmræðanKOSNINGAR 2009 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009 Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn sem hefur haft hugrekki og þor í endurnýjun á for- ystu og framboðslistum flokksins. Búsáhaldabylt- ingin kallaði ekki einungis eftir kosningum heldur nýju fólki, hugmyndum og gildismati við stjórnun þessa lands. Framsókn- arflokkurinn hefur svarað þessu ákalli en það sama verður ekki sagt um aðra flokkar. Ég kalla það ekki endurnýjun á framboðslistum að fyrrverandi ráðherrar séu áfram ým- ist oddvitar eða þeir færist örlítið neðar á framboðslista. Ég kalla það ekki endurnýjun að þeir sem hafa set- ið hér bæði í stjórn og stjórnarand- stöðu síðustu áratugina ætli að sitja sem fastast áfram. Fyrir mér er það sama innihaldið, sömu hugmynd- irnar, sama gildismatið í nýjum jakka og kannski með nýtt bindi. Við þurfum nýjar lausnir, hug- myndir og gildismat og þessu hefur Framsóknarflokkurinn svarað. Flokkurinn hefur lagt fram tillögur að að- gerðum í 18 liðum hvernig bregðast megi við fjár- hagsvanda íslenskra heimila og atvinnulífs. Ég hef ekki séð þess háttar tillögur frá öðrum flokk- um sem virðast ennþá eiga erfitt með að horfast í augu við það að á Íslandi ríkir neyðarástand og í slíku ástandi þarf neyð- araðstoð, ekki skyndi- hjálp. Við þessar aðstæður þarf að skoða allar hugmyndir og lausnir því við höfum ekki efni á því að bíða eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um Evrópu- sambandið. Það þarf aðgerðir núna til handa heimilum og fyrirtækjum í landinu en ekki einhvern tíma seinna. Þess vegna þurfum við framsýnt fólk sem þorir að koma með lausnir og þorir að taka erfiðar ákvarðanir varð- andi uppbyggingu landsins. Framsókn svarar ákalli um endurnýjun Eftir Ástu Rut Jónasdóttur Ásta Rut Jónasdóttir Skipar 2. sæti á lista Framsóknarflokks- ins í Reykjavík norður. Okkur sem er mikið í mun að fá persónulega þjónustu í höfuðborg- inni líkaði lengst af best við Sparisjóð Reykjavíkur og ná- grennis. Mörgum okk- ar þótti eflaust sem fjárafla ævinnar, hóf- legum vinnulaunum, væri þar vel borgið, yf- irsýnin einföld, traustið gott og fyrirgreiðslan til fyr- irmyndar. Mörg okkar kunna vel við smáar einingar sem heimila manni að hafa einhver samfélagsleg tengsl í borg- inni við aðra en fjölskyldu og vini. Okkur langar nefnilega enn að fara til kaupmannsins á horninu, í bókabúð- ina með starfsfólki sem er frótt um bækur og við kunnum því vel að tala við bakarann í næstu götu. Jarðýtur tillits- lausrar samkeppni, óheftra eigin umsvifa og brenglaðs fjármálavits hafa rutt hverju smáu eða meðalstóru þjón- ustufyrirtækinu á fætur öðru í gröfina og hirt viðskiptavild þeirra. Því miður fyrir samfélagið. Við erum mörg sem ekki skildum hvernig takmarkað stofnfé SPRON gat gengið kaupum og sölum og orðið að auði til að spila með risapó- ker. Við erum mörg sem vildum ekki hlutafélagavæða sparisjóðinn okkar og réðum ekki neinu um hvernig ein- faldri hugsjón um einfalda grunn- þjónustu við bankaþurfandi ein- staklinga breyttist í glötun. En nú hefur bankanum mínum verið lokað af illri nauðsyn þegar bæði fé og fyr- irhyggja voru þrotin og ég leiddur nauðugur til annarrar bankastofn- unar sem ég hef mjög takmarkaðan áhuga á, með fullri virðingu fyrir starfsfólki hennar. Ég veit ég mæli fyrir margra munn og ég veit að við söknum þús- undum saman Öldu, Bárðar og allra hinna, auk grunngilda sparisjóðsins. Hafið þakkir fyrir áratugina, starfs- fólk SPRON, og vegni ykkur vel þrátt fyrir allt. Að lokum skrifa ég setningu sem margir Reykvíkingar hafa haft yfir: Við viljum aftur al- mennan sparisjóð eins og SPRON var. Aftur SPRON – takk Ari Trausti Guðmundsson saknar SPRON Ari Trausti Guðmundsson »Ég veit ég mæli fyrir margra munn og ég veit að við söknum þús- undum saman Öldu, Bárðar og allra hinna, auk grunngilda spari- sjóðsins. Höfundur var viðskiptavinur SPRON. SVIPTIVINDAR viðskiptalífsins á síð- ustu árum hafa feykt rekstri margra góðra fyrirtækja í óefni, og víða er vá fyrir dyr- um. Nýlega bárust fregnir af því að Kaupþing hefði neyðst til að taka rekstur Pennans yfir tímabundið, væntanlega með það að markmiði að koma fyrirtæk- inu sem fyrst í hendur nýrra eig- enda. Penninn hefur m.a. rekið keðju bóka- og ritfangaverslana undir merkjum Pennans/Eymundssonar, en jafnframt Bókabúð Máls og menningar. Verslanirnar eru bæði reknar hér á höfuðborgarsvæðinu og í mörgum stærri byggð- arkjörnum landsbyggðarinnar. Óhætt er að segja að þessi versl- anakeðja sé hryggjarstykkið í þeirri miklu menningarmiðlun sem bókverslanir standa fyrir á Íslandi, þó að ýmsir smærri aðilar hafi vissulega líka staðið vaktina. Vel rekin og aðlaðandi bóka- og rit- fangaverslun er svo miklu meira en einungis verslun – þegar best tekst til eru slíkar verslanir sannkallaðar menning- armiðstöðvar sem krydda samfélag okkar svo um munar, Bóka- búð Máls og menning- ar á Laugavegi 18 og Eymundsson í Austur- stræti eru afbragðs dæmi. Mér finnst eigendur Pennans hafa lagt alúð við þennan rekstur um allangt skeið, þó land- vinningaáráttan hafi leitt fyr- irtækið í ýmsar áttir aðrar síðustu misserin. Verslanirnar eru yfirleitt fallega innréttaðar, snyrtilegar og alveg sérlega vel mannaðar. Þarna vinnur fólk sem hefur áralanga og dýrmæta reynslu af umgengni við bækur og miðlar sinni þekkingu af ástríðu. Þetta eru sérverslanir sem rísa undir nafni. Það er von mín að þeir sem að annast málefni Pennans fyrir hönd Kaupþings geri sér glögga grein fyrir því hversu mikil verðmæti fel- ast í starfsfólkinu og gæti þess til hins ýtrasta að riðla þeim góða hópi ekki, meðan leitað er verðugs kaup- anda. Samviskulitlir kaupahéðnar hafa með framferði sínu síðustu miss- erin komi hálfgerðri bölvun á hið fallega orð viðskiptavild, en fram- ferði þeirra má ekki verða til þess að við gleymum því að kunnátta og þekking starfsfólks mun ævinlega færa vild með viðskiptunum sem er ómetanleg. Það verður seint ítrek- að um of að íslenskur bókamark- aður er sérlega viðkvæmur, enda er málsvæðið lítið. Bókaforlögin hafa um allmargra ára skeið unnið við mjög lága álagningu, en engu að síður tekist að halda verði á bók- um í lágmarki, og þar hafa bóka- verslanirnar líka lagt sitt af mörk- um. Enda er til þess tekið nú á krepputímum hversu vel bókin heldur velli. Útgáfufyrirtækin eiga allt sitt undir því að dreifileiðir frá forlögum til lesenda séu greiðar, og þar gegna verslanirnar í Penna- keðjunni lykilhlutverki. Íslenskir bókaútgefendur eiga því afar mikið undir því að Kaup- þingi farnist gæfulega í meðhöndl- un sinni á Pennanum, ógætileg meðferð gæti auðveldlega leitt ógæfu yfir greinina í heild sinni sem ylli því að íslensk bókmenning biði mikinn skaða af. Ég þykist líka sannfærður um að ef sýnin er skerpt á kjarnann í bóka- og ritfangaverslununum sé fyrirtækið afar vel rekstrarhæft. Bóksala er miðlun menningar Sigurður Svav- arsson skrifar um gildi þess að hafa fjölbreytta versl- unarflóru Sigurður Svavarsson » Vel rekin og aðlað- andi bóka- og rit- fangaverslun er svo miklu meira en einungis verslun heldur miðlar hún menningu og kryddar samfélagið Höfundur er útgefandi. EÐLILEGAR ákvarðanir geta valdið mikilli ólgu við óeðlileg- ar aðstæður. Það gerðist þegar stjórn HB Granda hf. ákvað að greiða eig- endum fyrirtækisins arð sem nam 8% af hagnaði síðasta árs. Það má taka undir það sjónarmið að arðgreiðslan sé hófleg. En það eru ekki eðlileg- ar aðstæður og kemur tvennt til. Annars vegar voru samtök launa- fólks búin að semja um að gefa eftir um ótiltekinn tíma 13.500 kr. kaup- hækkun á hverjum mánuði til þess að koma til móts við erfiðleika í at- vinnurekstri. Starfsfólk HB Granda hf. lagði þannig inn til fyrirtækisins hluta af launum sínum án þess að fá nokkuð í staðinn, en vildi með því treysta grundvöll fyrirtækisins. Þá getur ekki gengið að eigendurnir gangi á lagið og taki til sín framlag launamanna og meira til, enda fór ólgan um þjóðfélagið eins og eldur í sinu. Hitt sem er óvenjulegt er að Al- þingi ákvað með sérstökum lögum í desember 2007 að gefa útgerðarfyr- irtækjum eftir um tveggja ára skeið stóran hluta af gjaldi sem þau eiga að greiða í ríkissjóð fyrir afnot af fiskimiðunum. Eftirgjöfin nam tæp- lega 60% af gjaldinu og er nærri 1200 milljónir króna. Veiðar á þorski voru minnkaðar um þriðjung og til þess að mæta erfiðleikum sem því fylgdi var gjaldið, sem greiða á í ríkissjóð fyrir veiðar á þorski, fellt niður að fullu í tvö ár. Gjaldið fyrir veiðar á öðrum fisktegundum var lækkað um helming af sömu ástæðu. Löggjöfin felur í sér beinan ríkisstuðning til útgerðarinnar fisk- veiðiárin 2007/8 og 2008/9 og er framlag skattgreið- enda landsins til fyr- irtækjanna. Nú hefur verið dregið úr nið- urskurðinum í þorsk- veiðum um helming og vandi útgerðarinnar minnkað sem því nemur, en hún nýtur áfram óskerts ríkisstuðnings. Bæði launamenn og rík- issjóður eru að styrkja fyrirtæki í útgerð með því að gefa eftir af sín- um hlut og það verða eigendur fyr- irtækjanna að hafa í huga við ákvörðun um arðgreiðslur. Til viðbótar er rétt að minna á hinn varanlega ríkisstyrk til útgerð- ar sem felst í heimildum til framsals veiðiheimilda. Sá sem hefur heimild undir höndum þarf aðeins að greiða ríkinu 2,42 kr./kg fyrir og getur framselt öðrum heimildina gegn gjaldi án nokkurrar takmörkunar á því. Leiguverðið er um þessar mundir um 160 kr./kg fyrir þorsk- veiði en var til skamms tíma mun hærra eða um 250 kr./kg. Með fram- salinu getur útgerðaraðili rakað til sín fé án nokkurs tilkostnaðar og hefur nánast sjálfdæmi um gjald- töku í eigin vasa fyrir veiðar á Ís- landsmiðum. Hundruð milljarða króna hafa runnið til fáeinna manna á síðustu 15 árum vegna fram- salsákvæða laganna. Af þeim pen- ingum hefur ríkið fengið sáralítið en eftir eru skuldirnar og það verður viðfangsefni sjómanna og fisk- veiðafólks að greiða þær á næstu ár- um með vinnu sinni. HB Grandi hf. hefur verið stórtækur í leigu á veiði- heimildum. Á síðasta fiskveiðiári mun fyrirtækið hafa leigt frá sér jafngildi um 3.700 tonna af þorski eftir því sem næst verður komist og um 1.700 tonn á því yfirstandandi. Tekjurnar af leigunni nema hundr- uðum milljóna króna og víst er að þær jafngilda ríflegum ríkisstyrk sem rennur í gegnum fyrirtækið og endar sem arðgreiðslur til eigenda. Það má kannski kalla þetta hina fullkomlega einkavædda skatt- heimtu þar sem skattheimtumað- urinn þarf engu að skila til ríkisins fyrir afnot af skattstofninum. Þetta er engu skárra fyrirkomulag en ótínd glæpastarfsemi sem verður að uppræta með harðri hendi. Ríkisstyrkur í sjávarútvegi Eftir Kristin H. Gunnarsson Kristinn H. Gunnarsson Höfundur er alþingismaður. UMRÆÐAN Flettu upp nafni fermingarbarnsins mbl.is FERMINGAR 2009 NÝTT Á mbl.is SVO SPYRJA ágætir tvímenningar í grein í Mbl. þann 3.3. Þeir hafa áður fjallað um Icesave og þótt vit mitt á lög- fræði sé takmarkað, þá finnast mér rök tvímenninganna sér- staklega sannfærandi í nefndri grein. Það nægir ekki íslenskum stjórnvöld- um, enda skiptir þar meira málið svarið við spurningu fyrirsagn- arinnar. Íslensk stjórnvöld eru í liði með alþjóðasjóðnum, sem er í liði með Evrópusambandinu. Hugsanlega afsakanlegt eins og hrunið. Einhver hinna nýju sam- taka almennings ættu að ganga í lið með tvímenningunum og taka málshöfðun að sér. Betra að fjalla um málefni en að næra tilfinn- ingar í stríðsdansi. Það sem ég hef þó meiri áhyggjur af en Icesave er pen- ingakerfið. Nauðsyn- legt er að afnema gjaldeyrishöft strax og lækka vexti. Jafn- vel þótt alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn vilji það ekki. Ég á eftir að sjá vinaþjóðir hætta við stuðning þess vegna. Annars, það sem almanna- samtök gætu gert er eftirfarandi: 1. Keypt allan gjaldeyri sem fá- anlegur er í íslenskum bönkum. 2. Farið út og keypt alla ís- lenska seðla sem til eru í Evr- ópska seðlabankanum og við- skiptabönkum í Evrópu. 3. Keypt einhverja gjaldþrota sparisjóði og farið að lána þaðan Íslendingum með 5% vöxtum án verðtryggingar (hagnaðurinn af gjaldeyrisviðskiptunum nægir fyrir jákvæðri afkomu fyrstu mánuðina, en svo kemst verðbólg- an undir 2%). 4. Nota hagnaðinn í málsókn á hendur Bretum. Ath. Skref 1 má ekki standa lengur en í 20 daga. Annars er ljóst að ríkisvaldið má ekki halda áfram að skrökva því að þegnunum að það geti tryggt spariféð. Hugsanlega fæst einhvern tíman alþjóðlegt trygg- ingakerfi sparifjár, sem getur haft gætur á bönkum. Það er þó líklega lengra í það en svo, að bankakerfi ESB fer á hausinn einu sinni enn, ef ESB ætlar að halda fast við þessa hugsun. Hugsun embættismanna ESB er álíka vitlaus eins og við þekktum hjá íslenskum embættismönnum fyrir 1980. Í hvaða liði? Halldór I. Elíasson skrifar um pen- ingakerfið »Nauðsynlegt er að afnema gjaldeyr- ishöft strax og lækka vexti. Jafnvel þótt al- þjóða-gjaldeyrissjóð- urinn vilji það ekki. Halldór I. Elíasson Höfundur er stærðfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.