Morgunblaðið - 26.03.2009, Side 30

Morgunblaðið - 26.03.2009, Side 30
30 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009 ✝ Auðun Hlíðar Ein-arsson fæddist á Hallgeirsstöðum í Jök- ulsárhlíð 4. júlí 1941. Hann lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 19. mars sl. Móðir hans er Lára Stefánsdóttir, f. 20. jan. 1918. Faðir hans var Hrafnkell Elísson, f. 14. sept. 1906, d. 9. apríl 1989. Systkini Auðunar eru: Stef- anía, f. 1936, Elís Jök- ull, f. 1937, Einar Orri, f. 1939, Dvalinn, f. 1940, Ásta Har- alda, f. 1942, Haraldur, f. 1944, Gyða Vigfúsdóttir, f. 1945 (ættleidd), Sig- þór Þorgrímsson, f. 1946 (ætt- leiddur), Auðbjörg Halldís, f. 1948, Eiríkur Helgi, f. 1949, Þórarinn Val- geir, f. 1951, Alda, f. 1952, Benedikt, f. 1953, Björgvin Ómar, f. 1958, Hulda, f. 1959. Auðun var ættleiddur þegar hann var á öðru ári, til lækn- ishjónanna á Eskifirði, Einars Ást- ráðssonar, f. 6. feb. 1902, d. 6. ágúst 1967, og Guðrúnar Guðmundsdóttur, Faðir hennar er Rúnar Ólafur Ax- elsson, b) Hjalti, f. 2. okt. 1998, c) Björg, f. 4. nóv. 2001. Faðir þeirra er Sigurgeir Guðbjörnsson. 2) Hann- es Ástráður flugvirki, f. 26. feb. 1973, búsettur í Vestmannaeyjum, í sambúð með Heiðu Björk Mar- inósdóttur húsmóður. Synir Hann- esar eru: Gunnar Pálmi, f. 4. ágúst 1996. Móðir hans er Kristjana Gunn- arsdóttir. Sonur Hannesar og Heiðu er Auðun Benedikt, f. 29. júní 2007. Börn Heiðu frá fyrri samböndum eru: Anita Mary Kristmannsdóttir, f. 9. maí 1993, og Sigurvin Marinó Ramsdal, f. 14. apríl 2000. 3) Katrín verkfræðingur, f. 23. okt. 1978, bú- sett í Hafnarfirði, gift Birni Odds- syni jarðvísindamanni. Dóttir þeirra er Charlotta Karen, f. 2. des. 2008. Auðun kenndi í mörg ár við Æf- inga- og tilraunaskóla KÍ (nú Há- teigsskóli), Landakotsskóla, Iðn- skólann í Reykjavík, Fjölbrautaskólann í Breiðholti og fleiri skóla. Hann hafði mikinn áhuga á endurbyggingu torfbæja og gamalla húsa og sá m.a. um end- urbyggingu á Gömlu-Búð á Eski- firði, Kirkjubæjarkirkju í Hróars- tungu, Galtastöðum frammi í Hróarstungu, Sænautaseli í Jökul- dalsheiði, Hrafnseyri við Arnarfjörð og Stekkjarkoti í Njarðvík. Útför Auðunar verður gerð frá Neskirkju í dag, 26. mars, kl. 13. f. 12. apríl 1906, d. 2. okt. 1971. Þau hjónin áttu fyrir tvær dætur, Björk, f. 20. apr. 1930, d. 8. júní 2003, og Ingu Valborgu, f. 29. nóv. 1928. Auðun ólst upp á Eskifirði en flutti suð- ur með foreldrum sín- um eftir fermingu. Hann fór í Iðnskólann í Reykjavík þar sem hann lærði trésmíði og starfaði við það þar til hann fór í Kenn- araskólann og lauk þaðan handavinnukennaraprófi vor- ið 1968. Í Kennaraskólanum kynntist hann konu sinni Karenu Tómasdóttur, f. 21. júlí 1947. Þau giftu sig 19. júlí 1969. Foreldrar Karenar voru: Tóm- as Vigfússon, f. 24. júní 1906, d. 1. feb. 1974, og Katrín Norregaard Vigfússon, f. 28. mars 1904, d. 11. jan. 2000. Börn Auðunar og Karenar eru: 1) Halla bókari, f. 27. apríl 1971, búsett á Seltjarnarnesi, börn hennar eru: a) Auður Hlín, f. 6. mars 1990. Farinn er góður félagi og lifandi sál. Mágur minn, Auðun Einarsson, er ekki lengur á meðal okkar, hafði reyndar haft áralanga fjarveru úr heimi vitundarinnar fyrir andlát sitt. (Er reyndar ekki viss um að honum hefði verið nein sérstök ánægja að upplifa atburði síðustu ára í íslensku þjóðlífi.) Við sem þekktum þennan atorkusama al- þýðuvin minnumst hans fyrir fjöl- þætta hæfileika. Hann var kennari af Guðs náð. Smíðaefni hvers kyns lék í hönd- um hans, einkum ef um viðarteg- undir var að ræða. Áhugi hans fyrir þjóðmálum var ódrepandi og átti lítilmagninn traustan málsvara þar sem Auðun var. Menningararf feðranna bar hann fyrir brjósti, sleppti engu tækifæri til að kynnast honum sem nánast og deila honum með sam- ferðafólki. Í heimsóknum hans bar jafnan margt á góma, pólitíkina, safnamálin, uppeldismál og svo auðvitað það sem hann var að fást við í það og það skiptið, sem var ótrúlega margt og fjölbreytilegt. Má í því efni minnast byggingar Galtastaðabæjarins, Sænautasels, húsakynna á Hrafnseyri. Meðfram þessu kom hann fjölskyldu sinni upp afar heimilislegum sumarbú- stað í ættarlendunni í Tungási á Hallgeirsstöðum. Þegar hann hafði talað fyrir daufum eyrum ráða- manna átti hann það til að nýta einkaframtak í óhefðbundnum skilningi. Þannig átti hann frum- kvæði að því að Héraðsskjalasafn Austfirðinga gefur árlega út jóla- kort, þar sem fræðimanna er minnst í texta. Veit ég ekki betur en að fyrstu kortin hafi hann gefið út á eigin kostnað, þar sem for- stöðumaður safnsins, sem þó var ágætur vinur hans, taldi sig ekki hafa leyfi til að brúka sjóð stofn- unarinnar í því skyni. Auðun var ekki bundinn af því að aðrir gerðu hlutina sem hann vildi koma áfram. Hann hafði alveg einurð til að grípa inn í sjálfur, einmitt þegar mest þurfti. Hef þetta ekki lengra. Meira er um vert að hafa gengna ágæt- ismenn sem fyrirmyndir en að mæra þá í langhundum. Megi þau Karen, börn ykkar og systkini þín komast yfir ástvinarmissinn og njóta margra góðra stunda í fram- tíðinni. Huggunin er sú hamingja sem þú veittir hverja nærveru- stund. Haf þökk fyrir frábær kynni af þér og þinni stóru fjölskyldu. Sigurjón Bjarnason. Látinn er kær mágur og vinur, Auðun Hlíðar Einarsson. Andlát hans kom okkur sem næst honum stóðum vissulega ekki á óvart, en engu að síður var kveðjustundin ótímabær, við hefðum öll viljað eiga samleið með honum miklu lengur. Auðun hafði átt við erfið veikindi að stríða í nær 10 ár. Alzheimer- sjúkdómurinn er lúmskur og óvæg- inn og það var sár reynsla að fylgj- ast með því hvernig þessi hrausti og þróttmikli maður, þá rétt um sextugt, varð hægt og sígandi að lúta í lægra haldi fyrir vágestinum. Síðustu árin dvaldi Auðun á Dval- arheimilinu Grund og þar naut hann umhyggju og hjúkrunar eins og hún gerist best. Þeir sem kynntust Auðuni eru líklega á einu máli um að hann átti fáa sér líka. Hann var jafnan hlýr og glaður í bragði, honum þótti notalegt að spjalla og átti þá oft til hnyttin til- svör og skemmtilega sýn á menn og málefni. En fyrst og fremst vildi hann láta eitthvað gott og jákvætt af sér leiða bæði fyrir sína nánustu og þjóðfélagið. Við systur ólumst upp á heimili þar sem borin var virðing fyrir fal- legum hlutum og góðri handiðn. Síðan kom Auðun til sögunnar og hann lyfti þessu öllu upp á hærra plan. Hann var ótrúlega hagur og hafði næmt auga fyrir að útfæra fallega hluti. Þessir eiginleikar hans nutu sín vel í blindramma- smíði fyrir listamenn. Þá var hann sérhæfður í bókbandi. Bækurnar sem hann batt inn, nytjagripirnir og húsgögnin sem hann smíðaði og síðast en ekki síst byggingarnar sem hann tók að sér bera þessu öllu fagurt vitni. Líklega ber hér hæst áhugi hans og ósérhlífni við að end- urreisa heiðarbýlið Sænautasel á Jökuldalsheiði og einnig Sjóminja- safnið á Eskifirði. Auðun ólst upp á Eskifirði og hann þekkti fólk, lifn- aðarhætti og byggingarsögu Aust- urlands betur en flestir aðrir. Ekki var hægt annað en að smitast af þessum áhuga hans og það var æv- intýri líkast að njóta leiðsagnar hans og Karenar á bernskuslóðun- um fyrir austan. Þrátt fyrir löng og erfið veikindi varð Auðun mikillar gæfu aðnjót- andi. Karenu sína elskaði hann og dáði. Hún bjó þeim einstaklega fal- legt heimili og gerði honum kleift að sinna fjölmörgum hugðarefnum sínum á meðan heilsan leyfði. Börnin og barnabörnin áttu hug hans allan og hann ræktaði vel samband sitt við stóran systkina- og vinahóp. Þá er komið að leiðarlokum. Það kann að hljóma undarlega en síð- astliðin ár hafa verið okkur systr- um og fjölskyldum okkar dýrmæt reynsla. Að fylgjast með því hvern- ig Karen og börnin tókust á við erf- ið veikindi hans hefur verið okkur mikill lærdómur. Allar ákvarðanir voru teknar af yfirvegun og vænt- umþykju og með það í huga að Auð- un mætti halda reisn sinni sem lengst. Jafnframt tókst þeim á þessum árum að njóta alls þess góða sem lífið hefur upp á að bjóða. Í okkar huga er Karen litla systir vissulega stór og sterk og svo óend- anlega rík. Mannvænleg börn, tengdabörn og barnabörn eru hennar ríkidæmi og þá ekki síður allar dýrmætu minningarnar um elskaðan eiginmann, föður og afa. Megi þær veita þeim öllum styrk og huggun í sorginni. Hvíli Auðun í Guðs friði. Elsa og Guðbjörg. Með örfáum orðum langar okkur hjónin og börnin að þakka Auðuni fyrir margar góðar og skemmtileg- ar samverustundir bæði hér hjá okkur í Skopun og víða í Færeyj- um. Ekki má heldur gleyma sam- verustundunum heima á Íslandi. Það var yndislegt koma til ykkar í sumarbústaðinn. Auðun var alltaf svo hlýr heim að sækja og alltaf gaman að koma á Víðimelinn til ykkar. Þið hjónin, Karen mín, hafið verið svo dugleg að heimsækja okk- ur í Færeyjum og börnin ykkar stundum með. Það var svo notalegt Auðun Hlíðar Einarsson ✝ Kristján BergurÁrnason fæddist á Hæringsstöðum í Svarfaðardal 26. júlí 1960. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Ak- ureyri laugardaginn 14. mars 2009. Hann var níundi í röð ellefu systkina. Kristján Bergur var sonur hjónanna Bergþóru Stefánsdóttur, f. 10. nóvember 1920, d. 19. desember 2007 og Árna Jónssonar, f. 29. maí 1920, d. 26 janúar 1969. Kristján Bergur kvæntist 11. desember 1982 Margréti Stef- ánsdóttur. Foreldrar hennar voru Stefán Rósantsson og Helga Guð- mundsdóttir, Gilhaga í Skaga- firði. Margrét var yngst af 7 systkinum. Kristján og Mar- grét eignuðust þrjú börn: Berglindi, f. 6. júlí 1982, Einar Erni, f. 27. október 1986 og Þóri Arnar, f. 22. febrúar 1993. Fyrir átti Margrét Hugrúnu Helgu, f. 10. júní 1977. Kristján Bergur fluttist fjórtán ára gamall, ásamt móð- ur sinni og systk- inum, til Akureyrar. Hann vann ýmis störf á Akureyri þar til árið 1990 þegar hann hóf eigin atvinnu- rekstur með vörubíl. Árið 1998 stofnuðu þau hjónin Kristján og Margrét fyrirtækið Malbikun KM. Kristján Bergur verður jarð- sunginn frá Akureyrarkirkju í dag, 26. mars, kl. 13.30. Sá sem er elskaður hverfur aldr- ei, jafnvel þótt hann haldi á brott. Minning hans lifir í hjörtum þeirra sem unna. Þín Margrét. Elsku pabbi, það eru ófá orðin sem fljúga í gegnum kollinn á manni á svona stundu og ótal spurningar sem aldrei fást svör við. Við sem héldum að við fengjum miklu lengri tíma með þér til að gera allt sem við ætluðum okkur. En stundin er víst runnin upp og við blasir blákaldur veruleikinn að þurfa að kveðja þig. Við vitum varla hvort við eigum að hlæja eða gráta þegar allar minningarnar rifjast upp fyrir okkur, allir hrekkirnir, brandararnir og allar yndislegu stundirnar sem við áttum með þér. Það er sárt að hugsa til þess að samverustundirnar okkar verði ekki fleiri en við reynum að hugga okkur við góðar minningar. Það eru ófá orðin sem þú hefur fengið fyrir þrautseigju, traust og dugnað í gegnum ævina og sennilega fáir sem feta í fótspor þín hvað það varðar. En umfram allt varstu stolt- ur faðir sem hvattir okkur áfram í einu og öllu, það var sama hversu stórt verkefnið var eða erfiðleik- arnir miklir, alltaf voru til ráð hjá þér til að leysa málin eða komast í gegnum þau með reisn. Þú varst okkar stoð og stytta í lífinu. Þú sagðir alltaf að „engin brekka væri svo brött í lífinu að maður kæmist ekki yfir hana“ og þó að hún væri löng og ströng upp skyldi maður fara, framhaldið yrði alltaf léttara. Með þessum hvatningarorðum þín- um viljum við minnast þín og þau verða okkur ávallt til eftirbreytni. Við vitum að þú stendur við hlið okkar og heldur áfram að hvetja okkur á lífsins braut. Við erum þér þakklát fyrir allt sem þú varst okk- ur og vitum að stóru hrammarnir bíða okkar hlýir þegar við hittumst á ný. Elsku pabbi, minning þín lifir í hjörtum okkar um ókomna tíð. Þín börn Helga, Linda, Einar og Þórir. Hjartahlýr, góður, strangur, hjálpsamur, prakkari, kröfuharður, ljúfur, hraustur, stríðnispúki, vinnu- samur, duglegur og umhyggjusam- ur. Þetta eru allt orð sem lýsa ein- um manni á allan hátt vel. Hann var alltaf að hugsa um aðra og vildi allt fyrir alla gera. Ég man þegar ég hitti hann fyrst, ekki laust við að ég hafi verið örlítið hrædd við þennan stóra, djúpraddaða og hrausta mann, en ég komst nú fljótt að því að það var engin ástæða til þess. Ég man varla eftir honum öðruvísi en með stríðnisglott á and- liti, felandi sig undir stiganum til að grípa í óviðbúnar lappir sem lædd- ust niður seint á kvöldin eða felandi sig bakvið bíla í innkeyrslunni til að geta hrekkt grunlausa fjölskyldu- meðlimi og vini. Sjaldan sem maður fór í heimsókn án þess að garga lungunum upp í kok af einhverjum hrekkjunum hans. En hann átti sín- ar alvarlegu hliðar líka, föðurhlut- verkið var honum eðlislægt, svo mjög að hann átti það til að reyna að aga vinkonu dóttur sinnar (mig) um leið og dóttur sína. Við vorum það samrýmdar á árum áður að það lá við að ég teldist einn af íbúum Flögusíðunnar, þá fannst honum til- valið að gantast aðeins og kynnti mig einu sinni sem tengdadóttur sína. Okkur fannst það ekki fyndið en hann hló í marga daga að þessu gríni sínu. Hann passaði líka alltaf að ég vaknaði á réttum tíma í skól- ann, spurði hvaða stráka ég væri að hitta og allt sem feður gera. Þó að samskiptin minnkuðu með árunum, æskuvinkonur uxu hvor frá annarri, eignuðust nýja vini og stofnuðu fjöl- skyldu, þá spurði hann ávallt um mann og ef við rákumst hvort á annað á götum bæjarins þá gaf hann sér alltaf tíma til að spjalla, vildi fá að vita hvernig skólinn gengi og bara lífið yfir höfuð. Þessi maður hét Kristján Bergur Árnason, einstakur maður sem mun alltaf eiga stað í hjarta mínu og minningar sem gleymast ey. Krist- ján var tekinn frá okkur án nokkurs fyrirvara 14. mars síðastliðinn. Af hverju fengum við ekki að hafa þig hjá okkur? Hver ræður atburðarás lífsins? Lífið er ekki alltaf sann- gjarnt en tíminn mun lækna öll sár og hjálpa okkur að skilja betur til- gang lífsins. Ég kveð þig nú með þökk í hjarta fyrir að hafa fengið að kynnast þér. Elsku Margrét, Linda, Einar, Þórir, Helga, Ari, Elmar og Telma. Ég votta ykkur samúð mína og bið Guð að gefa ykkur huggun og styrk í ykkar miklu og djúpu sorg. Hvíl í friði, kæri Kristján. Megi ljós þitt lýsa af himnum ofan, breiða verndarvæng sinn yfir okkur og leiða á nýjar brautir. Ásta Rut Björnsdóttir. Þinn svipur var eins og heiðið hreinn hann hafði ei mörgu að leyna. Og þú varst svo fagur, frjáls og beinn og fýsti svo krafta að reyna, er stóðstu brosandi, bjarti sveinn, í brjóstfylking ungra sveina. Hún var svo örugg þín vinatryggð og viðkvæmt og traust þitt hjarta, og þar var ósvikin ást og dyggð en ekki til þess að skarta. Áttu þá marga, Íslands byggð, eftir svo fagra og bjarta? Um er nú sigld þín æskuskeið á úthafsins sólroðnu bárum. Hún endaði of fljótt þín ævileið, en eftir við hnípum í sárum. En minning þín er svo hlý og heið, hana við vökvum í tárum. Þessi erindi úr ljóði Guðmundar Guðmundssonar komu upp í huga mér þegar ég fékk þær hörmulegu fréttir að Beggi vinur minn væri fallinn frá. Beggi var mikill og tryggur vin- ur. Alltaf var hægt að reiða sig á hann og það var gott að leita til hans. Hann var ráðagóður og mjög hjálpsamur. Við erum búnir að vera vinir síð- an hann flutti ungur til Akureyrar og fór að vinna sem sendill á bíla- verkstæðinu hjá pabba mínum. Ég var bara smápatti þá og við bröll- uðum ýmislegt saman. Oft var gert grín að því í vinahópnum að án hans hefði ég aldrei komist óskadd- aður í gegnum unglingsárin, hann var alltaf til staðar þegar á þurfti að halda og mér finnst ótrúlegt að hann sé ekki hér á meðal okkar lengur. Ég er að reyna að átta mig á þessu og mér dettur einna helst í hug að það hafi vantað svona öðling þarna hinum megin til einhverra starfa. Einhver hlýtur tilgangurinn að vera. Hans er sárt saknað. Elsku Magga, Helga, Ari, Linda, Einar, Þórir, litlu afabörnin og aðr- ir aðstandendur. Við hjónin sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Guð styrki ykkur í þessari miklu sorg. Ykkar vinir Stefán og Helga. Meira: mbl.is/minningar Kristján Bergur Árnason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.