Morgunblaðið - 26.03.2009, Síða 42

Morgunblaðið - 26.03.2009, Síða 42
42 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009  Þáttur Karls Berndsen, Nýtt út- lit, rúllar nú af kappi á Skjá einum. Þátturinn virkar vel og þræðir glæsilega einstigi fölskvalauss smekkleysis og metnaðarfullrar upplýsingagjafar og skemmtileg- heita. Ekki ósvipað og hinir dáðu þættir Innlit/Útlit. Í síðasta þætti fylgdumst við með fríðleiksstúlku sem var troðið ofan í þrjá mismunandi sokka og hólka til að „draga betur fram vöxtinn“ og drjúgur hluti fór í uppfræðslu á lýtaaðgerðum og svokölluðum konsílerum, eða hyljurum á góðri íslensku. Flottast er þó að ekki er gerð minnsta tilraun til að fela aug- lýsingarnar, eins og þegar þátta- stjórnandi fékk sér mat frá Nings sem „klikkar ekki“. Tóm snilld. Korsilett og konsílerar Fólk Eftir Gunnhildi Steinarsdóttur nema í mastersnámi í blaða- og fréttamennsku TÓNLISTARMAÐURINN Pálmi Sigurhjartarson heldur tónleika á Café Rósenberg í kvöld. Pálmi segir tónleikana vera undanfara disks sem hann mun gefa út seinna á árinu. „Það hefur staðið til hjá mér í nokkurn tíma að hljóðrita mitt eigið efni. Tónleikarnir eru fyrsta skrefið í þá átt en ég valdi þá leið að semja efni og byrja á því að spila það áður en ég færi í upptökur. Maður þarf að leyfa tónlistinni aðeins að þróast og átta sig í leið- inni á því hvað virkar fyrir mann sjálfan og aðra.“ Forsaga tónleikanna er sú að Pálmi bókaði tón- leikana í byrjun árs en hafði ósköp lítið í hönd- unum. „Þegar ég hafði bókað dagsetninguna var komin pressa og ég tók mig til og samdi lög og texta. Það vantar oft pressuna þegar maður gerir svona hluti sjálfur en nú varð ekki aftur snúið og ég þurfti að byrja að undirbúa mig,“ segir Pálmi. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 en auk Pálma verða átta hljóðfæraleikarar á sviðinu. Hann hefur einnig fengið gestasöngvara til liðs við sig sem eru Andrea Gylfadóttir, Kristjana Stefánsdóttir, Björgvin Ploder, Jóhann Sigurðs- son og Drengjakór Hafnarfjarðar. Flutt verða fimmtán lög eftir Pálma bæði ný og eldri lög en einnig tónlist sem hann hefur samið fyrir leikhús og leiksýningar sem ekki hefur mikið heyrst áð- ur. Leyfir tónlistinni aðeins að þróast Píanistinn Pálmi Sigurhjartarson.  Spútnikútgáfan norðlenska Kimi Records hefur mánaðarlega tón- leikaröð á Sódómu Reykjavík í kvöld, svokallað Kimi-kvöld. Á þessu fyrsta kvöldi koma fram Borko, Carpet Show og Sin Fang Bous en þetta er í fyrsta sinn sem það mærða verkefni Sindra Más „Seabear“ treður upp á tónleikum. Skífuþeytingar verða þá í höndum meðlima Hjaltalíns. Á næsta kvöldi sem haldið verður fimmtudaginn 9. apríl koma Kimono, Sudden Weath- er Change og The Bent Moustache frá Hollandi fram og Retro Stefson sér um plötusnúðamennsku. Það kraumar duglega í Kima að vanda. Sin Fang Bous á svið í fyrsta sinn  Landsfundur Sjálfstæðisflokks- ins fer fram nú um helgina eins og kunnugt er. Einn frambjóðenda þar er myndlistarmaðurinn Snorri Ás- mundsson og hefur hann hlaðið inn kostulegu myndbandi á you- tube.com þar sem hann tilkynnir framboð sitt og lýsir helstu stefnu- málum í Valhöll (sláið inn „Snorri í Valhöll“). Myndskeiðið er súrreal- ískt, þar sem Snorri fer um víðan völl, tilkynnir m.a. að hann muni líklega ekki sitja lengi sem formað- ur enda séu stjórnmál dauðleið- inleg eða „dead boring“ eins og hann orðar það. Mótframbjóðendur Snorra, Kristján Þór Júlíusson og Bjarni Benediktsson, sitja í óvenju- mikilli spekt við hlið ræðupúltsins en reglulega má greina brosviprur þegar Snorri gefur hvað mest í. Þeir klappa meira að segja kurt- eislega þegar ræðuhaldinu lýkur, þótt það standi ekki yfir í nema nokkrar míkrósekúndur. „GO SNOOOORRII!!“ eins og segir í einni athugasemdinni á síðunni. „Yrði ekki formaður lengi“ Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is MARGT stendur nú til hjá reggí- sveitinni ástsælu Hjálmum en sveitin hefur dvalið langdvölum í Hljóðrita í Hafnarfirði undanfarna mánuði við upptökur á fjórðu breiðskífu sinni. Á laugardaginn mun hljómsveitin troða upp á Græna hattinum á Ak- ureyri, þar sem hún mun frumflytja megnið af plötunni væntanlegu. Ekki nóg með það, heldur verður þar nokk- urs konar vígsla á „drottningunni“, forláta orgeli Karls heitins Sighvats- sonar, en rekstraraðili staðarins, Haukur Tryggvason, festi kaup á gripnum fyrir stuttu. Í maíbyrjun fer hljómsveitin svo í tíu daga ferð til Ja- maíka þar sem lokafrágangur plöt- unnar fer fram. Í hljóðveri Bobs Marley „Við leggjum í hann 2. maí,“ segir Helgi Svavar Helgason trymbill, en ásamt honum fara út þeir Hjálmar; Guðmundur „Kiddi Hjálmur“ Jóns- son, Sigurður Guðmundsson, Valdi- mar Kolbeinn Sigurjónsson og Þor- steinn Einarsson. „Tildrögin eru þau að austurrísk vinkona okkar, sem er svona „mega- fan“ ólst að hluta til upp á Jamaíka og á þar hús. Hún bauðst til að lána okk- ur það og við stukkum óðar á það góða tilboð.“ Helgi segir að stúlkan hafi ekki lát- ið þar við sitja og er auk þess búin að koma sveitinni í samband við Steve „Cat“ Coore, meðlim í Third World, sem er ein langlífasta og vinsælasta reggísveit eyjanna. Coore mun vinna með Hjálmum úti. „Cat er beintengdur við allt sem viðkemur tónlistarmenningunni þarna,“ segir Helgi. „Hann er nú þeg- ar búinn að kalla til einvalalið hljóð- færaleikara af margvíslegu tagi, blás- ara, ásláttarleikara o.fl. Við tökum upp í hinu stórfræga Harry J Studio þar sem Bob Marley tók upp megnið af plötunum sínum. Rolling Stones, The Who og Grace Jones hafa líka nýtt sér það. Ekki amalegt, ha!“ Harry J sjálfur ætlar meira að segja að snúa tökkum og renna sleð- um. Horace Andy syngur dúett Hljóðverið er í höfuðborginni Kingston, en þar verða þeir félagar í þrjá daga. Eftir það verður haldið út fyrir borgarmörkin, til Port Antonio, og sest að í öðru hljóðveri. Þar ætla Helgi og félagar að taka sér viku í að hljóðblanda plötuna, í Geejam Stud- ios, sem er ekki síður frægt en það fyrrnefnda, en þar hefur Björk m.a. unnið. „Æskuvinur stúlkunnar á víst þetta hljóðver. Þar munum við einnig taka upp eitt gamalt Hjálmalag á ensku og mun Steini syngja dúett á móti einhverjum reggírisanum og það stefnir allt í að það verði sjálfur Horace Andy.“ Andy er ein af goðsögnum reggís- ins en er þó líklega frægastur fyrir samstarf sitt við hljómsveitina Mass- ive Attack. Helgi segir að stefnt sé að því að gefa þá afurð út um veröld víða, í gegnum iTunes o.fl. Ferðin verður þá fullnýtt, en með í för verða ljósmyndari og myndatökumaður og verður öll iðja Hjálma þarna úti mynduð í bak og fyrir með myndbönd og heimildarmynd í huga. Nýir Hjálmar Helgi segir plötuna að mestu klára, tvö, þrjú lög verði tekin upp úti, en þetta er fyrsta plata þessara „nýju“ Hjálma. „Við erum klárir með ellefu grunna. Það er búið að vera algert ævintýri að taka upp hérna heima, þetta er eitthvað svo auðvelt og eðli- legt. Við erum búnir að dunda okkur við það að hnoða þessu saman og þetta verður algjör og mikil reggí- plata. Við skildum eftir lausa enda sem verða svo hnýttir saman úti á Jamaíka. Hvernig það verður gert er hins vegar óráðið. Það kemur bara í ljós úti.“ Hjálmar á „heimaslóðir“  Reggísveitin Hjálmar tekur upp nýja plötu á Jamaíka  Frumflytja væntan- lega plötu á Græna hattinum á laugardaginn  Gefa nýtt lag á mbl.is í dag Ljósmynd/Guðmundur Vigfússon Fjarskynjun Upptökur í Hljóðrita hafa gengið fumlaust fyrir sig. „Það er búið að vera algert ævintýri að taka upp hérna heima,“ segir Helgi. Hægt er að sækja lagið „Heyrist hverjum“ án endurgjalds á mbl.is undir „NÝTT Á mbl.is“ eða þá und- ir slóðinni mbl.is/hjalmar. Hammondorgel Karls heitins Sig- hvatssonar er kallað „Drottningin“ og er eins og nærri má geta sveip- að goðsögulegum ljóma. Drottn- ingin var m.a. notuð er meist- arastykki Trúbrots, Lifun, var tekið upp. Guðmundur Kristinn Jónsson, Kiddi Hjálmur, segir frá því að fé- lagi hans, Sigurður, hafi m.a. leikið á það í gullfallegu lagi Rúnars Júl- íussonar, „Það þarf fólk eins og þig“. Haukur Tryggvason, vert á Græna hattinum, segir orgelið hafa verið í vörslu Minningarsjóðs Karls Sighvatssonar áður en það var keypt norður. „Þetta er forláta gripur og mikil prýði fyrir staðinn,“ segir Haukur. „Ég hef verið að græja hann upp smátt og smátt og þetta er punkt- urinn yfir i-ið. Þetta er ’58-módel, Hammond C3 og orgelið er í topp- standi. Meistari Þórir Baldursson er búinn að taka það tvisvar í gegn.“ Drottningin komin norður Morgunblaðið/RAX Í sveiflu Karl Sighvatsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.