Morgunblaðið - 21.05.2009, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 21.05.2009, Qupperneq 44
FIMMTUDAGUR 21. MAÍ 141. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana SKOÐANIR» Staksteinar: Ekki gleyma Forystugreinar: Verk að vinna | Stöðugleikinn er brýnastur Pistill: Getum hundsað mótmæli Kínverja Ljósvaki: Hrafna hver? Már sterkur í stól seðlabankastjóra Saga færði lán til afskriftar Mesti samdráttur í Japan Bakkavör minnkar skuldir VIÐSKIPTI»                        !    " # $ %  %  " &' ("' "  ) *+,-., */,-., **0-1* +1-12/ */-,2* *2-323 **3-*+ *-1+/, */.-*+ *,.-00 4 564 +0#  7 +00/ *+,-,, */,-/3 **0-21 +1-.1, */-8*/ *2-2*. **3-.. *-1112 */.-,0 *,.-./ ++2-,*., &  9: *+8-0, */8-.1 **0-/3 +1-303 */-8,, *2-221 **3-,2 *-11,3 */3-+8 *,.-/8 Heitast 15 °C | Kaldast 8 °C Hæg breytileg átt og skýjað A-lands, annars víða léttskýjað, líkur á stöku síðdegisskúrum sunnan til. Hiti 8 til 15. » 10 Kór Fjölbrautaskóla Suðurlands flytur lög Gunnars Þórðar- sonar á tónleikum í Iðu á Selfossi í kvöld. »37 TÓNLIST» Frumlegur snillingur SJÓNVARP» Popppunktur fer aftur í gang í júní. »36 Ásgeir H. Ingólfs- son, sem staddur er í Cannes, segir að nýjasta mynd Quentins Tarantinos komi á óvart. »40 KVIKMYNDIR» Tarantino kom á óvart TÓNLIST» Jóhanna Guðrún slær Egóið ekki út. »38 FÓLK» Beyonce Knowles kaupir sér of lítil föt. »39 Menning VEÐUR» 1. Brá að heyra í syninum 2. Munnmök engin fyrirstaða 3. Bjargaði lífi ... með borvél 4. Rannsaka óeðlilegar millifærslur  Íslenska krónan veiktist um 1,31% »MEST LESIÐ Á mbl.is Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is VEIÐIMAÐUR lenti í óvæntum átökum við him- brima á Hlíðarvatni í Selvogi síðastliðinn mánu- dag. Hann var að veiða Skollapollana austan meg- in í Botnavíkinni þar sem eru gjöfulir veiðistaðir. Tveir himbrimar syntu í grenndinni og lífið var yndislegt. Þá tók fiskur fluguna, einkrækju númer 14 á 4,5 punda taumi, og bjó veiðimaðurinn sig undir að draga aflann. Skyndilega þyngdist heldur betur átakið. „Ég áttaði mig ekki á því fyrst að fuglinn var með bleikjuna. Ég hélt að þetta væri lax eða eitt- hvað svoleiðis, en þetta var bara pundari,“ sagði veiðimaðurinn. Annar himbriminn hafði ráðist á fiskinn, tekið hann þversum í gogginn og var rok- inn af stað með fenginn. „Hann húrraði öllu út af hjólinu þegar hann fór með hana fyrst. Það var bara komið á tamp! Tveir til þrír snúningar eftir. Ég dró þetta inn og hann kom alltaf á eftir.“ Himbriminn missti takið en réðst aftur að bleikjunni og voru hvorki veiðimaðurinn né fugl- inn á því að gefa sitt eftir. Veiðimaðurinn sagði að himbriminn hefði verið gríðarlega aðgangsharður. „Hann gerði fjórar atlögur að bleikjunni. Ég náði henni alltaf frá honum aftur þangað til í rest- ina. Þá var hann bara tvær stangarlengdir frá mér og náði bleikjunni. Hann vann!“ Veiðimaðurinn, sem vildi ekki láta nafns síns getið, kvaðst aldrei hafa lent í neinu viðlíka áður. En víst er að viðureignin, sem stóð í einar fimm mínútur, verður honum mjög eftirminnileg. Himbriminn vann!  Stangaveiðimaður og himbrimi tókust á um bleikju í Hlíðarvatni á dögunum  Eftir endurteknar atlögur og mikil átök náði himbriminn bleikjunni Morgunblaðið/Einar Falur Hlíðarvatn Horft er í átt að Skollapollum þar sem veiðimaður og himbrimi tókust á um bleikju. Í HNOTSKURN »Himbriminn er stór norður-amerískurfugl og verpir hvergi í Evrópu nema á Íslandi. Þeir halda sig mikið á stórum vötn- um og þykja árásargjarnir og heimaríkir. »Hlíðarvatn er yfir 3,3 km2 stórt stöðu-vatn í Selvogi. Það þykir mjög gjöfult en aðallega veiðist þar bleikja, bæði sjó- bleikja og vatnableikja. Þar er veitt á 14 stangir á vegum nokkurra stangaveiði- félaga. Mikil ásókn er í veiðileyfin. NÍU af þeim þingmönnum sem leituðu eftir endurkjöri í vor náðu ekki inn á Alþingi. Aðeins einn þeirra, Karl V. Matthíasson, gengur að föstu starfi sem prest- ur á sviði áfengis- og vímuvarn- armála. Hinir átta eru að líta í kringum sig eftir vinnu og hjá sumum þeirra munu málin skýrast fljót- lega. Morgunblaðið sló á þráðinn til þingmannanna í gær og kom þá í ljós að flestir þeirra hafa nýtt góða veðrið síðustu daga til þess að sinna ýmsum viðhaldsverkefnum heima fyrir. Hjá sumum höfðu þessi verk dregist vegna anna við þingstörfin. Þá eiga nokkrir þing- menn ólokið verkefnum sem tengj- ast þingmennskunni. Kjartan Ólafsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var að taka til heima hjá sér á Selfossi. Þar fór allt úr skorðum í Suður- landsskjálftanum í fyrra og margt sem enn var eftir að laga. | 12 Þingmenn komnir í viðhaldið Aðeins einn af níu kominn með starf EKKERT skal fullyrt um það hvort Elvis heitinn Pres- ley var góður í raungreinum og heldur ekki hvort góðir söngvarar leynast í 4. bekk X – eðlisfræðideild – Menntaskólans á Akureyri. Nemendur bekkjarins voru engu að síður í hlutverki kóngsins frá Memphis í gær á Dimission þegar stúdentsefnin kvöddu kennara sína á síðasta degi fyrir upplestrarfrí. Enn er haldið í þann gamla sið að brautskrá stúdenta frá MA þjóðhátíð- ardaginn, 17. júní. Þá setja stúdentar jafnan skemmti- legan svip á bæjarlífið og sú var einnig raunin í gær. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Elvis á götum Akureyrar Skoðanir fólksins ’Óhófleg áfengisneysla veldur mis-miklum skemmdum á heilanum,allt frá vægum viðsnúanlegum breyt-ingum í verulega rýrnun og skemmdirá taugavefnum. Einkennin geta að sama skapi verið allt frá vægum starf- rænum truflunum í elliglöp á lokastigi. » 24 ÞÓRARINN TYRFINGSSON ’Útbreiðslusvæði tegunda stækkaog minnka eftir því sem umhverf-ið breytist og tækifæri opnast oglokast. Fjölmargar tegundir lífverahafa numið land á Íslandi á umliðnum áratugum, af eigin rammleik og fyrir tilstuðlan manna, og nokkrar tegundir hafa yfirgefið landið. Flestar aðfluttar lífverur falla tiltölulega átakalaust að lífríki landsins og verða smám saman eðlilegur hluti af því. » 26 SNORRI BALDURSSON ’Ungt fólk sem fetar sig til sjálf-stæðis þarf á von að halda. Ást-fangið fólk þarf á von að halda. Öllhjónabönd þurfa á von að halda. Upp-alendur þurfa á von að halda. Sjúkir þurfa á von að halda og syrgjendur þurfa á von að halda. Og þannig mætti lengi halda áfram. Ef við töpum von- inni er fátt eftir. » 26 SIGURBJÖRN ÞORKELSSON ’Útgerðarmenn, sem fengu fría út-hlutun á kvóta, gerðu aflaheimild-ina að leigu- og söluvöru til að afla sérvasapeninga á kostnað annarra út-gerðarmanna. Nú vill ríkisstjórnin banna þetta peningaplokk, sem löngu er tímabært. » 25 GUÐVARÐUR JÓNSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.