Morgunblaðið - 13.06.2009, Qupperneq 1
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
ÁGÚST Guðmundsson, forstjóri
Bakkavarar, segir unnið að því að
greina hagkvæmni þess að reisa nýja
verksmiðju félagsins á Íslandi. Nið-
urstaða eigi að liggja fyrir seint í sum-
ar og segir hann forsendur benda til
þess að fjárfesting á Íslandi sé hag-
kvæm. Gangi það eftir gætu skapast
500 til 750 ný störf við verksmiðjuna.
Ágúst hefur kynnt þessar fyrirætl-
anir fyrir fjármálaráðherra en segir
stjórnvöld ekki koma með formlegum
hætti að undirbúningi málsins.
Nú starfrækir Bakkavör 63 verk-
smiðjur í tíu löndum með tæplega
tuttugu þúsund starfsmönnum. For-
stjórinn segir starfsemina mannafls-
freka og verksmiðjurnar þurfa að
framleiða fyrir tólf til fimmtán millj-
arða króna á ári til að bera sig.
„Við hugsum þetta á viðskiptaleg-
um forsendum en auðvitað berum við
taugar til landsins og viljum reyna að
styðja við bakið á þeirri uppbyggingu
sem hér er framundan,“ segir Ágúst.
Hugmyndin er að verksmiðjan
framleiði tilbúna frosna rétti. „Við
sjáum tækifæri í að nýta okkur ná-
lægðina við hafið og afurðir þess,
ódýra orku og samkeppnishæft
vinnuafl,“ segir Ágúst. Veiking krón-
unnar geri framleiðsluna ódýrari því
tekjurnar séu í erlendum gjaldeyri.
Hann segir útrásina hafa fengið á
sig óorð. „Ég held að það sé mikil-
vægt að hafa í huga að alþjóðleg fyr-
irtæki í eigu Íslendinga geta skilað
miklu til þjóðarbúsins. Við munum
ekki komast út úr þessari kreppu og
það verður ekkert byggt upp á Íslandi
nema Íslendingar verði í útrás,“ segir
Ágúst og nefnir félög eins og Marel
og Össur sem dæmi.
Verksmiðja Bakkavarar
gæti skapað 750 ný störf
Forstjóri Bakkavarar áhugasamur um
að fullvinna frosna tilbúna rétti á Íslandi
Vill fullvinna sjávarafurðir | 23
L A U G A R D A G U R 1 3. J Ú N Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
158. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«NÝTT DANSVERK ERNU ÓMARSDÓTTUR
OFSAFENGIN OG
FRELSANDI UPPLIFUN
«ERLA ÁSGEIRSDÓTTIR
MEÐ HUGANN VIÐ
SKÍÐI Í JÚNÍ
DONALD Feen-
ey, sem í janúar
1993 gerði tilraun
til að ræna tveim-
ur börnum frá Ís-
landi, er grun-
aður um aðild að
morði á Banda-
ríkjamanni, en
hann fannst
stunginn til bana
innan „Græna svæðisins“ í Bagdad í
Írak. Málið hefur vakið mikla at-
hygli, m.a. vegna þess að það eru yf-
irvöld dómsmála í Írak sem hnepptu
Feeney og fjóra aðra bandaríska
þegna í varðhald fyrir morðið.
James Kitterman fannst látinn í
bíl í miðborg Bagdad 22. maí sl.
Hann hafði verið stunginn til bana
og var bundinn á höndum og fótum.
Kitterman var sextugur Texasbúi og
eigandi verktakafyrirtækis sem
starfar í Írak.
Feeney starfar fyrir verktakafyr-
irtækið Corporate Training Unlimi-
ted, en fyrirtækið tók að sér 1993 að
ræna tveimur stúlkum frá Íslandi.
Feeney var þá stöðvaður í Leifsstöð
og sat eitt ár í fangelsi. | 4
Donald Feeney grunaður um morð í Írak
Stunginn til bana
Donald Feeney
UMFERÐIN á Vesturlandsvegi við Kjalarnes gekk hægt á meðan á mót-
mælastöðu íbúanna þar stóð síðdegis í gær. Með mótmælastöðunni lögðu
þeir áherslu á kröfur sínar um bætt umferðaröryggi. Langar raðir bíla
mynduðust á tímabili, allt inn í botn Kollafjarðar, samkvæmt lögreglu. | 4
ÍBÚAR KJALARNESS EFNDU TIL MÓTMÆLA
Morgunblaðið/Eggert
FUGLATALNING Umhverfis-
stofnunar leiðir í ljós að innan við
20 æðarhreiður eru í Dyrhólaey,
ekkert kríuvarp og enginn sílamáv-
ur. Talningin, sem gerð var á
mánudag, þykir gefa tilefni til að
kanna möguleika á að banna alfarið
umferð hunda í eynni. Þá telja
skýrsluhöfundar stofnunarinnar að
æskilegt sé að til framtíðar verði
umferð um eyna stjórnað til að hafa
áhrif á varp. Æðarvarp sé við-
kvæmt fyrir umferð um varptím-
ann og því megi lítið út af bregða til
að neikvæðra áhrifa gæti. »22
Lélegt varp í Dyrhólaey
kallar á aukið eftirlit
EKKI er útlit
fyrir holskeflu
skólafólks á at-
vinnuleysisskrá í
sumar, eins og
óttast var í vor.
Aðeins 700 náms-
menn hafa sótt
um atvinnuleys-
isbætur sem
greiða á út 1. júlí, en það er aðeins
um tíundi hluti þess sem reiknað
var með. Vegna óvissunnar í þjóð-
félaginu virðast atvinnurekendur
hafa ráðið mun seinna í sumarstörf
en venjulega. Enn er verið að ráða í
afleysingar. »2
Úr rættist með vinnu hjá
mörgum nemendum
HÁTT í 140 af 150 stofnfjáreig-
endum í Sparisjóði Svarfdæla
standa margir hverjir illa eftir að
hafa tekið erlend lán til að fjár-
magna stofnfjáraukningu um sam-
tals 500 milljónir króna.
Sveinn Jónsson, fyrrverandi for-
maður stjórnar sjóðsins, segir eldra
fólk í hópi þeirra sem glími við
skuldirnar. „Ég skildi aldrei þörf-
ina fyrir þessa miklu stofnfjáraukn-
ingu í sjóðnum og það var eins og
menn hafi trúað því að virði stofn-
bréfa myndi endalaust aukast.“ » 6
Eldra fólk í vanda eftir
stofnfjáraukningu
Spænski prófessorinn dr. Fernando
Rodríguez Lafuente var staddur
hér á landi á dögunum. Helgi Snær
Sigurðsson ræddi við þennan rit-
stjóra hinnar spænsku Lesbókar
sem nefnist ABCD.
LESBÓK
Gluggað í hina
spænsku Lesbók
Gerður Steinþórsdóttir fjallar um
Englendinginn William Lord Watts
sem kom hingað til lands í þriðja
sinn árið 1875 til að ferðast fyrstur
yfir Vatnajökul. Nýjar upplýsingar
hafa komið í ljós um örlög Watts.
Ferðasaga Watts
frá Vatnajökli
Róttæk stjórnmál í samtímanum er
yfirskrift fyrirlestrar sem belgíski
stjórnmálaheimspekingurinn Chan-
tal Mouffe heldur hér á landi í dag.
Egill Agnarsson ræddi við Mouffe
af því tilefni.
Róttæk stjórnmál
samtímans