Morgunblaðið - 13.06.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
Stjórnvöld í Írak, sem eru smátt og smátt að taka
yfir stjórn landsins, rannsaka nú morð á banda-
rískum eiganda verktakafyrirtækis, en hann
fannst bundinn á höndum og fótum með stungus-
ár innan „Græna svæðisins“ í Bagdad í lok síðasta
mánaðar. Donald Feeney, sem í janúar 1993 gerði
tilraun til að ræna tveimur börnum frá Íslandi, er
ásamt syni sínum og þremur öðrum Bandaríkja-
mönnum grunaðir um að tengjast málinu. Feeney
hefur setið í haldi í tæpa viku, en honum hefur nú
verið sleppt, en hann er þó enn grunaður um að
tengjast málinu. Sonur hans er enn í haldi.
Málið hefur vakið talsverða athygli, m.a. vegna
þess að yfirvöld dómsmála í Írak eru að rannsaka
morð sem eingöngu Bandaríkjamenn tengjast.
Litlar upplýsingar hafa fengist um málið frá
bandaríska hernum í Írak. Á vefsíðu CNN segir
að fulltrúar FBI hafi fylgst með rannsókninni að
beiðni yfirvalda í Írak.
Rændi börnum á Íslandi
Feeney starfaði í bandaríska hernum í 16 ár, en
þegar hann hætti herþjónustu stofnaði hann
ásamt eiginkonu sinni og félaga fyrirtækið Corpo-
rate Training Unlimited, CTU. Það er á vegum
þessa fyrirtækis sem Feeney og sonur hans, Don-
ald Feeney yngri, hafa starfað í Írak. Corporate
Training Unlimited tók að sér árið 1993 að ræna
tveimur stúlkum frá Íslandi, en móðir þeirra hafði
farið með þær frá Bandaríkjunum þar sem feður
þeirra bjuggu.
Feeney spann upp skrautlegan lygavef hér á
landi – þóttist vera heimsfrægur kvikmyndafram-
leiðandi – og var kominn með börnin í flugstöðina
á Keflavíkurflugvelli þegar hann var handtekinn
og síðan dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar.
Hann gerði tilraun til að strjúka úr fangelsinu en
aftur varð smæð og einangrun landsins honum að
falli. Hann náðist á Vestmannaeyjaflugvelli rétt
áður en hann komst upp í flugvél til Færeyja.
Hann lauk afplánun á helmingi refsingarinnar og
fór úr landi í janúar 1994.
Feeney kom til Íslands árið 2001 í tengslum við
sjónvarpsþátt sem gerður var um mál hans og
sagði þá í samtali við blaðamann Morgunblaðsins:
„Mér fannst ég ekki vera sekur og fannst að ég
ætti ekki að vera í fangelsi.“
Grunaður um aðild að morði
Donald Feeney sem sat í eitt ár á Litla-Hrauni fyrir að reyna að ræna tveimur
stúlkum frá Íslandi, er nú grunaður um aðild að morði á Bandaríkjamanni í Írak
Í HNOTSKURN
»Feeney var meðlimur hinnar þekktusérsveitar Bandaríkjahers, Delta Force
og tók þátt í misheppnaðri tilraun til að
endurheimta bandarísku gíslana úr sendi-
ráðinu í Teheran.
»Meðan ófriðurinn var hvað mestur íBeirút í Líbanon snemma á níunda ára-
tugnum var hann lífvörður bandaríska
sendiherrans í borginni.
Kom ekki
að viðskipt-
um við LÍN
GUNNAR I. Birgisson kveðst alls
ekkert hafa komið að viðskiptum
Frjálsrar miðlunar við Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna og viðskiptin
hafi verið eðlileg í alla staði.
Í könnun Ríkisendurskoðunar á
viðskiptum Lánasjóðs íslenskra
námsmanna við Frjálsa miðlun, fyr-
irtækis í eigu dóttur Gunnars, kemur
fram að á sjö ára tímabili greiddi LÍN
rúmlega 10 milljónir fyrir þjónustu
fyrirtækisins. Viðskiptin hófust árið
1992, ári eftir að Gunnar var skipaður
stjórnarformaður LÍN og þeim lauk
árið 1998 sama ár og Ríkisendur-
skoðun gerði grein fyrir því að hún
teldi kostnað vegna 13 auglýsinga,
sem margar hverjar voru nánast eins,
vera óþarflega háan. Samtals nam
fjárhæðin 1,3 milljónum. Þáverandi
framkvæmdastjóra LÍN, Lárusi
Jónssyni, var gefinn kostur á að tjá
sig um málið. Hann kvaðst ekki muna
hvers vegna LÍN skipti við þetta aug-
lýsingafyrirtæki en ekki önnur, enda
langt um liðið.
Í könnun ríkisendurskoðunar
stendur að þar sem ekki virðist hafa
verið leitað verðtilboða áður en Frjáls
miðlun tók þessi verkefni að sér sé
ekki hægt að fullyrða hvort hægt
hefði verið að fá þessa þjónustu á
hagstæðari kjörum.
Gunnar sagði í samtali við Morg-
unblaðið að árið 1992 hefði verið
ákveðið að gefa út ársskýrslu LÍN og
hann minni að þremur eða fjórum
fyrirtækjum hefði verið gefinn kostur
á að bjóða í verkið. Ekkert hefði verið
óeðlilegt við þessi viðskipti og fram-
kvæmdastjóri LÍN hefði greint Rík-
isendurskoðun frá því.
Fundur verður í fulltrúaráði Sjálf-
stæðisflokksins í Kópavogi á mánu-
dag og þá er búist við niðurstöðu um
framtíð Gunnars í embætti. Í fyrra-
kvöld hittist fulltrúaráð Framsókn-
arflokksins.
Ómar Stefánsson, oddviti fram-
sóknarmanna, sagði að framsókn-
armenn hefðu tekið „framar vonum“ í
þá niðurstöðu sem hann kynnti fyrir
fulltrúaráðinu í fyrrakvöld, byggða á
hugmynd Gunnars. „Það voru ekki
háværar raddir um að slíta samstarf-
inu,“ sagði hann. Samstarfið væri
traust.
Gunnar
Birgisson
Viðbrögð framsóknar
framar vonum
Ómar
Stefánsson
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
Mikill hiti var í mönnum á fundi íbúa Kjalarness í
gærkvöld, en þangað höfðu þeir boðað fulltrúa sam-
gönguyfirvalda til þess að ræða umferðaröryggi.
„Það var líka mikil samstaða,“ sagði Marta Guð-
jónsdóttir, formaður hverfisráðs Kjalarness, að
loknum fundinum. Hún furðaði sig á því að aðeins
fulltrúar minnihlutans í samgöngunefnd Alþingis
skyldu hafa mætt á fundinn. „Meirihlutinn mætti
ekki. Mér finnst það sýna virðingarleysi gagnvart
íbúunum og áhugaleysi á málinu. Samgöngu-
ráðherra hafði boðað forföll en það kom enginn
fulltrúi frá honum,“ sagði hún.
Í ályktun sem samþykkt var á fundinum er með-
al annars krafist hraðamyndavéla, undirganga und-
ir Vesturlandsveg og girðingar frá skóla að Braut-
arholtsvegi. Jafnframt er óskað eftir að lögregla
verði sem mest sýnileg á svæðinu.
Íbúarnir krefjast þess að umferðaröryggismálin
á Kjalarnesi verði sett í algjöran forgang umfram
önnur þýðingarminni og mun kostnaðarsamari
verkefni. Ályktunin var send samgönguráðherra,
samgöngunefnd Alþingis og lögreglustjóra höfuð-
borgarsvæðisins.
,,Íbúar ætla ekki að hætta aðgerðum fyrr en þeir
sjá að mönnum sé alvara með því að fara í fram-
kvæmdir. Það kom skýrt fram á fundinum að
mönnum finnst einkennilegt að það sé verið að boða
fleiri milljarða framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng á
meðan Kjalnesingar hafa þurft að berjast fyrir
vegabótum í mörg ár. Það kom líka fram á fund-
inum að fólk var hissa á ummælum samgöngu-
ráðherra í sjónvarpsfréttum í kvöld. Hann kvaðst
þar fyrst hafa heyrt af kröfum íbúa á fundi í apríl.
Ég get staðfest að ég átti fund með ráðherra 1.
september um þessi mál. Við höfum líka sent hon-
um öðru hverju bókanir um þau frá hverfisráðs-
fundum,“ segir Marta og bætir því við að Ólafur
Bjarnason, samgöngustjóri Reykjavíkur, hafi mætt
á fundinn auk Sigurðar Helgasonar frá Umferð-
arstofu.
Íbúar á Kjalarnesi efndu til mótmælastöðu með
heimatilbúin spjöld við Vesturlandsveg síðdegis í
gær til þess að leggja áherslu á kröfur sínar um
bætt umferðaröryggi.
Á meðan á mótmælastöðu íbúanna stóð gekk um-
ferðin afar hægt. Að sögn lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu mynduðust langar raðir bíla á
tímabili.
Mikill hitafundur á Kjalarnesi
Íbúarnir ætla ekki að hætta aðgerðum fyrr en þeir sjá að bæta eigi umferðarör-
yggið á Vesturlandsvegi Aðeins minnihlutinn í samgöngunefnd mætti á fundinn
Morgunblaðið/Eggert
LISTAGYÐJAN skaut upp kolli víða í höfuðborginni í gær og beitti hún
ýmsum brögðum til að fá vegfarendur til að líta upp úr hversdagsleikanum
og staldra við. Hið svokallaða Ramadansfjelag lagði undir sig verslunina
Rokk og rósir, en þessi vegfarandi lét þó óvænt stefnumót sitt við listagyðj-
una í líki dansandi konu í hvítum kjól í búðarglugga, ekki raska ró sinni og
hélt ótrauður áfram för sinni um götur borgarinnar.
Morgunblaðið/Kristinn
DANSAÐ Í BÚÐARGLUGGANUM