Morgunblaðið - 13.06.2009, Qupperneq 24
24 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009
Þorri Íra styður sáttmála ESB
Aukinn stuðningur á Írlandi við Lissabon-sáttmálann, rakinn til efnahagskreppunnar í landinu
Andstæðingar sáttmálans urðu fyrir áfalli þegar leiðtogi þeirra náði ekki kjöri á Evrópuþingið
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
NÚ þegar ár er liðið síðan Írar
höfnuðu Lissabon-sáttmála Evrópu-
sambandsins bendir flest til þess að
þeir samþykki hann í annarri þjóð-
aratkvæðagreiðslu síðar á árinu.
Skoðanakannanir, sem gerðar
hafa verið síðasta hálfa árið, benda
til þess að meirihluti Íra styðji
Lissabon-sáttmálann og andstæð-
ingar hans urðu fyrir miklu áfalli í
kosningunum til Evrópuþingsins í
vikunni sem leið þegar leiðtogi
þeirra, Declan Ganley, náði ekki
kjöri.
Írar höfnuðu Lissabon-sáttmál-
anum í þjóðaratkvæðagreiðslu 12.
júní á síðasta ári
þegar 53,4%
kjósendanna
greiddu atkvæði
gegn honum.
Öll aðildarríki
Evrópusam-
bandsins þurfa
að staðfesta sátt-
málann til að
hann geti öðlast
gildi og írska stjórnin hefur sam-
þykkt að efna til annarrar þjóð-
aratkvæðagreiðslu eftir að hafa
knúið fram nokkrar tilslakanir.
Meðal annars fengu Írar því fram-
gengt að þeir héldu sæti sínu í
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins.
Ákveðið verður á leiðtogafundi
Evrópusambandsins í Brussel á
fimmtudaginn og föstudaginn kem-
ur hvenær sáttmálinn verður bor-
inn undir þjóðaratkvæði á Írlandi
að nýju. Líklegt er að atkvæða-
greiðslan fari fram í október.
ESB álitið „öruggt skjól“
Nýjasta skoðanakönnunin bendir
til þess að 54% Íra ætli að greiða
atkvæði með Lissabon-sáttmálanum
og aðeins 28% á móti. Hin 18 pró-
sentin hafa ekki enn gert upp hug
sinn.
Stjórnmálaskýrendur telja að
efnahagskreppan á Írlandi sé helsta
skýringin á sinnaskiptum Íra. Mik-
ill hagvöxtur hefur verið í landinu á
síðustu árum en horfur eru á að
samdrátturinn í ár verði um 9%.
Írskir stjórnmálaskýrendur telja
að margir kjósendanna vilji ekki
taka þá áhættu að missa stuðning
Evrópusambandsins. „Írar líta á
Evrópusambandið sem öruggt skjól
í öllu umrótinu,“ sagði Brigid Laff-
an, deildarstjóri mannvísindadeild-
ar University College í Dublin.
Óvinsældir Brians Cowens for-
sætisráðherra, sem styður sáttmál-
ann, eru taldar vatn á myllu and-
stæðinga sáttmálans en virðast þó
ekki hafa mikil áhrif. Um 15%
þeirra, sem sögðust ætla að greiða
atkvæði gegn sáttmálanum, röktu
þá afstöðu sína til andstöðu við rík-
isstjórn Cowens.
Declan Ganley
Í HNOTSKURN
» KaupsýslumaðurinnDeclan Ganley hefur
ákveðið að fara ekki fyrir
andstæðingum Lissabon-
sáttmálans vegna þess að
hann náði ekki kjöri á Evr-
ópuþingið. Flokkur Ganleys,
Libertas, fékk aðeins eitt
þingsæti þótt hann hefði boð-
ið fram í 532 kjördæmum í
Evrópu.
» Annar þekktur andstæð-ingur sáttmálans, Mary-
Lou McDonald, missti þing-
sæti sitt fyrir Sinn Fein.
FLUGSÝNINGIN í París hefst á
mánudag í skugga efnahags-
kreppu sem hefur komið hart
niður á flugfélögum heimsins.
Skipuleggjendur sýningarinnar,
sem er stærsta flugsýning heims,
segja þó að kreppan hafi ekki
dregið úr umfangi hennar.
Öld er nú liðin síðan flugsýn-
ingin var haldin í fyrsta skipti. Á
meðal um 25 farþegaþotna, sem
verða sýndar, er rússneska þotan
Superjet 100 sem Rússar vona að
verði mikilvægur þáttur í til-
raunum þeirra til að endurreisa
flugvélaiðnað sinn.
Rússneska fyrirtækið Sukhoi
framleiðir nýju þotuna. Iðn-
aðarráðherra Rússlands, Viktor
Khristenko, sagði nýlega að
stefnt væri að því að smíða alls
1.000 þotur af þessari gerð. Hann
sagði ekkert hæft í fréttum um að
hægt yrði á framleiðslunni vegna
kreppunnar.
Forstjóri Sukhoi, Míkhaíl Po-
gosjan, beitti sér fyrir framleiðslu
þotunnar, sem tekur allt að 98
farþega. Áður hafði hann lagst
gegn áformum fyrri stjórnenda
fyrirtækisins um að smíða risa-
stóra flutninga- og farþegaþotu,
KR-860, sem átti að vega allt að
650 tonn og taka 860-1.000 far-
þega.
Sukhoi hefur framleitt herflug-
vélar, meðal annars orrustuþotur
af gerðunum Su-27 og Su-30. Fyr-
irtækið hannaði farþegaþotuna í
samstarfi við ítalska fyrirtækið
Alenia Aeronautica sem keypti
rúmlega 25% hlut í Sukhoi í síð-
asta mánuði.
bogi@mbl.is
Fyrsta rússneska farþegaþotan, sem sett hefur verið á markað frá
hruni Sovétríkjanna, verður sýnd í fyrsta skipti utan Rússlands á
flugsýningunni í París sem hefst á mánudaginn kemur
Heimild: Sukhoi flugvélafyrirtækið
NÝ RÚSSNESK FARÞEGAÞOTA
SUKHOI SUPERJET 100
Rússneska fyrirtækið Sukhoi, sem hefur smíðað
herflugvélar, framleiðir nýju þotuna. Hún er
afrakstur margra ára tilrauna Rússa til að hasla sér
völl á alþjóðlegum markaði með framleiðslu á
farþegaþotum í samkeppni við vestræn fyrirtæki
ÚTFLUTNINGSMARKMIÐ
Nýja farþegaþotan verður í beinni samkeppni við
Embraer-þotur frá Brasilíu og Bombardier-þotur frá Kanada,
mest seldu farþegaþoturnar sem taka 70-100 farþega
Bombardier CRJ 700
Farþegafjöldi: 70
Hámarksdrægi: 3.121 km
Embraer EMB 145
Farþegafjöldi: 50
Hámarksdrægi: 2.870 km
Sukhoi Superjet 100
Farþegafjöldi: 98
Hámarksdrægi 4.420 km
Tæknilegar upplýsingar
Heimsmarkaður
Farþegafjöldi
Frá 78 til 98
Sætisbil
81,3 sm (almennt farr.)
Hámarksþyngd
í flugtaki
39.400 kg
Hámarksfarmur
12.245 kg
Hæð farþegarýmis
2,132 m
32,51 m
29,87 m
29,82m
Rússar stefna
að því að ná
10% hlutdeild á
heimsmarkaði
með farþega-
þotum sínum
Vænghaf
27,8 m
Hæð
10,28 m
Markmið þeirra
er að Rússland
verði þriðji
mesti flugvéla-
framleiðandi
heims ekki síðar
en 2015-2018
FLUGSÝNINGIN Í PARÍS
LE BOURGET
ÁR
Stærsta flugsýning
heimsins 100 ára
METKJÖRSÓKN var í forsetakosn-
ingunum í Íran í gær þegar Mahm-
oud Ahmadinejad sóttist eftir end-
urkjöri. Einn stuðningsmanna
Ahmadinejads í Teheran er hér
skreyttur myndum af forsetanum.
Langar biðraðir mynduðust við
kjörstaðina eftir mjög harða kosn-
ingabaráttu milli Ahmadinejads og
þriggja annarra sem fengu að bjóða
sig fram.
Helsti keppinautur Ahmad-
inejads var Mir Hossein Mousavi,
sem var forsætisráðherra þegar Ír-
an háði stríð við Írak á árunum
1980-88. Búist er við að úrslit kosn-
inganna liggi fyrir í dag. Hafi eng-
inn fengið meirihluta atkvæða
verður kosið aftur á milli tveggja
efstu frambjóðendanna á föstudag-
inn kemur.
Reuters
Metkjörsókn eftir harðan kosningaslag
FLUGSLYSIÐ yfir Atlantshafi,
þegar Airbus-þota Air France hrap-
aði í hafið, sýnir að taka þarf upp
nýja tækni í stað flugritanna, eða
„svörtu kassanna“ svonefndu, vegna
þess að þeir eru orðnir úreltir.
Þetta segir Pierre Jeanniot, fyrr-
verandi forstjóri Air France og Al-
þjóðasambands flugfélaga, IATA.
Flugritarnir eru tæki sem skrá
sjálfvirkt upplýsingar um hreyf-
ingar og afköst flugvéla og aðstæður
í loftinu umhverfis. Upplýsingarnar
geta komið að gagni við rannsókn
flugslysa.
Jeanniot segir að auðvelt sé að
taka upp tækni sem byggist á því að
vélarnar sendi frá sér upplýsing-
arnar um gervihnött um leið og al-
varlegar bilanir verði. Með nýju
tækninni verði engin þörf fyrir dýr-
ar og tímafrekar leitir að flugritum á
miklu hafdýpi. bogi@mbl.is
Segir flug-
rita úrelta
holar@simnet.is
Stórskemmtileg bók um bráðsmellin tilsvör
og mögnuð uppátæki Eyjamanna, skráð af
Sigurgeiri Jónssyni. Margir stíga hér á
stokk; gervitennur týnast, lokað er vegna
jarðarfarar og kennslukona vill fá ... jóla-
svein sem stendur!
Þetta og margt fleira
í þessum frábæru bókum.
Hlæjum okkur inn í sumarið!
TVÆR SPRENGHLÆGILEGAR
BÆKUR!
Óborganlegar gamansögur af Árnesingum,
skráðar af Páli heitnum Lýðssyni í Litlu-Sand-
vík. Hér er víða komið við og hverju svaraði
t.d. Dagur Brynjúlfsson í Gaulverjabæ þegar
kona hans sakaði hann um framhjáhald?