Morgunblaðið - 13.06.2009, Qupperneq 40
40 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009
Sudoku
Frumstig
8 7
7 9 8
3 6
9 3 5
5 6 4
2 1
3 4 8
4 9 8 2 5 6
6 2 7
9 5 4
4 7
8
2 1 3 8 9
5 4 6
1 2
6 3
5 8 3
9 7
4 3 5
3 1
5 7 6 8
8 2 5 3
2
6
3 7 9
2 4 3 9 6
2 3 5 4 6 9 8 7 1
9 1 4 5 7 8 6 3 2
6 8 7 2 3 1 9 5 4
4 5 8 1 2 6 7 9 3
7 2 1 9 8 3 5 4 6
3 6 9 7 4 5 2 1 8
1 7 2 8 5 4 3 6 9
8 9 3 6 1 7 4 2 5
5 4 6 3 9 2 1 8 7
7 8 1 2 6 4 5 9 3
5 9 6 7 8 3 4 2 1
3 2 4 1 9 5 6 8 7
2 6 9 8 7 1 3 4 5
4 7 5 3 2 6 9 1 8
1 3 8 4 5 9 2 7 6
8 4 7 6 3 2 1 5 9
6 5 2 9 1 7 8 3 4
9 1 3 5 4 8 7 6 2
5 6 1 2 7 4 8 3 9
9 3 4 1 6 8 5 7 2
8 2 7 3 5 9 4 6 1
6 8 9 5 2 3 1 4 7
4 1 5 6 8 7 9 2 3
2 7 3 9 4 1 6 5 8
7 9 2 4 1 5 3 8 6
3 4 8 7 9 6 2 1 5
1 5 6 8 3 2 7 9 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 13. júní, 164. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)
Víkverji fór skyndilega að hugsaum virkjanir, stóriðju og um-
hverfisvernd í síðustu viku. Eitt sinn
var þetta helsta hugðarefni þjóð-
arinnar og annað komst varla að. Nú
eru það saksóknarar og fjár-
glæframenn sem eiga hugi hennar
alla.
x x x
Deilumálið um þetta „eitthvaðannað“ sem átti að koma í stað
stóriðjunnar stóð lengi og virðist enn
standa yfir að hluta. „Hvað er þetta
eitthvað annað?“ spurðu stóriðju-
sinnar og bjuggust við svörum frá Sa-
ving Iceland fólkinu. Málið var hins
vegar að það var löngu búið að svara
þeirri spurningu. Svo var búið að
svara henni aftur og aftur. Og enn er
verið að svara spurningunni, úr
óvæntum áttum, af fólki með við-
skiptahugmyndir. Svo virðist nefni-
lega að Íslendingar, Marorka, geti
búið til orkustjórnunarkerfi í skip.
Hverjum datt það í hug fyrirfram? Þá
virðast Íslendingar, Nikita, geta
hannað föt. Margt fleira geta Íslend-
ingar gert. Nýjasta dæmið er að Ís-
lendingar, ORF Líftækni, geta fram-
leitt verðmæt prótein til nota í
lyfjaframleiðslu.
x x x
Einn nýsköpunarforkólfurinn tjáðiVíkverja um daginn að vonir
standi til þess að eitt til tvö sprotafyr-
irtæki geti „útskrifast“ úr þeim flokki
á ári, næstu árin. Það þýðir að þau
fari yfir einn milljarð í veltu á ári og
hætti að njóta styrkja. Umræðan um
þetta „eitthvað annað“ er semsagt al-
gerlega óþörf. Við vitum alveg að það
er hægt að gera eitthvað annað og að
það er verið að gera það nú þegar.
x x x
Þess vegna svíður Víkverja þaðtöluvert þegar fyrirtæki sem
ætla að gera „eitthvað annað“ fá á sig
sömu gagnrýnina frá umhverf-
isverndarsinnum og stóriðjan, þótt
ekkert bendi til þess að þau skemmi
náttúruna. Þá fyrst fer að styttast í
alvöru umræður um Íslendinga sem
tína fjallagrös og ganga á mold-
argólfum. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 vaska, 4 glym-
ur, 7 mannsnafn, 8
óskýr, 9 miskunn, 11
stingur, 13 lasburða, 14
hagnaður, 15 fæðingu,
17 fatnað, 20 op, 22 aur,
23 að baki, 24 dreg í efa,
25 snjóa.
Lóðrétt | 1 gera hreint,
2 skips, 3 lengdareining,
4 dreyri, 5 hundar í spil-
um, 6 setjum í gang, 10
svipað, 12 nefnd, 13 bið,
15 þrúgar niður, 16 mál-
glöð, 18 stallurinn, 19
ljúka, 20 glenni upp
munninn, 21 naut.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 andspænis, 8 fúlar, 9 lýsir, 10 púa, 11 regla, 13
rögum, 15 storm, 18 ansar, 21 arf, 22 tólið, 23 rætin, 24
afdankaða.
Lóðrétt: 2 nálæg, 3 syrpa, 4 ætlar, 5 ilsig, 6 æfar, 7
þröm, 12 lár, 14 örn, 15 sótt, 16 oflof, 17 maðka, 18 af-
rek, 19 sætið, 20 rönd.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. Rf3 c6 3. c4 e6 4. Dc2 Bd6 5.
Bg5 f6 6. Bh4 Re7 7. e3 Rf5 8. Bg3
Rxg3 9. hxg3 f5 10. Rc3 a6 11. O-O-O
Rd7 12. Kb1 Df6 13. Rd2 b6 14. cxd5
cxd5 15. Rb5 axb5 16. Dc6 Hb8 17.
Dxd6 De7 18. Dc7 O-O 19. Bxb5 Hb7
20. Dc6 Rb8 21. Dc3 Bd7 22. Db3 De8
23. Bxd7 Rxd7 24. Hc1 b5 25. Db4 Dg6
26. Hc2 f4 27. gxf4 Dxg2 28. Hhc1 Dxf2
29. Rc4 Dg3 30. Ra5 Hbb8 31. f5 exf5
32. Rc6 Hbe8 33. Re7+ Kh8 34. Rxd5
Rf6 35. Rxf6 Hxf6 36. Dxb5 Dxe3
Staðan kom upp á 8. asíska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu í Su-
bic á Filippseyjum. Stórmeistarinn
Liem Quang Le (2591) frá Víetnam
hafði hvítt gegn kollega sínum Ziaur
Rahman (2523) frá Bangladess. 37.
He2! og svartur gafst upp enda liðstap
óumflýjanlegt eða að hann verði mát
eftir 37… Dxe2 38. Dxe2 Hxe2 39.
Hc8+.
Hvítur á leik.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Virkir menn.
Norður
♠G1032
♥10987
♦4
♣ÁG64
Vestur Austur
♠94 ♠ÁD765
♥2 ♥DG3
♦KDG652 ♦973
♣K1083 ♣D2
Suður
♠K8
♥ÁK654
♦Á108
♣975
Suður spilar 4♥.
Zeke Jabbour er kunnur fyrir góðar
greinar sínar í rit bandaríska brids-
sambandsins. Zeke kann líka ágætlega
að spila. Hann var hér í suður og hóf
sagnir með 1♥. Vestur sagði 2♦, norð-
ur sýndi góðan hjartastuðning með 3♦
og austur stakk inn 3♠. Virkir menn,
allir saman, en Zeke átti síðasta orðið
með 4♥. Tígulkóngur út.
Zeke drap, tók ♥Á, stakk tígul, fór
heim á ♥K og trompaði enn tígul. Spil-
aði svo spaða úr borði. Austur fór upp
með ásinn, tók ♥D og kom sér út á
spaða. Nú var spilið upptalið. Austur
hafði sýnt 3-3 í rauðu litunum og fimm-
lit í spaða. Hann átti því nákvæmlega
tvö lauf, sem Zeke veðjaði á að væru
Kx eða Dx: spilaði laufi á ásinn, tromp-
aði út ♠D og sendi austur lok sinn á
♣D. Austur átti bara spaða eftir og
varð að gefa blindum úrslitaslaginn.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Af því að aðdáun þín á tiltekinni
manneskju er endalaus getur hugsast að
þú eyðir um of í veitingahús, gjafir eða
veislur. Mundu að sjaldan veldur einn
þá tveir deila.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú verður að láta þér lynda það að
allir eigi sér leyndarmál sem þeir kjósa
að deila ekki með neinum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hópvinna lætur ekki bara dag-
inn líða hraðar, hann verður líka
skemmtilegri. Notaðu tækifærið til að
koma ár þinni sem best fyrir borð.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Nú er komið að þér að láta ljós
þitt skína. Taktu mikilvægar ákvarðanir
því þær geta eflt mannorð þitt enn frek-
ar og aukið tekjurnar.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú ert ekki ánægður með alla hluti
og skalt skoða þá í víðara samhengi áð-
ur en þú ákveður að láta til skarar
skríða. Vitandi þetta muntu fara var-
lega.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú elskar stórmenni og snilld-
arhugmyndir. Láttu það ekki koma þér
úr jafnvægi heldur auka þér styrk.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú munt að öllum líkindum lenda í
deilum við maka þinn í dag. Reyndu
samt að þreyja þorrann því allt lagast
þetta að lokum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Áhyggjur byggjast mikið til
á vana. Notfærðu þér það og komdu öllu
því í verk sem þú hefur látið reka á
reiðanum að undanförnu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nærvera öfundsjúkrar mann-
eskju þreytir þig, enda getur þú ekki
verið þú sjálf í kringum hana. Nú skiptir
máli að fara varlega og segja ekki hluti
sem þú munt sjá eftir síðar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú hefur mikið sjálfstraust
nún og dagurinn er kjörinn til þess að
hitta vinina og finna út úr því hvernig
hægt er að bæta veröldina.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Reyndu að fá sem mest út úr
þeim tíma sem þú átt með vinum og
vandamönnum. Skemmtilegar samræður
munu opna þér forvitnilega sýn.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Einhver óróleiki ríkir á vinnustað
þínum og þér finnst erfitt að átta þig á
stöðu mála. Góð heilsa er eitt af því dýr-
mætasta sem við eigum og því er mik-
ilvægt að sinna henni.
Stjörnuspá
13. júní 1875
Jón Sigurðsson forseti ávarp-
aði skólapilta í Reykjavík.
Hann sagði að eitt af skilyrð-
unum fyrir því að geta orðið
nýtur maður væri að þola
stjórn og bönd. Frelsi án
banda, án takmörkunar, væri
ekki frelsi heldur agaleysi og
óstjórn.
13. júní 1922
Gengisskráning íslensku krón-
unnar hófst, en áður hafði hún
fylgt þeirri dönsku.
13. júní 1941
Sigurður Jónasson forstjóri
bauð ríkinu að taka við Bessa-
stöðum sem gjöf „til þess að
vera bústaður æðsta valds-
manns íslenska ríkisins“. Rík-
isstjórnin tók boði hans fimm
dögum síðar.
13. júní 1971
Framboðsflokkurinn bauð
fram í þremur kjördæmum í
alþingiskosningum og hlaut
um 2% atkvæða. Listabók-
stafur flokksins var O. Það
voru einkum háskólastúd-
entar sem stóðu að framboð-
inu og gerðu þeir óspart grín
að kosningabaráttu hinna
flokkanna.
13. júní 2002
Jiang Zemin forseti Kína kom
í þriggja daga opinbera heim-
sókn til Íslands. Nokkuð bar á
mótmælum félaga úr Falun
Gong.
13. júní 2006
Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur mynduðu
meirihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur og Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson varð borg-
arstjóri. Nýir meirihlutar voru
myndaðir í október 2007, jan-
úar 2008 og ágúst 2008.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„Ég ætla mér að eyða deginum með fjölskyldunni
og hafa það gott. Við verðum í bústað í Biskups-
tungum,“ segir Leifur Skúlason Kaldal bygginga-
verkfræðingur sem er þrítugur í dag.
Hann ætlar að vera með konu sinni, Dagnýju
Ástu Magnúsdóttur, og syni þeirra, Oliver Leifs-
syni Kaldal, ásamt nánustu fjölskyldu í bústaðn-
um. „Ætli við verðum ekki svona tíu í það heila,“
segir Leifur.
Hann segir ekki mikla „afmælishátíð“ verða í
tilefni dagsins. Þó verði dagurinn eflaust „góður“.
Hugsanlega verði meira fjör seinna á árinu þegar
konan hans verður þrítug. „Það má vera að við höldum upp á það
sameiginlega, að eiga stórafmæli, en það verður bara að ráðast.“
Leifur segist ekki vera hræddur við að aldurinn færist yfir.
„Kannski er þetta fyrsta vísbendingin um að maður sé orðinn gamall,
annars veit ég það ekki. Ég hef ekki mikið velt því fyrir mér. Senni-
lega er þetta þó fyrsta alvöru stórafmælið, það er að segja sem gefur
tilefni til þess að maður sé raunverulega orðinn fullorðinn. Þetta er
þó ekkert til þess að hafa áhyggjur af,“ segir Leifur.
Leifur Skúlason Kaldal verkfræðingur þrítugur
Í sælunni í Biskupstungum
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is