Morgunblaðið - 13.06.2009, Síða 43
Menning 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ISNORD-tónlistarhátíðin verður
haldin í fimmta sinn í Borgarfirðin-
um um helgina. Listrænn stjórnandi
hennar er Jónína Erna Arnardóttir
píanóleikari.
„Hátíðin hefst á einsöngstónleik-
um Guðrúnar Ingimarsdóttur en
hún kemur frá Þýskalandi, gagngert
til að syngja hér. Hún býr þar og hef-
ur vegnað mjög vel,“ segir Jónína.
Á sunnudag verða tónleikar á stað
sem vekur forvitni blaðamanns og
heitir Paradísarlaut. „Jú, þessi laut
er til og er kölluð þessu nafni. Þeir
sem hafa komið þangað skilja hvers
vegna hún er kölluð því nafni. Hún er
algjör paradís. Til að komast í Para-
dísarlaut er farið sem leið liggur í átt
að Bifröst, en beygt niður að ánni í
átt að Glanna. Gamlir Bifrestingar
þekkja lautina vel, því þar var busum
dýft í litla tjörn sem þar er. Við erum
auðvitað í og með að vekja athygli á
þessum fallega stað.“
Baðstofukvöld Böðvars
Böðvar Guðmundsson skáld úr Hvít-
ársíðunni verður heiðursgestur á
tónleikum í Logalandi í Reykholts-
dal á þriðjudagskvöld og tónleikarn-
ir helgaðir skáldskap hans og tónlist.
„Þar verða barnakór og kammerkór
og kvartett sem flytja ljóðin hans.
Kristín Ólafsdóttir, sem eitt sinn var
gift Böðvari, og Diddi fiðla ætla að
syngja nokkur lög, en Diddi spilar
líka á ýmis hljóðfæri.“
Jónína Erna segir Böðvarsdag-
skrána sérstakan viðburð til heiðurs
skáldinu, sem fagnar 70 ára afmæli
um þessar mundir. „Böðvar heldur
mjög góðum tengslum við sína sveit
og við erum mjög stolt af honum.
Þegar ég fór að grúska í ljóðunum
hans komst ég að því að hann hefur
sjálfur samið fullt af lögum. Það er
líka ótrúleg breidd í textunum hans.
Hann samdi til dæmis textana við
Róbert bangsa og Emil í Kattholti og
svo mjög háfleyga sálma, til dæmis
við tónlist Bachs. Kirkjukórar
syngja oft sálminn „Við lyftum hug í
hæðir“, en það er texti eftir Böðvar.
Svo hefur hann hefur líka samið
beitta ádeilutexta og harða baráttu-
söngva, með grófum og jafnvel klúr-
um textum. Textarnir hans spanna
því allt litrófið, og það viljum við
sýna á tónleikunum,“ segir Jónína.
„Það verður svolítill lestur úr verk-
um Böðvars, en aðaláherslan er á
sönginn.“
Böðvar Guðmundsson Skáldinu fagnað í Logalandi á þriðjudagskvöld.
Englasöngur í Paradís
Tónlistarhátíð í Borgarfirði 13.-16. júní
Tímaljós heitir sýning Aðal-heiðar Valgeirsdóttur semnú stendur yfir í Ásmund-arsal Listasafns ASÍ. Alls
8 olíumálverk, 110 x 170 cm að
stærð, hanga sem myndröð í saln-
um.
Öll eru verkin unnin eft-
ir ólíkum náttúruhugrifum
frá hausti til vors út frá
birtu og formi hvers tíma-
bils. Litir eru gegnsæir og
liggja hver ofan á öðrum
en haldast flatir. Á yfir-
borðið teiknar listakonan
svo ýmist línur eða punkta
sem gefa myndunum
ímyndað rými.
Teikningin er stjórnuð
en ekki flæðandi, hefur
reyndar útlit flæðis en er
engu að síður skraut. Ég
hef samt ekki á tilfinning-
unni að skrautið sé tákn-
sögulegt eins og venjan er
hjá frumstæðum þjóðum
sem nota skraut sem frá-
sögn í annars abstrakt
myndum, að öðru leyti en
að teikningin vill gjarnan
leita í kross sem er vissu-
lega táknfræðilegt form
en að sama skapi hentug
myndbygging.
Náttúrumyndin skilar sér nokk-
uð vel þrátt fyrir skreytið og minn-
ir margt á tímabil í list Sigtryggs
Bjarna Baldvinssonar sem hefur
nálgast náttúrumyndina með sams-
konar hætti. Einnig kemur Philip
Taaffe sterklega í huga minn sök-
um tengsla forma við undraveröld
örlífvera, sem Taaffe hefur tekið
fyrir sem skreyti.
Taffee notar endurtekningu líkt
og í möntru- eða mandölugerð sem
kann að nýtast í einhverskonar
trans. Endurtekningar gætir vissu-
lega í verkum Aðalheiðar en ekki
að neinu sérstöku marki og kann
því að vera vegna lærðrar aðferðar
sem fylgir þessari tegund málverks
en ekki vegna setts markmiðs.
Náttúruskraut
Tímaljós Öll verkin eru unnin eftir ólíkum
náttúruhugrifum frá hausti til vors út frá
birtu og formi hvers tímabils.
Listasafn ASÍ
Aðalheiður Valgeirsdóttir bbbnn
Opið alla daga nema mánudaga
frá 13-17. Sýningu lýkur 21. júní.
Aðgangur ókeypis.
JÓN B. K.
RANSU
MYNDLIST
NORÐURLJÓS – Borgarneskirkju í dag kl. 16
Guðrún Ingimarsdóttir og Jónína Erna Arnardóttir
ENGLASÖNGUR Í PARADÍS – Paradísarlaut á morgun kl. 16
Kór Kársnesskóla syngur, Þórunn Björnsdóttir stjórnar.
BAÐSTOFA BÖÐVARS– Logalandi, þriðjudagskvöld kl. 21.
Kórar, kvartett og söngvarar heiðra Böðvar Guðmundsson.
Dagskráin
Morgunblaðið/Ómar
Rafræn skráning er hafin á 1. stig
grunnskóladeildar Listdansskóla Íslands.
Annað inntökupróf verður 15. ágúst 2009
klukkan 11:00.
Lilja Rúriksdóttir, nemandi úr Listdansskóla
Íslands hefur dansnám í hinum þekkta
Juilliard skóla í New York í haust. Við
óskum henni til hamingju með árangurinn.
Munið frístundarkortin.
Skólaárið 2009 – 2010
Inntökupróf
Þekking
Reynsla
Fagmennska
Gæði
Staður:
Engjateigur 1
105 Reykjavík
Nánari upplýsingar:
www.listdans.is
588 91 88
Úrvalskennarar í klassískum
og nútíma listdansi