Morgunblaðið - 13.06.2009, Qupperneq 44
44 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. JÚNÍ 2009
Sænska teknóhljómsveitin sí-
vinsæla Familijen er á leið aftur
til Íslands. Hún kemur hingað í
júlí og leikur á Broadway í
Reykjavík og svo á Sjallanum á
Akureyri. Sveitin spilaði á Airwa-
ves í fyrra en þá hafði lagið „Der
snurrar i min skalle“ ekki slegið
jafn harkalega í gegn og síðar
varð.
Familijen snýr aftur til
Íslands í júlí
Fólk
SKJÁR Einn stendur vaktina í íslenskri þáttagerð
með prýði nú um stundir. Nýtt útlit – sem vakti
gríðarlega athygli – hefur nýlokið göngu sinni en
brátt fara í loftið tveir nýir þættir. Magasínþátt-
urinn Monitor, sem tengist samnefndu riti, fer í loft-
ið 24. júní og tveimur dögum fyrr verður nýr mat-
reiðsluþáttur, Matarklúbburinn, frumsýndur.
Þátturinn er í umsjón Hrefnu Rósu Sætran, marg-
verðlaunaðs landliðskokks en hún er jafnframt eig-
andi og yfirkokkur á veitingastaðnum Fiskmark-
aðnum.
„Það hefur vantað svona þátt í íslenskt sjónvarp
og þetta efni er gríðarlega vinsælt. Ég veit að marg-
ir horfa t.d. mjög stíft á BBC Food,“ segir Hrefna.
„Við setjum þetta þannig upp að ég er í heimaeld-
húsi. Ég er ekki í kokkagalla, þannig að sniðið er
afslappað og óformlegt, a la Nigella og Jamie Oli-
ver. Við reynum að hafa þetta létt og skemmtilegt
en þetta gengur út á að gefa fólki hugmyndir um
hvað er hægt að gera og „afrugla“ hlutina. Fólk sér
kannski flókna rétti á veitingastöðum sem eru síðan
ekkert flóknir ef nánar er að gáð.“
Hrefna segir þættina, sem verða hálftíma lang-
ir, þemabundna, í einum þætti verður sýnt
hvernig elda skal fyrir fjölskyldu, svo er
saumaklúbburinn tekinn fyrir, kósíkvöld
kærustuparsins o.s.frv.
„Svo koma gestir í endann og borða það
sem ég hef verið að matreiða. Það fer
ekkert til spillis!“ arnart@mbl.is
Nýr matreiðsluþáttur á Skjá einum
Ensími startaði á fimmtudags-
kvöldið tónleikaröðinni Manstu
ekki eftir mér? en þar eru þekkt-
ar hljómsveitir fengnar til þess
að leika eina af vinsælli plötum
sínum frá a til ö. Sveitin nýtti
tækifærið og seldi diska sína á
staðnum en fá eintök voru eftir
hjá útgefanda. Salan tókst svo vel
að öll eintökin af fyrstu tveimur
plötum þeirra (Kafbátamúsík og
BMX) seldust upp. Þar sem þetta
var restin af lager Senu þá eru
þessar plötur nú uppseldar hjá
útgefanda og alls óvíst hvort eða
hvenær þær verða útgefnar aft-
ur. Hver segir svo að nostalgían
borgi sig ekki?
Plötur Ensími upp-
seldar eftir tónleika
Hinar tölvuleikja- og þrassvænu
sveitir Retrön og Swords of Chaos
ætla að láta svitann renna af
veggjum Kaffi Hljómalindar í
kvöld. Þetta eru fyrstu tónleikar
Retrön í langan tíma en sveitin
vinnur að plötu og er 7. júlí áætl-
aður útgáfudagur. Einnig eru
Swords-menn á leiðinni í stúdíó.
„Ofbeldið“ hefst á slaginu 20 og
stendur til 22.
Retrön og Swords of
Chaos í Hljómalind
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
Í GÆR hófust framkvæmdir í gamla
kofanum er hýsti skemmtistaðinn
Sirkús en opna á þar nýjan stað í
byrjun júlí. Hann kemur til með að
heita Polar-bar og fáist leyfi frá
Reykjavíkurborg verður lögð
áhersla á tónleikahald. Þá vonast
nýju eigendurnir til að það geti farið
fram að einhverju leyti í gamla Sirk-
úsportinu. Staðurinn verður þó ekki
opinn fram eftir nóttu. Hugmyndin
er að tónleikarnir muni að mestu
fara fram síðdegis og svo fram eftir
kvöldi. Staðurinn verður svo opinn á
daginn sem kaffihús.
„Við skrifuðum undir leigusamn-
ing í fyrradag og erum núna að
sækja um vínveitingarleyfi,“ segir
Loftur Loftsson, eigandi Polar-bars.
„Okkur langar til þess að setja upp
svið við múrinn út í porti. Það er
nýbúið að þökuleggja svæði fyrir
aftan hann sem við erum að vonast
til að fá að nýta eitthvað líka. Að
minnsta kosti langar okkur til þess
að setja upp stóra tónleika þar á
Menningarnótt.“
Kreppugrillið
Eins og margir muna voru allar
innréttingar gamla Sirkús-bar tekn-
ar niður og þær nýttar í listasýn-
ingu. Því þarf að endurinnrétta stað-
inn frá grunni. Sú breyting verður á
að gengið verður inn í kofann frá
Sirkús-portinu en ekki af Klapp-
arstíg eins og áður.
„Húsið er þannig séð ónýtt. Við
byrjuðum í gær að hreinsa út úr hús-
inu og erum að bíða eftir húsgögnum
sem við pöntuðum. Við vitum að
þetta er stuttur tími sem við höfum
en við ætlum bara að vinna hratt og
örugglega en það gæti auðvitað allt-
af eitthvað frestað opnuninni. Við
stefnum samt á að opna 1. júlí.“
Hugmyndin er að nýta staðinn
sem kaffihús á daginn og allt gert til
þess að gestir geti notið þess stutta
tímaramma er veðurguðirnir gefa
okkur til þess að njóta sólarinnar.
„Mig langar til þess að setja upp
grill og kalla það Kreppugrillið. Fólk
mætir þá bara með kjötið sjálft og
hendir á. Svo getur það notið grill-
matarins með bjór. Það verða bekkir
þarna í portinu, plöntur og kósý
stemmning svo að fólk geti notið úti-
verunnar í sumar.“
Á sínum tíma lokaði Sirkús þar
sem borgaryfirvöld höfðu ákveðið að
rífa ætti kofann. Ekki hefur þó orðið
af því ennþá og því gefst nýtt tæki-
færi til þess að endurglæða reitinn
lífi. „Þessi staðsetning er svo frábær
og þegar eitthvað er að gerast þarna
gefur það bænum svo mikið líf. Ég
var nú aldrei mikil Sirkús-rotta en
samt sakna ég staðarins. Það er búið
að vera ömurlegt að sjá þetta autt og
tómt í svona langan tíma.“
Fáist leyfi fyrir tónleikahaldi von-
ast Loftur til þess að staðurinn verði
vinsælt afdrep fyrir íslenskar hljóm-
sveitir. Þá er hugmyndin að hafa ró-
legri, órafmagnaða tónleika yfir dag-
inn í sumar en svo yrði stungið í
samband á kvöldin.
Rís á rústum Sirkús
Unnið er að því að opna nýjan tónleikastað í gamla húsnæði Sirkús við Klapp-
arstíg Framkvæmdir hafnar Tónleikasviðið verður líklegast úti í porti
Morgunblaðið/ÞÖK
Líf í portinu Kannski líður ekki á löngu þar til sveitir á borð við Retro Stef-
son leika aftur í gamla Sirkúsportinu.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
AUDIO Improvement býður til
veislu á Rósenberg á mánudags-
kvöld og hyggst þá kynna breiðskífu
sem kemur út sama dag. Audio Imp-
rovement er átta manna félag tón-
listarmanna úr ólíkum áttum sem
fundu sér farveg í blöndu af rappi,
rokki, kántrý, blús, fönki og fleiri
tónlistarstefnum, allt flutt með lif-
andi hljóðfæraleik.
Sveitin hefur starfað í tvö ár með
hléum og leikið á stöku hljómleikum,
kom til að mynda fram á síðustu
Airwaves-hátíð.
Eins og Pan Thorarensen, einn
liðsmaður sveitarinnar og talsmaður
hennar, lýsir því hafa sveitarmenn
stefnt að því alla tíð að taka upp
plötu saman, en það hefur gengið
brösuglega þar til nú. „Það er eig-
inlega kraftaverk að okkur hafi tek-
ist að búa til plötu, því við erum svo
margir í hljómsveitinni með svo ólík-
ar skoðanir og svo eru menn svo
uppteknir að það er erfitt að koma
hópnum saman. Þetta gekk þó á
endanum og allir eru mjög sáttir.
Á skífunni, sem ber heitið Story
Fragments, eru átta lög, úrval úr
lagsafni sveitarinnar sem Pan segir
að telji eitthvað á þriðja tug laga. Á
tónleikunum í Rósenberg á mánu-
dagskvöldið flytja þeir þessi átta lög,
en síðan ætla þeir að „freestyla“,
eins og hann orðar það; „djamma
bara og sjá hvað gerist. Við ætlum
því að spila þessi átta lög sem eru á
plötunni og svo köstum við hug-
myndum á milli okkar.“
Tónleikarnir á Rósenberg á
mánudagskvöld hefjast kl. 22:00 og
er ókeypis inn.
Blanda af hiphop, rokki,
kántrý, blús og fönki
Fjölmenni Audio Improvement spilar á Rósenberg á mánudagskvöld.
Audio Improvement kynnir plötu á Rósenberg
Lengi hefur verið drukkið í
gamla kofanum við Klapparstíg.
Sirkus er líklegast eini
skemmtistaður kofans sem hef-
ur komist í túristabæklingana
en hann varð þekktur fyrir að
vera aðsetur litríkrar listasenu
borgarinnar. Hér áður fyrr voru í
kofanum biljarðstofan Billinn og
síðar ölstofan N1 bar sem
stoppaði stutt. Grand Rokk hóf
lífdaga sína í kofanum en flutt-
ist svo yfir á Smiðjustíg með
táknrænni athöfn þegar fasta-
gestir gengu yfir.
N1 bar?
Afslappað
Hrefna Rósa
Sætran.