Morgunblaðið - 28.06.2009, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 28.06.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009 i i d 2 8 l d 0 8 d einfaldlega betri kostur laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is stóll 9.950,- SPARAÐU 9.950,- Mambo. Baststóll m/háu baki. Verð 19.900,- NÚ 9.950,- sendum um allt land 50% afsláttur af Mambo ÚTSALA YFIR 1300 VÖRULIÐIR Á LÆKKUÐU VERÐI Bjóðum uppá vaxtalaust lán til 6 mánaða Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur svanbjorg@mbl.is ATVINNULEYSI hrellir ekki þá sem starfa við skipaviðgerðir. Verk- efni sem fóru úr landi á góðæristím- anum eru núna unnin hér heima. „Við tókum ekki þátt í fjaðrafokinu und- anfarin ár og því er kreppan ekki að þjaka okkur. Undanfarið höfum við auglýst talsvert eftir fólki og ráðið nánast alla umsækjendur en okkur vantar fleira fólk,“ segir Hilmar Kristinsson, verkstjóri hjá Stálsmiðj- unni. Skipasmíðar hátækniiðnaður Hann segir tækifærin í skipa- smíðum og -viðgerðum mikil en hins vegar vanti fjármagn. „Undanfarin ár virtust allir missa áhuga á iðnaði hér innanlands og öll framleiðsla datt nið- ur. Flestir virtust halda að peningar yrðu bara til úr pappír. Skip voru smíðuð í útlöndum og send utan til viðgerða. Við hreinlega misstum af lestinni.“ Hilmar segir skipasmíðar og -viðgerðir hafa verið sterka at- vinnugrein hérlendis á árum áður og fjöldi hæfileikaríkra manna hafi starfað við greinina. Íslendingar hafi á sínum tíma verið fremstir í hönnun og smíði fiskiskipa. Hilmar bendir á að skipasmíðar séu hátækniiðnaður sem bjóði upp á fjölda starfa. Að hönnuninni komi verkfræðingar, vél- fræðingar og fleiri hönnuðir. Að smíðinni komi iðnaðarmenn úr marg- víslegum greinum og einnig ófaglært fólk. Iðnaður í sárum eftir góðæri Hann leggur áherslu á að styðja verði við bakið á iðnaðar- og fram- leiðslufyrirtækjum sem séu hreinlega í sárum eftir allt pappírsgóðærið. Það séu þau sem skapi gjaldeyri. „Það þarf iðn- og framleiðslugreinar til að „bakka upp“ þjóðfélagið. Þingið er fullt af hámenntuðu fólki sem skynjar kannski tölur og pappír. En við þurf- um kjarkmikið fólk með víðtæka reynslu, fólk sem veit hvað það er að vinna með höndunum. Við megum ekki gleyma því að uppruni okkar er í sjávarútvegi og landbúnaði og að við búum yfir gríðarlegri þekkingu á þessum sviðum.“ Skipaviðgerðir færast heim  Mikill uppgangur hefur verið í skipaviðgerðum en verkefnin voru áður send úr landi  Verkfræðingar, vélfræðingar og hönnuðir koma að smíðunum Morgunblaðið/Heiddi Iðnaður Hilmar Kristinsson verkstjóri segist þurfa kjarkmikið fólk með víð- tæka reynslu. Viðhald Bergeyjar VE er meðal þess sem unnið er að. „Á MEÐAN Dag- ur B. Eggertsson var upptekinn við annað fór Reykjavíkurborg í endurskoðun á fjárhagsáætlun sinni. Góðu frétt- irnar eru að við erum á áætlun í öllum megin- atriðum og ekkert bendir til þess að það muni breytast,“ segir Óskar Bergsson, formaður borgarráðs. Að sögn Dags er 4-5 milljarða króna gat í fjárhagsáætlun borg- arinnar til 2010. „Dagur kýs að taka þjóðhags- spána og yfirfæra hana á Reykja- víkurborg og leggja allt út á versta veg. Við erum búin að endurskoða fjárhagsáætlun okkar miðað við ástandið og það bendir ekkert til annars en að hún standi.“ haa@mbl.is Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar var endurskoðuð Óskar Bergsson „ÉG stend við það sem ég hef sagt í minni fyrri yfirlýsingu og það hafa ekki komið fram neinar nýjar upplýsingar í málinu,“ segir Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi Samfylk- ingarinnar í Kópavogi og stjórnar- maður í LSK. Í Morgunblaðinu í gær, laugardag, sagði að stjórnar- menn LSK hefðu skv. tölvupóst- samskiptum vitað að ekki voru all- ar upplýsingar gefnar upp til Fjármálaeftirlitsins um lán sjóðs- ins til Kópavogsbæjar og að með þeim væri farið út fyrir lagaheim- ildir. Ómar Stefánsson, bæjar- fulltrúi Framsóknar í Kópavogi og einnig stjórnarmaður í LSK, gat ekki tjáð sig um málið að svo stöddu. Báðir töldu þeir sig þurfa meiri tíma til að fara yfir gögn málsins og gátu því ekki tjáð sig um það við Morgunblaðið. Ómar og Flosi höfðu áður gagn- rýnt harðlega að almennir stjórn- armenn hefðu fengið villandi upp- lýsingar um gögn málsins. haa@mbl.is Stendur við fyrri yfirlýsingu Þurfa meiri tíma til að kynna sér gögn Ómar StefánssonFlosi Eiríksson FJÁRSÖFNUN er nú hafin vegna bruna sem varð í bílskúr á Mar- bakkabraut í Kópavogi á fimmtu- dag. Sigfús Þór Sigurðsson, sem brenndist alvarlega í slysinu, á von á sínu fyrsta barni ásamt eiginkonu sinni, Helgu Katrínu Stefánsdóttur. Þeir sem hafa áhuga á að styrkja Sigfús Þór og Helgu er bent á reikning 0515-26-391423, kt. 250687-2309. Fjársöfnun í kjölfar bruna á Marbakkabraut Slys Sprenging varð í bílskúrnum Ljósmynd/Vilhjálmur Sigþórsson ÞESSI hreystimenni létu ekki kuldann aftra sér frá því að skella sér stundarkorn í sjóinn í Naut- hólsvík í vikunni, þótt a.m.k. einum þeirra virðist hafa þótt baðið heldur kalt. Sjósund hefur notið aukinna vinsælda og sífellt bætast fleiri í hóp þeirra sem reglulega stinga sér til sunds í Naut- hólsvík og víðar. Að sögn hressir sundið og kætir og menn stíga ferskari en nokkru sinni upp úr hafinu þegar þeir hafa vanist kuldanum. HETJULEGIR Í KÖLDUM SJÓNUM Morgunblaðið/Ómar BÍLL lenti utan vegar í Fagradal rétt innan við Reyðarfjörð aðfara- nótt laugardags. Fimm ungmenni voru í bílnum og voru þau öll flutt á slysadeild. Flogið var með tvo í sjúkraflugi á bráðamóttökuna í Reykjavík en þrír voru fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri. Að sögn lækna var líðan ung- mennanna í gærmorgun góð eftir at- vikum og er ekkert þeirra talið í lífs- hættu. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði Fjarðabyggðar þurfti að beita klippum til að ná fólkinu út úr bílnum. Tækjabíll frá slökkviliðinu var sendur á vettvang, fjórir sjúkra- bílar úr Fjarðabyggð og tveir frá Egilsstöðum. Ekki fengust nánari upplýsingar um tildrög slyssins áður en Morgun- blaðið fór í prentun. jmv@mbl.is Fimm fluttir á slysa- deild eftir útafakst- ur við Reyðarfjörð HITI komst ekki í 22,9 gráður í Bjarnarey í Vopnafirði á föstudag eins og greint var frá í Morgun- blaðinu í gær. Bilun kom upp í sjálf- virkum mæli og því birtust upplýs- ingarnar sem óyfirfarnar niðurstöður á vef Veðurstofunnar. Hitinn fór þó yfir 20 stig í fyrsta sinn á árinu á föstudag en það var á Hjarðarlandi í Biskupstungum. Sjálfvirki mælirinn í Bjarnarey bilaði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.