Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 11
11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur
Símar 555 7355 og 553 7355
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
www.selena.is
m
bl
10
88
35
5
Glæsilegur kvenfatnaður frá
30% afsláttur
er flutt í Hæðasmára 4
í sama hús og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind
Undirföt - Sundföt
frábært úrval
25% afsláttur
af völdum vörum
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum
árið 2009 vegna ársins 2010
Þjóðhátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt skipulagsskrá nr. 361 frá 30.
september 1977 með áorðnum breytingum, var stofnaður í tilefni af 1100
ára búsetu á Íslandi 1974.
Tilgangur sjóðsins er:
• að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að
vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar,
sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.
Við það skal miðað, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlög til þeirra
verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber
framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra við þau. Á síðasta ári
veitti sjóðurinn 56 styrki samtals að fjárhæð 30,4 m.kr.
Á næstu tveimur árum frá og með árinu 2009 mun sjóðurinn hafa um 33
m.kr. á ári til úthlutunar styrkja. Úthlutunum úr sjóðnum lýkur að þeim
tíma liðnum, þ.e. 2010 vegna ársins 2011 og er þá reiknað með að sjóð-
urinn hafi þegar úthlutað öllu fé sínu í samræmi við tilgang hans.
Umsóknir
Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau
má finna á vefsíðu Seðlabanka Íslands http://www.sedlabanki.is/?Pa-
geID=28. Enn fremur má nálgast eyðublöð í afgreiðslu Seðlabankans,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík.
Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst 2009 og er stefnt að því að út-
hlutað verði úr sjóðnum 1. desember 2009 með athöfn í Þjóðmenningar-
húsinu. Umsóknir skal senda Þjóðhátíðarsjóði, Seðlabanka Íslands, Kalk-
ofnsvegi 1, 150 Reykjavík.
Nánari upplýsingar eru veittar í símum 569 9628 og 569 9781
eða á netfanginu: thjodhatidarsjodur@sedlabanki.is.
Stjórn Þjóðhátíðarsjóðs
’
Það er að mínu mati skylda íslenskra ráða-
manna að tryggja þjóðinni réttinn til að láta
hlutlausan dómstól dæma um þessa þung-
bæru skyldu sem nú stendur til að sam-
þykkja.
Jón Steinar Gunnlausson hæstaréttardómari í
grein í Mbl. um Icesave-samninginn.
Ég skal játa að sjálfur þarf ég að taka mér tak til að sam-
þykkja umsóknarbeiðni að Evrópusambandinu. Það ætla ég
hins vegar að gera lýðræðisins vegna.
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra í grein í Mbl.
Ég get ekki séð að stjórnin sé starfhæf ef hún kemur ekki í
gegn jafnmiklu grundvallarmáli og þessu.
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, um Ice-
save-samninginn.
Hugmyndir eins og þessar hjá mjög ungum vísindamanni á að
skoða gaumgæfilega og hvetja hann til frekari dáða á þessu
sviði.
Umsögn dómnefndar sem verðlaunaði verkefni hins 17 ára Kára
Más Reynissonar, Líkan að gervitaug.
Það vantaði neistann en ég hélt þó að við myndum ná að
kreista fram sigur en því miður tókst það ekki.
Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik,
eftir jafntefli við Eista.
Ég leyfi mér að fullyrða að ekkert ráðuneyti hefur nokkru
sinni ráðist í annan eins niðurskurð á einu ári.
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra um niðurskurð í ráðu-
neyti hans.
Við munum ekki samþykkja að í þessu landi verði konur hafð-
ar eins og fangar, sviptar tækifæri til að lifa eðlilegu félagslífi
og sviptar sinni eigin ímynd.
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti ætlar ekki að líða íslömsku
búrkuna í Frakklandi, enda sé hún táknræn fyrir undirokun
kvenna.
Við höfðum ekki burði til að fjármagna það sem eftir var af
kaupverðinu.
Hörður Arnarson, forstjóri Sjóvár, sem rifti kaupsamningi um 68
lúxusíbúðir í nágrenni Hong Kong og tapaði þar með ríflega 3,2
milljörðum.
Fáeinir einstaklingar hafa rænt til sín miklum fjármunum með
því að halda því fram að framlag þeirra sé algerlega nauðsyn-
legt.
Ráðgjafinn Eva Joly beindi spjótum sínum að yfirmönnum stórra
fjármálafyrirtækja og risastórum kaupaukum þeirra, þótt þeir
skilji eftir sig sviðna jörð.
Við erum orðnir ýmsu vanir, en þetta er enn eitt reiðarslagið
fyrir hópinn.
Jóhannes Bjarni Guðmundsson, formaður Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna, um boðaðar uppsagnir 32 flugmanna hjá Ice-
landair.
Verkefnin eru það stór framundan að það verður ekki hjá því
komist að hækka tekjuskattinn og óbeina skatta einnig á
næsta ári.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra eftir undirritun stöð-
ugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar.
Við gætum fyllt sjúkrahúsið af sjúklingum.
Otto Nordhus, stofnandi Nordhus Medical, vill flytja sjúklinga til
landsins og nýta skurðstofur Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Ef menn geta ekki haldið í sér þær vikur sem þessu vindur
fram verða menn að eiga það við sjálfa sig.
Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra segir ákvörðun um nýt-
ingu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja verða að bíða uns endur-
skipulagningu heilbrigðisstofnana ríkisins er lokið.
Ég yrði ekkert hissa þó það myndu dúkka upp einhverjir
spennandi fjárfestingarkostir hér á næstunni.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er bjartsýn á stór-
framkvæmdir hér á landi, þrátt fyrir erfiða stöðu í efnahags-
málum.
Ummælin Ef fólk er búið að missa eigur sínar í millitíðinni
er það til lítils gagns að fá dóm um að það hafi
verið óréttmætt.
Þorvaldur Þorvaldsson hjá Hagsmunasamtökum
heimilanna segir dómstólaleiðina of seinvirka fyrir
fólk sem á í vanda með húsnæðislán.