Morgunblaðið - 28.06.2009, Síða 15

Morgunblaðið - 28.06.2009, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009 Jóhanna Guðrún Hollustan fylgir þér allan daginn! Jóhanna Guðrún E N N E M M / S ÍA / N M 3 8 3 8 6 Uppáhalds morgunkornið mitt! menn gefi sér góðan tíma til að fara yfir svona skýrslur og meta hvaða ályktanir og niður- stöður er þar að finna. Því var ekki að heilsa í þessu tilviki. Framsóknarflokkurinn fór nefni- lega á taugum. Blés til fundar strax á fimmtu- dagskvöldi og þar kom fram sú krafa að ég myndi stíga niður sem bæjarstjóri. Til að vernda samstarfið féllst ég á að gera það og gerði tillögu um Gunnstein Sigurðsson sem næsta bæjarstjóra. Hún var samþykkt.“ Hissa á Framsóknarflokknum Kom afstaða Framsóknar þér á óvart? „Já, hún gerði það. Ég er mjög hissa á þessari niðurstöðu og botna ekkert í mínum samstarfs- flokki að standa ekki í fæturna í þessu máli. Hann hefur ekki reynt mig að óheiðarleika. Þetta hefði ekki gerst hefði Sigurður heitinn Geirdal ennþá verið oddviti Framsóknar- flokksins.“ Fram hefur komið að Framsókn vilji nú láta rannsaka fleiri mál sem tengjast þér, meðal annars varðandi Klæðningu. Óttastu þá rann- sókn? „Nei, það geri ég ekki. Þetta hefur margoft komið upp. Ég hef ekkert að fela.“ Þú talar um að skýrsla Deloitte sé „lituð og full af getgátum“. Ertu sannfærður um að fyr- irtækið hafi ekki gætt hlutleysis við gerð henn- ar? „Það er ekki nokkur vafi. Þessi skýrsla er handónýt. Það er sama hvern þú spyrð í stétt endurskoðenda eða lögfræðinga, það gefur henni enginn háa einkunn. Ég varð fyrir mikl- um vonbrigðum með þessi vinnubrögð, ekki síst það að láta taka sig í bólinu fyrir ranga lögskýr- ingu.“ Ertu að segja að hægt sé að „kaupa“ skýrslur af þessu tagi? „Maður spyr sig hvers vegna endurskoðandi bæjarins, PWC, var ekki látinn vinna skýrsluna, heldur Deloitte. Hvaða hvatir búa þar að baki? Þú spyrð hvort „kaupa“ megi skýrslur. Hvað gerðu gömlu bankarnir? Fyrirtæki út um allan bæ voru að gefa þeim vottorð upp á fína stöðu. Þremur mánuðum síðar voru þeir farnir á höf- uðið. Hvernig má það vera? Af fenginni reynslu gefur maður ekki mikið fyrir álit af þessu tagi.“ Ekki fundið fyrir meiri stuðningi Hvernig metur þú stöðu þína innan Sjálf- stæðisflokksins í Kópavogi eftir þessa orrahríð síðasta kastið? „Á báðum fundum fulltrúaráðsins að undan- förnu kom fram mikill stuðningur við mig. Það kom m.a. fram tillaga um mig sem oddvita flokksins og var hún samþykkt með öllum greiddum atkvæðum nema einu. Mikill fjöldi vildi ekki heldur verða við kröfum Framsóknar um að ég viki. Menn stóðu oftar en einu sinni upp og klöppuðu fyrir mér á þessum fundum, þannig ég hef ekki í annan tíma fundið fyrir meiri stuðningi meðal sjálfstæðismanna í Kópa- vogi.“ Hvað tekur nú við hjá þér? „Ég er kominn í leyfi frá störfum í bæjar- stjórn Kópavogs. Mér þótti óhugsandi að vera þar meðan ég sætti lögreglurannsókn. Síðan þarf ég að láta huga að þessu sem er búið að bíða æði lengi,“ segir Gunnar og tekur um vinstra hnéð. „Þetta byrjaði með því að hnéð læstist þegar ég var unglingur með þeim afleið- ingum að brjósk losnaði. Þá hafði maður tvo val- kosti: Að gera ekki neitt eða fara í skurðaðgerð. Það voru hins vegar helmingslíkur á því að mað- ur kæmi út úr henni með staurfót. Ég beið því átekta þangað til ég var orðinn þrítugur. Síðan hefur þetta smám saman verið að versna aftur og nú í ágúst er komið að því að láta laga hnéð í eitt skipti fyrir öll. Síðan kemur maður bara fullur orku aftur í bæjarstjórn. Ég verð áfram oddviti míns flokks og mun halda áfram að vinna með mínum fé- lögum eins og ég hef gert undanfarin nítján ár. Eða eins og góður maður sagði: I will be back!“ Á ekki von á uppákomum í haust Hvenær verður það? „Um leið og lögreglurannsókninni er lokið og ég verð búinn að jafna mig eftir aðgerðina. Ég er ekki vanur að liggja mikið heima vegna veik- inda. Ætli þetta verði ekki með haustinu, kannski í október eða nóvember.“ Framsóknarmenn áskilja sér rétt til að end- urskoða samstarfið þegar þú snýrð aftur. Trufl- ar það þig eitthvað? „Ekki get ég sagt það. Það er eðlilegt að menn tali saman í haust en ég á ekki von á neinum uppákomum þegar ég sný aftur. Reynt hefur verið að úthrópa mig sem glæpa- mann en mönnum skal ekki verða kápan úr því klæðinu. Þegar um hægist og menn líta af yf- irvegun yfir þetta mál munu þeir vonandi átta sig á því hvernig það er í raun og veru vaxið og hvað vakti fyrir mínum pólitísku andstæð- ingum.“ Muntu þá hrista þetta mál af þér með tím- anum? „Mér líður vel í hjarta mínu út af þessu máli. Samviskan er hrein.“ mínu AÐ BJARGA BÚSLÓÐINNI ÚR BRENNANDI HÚSI Annað mál sem verið hefur til umfjöllunar upp á síðkastið er rannsókn efnahags- brotadeildar ríkislögreglustjóra á meintum brotum stjórnar Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar. Gunnar hefur verið formað- ur þeirrar stjórnar. Hversu stóra rullu spilar það mál í atburðarás vikunnar? „Ég held að það hafi ekki haft nein úr- slitaáhrif,“ svarar Gunnar. „Þegar bankarnir hrundu í október síðastliðnum var sjóðurinn sem betur fer búinn að losa töluvert fé út úr þeim. Í kjölfarið tók stjórnin ákvörðun um að veita framkvæmdastjóra hans heim- ild til að lána bænum allt að einum milljarði króna. Við gátum hvorki keypt hlutabréf né lagt féð inn í bankana þannig við töldum hagsmunum sjóðsfélaga best borgið með því að ávaxta peningana hjá bænum meðan þetta ástand varði. Lái okkur hver sem vill. Fjármálaeftirlitinu var kunnugt um þetta fram að áramótum og stjórnin samstiga. Eftir áramót voru engir fjárfestingarkostir í boði þannig að við ákváðum að framlengja lánið til bæjarins og höfðum gert það á tveggja mánaða fresti þar til endurskoðandi bæjarins gerði athugsemd við þetta og skrifaði fjármálaráðuneytinu. Menn frá FME komu til fundar við okkur 19. maí og við gerðum samkomulag við þá 29. maí um að greiða upp þetta lán til sjóðsins en það var alltaf á hæstu mögulegum vöxtum. Við varðveittum þetta sem sjáaldur augna okkar og í fyrra tókst okkur það vel upp að við vorum með næstbestu ávöxtun lífeyrissjóða í landinu.“ Öllum stjórnarmönnum kunnugt um fyrirkomulagið Var öllum stjórnarmönnum kunnugt um þetta fyrirkomulag? „Já, þeim var það. Allan tímann,“ segir Gunnar og seilist eftir digrum skjalabunka. „Hér er ég með öll fundargögn og alla tölvupósta sem gengu á milli fram- kvæmdastjóra og stjórnarmanna í þessu máli. Það verður því erfitt fyrir menn að sverja þetta af sér. Líka Flosa Eiríksson og Ómar Stefánsson sem hafa sagt mig vera að blekkja og ljúga. Það var alltaf einbeittur vilji stjórnarinnar að verja hagsmuni sjóðs- félaga. Við vorum ekki að taka neina áhættu, heldur hámarka möguleika okkar á að fjárfesta þegar um hægðist. Það verk er þegar hafið.“ En þið fóruð út fyrir heimildir ykkar. „Það er rétt, við fórum hálft prósent fram yfir heimildirnar. Það má ekki lána yfir 10% af eigin fé sjóðsins til eins aðila, jafnvel þótt sá aðili beri ábyrgð á honum. FME vissi af þessu og við fengum frest til 31. júlí til að kippa þessu í liðinn. Um það var gert munnlegt samkomulag. Það kom okkur því í opna skjöldu þegar þeir komu hérna inn og settu okkur frá. Það var sérkennileg tíma- setning í miðju Icesave-málinu og nið- urskurði ríkisstjórnarinnar. Það kemur manni óneitanlega á óvart að sjá FME ráð- ast með þessum hætti á einn minnsta líf- eyrissjóð landsins. Ræður það bara við svona lítil verkefni? Hvar var FME þegar fjármálakerfið hrundi? Er þetta ekki stofn- unin sem algjörlega brást?“ Enginn glæpur framinn Óttastu þessa rannsókn? „Nei, síður en svo. Við vorum ekki að fremja neinn glæp. Menn verða fljótir að átta sig á því þegar þeir fara að skoða mál- ið. Hvað áttum við að hafa út úr þessu, stjórnarmennirnir? Ekkert. Við vorum bara að bjarga búslóðinni úr brennandi húsi. Er það bannað?“ En þið voruð óneitanlega beggja vegna borðsins í þessu máli. Er æskilegt að breyta reglum um skipan í stjórn sjóðsins? „Það finnst mér ekki. Það hefur fylgt starfi bæjarstjóra að vera formaður stjórnar lífeyrissjóðsins og þannig er því háttað víða. Bæjarsjóður ber ábyrgð á þessum sjóði og ef eitthvað fer úrskeiðis kemur það í hlut bæjarins að bæta skaðann. Það eru því hreinar línur að bærinn verður að hafa hönd í bagga. Hverjir aðrir en kjörnir fulltrúar bæjarins eiga að sitja í stjórninni?“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.