Morgunblaðið - 28.06.2009, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 28.06.2009, Qupperneq 18
18 Tónlist MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009 Stórborgin Með eiginmanni, sonum og dóttur á kaffihúsi. ir Helga brosandi. „Eftir það fékk ég sæti í sinfóníuhljómsveitinni í Rennes eftir inntökupróf og bjó þar í eitt og hálft ár, en þá komst ég í óperuna – auðvitað eftir inntöku- próf. Þannig er þessu háttað í tón- listarheiminum, það er mikið af inn- tökuprófum.“ Ánægjan Nú býr Helga með eiginmanni sínum, sem einnig spilaði við óp- eruna. „Hann slasaðist á fingri og spilar ekki meira í bili á sellóið, en er í endurhæfingu og ætlar líklega að snúa sér að kennslu.“ Þau eiga þrjú börn saman, sextán og fjórtán ára stráka og níu ára stelpu. – Spila þau á hljóðfæri? „Meira og minna,“ svarar Helga brosandi. „Einn spilaði á selló, ann- ar á lágfiðlu en er reyndar áhuga- samari um gítar og píanó í augna- blikinu, og dóttir mín er að læra á píanó. En við erum hætt að ýta á þau, viljum að þau óski eftir því sjálf að læra á hljóðfæri.“ – Myndirðu ráðleggja einhverjum að leggja fyrir sig tónlistarnám? „Það er frekar viðkvæmt mál,“ svarar hún hlæjandi. „Mér finnst al- veg hægt að svara því játandi og neitandi. Viljinn þarf að vera mikill til þess að halda einbeitingu í nám- inu. Sonur minn spilar tímunum saman á dag, miklu frekar á gítar og píanó en lágfiðlu. Ég held að það varði mestu að finna ánægjuna.“ – Samkeppnin er mikil? „Virkilega, maður verður að leggja mikið í æfingar til þess að ná árangri.“ Uppáhalds Æfingar eru það sem einkennir venjulegan dag í lífi Helgu, en kost- Öll þessi birta á sumrin Það er leitun að fallegri óperuhúsum en þeim sem Parísarborg státar af. Þar spilar Helga Guðmundsdóttir á lágfiðlu við óperur og ball- etta, en gefur sér þó tíma til að talar um Wag- ner, kreppuna í kreppunni og muninn á hljóð- færaleikurum og söngvurum. Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is H armi slegin Tosca grætur elskhuga sinn í þriðja þætti og blæ- brigðarík rödd Adinu Nitescu ómar um sal- inn í Bastilluóperunni, eins og jafn- an fyrir fullu húsi nálægt Signu- bökkum. Einn leikarinn liggur á sviðinu allan þáttinn, hlutverkið þægilegt – hann er dauður. Í gryfjunni er líflegra um að lit- ast, þar hamast tónlistarmenn einn- ar fremstu hljómsveita Frakklands á hljóðfærunum, þeirra á meðal Helga Guðmundsdóttir lágfiðluleik- ari. Morguninn eftir hittir hún blaðamann á Vitabarnum við Ba- stillutorgið. Sama morgun og hún ætlaði inn á heimasíðu bankans síns heima á Íslandi. „Ég ætlaði að greiða út af reikningnum mínum hjá SPRON, en skjárinn varð bara svartur og svo kom villumelding,“ segir hún. „Ég prófaði að hringja í bankann minn til margra ára, en fékk aðeins skilaboð um það á frönsku að síma- númerið væri ekki til. Mér brá svo- lítið við þetta, en frétti síðan að bankinn væri hættur og búið að flytja mig yfir til Kaupþings. Ég þekki hinsvegar ekki bankanúmerið og þarf að finna það til þess að greiða mínar skuldir. Mér barst engin orðsending um að ég væri komin yfir til annars banka! Það finnst mér alveg ótrúlegt – mann- inum mínum sem er franskur fannst þetta ekkert fyndið.“ Útilokunaraðferðin Helga fæddist í Reykjavík, ólst upp í Stóragerði og var í tónlist- arnámi fram að tvítugu, fyrst með- fram námi í Hvassaleitisskóla og svo í Menntaskólanum við Hamra- hlíð. En hvenær kviknaði áhuginn á tónlist? „Ég veit ekki hvort ég get svarað þessu,“ segir hún hikandi. „Ég byrjaði að læra á fiðlu átta ára gömul, hafði náttúrlega gaman af því, æfði mig ágætlega þegar ég var lítil, en svo fór áhuginn að minnka og ég æfði mig ekki nógu mikið í tónlistarskólanum. Ég hafði alltaf gaman af tónlistarnáminu, án þess að vera með brjálaðan áhuga. Og ég vissi til dæmis ekkert hvað ég átti af mér að gera þegar ég var átján ára. Þá varð ég að leita mér að framtíð.“ Úr varð að eftir stúdentspróf árið 1983 ákvað Helga að láta slag standa með nokkrum vinum og halda til náms í París í hálft til eitt ár. Hún fór utan með Hávarði Tryggvasyni, sem nú er bassaleik- ari við Sinfóníuhljómsveit Íslands, og Siggu vinkonu sinni. „Ég hef eiginlega ekki séð hana Siggu síð- an,“ segir hún. „Við kölluðum okkur Parísartríóið, fórum öll í sama mús- íkskólann, en svo fór hvert okkar sína leið. Ég talaði ekki stakt orð í frönsku og vissi ekkert út í hvað ég var að fara, en komst smám saman meira inn í námið og spilamennsk- una meðfram því.“ – Af hverju París? „Útilokunaraðferðin! Það er al- veg satt,“ segir hún og skellihlær. – Ekki Signubakkar? „Nei, ég var svo mikið á móti Ameríku. Það fóru allir þangað í hljóðfæranám, en ég var ekki alveg á þeim buxunum. Svo var dýrt að fara til Englands og ég var ekki hrifin af Þýskalandi, hafði ekki lært þýsku. Þannig að við tókum ákvörð- un: Förum til Parísar og sjáum til!“ Hún innritaði sig ekki strax í tón- listarháskóla Parísar, „konserva- tóríuna“, þar sem inntökuskilyrðin eru afar ströng, heldur fór í einka- kennslu í þrjú ár hjá einum af kennurum skólans, Serge Collot. „Hann var alveg frábær, einn af einleikurum óperunnar og ég lærði mikið af honum. Hann kenndi einn- ig við háskólann, þannig að ég var áfram í tímum hjá honum þau þrjú ár sem ég var í skólanum.“ Og ekki er allt unnið við að kom- ast í tónlistarháskólann. „Maður þarf að standast próf til þess að komast inn í skólann, en það kom- ast ekki allir út heldur, því til þess þarf að standast útgöngupróf,“ seg- ‘‘„ANDINN Í GARNIER ERALVEG STÓRKOSTLEG-UR. ÞETTA ER ELDGAM-ALT HÚS, ALLTAF JAFNFALLEGT OG TIL- HUGSUNIN MÖGNUÐ UM ALLA ÞÁ LISTAMENN SEM HAFA KOMIÐ ÞAR FRAM FRÁ VÍGSLU- ÁRINU 1875.“ Parísaróperan Helga Guðmundsdóttir á leið í hljómsveitargryfjuna. AUKAKRÓNUR 5 barnagallará ári fyrirAukakrónur A-kortin Kreditkort sem safna Aukakrónum fyrir þig Þú getur keypt nýjan ungbarnagalla fyrir hverja árstíð og einn til viðbótar í 66°Norður fyrir Aukakrónurnar sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða eitthvað annað sem þig langar í hjá samstarfsaðilum Aukakróna. Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is * M.v. 150 þúsund kr. innlenda verslun á mánuði, þ.a. 1/3 hjá samstarfsaðilum. Sjá nánar á www.aukakronur.is. * E N N E M M / S ÍA / N M 3 8 4 13 N B I h f. (L a n d s b a n k in n ), k t. 4 7 10 0 8 -2 0 8 0 .

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.