Morgunblaðið - 28.06.2009, Side 22
22 Kvikmyndir
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009
AUKAKRÓNUR
224 lítrará ári
fyrirAukakrónur
A-kortin
Kreditkort sem safna Aukakrónum fyrir þig
Þú getur keyrt bílinn þinn 2240 kílómetra á ári á bensíni frá ÓB fyrir Aukakrónurnar
sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða eitthvað annað sem þig langar í hjá
samstarfsaðilum Aukakróna.
Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is
* M.v. 150 þúsund kr. innlenda verslun á mánuði, þ.a. 1/3 hjá samstarfsaðilum. Sjá nánar á www.aukakronur.is.
Bensínverð 22. júní 2009 hjá ÓB 178,3 kr./l.
*
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
8
4
15
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t.
4
7
10
0
8
-2
0
8
0
.
Eftir Sæbjörn Valdimarsson
saebjorn@heimsnet.is
T
alað er um að 10–20 % af
kvikmyndaframleiðsl-
unni í Hollywood haldi
iðnaðinum og bíórekstr-
inum gangandi. Eitt af
því sem gerir iðngreinina jafn
heillandi og eftirsóknarverða og
raun ber vitni er þessi eilífa óvissa
sem minnir á andrúmsloft í spilavíti.
Mikið lagt undir en í raun ræðir
heppnin ein þegar teningunum hef-
ur verið kastað. Stærstur hluti
þeirra kvikmynda sem eru fram-
leiddar af risunum í Los Angeles,
þ.e., 20th Century Fox (Searc-
hlight), Sony Pictures (Columbia,
TriStar, MGM), Warner Bros (New
Line Cinema), Paramount (Dream-
Works) og Universal, er settur sam-
an af heimsins færustu atvinnu-
mönnum í faginu. Það eru
langsjóaðir framleiðendur og ekki
síður umboðsmenn metsöluhöfunda
og leikara og toppar kvikmyndaver-
anna. Stöndugir leikstjórar og kvik-
myndastjörnur reyna yfirleitt fyrir
sér báðum megin við borðið.
Aðalvandinn í kvikmyndabrans-
anum, jafnt vestan hafs sem austan,
er skortur á frambærilegum hand-
ritum sem búa yfir galdrinum sem
allir sækjast eftir: Að hitta í mark
hjá bíógestum og að hafa hið eft-
irsóknarverða en fágæta úthald í að
standa sig á topplistanum í nokkrar
vikur. Flestar myndirnar eru stíl-
aðar upp á að trekkja sem mest
að fyrstu sýningarhelgina í 3-
4000 kvikmyndasölum (ef við
tölum um Vesturheim), síð-
an þykir það viðunandi í
flestum tilvikum, að að-
sóknin dragist saman
um það bil helming
næstu fjórar vikurnar.
Þá er göngunni lokið í
bíó en DVD-útgáfurn-
ar koma oftast út eftir
ákveðinn tíma frá frumsýning-
ardegi. Almenna reglan í dag er í
kringum tveir til þrír mánuðir, en
þessi „gluggi“ er að styttast.
Ágóðinn af mynddiskunum er
ágæt búbót, einkum hvað þær
myndir snertir sem hafa brugðist í
bíóunum. Endastöðin á markaðs-
ferlinu er sala til sjónvarpsstöðva,
VOD, og útleiga á hefðbundnum
vídeóleigum.
Hver vika kemur með aðsókn-
artölur sem koma flatt upp á bestu
spámenn. Krosstrén bregðast á
meðan óvæntir smellir fleyta
rjómann af aðsókninni, 2009 er eng-
in undantekning. Ef litið er aftur til
síðustu áramóta, kemur í ljós að þá
stakk Marley and Me, lítil og „ódýr“
mynd, gjörsamlega af stórmynd-
ir á borð við Australia, sem hafði
verið spáð frægð og frama, kost-
aði stórfé en náði ekki að komast
með tærnar þar sem Marley
hafði hælana og tvísýnt hvort
hún hefur halað inn fyrir háum
framleiðslukostnaði. Leikstjór-
inn Baz Luhrman (Moulin
Rouge), og stjörnurnar Nicole
Kidman og Hugh Jackman, urðu
að játa sig sigruð af hundstíkinni
Marley. Þetta er gott dæmi um
brigðula spádómsgáfu framleið-
enda en kíkjum nánar á fram-
haldið í ár, þegar þau undur eru
að gerast að kraftaverkin, mynd-
ir með meira en tveggja, þriggja
vikna þol, eru að láta á sér kræla.
Árlega eru nokkur
hundruð bíómyndir
framleiddar í Holly-
wood og allar eiga þær
að græða peninga en
flestar skila tapi.
Ódýr Marley and Me, lítil og vinsæl.
Hlátur Kevin
James halaði
inn bíógesti í
mynd um
löggu í versl-
unarmiðstöð.
Myndir með úthald
og aðrar sem bregðast
Vinsæl Taken
sló óvænt í
gegn.
Ástralía Rándýr og vafasamt hvort hún stendur undir kostnaði.