Morgunblaðið - 28.06.2009, Síða 34

Morgunblaðið - 28.06.2009, Síða 34
34 Minningar MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009 ✝ Sigrún PálsdóttirStraumland fædd- ist á Litlu-Heiði í Mýr- dal 15. febrúar 1909. Hún lést á öldr- unardeild Landspít- alans 15. júní 2009. Foreldrar hennar voru Páll Ólafsson, bóndi á Litlu-Heiði, f. 5. maí 1862, d. 12. júní 1945, og Guðrún Brynjólfsdóttir ljós- móðir, f. 4. mars 1864, d. 14. sept. 1919. Systkini Sigrún- ar voru Sigurlaug, f. 1896, d. 1939, Þorgerður, f. 1897, d. 1933, Ólafur, f. 1899, d. 1996, Brynhildur, f. 1901, d. 1992, Kjartan 1902, d. 1921, Jón, f. 1904, d. 2000, Matthildur, f. 1905, d. 1945, og Katrín Guðrún, f. 1907, d. 1982. Sigrún giftist 24. desember 1934 Andrési Jóhannessyni Straumland skrifstofumanni frá Skáleyjum í Breiðafirði, f. 26. maí 1895, d. 20. júlí 1945. Andrés var fyrsti forseti SÍBS, frá 1937 til dauðadags 1945 og einn af aðalhvatamönnum að stofnun Reykjalundar. Dóttir Sig- rúnar og Andrésar er Sigurlaug Guðrún Straumland, f. 20. mars 1939, gift Eiríki Ólafssyni, f. 4. janúar 1936, d. 30. apríl 1996. Börn þeirra eru: 1) Andrés, f. 1957, maki Deborah Spence, f. 1960, börn þeirra Kári, f. 1994 og Freyja, f. 1997. 2) Ólafur Friðrik, f. 1966, maki Valgerður Vilmundardóttir, f. 1968, dætur þeirra Sigrún Elva, f. 1992 og Kolbrún Dögg, f. 1999. Sígrún lauk almennu barnaskóla- prófi í sinni heimasveit. Var í Ungl- ingaskóla Ásmundar Gestssonar í Reykjavík 1928-1929. Lauk námi í HSÍ í maí 1934. Framhaldsnám við röntgendeild Landspítalans frá 1959-1960. Sigrún var um tíma skólahjúkrunarkona á Siglufirði. Starfaði síðan á hinum ýmsu sjúkrahúsum í Reykjavík og ná- grenni. Síðast á Droplaug- arstöðum, þar sem hún starfaði við hjúkrun til 83 ár aldurs. Útför Sigrúnar fór fram í kyrr- þey. Mig langar að sá enga lygi þar finni, sem lokar að síðustu bókinni minni. Þessi orð Þorsteins Erlingssonar, einu af uppáhalds skáldi ömmu, voru henni alla tíð töm. Kannski voru þau henni einhverskonar leiðarljós í líf- inu. Víst er um það að við sem eftir sitjum og lítum til baka á líf hennar og persónu finnum þar enga lygi. Allt hennar lífshlaup, ævistarf, hug- sjónir og samskipti við tvífætt og fer- fætt samferðafólk var ein sönn og órofa heild. Og ég veit að hún kynni vel að meta það ef ég kenni þessa heild við sósíalisma. Þetta var sósíalismi sem var sprottinn upp úr kreppu og átökum millistríðsáranna þegar enn voru verkamenn á Íslandi, jafnvel öreigar og auðvald, ekki bara einhverjir út- þynntir „aðilar atvinnulífsins“. Þetta var sósíalismi sem auðveldlega stóð af sér hrun hinnar stóru tálsýnar í austri, enda þótti ömmu fáránlegt að dæma hugsjónir eftir gerðum þeirra manna sem sviku þær. Þessi sósíal- ismi byggðist heldur ekki á útópíu og útreiknuðum þjóðfélagslíkönum, meira á mannúð og umhyggju í dag- legu lífi. Og hann virtist ná jafnt til dýra sem manna. Ein lítil saga þessu tengd: Þegar fjölskyldan átti sumarbústað austur í Mýrdal bar stundum við þegar kalt var í veðri og hart í ári að mýs sóttu í bíslagið bak við bústað ef ske kynni að þar fyndist eitthvað ætilegt. Sam- kvæmt öllum viðurkenndum guðs og manna lögum, stöðu sinni sem hús- ráðanda og ríkjandi valdahlutföllum manna og músa, var amma auðvitað í fullum rétti til að reka ófétin á dyr með kústinn að vopni, jafnvel veiða þau í gildrur eða eitra fyrir þeim. En það hefði hún aldrei gert. Þær voru komnar í ætisleit og æti skyldu þær fá. Og ekki bara eitthvað rusl og af- ganga. Amma tók upp pottinn og poppaði handa þeim. „Þeim fannst nefnilega poppið svo voðalega gott, blessuðum.“ Svona var sósíalisminn á þeim bæ, hann var hér og nú, krafðist ekki flókinnar hugmynda- fræði og náði langt út fyrir mannlegt samfélag. Ég veit að ég er kominn út á eilítið hálar brautir hér og kannski stutt í vel þekktar klisjur um meinlaust gæðablóð sem elskaði allt sem lífs- andann dró. Hún kynni ekki alveg að meta slíkt. Hún myndi segja sisona: „Þannig er sagt um okkur aum- ingjana sem ekkert gerðu eða gátu, við vorum góð við dýr og gamal- menni.“ En því fer auðvitað fjarri. Amma gerði margt og virtist stund- um geta allt, enda var hún í fullu starfi sem hjúkka þar til hún var 83 ára og keppti í brids löngu komin á tíræðisaldur. Og svo margt, margt fleira sem krafðist þess að viðkom- andi hefði bein í nefinu. En alltaf skein í gegn þessi mannkærleiki, þessi lifandi félagshyggja. Að vera í nánd við slíka manneskju minnti mann á það sem máli skiptir í lífinu. Nú er þessi nánd í huganum, í minningunni, en engu að síður ljóslif- andi. Og það er okkar sem eftir lifum að geyma hana, rækta og miðla til næstu kynslóða. Ég sendi þér ást- arkveðju frá okkur öllum, amma mín, mér og Deb og Kára og Freyju. Og ekki má gleyma hundinum Holly. Það mátti aldrei gleyma ferfætling- unum. Andrés Eiríksson. Elskuleg afasystir mín, Sigrún Straumland hjúkrunarfræðingur, kvaddi þennan heim á sjúkrahúsi í Reykjavík mánudaginn 15. júní sl., 100 ára og fjórum mánuðum betur. Þrátt fyrir háan aldur og erfið veik- indi síðustu vikurnar voru fréttir af veikindum hennar og andláti sorg- arfréttir. Sigrún, sem fæddist 15. febrúar 1909, var yngst í stórum systkinahóp frá Litlu-Heiði í Mýrdal og síðust af þeim Heiðarsystkinum sem kveður. Ég naut þeirra forréttinda að kynn- ast systrunum Brynhildi, Katrínu og Sigrúnu og bræðrunum Ólafi og Jóni afa mínum. Þau lifðu tímana tvenna og það var ómetanlegt að eiga þess kost að kynnast þeim. Þau systkini voru hvert með sínu móti, enda lífs- hlaup þeirra um margt ólíkt þrátt fyrir sameiginlega reynslu á bernskuheimilinu austur á Litlu- Heiði. Hún Sigrún frænka átti engan sinn líka í stórum frændgarði mín- um. Trú hennar á mikilvægi réttlæt- is og jafnaðar í samfélaginu ein- kenndi lífsviðhorf hennar alla tíð. Hún var mikil baráttukona og sterk- ur persónuleiki, vinnusöm, ósérhlíf- in, hafði ákveðnar skoðanir og var föst fyrir. En hún var líka einstak- lega hlý kona, barngóð og mikill dýravinur. Minningum um hlý faðm- lög hennar, hlýleg orð og einstaklega persónuleg gælunöfn mun ég aldrei gleyma. Þegar Sigrún, Silla Gunna, dóttir hennar, og Eiríkur tengdason- ur byggðu sumarbústað í Deildarár- gili í Mýrdal urðu samverustundirn- ar fleiri og kynnin nánari. Árin áður voru þau sumarlangt í Neðra-Dal og man ég hvað það gladdi afa minn og ömmu að fá Sigrúnu og hennar fólk í sveitina okkar. Betri nágranna var vart hægt að hugsa sér og margar ferðirnar átti ég yfir ána til Sigrúnar og fjölskyldu hennar þar sem mót- tökur og viðmót voru engu lík og um- ræður og skoðanaskipti þroskandi og skemmtileg. Ég vil fyrir hönd fjölskyldu minn- ar og foreldra minna, Guðrúnar og Ólafs, þakka fyrir áratuga vináttu, umhyggju og góðar stundir. Sillu Gunnu, Andrési, Ólafi og fjölskyld- um þeirra sendum við öll innilegar samúðarkveðjur. Ragnheiður Thorlacius. Ég á svo margar góðar minningar um móðursystur mína að ég veit ekki hvar ég á að byrja. Ég sé í huganum mynd af okkur systkinunum sem klístrum okkur þétt upp að henni og við vildum öll vera eins nálægt henni og hægt var. Ég man spenninginn þegar þær mæðgur komu norður á Siglufjörð um jólin og ég var sann- færð um að þær væru með jólin í töskunni. Ég man þegar við biðum óþolinmóð á sumrin þegar þær mæðgur komu með rútunni og við systkinin lágum úti í suðurglugga og töldum bílljósin sem komu niður úr Skarðinu, viss um að þegar við vær- um búin að telja upp á hundrað kæmi rútan, ef ekki, þá byrjuðum við upp á nýtt. Ég man eina nótt þegar ég vakn- aði og fór fram að þá stóð móðursyst- ir í eldhúsinu í prjónasilkináttkjól og útbjó sér „grábland“. Við höfðum ekki átt von á henni norður svo gleðin var ólýsanleg. Lengi á eftir fór ég fram í eldhús ef ég vaknaði að nóttu til og vonaði að kraftaverkið hefði endurtekið sig. Eina vísan sem ég hef hnoðað saman um ævina er saknaðarvísa til hennar, en því miður er hún gleymd og grafin. Svona gæti ég haldið áfram endalaust. Mamma og Unna, en svo kölluðum við systkinabörnin hana, voru ekki aðeins systur, heldur bestu vinkonur og það voru forréttindi að fá að alast upp við þá væntumþykju og sam- heldni sem ríkti á milli þeirra. Heyra þær segja frá barnæsku sinni og skemmtilegum atvikum úr ævi sinni. Unna var hugsjónakona. Hjarta hennar sló alltaf með lítilmagnanum. Hún hafði ríka réttlætiskennd og þoldi engan ójöfnuð. Í stuttu máli var hún stórbrotin kona. Á hundrað ára afmælisdaginn var hún eins og lítil falleg drottning og hún hélt fullri reisn þar til stuttu fyrir andlátið. Ég kveð móðursystur mína með söknuði og ef eitthvað er til eftir þetta líf, þá eru þær að gantast núna hún og mamma og það væri gaman að vera fluga á vegg þar. Hafðu þökk fyrir allt, kæra móðursystir. Anna Matthildur. Enda þótt það sé ekki ætlunin að tíunda hér alla hina miklu og mörgu mannkosti Sigrúnar Straumland, þá er samt sem áður alls ekki úr vegi að nefna aðeins fáa þeirra eins og t.d. góðar gáfur hennar, hjartahlýju, um- burðarlyndi en um fram allt dæma- fáa mennsku í hvívetna. Um galla hennar höfum við bókstaflega ekkert að segja af þeirri einföldu ástæðu að við þekkjum þá ekki. Fyrir um það bil 10-12 árum fórum við hjónin ásamt þeim mæðgum, Sig- rúnu og Sigurlaugu, í ferðalag norð- ur í land og gistum í orlofsíbúð á Ak- ureyri og það í boði mæðgnanna. Það er áreiðanlega ekki ofmælt að allir hafi verið hæstánægðir með ferðina og ef við munum rétt lék veðrið við okkur flesta dagana og ýmislegt skemmtilegt og skondið bar á góma sem verður ekki farið nánar út í hér nema nokkuð sem gerðist þegar við vorum að láta ofaní ferðatöskurnar. Mér (Halldóri) brá heldur betur í brún, þegar ég sá Sigrúnu taka óvenju langt skóhorn og setja það beint ofaní töskuna sína og gat því ekki orða bundist og sagði eins mildi- lega og mér var mögulegt unnt, „Sig- rún, svona gerir maður ekki“, sann- færður um að það tilheyrði íbúðinni. Þá kom Silla móður sinni til varnar og sagði hálfhlæjandi: „Halldór minn, þetta er allt í lagi mamma á þetta skóhorn“. Hvernig í ósköpun- um gat ég grunað þessa stálheiðar- legu manneskju um græsku, en mik- ið hefur verið hlegið að þessu æ síðan. Hvergi er grasið grænna en í Mýr- dalnum og nær víða alla leið upp á fjallsbrún. Sigrún var Mýrdælingur í húð og hár. Það var því henni ólýs- anlegt gleðiefni, þegar dóttir hennar og tengdasonur, Eiríkur, byggðu sumarbústað, reyndar með hennar stuðningi, á einhverjum dýrðlegasta stað í sveitinni, þar sem þau og gestir þeirra undu sér ósegjanlega vel í þó nokkurn tíma. En svo gerðust þau ótíðindi að þau voru hrakin burt frá þessum sælu- reit sínum með svikum og prettum af óprúttnum náunga. Óskandi hefði verið að atvikin hefðu hagað því þannig að ég hefði getað beint eft- irfarandi orðum mínum, „Svona ger- ir maður ekki“, að þessum þrjóti en ekki að Sigrúnu og ekki hefði það verið ónýtt ef ég hefði getað svo kór- ónað það með því að lumbra á honum með skóhorninu „sögufræga“. Þessa aðför gátu þau vitanlega ekki fyrirgefið, síst af öllu Sigrún. Hún tók þetta víst svo nærri sér að hún hét því að stíga aldrei framar fæti sínum í Mýrdalinn, sem henni var þó svo einkar kær. Í veikindum annaðist Sigurlaug móður sína af fádæma alúð og ósér- hlífni. Að okkar dómi höfum við Andrea aldrei á ævinni kynnst jafn samrýndum mæðgum og þeim Sig- rúnu og Sigurlaugu. Að lokum vottum við Sigurlaugu, sonum hennar og öðrum vanda- mönnum okkar innilegustu samúð. Andrea Oddsteinsdóttir, Halldór Þorsteinsson. Sigrún Straumland er látin. Lík- aminn var orðinn lúinn eftir 100 ára vinnu en hugsunin hélzt skýr og rök- föst til hins síðasta. Sigrún var gift Andrési móður- bróður mínum sem lézt 1945 langt um aldur fram. Þau eignuðust eina dóttur og þær mæðgur voru alla tíð mjög nánar. Frá barnæsku vissi ég vel af til- veru Sigrúnar, hitti hana lítillega á mínum unglingsárum, en kynntist henni ekkert fyrr en síðustu áratugi. Í fyrstu varð ég hálffeimin við þessa konu sem mér virtist fremur köld en komst að því að undir alvarlegum hjúpnum bjó hlýtt hjarta og mikill „húmor“. Yfirvegað fas hennar og frábært málfar var aðdáunarvert, til- svör hennar voru hnyttin, stundum örlítið kaldhæðin en aldrei særandi. Þessi tilsvör hennar um menn og málefni, eða hvað sem var, vöktu oft- ar en ekki kæti. Stundum hlátur, en alveg eins kitlandi gleði innanbrjósts sem yljaði langan tíma. Þetta er mér minnisstæðast um Sigrúnu. Vonandi skrá afkomendur hennar eitthvað af þeim gullkornum. Þó tilsvörin verði bragðlítil úr annarra munni, munu þeir sem til þekkja heyra með sínu innra eyra raddblæ Sigrúnar. Sillu Gunnu, dóttur hennar, hefur tekist að koma ýmsum tilsvörum til skila. Sigrún var vinur alls sem lifði, dýra og blóma. Fyrir nokkru komst ég að því að smælingjar sem mörg- um er í nöp við stóðu hjarta hennar nær. Líka túnfífillinn sem ótætislega skemmir grasflatir í görðum. Kannski þetta brot úr ljóði eftir Kristján Hreinsson sé talað úr huga Sigrúnar: Fífillinn minn fagri finnst þér ekki gaman þegar grös og gola geta leikið saman – Sigrún var hjúkrunarkona og vann við hjúkrun fram á níræðisald- ur. Síðast á næturvöktum á Drop- laugarstöðum. Einhverju sinni hafði ég orð á þessum dugnaði hennar að vera enn að vinna utan heimilis. Sig- rún sagðist gera þetta til að storka þessum kerfiskörlum sem vildu láta fólk hætta á vinnumarkaði við tiltek- inn aldur. Ég gat skilið þetta sjón- armið, en ekki að vinna næturvaktir. Sigrún svaraði að bragði: „Það geri ég bara af tillitssemi við fólkið svo það þurfi ekki að sjá mig.“ Stella systir mín átti þess kost að starfa með Sigrúnu við hjúkrun. Hún minnist hennar fyrir hlýlegt öryggi, nærgætni og færni. „Mér fannst hún geta allt, ráða við hvað sem var.“ Við systurnar flytjum Sillu Gunnu, sonum hennar, barnabörnum og ætt- ingum öllum innilegar kveðjur og hugsum með hluttekningu til þeirra, en líka þakklæti fyrir að hafa kynnst þessari konu, þó í litlum mæli hafi verið. Blessuð sé minning Sigrúnar Straumland. María Björnsdóttir. Elsku Unna. Nú er komið að leiðarlokum og hugurinn leitar til baka til æsku- stöðvanna, Siglufjarðar. Þú og Silla Gunna voru stór hluti af lífinu á Suð- urgötu 91. Þið mamma voruð yngst- ar af stórum systkinahópi og mjög samrýndar og báðar hjúkrunarkon- ur. Þú varst alltaf svo hlý og góð við okkur systkinin og tilbúin að sinna okkur. Þér þótti mjög gaman að spila og þá helst bridge, en þær voru ófáar kasínurnar sem við höfum spilað i ár- anna rás. Seinna, þegar þú fluttir til Reykja- víkur, var okkur alltaf tekið opnum örmum. Hvar sem þú, Silla Gunna og Eiki bjugguð var alltaf hjartarúm. Þegar ég hóf nám í Tækniskólan- um voruð þið öll boðin og búin að hjálpa til við pössun á Katrínu. Ósjaldan var okkur boðið í mat og þið vilduð allt fyrir okkur gera. Unna mín, þú varst alltaf mjög pólitísk og svo langt aftur sem ég man varstu mjög vinstrisinnuð. Nokkrum árum áður en þú fylltir 100 árin gerðist þú félagi í Vinstri græn- um og nú hefur VG misst gegnan fé- laga. Elsku Unna, um leið og við kveðj- um þig, þar sem við erum stödd á Kýpur, sendum við Sillu Gunnu, Sigrún Straumland Selhellu 3 Hafnarfirði Sími 517 4400 • www.englasteinar.is                          ✝ Þökkum innilega vináttu og kærleika við andlát og útför móður okkar, SIGRÍÐAR KR. JOHNSON, Flókagötu 61, Reykjavík. Ágústa Johnson, Kristinn Johnson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.