Morgunblaðið - 28.06.2009, Page 37
Auðlesið efni 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009
Popp-kóngurinn Michael Joseph
Jackson var úr-skurðaður látinn í
Los Angeles á fimmtu-dag.
Jackson var fimmtíu ára gamall
og var að undir-búa endur-komu
sína á svið í London í næsta
mánuði.
Blóma-skeið Jacksons var á
níunda ára-tug síðustu aldar.
Plata hans Thriller sem kom út
árið 1982 er enn á meðal mest
seldu platna heims en talið er að
hún hafi selst í yfir 100 milljónum
ein-taka um heim allan.
Jackson lætur eftir sig þrjú
börn, synina Prince Michael I og
Prince Michael II og dótturina
Paris.
Michael Jackson látinn
Nemendum sem útskrifuðust
úr grunn-skólum í vor með
mjög háar einkunnir hefur í
sumum til-fellum verið hafnað
af öllum fjórum
framhalds-skólunum sem þeir
settu á óska-lista. Magnús
Þorkelsson,
aðstoðar-skóla-meistari
Flensborgar-skóla segir að
með því að hafa val um fjóra
skóla séu krakkarnir komnir í
rúllettu. Fæstir skólar taki inn
krakka sem hafa skólann
sem þriðja eða fjórða val
vegna þess að þeir séu þegar
fullir af nemendum sem höfðu
haft skólann í fyrsta og öðru
sæti. Nú er unnið að því í
mennta-mála-ráðu-neytinu að
raða 140-150 nemendum,
sem ekki fengu pláss
sam-kvæmt því sem þeir
höfðu óskað, niður á
framhalds-skólana en
foreldrar eru reiðir. Stúlka úr
Haga-skóla, sem var með 9 í
stærð-fræði og 8,5 í íslensku,
komst hvorki að í Verzló né í
MR. Móðir hennar segir
nemendur taka höfnun mjög
persónu-lega. Greini-legt sé
að breyta þurfi kerfinu.
Flækja í framhalds-skólum
Sjö-þrautar-stúlkan Helga Mar-grét
Þorsteinsdóttir bætti Íslands-met
sitt á móti í Tékklandi um 157 stig
og er efst á heims-lista unglinga en
aðeins vantaði 22 stig upp á að hún
næði lág-markinu á
heims-meistara-móti fullorðinna.
Hún varð Norður-landameistari í
fjöl-þraut fyrr í mánuðinum er hún
setti Íslands-met í sjö-þraut.
„Já, þetta er svolítið öfug-snúin
og súr-sæt tilfinning. Ég bætti mig
mikið og allt gekk upp, síðan eru
það þessi 22 stig sem vantaði upp
á sem hanga yfir manni. En þau
koma seinna, ég er alveg sátt við
mitt. Þetta er óneitanlega svo-lítið
svekkelsi í himna-ríki,“ sagði Helga.
Helga efst á heims-lista
Svo kann að fara að morð á
írönsku andófs-konunni Nedu
verði að tákn-mynd
mótmælanna í kjölfar
um-deildra forseta-kosninga í
landinu fyrr í mánuðinum.
Neda Soltani er 27 ára
gömul stúlka, sem féll fyrir
byssu-kúlu í Teheran. Hafa
myndir af henni al-blóðugri og
deyjandi farið eins og eldur í
sinu um allt Íran og alla
heims-byggðina, til dæmis á
You-Tube og Face-book. Í Íran
hafa mót-mælendur verið
hvattir til að minnast hennar
með ýmsu móti en sagt er, að
klerka-stjórnin hafi lagt blátt
bann við sam-komum í
minningu hennar. Óttast
klerkarnir, að farið verði að
líta á hana sem píslar-vott.
Neda merkir á persnesku
rödd eða raust og farið er að
tala um hana sem „rödd
Írans“ og tákn fyrir kröfuna
um aukið lýð-ræði.
Dauði and-
ófs-konu
Sverrir Guðnason var valinn
besti leikarinn fyrir leik sinn
í kvik-myndinni Original, á
alþjóðlegu kvik-mynda-
hátíðinni í Shanghai en hún
er sú stærsta í Asíu og
flokkast sem A-hátíð. Einnig
var Original sem er
dansk-sænsk kvik-mynd
valin besta mynd
hátíðarinnar.
Leikstjórinn Danny Boyle,
sem leik-stýrði Slumdog
Sverrir besti leikarinn
Millionaire, var for-maður
dóm-nefndar. Í úrskurðinum
sagði að frammi-staða
Sverris væri frá-bær, hann
hefði afar góða tilfinningu
fyrir efninu og næði að tjá
vel húmor.
Sverrir er nú að leika í
myndum um
lögreglu-manninn Kurt
Wallander sem Íslendingar
þekkja mæta-vel en þar
leikur Sverrir unga löggu.
Tuttugu og sjö manns
undir-rituðu 25. júní
síðast-liðinn stöðug-leika-
sáttmála, sem kynntur var í
Þjóð-menningar-húsinu. Að
sátt-málanum standa
Alþýðu-samband Íslands,
Bandalag háskóla-manna,
BSRB, Kennara-samband
Íslands, Samtök starfs-
manna fjármála-fyrirtækja,
Samtök atvinnu-lífsins,
ríkis-stjórnin og Samband
íslenskra sveitar-félaga.
Sátt-málinn er í 14 liðum.
Þar er m.a. lögð áhersla á
stór-framkvæmdir með
aðkomu lífeyris-sjóða. Einnig
standa vonir til að fá megi
erlent fjár-magn í verkefni.
Jóhanna sagði í samtali við
Morgun-blaðið að nokkrir
erlendir aðilar hefðu sýnt
áhuga, þó það væri ekki
komið á það stig að hægt
væri að greina frá því
opin-berlega. Sagðist hún
einnig bjart-sýn á að nást
muni samkomulag við
lífeyris-sjóði á næstu vikum.
„Ég yrði ekkert hissa þó það
myndu dúkka upp einhverjir
spennandi fjárfestingarkostir
á næstunni,“ sagði hún.
Skrifað undir stöðug-
leika-sáttmála
Byrjað er að setja upp
gler-hjúp Ólafs Elíassonar
sem umlykja mun Tónlistar-
og ráðstefnu-húsið í
Reykjavík. Um þrjátíu
kínverskir verka-menn eru
komnir hingað til lands og er
von á fleiri á næstu
mánuðum. Verkið tekur
langan tíma og ekki er
áætlað að því ljúki fyrr en
seint á næsta ári. Efnið er því
sent hingað til lands í smáum
skömmtum og verkamönnum
smá-fjölgar.
Íslenskir verk-takar koma
ekki nærri gler-uppsetning-
unni og er eining meðal
þeirra sem sjá um byggingu
Tónlistar-hússins um að
fram-leiðandi glersins sjái
alfarið um hana. Er það fyrst
og fremst vegna ábyrgðar.
Upp-setning
á gler-hjúpi