Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 48
Í HNOTSKURN
» Bauðst doktorsnám viðMIT á fullum styrk en tók
gamla skólann fram yfir
vegna spennandi rannsókna.
» Kári er aðeins 21 árs enhefur búið í Bandaríkj-
unum frá 10 ára aldri með fjöl-
skyldu sinni.
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
KÁRA Þorkelssyni hlotnaðist á dög-
unum sá heiður að vera valinn besti
námsmaðurinn í efnaverkfræði og
efnafræði þegar hann útskrifaðist
með tvöfalda BS-gráðu frá Berke-
ley-háskólanum í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum. Verðlaununum fylgdi
einnig sá heiður að nafn hans er
grafið á skjöld sem hangir á skrif-
stofum deildanna tveggja.
Að auki bauð efnafræðideildin til
sérstaks hádegisverðar, Kára til
heiðurs, þar sem hann og foreldrar
hans snæddu með nokkrum prófess-
orum við deildina og loks veitti efna-
verkfræðideildin honum peninga-
verðlaun fyrir árangurinn.
Bauðst doktorsnám í MIT
Sjálfur vill Kári hvorki gera mikið
úr verðlaununum né hádegisverðin-
um. Hann segist þó hafa átt von á
verðlaunum frá efnafræðideildinni
þar sem hann vann miklar rannsókn-
ir við deildina en ekki frá efnaverk-
fræðideildinni. „Ég hef mikinn
áhuga á efnafræði og hún er stór
hluti af báðum fögunum,“ segir Kári.
Í sumar mun hann halda áfram rann-
sóknum sínum í efnafræði en í haust
tekur við 3-5 ára doktorsnám í
Berkeley.
Kára bauðst doktorsnám í hinum
virta MIT-háskóla á austurströnd-
inni á fullum styrk en kaus gamla
skólann sinn vegna spennandi rann-
sókna sem leiðbeinandi hans síðustu
tvö árin fer fyrir.
Kári er aðeins 21 árs en hann hef-
ur búið vestanhafs síðan hann var 10
ára. Hann býr á heimavistinni í
Berkeley en foreldrar hans, Þorkell
Guðmundsson rafmagnsverkfræð-
ingur og María Kjartansdóttir hag-
fræðingur, búa í San Jose, skammt
sunnan við San Francisco. Hann
stefnir á heimsókn til Íslands í ágúst
ásamt fjölskyldu sinni en þá verður
systir hans fermd.
Nafnið grafið á skjöld
Valinn besti námsmaðurinn í efnaverkfræði og efnafræði
við Berkeley-háskólann Skjöldurinn fær heiðurssess
Námshestur Kári Þorkelsson hefur
náð miklum árangri í námi sínu við
Berkeley-háskóla í Kaliforníu.
SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 179. DAGUR ÁRSINS 2009
Heitast 20° C | Kaldast 10° C
Þykknar upp og fer
að rigna sunnantil á
landinu en úrkomulítið
annars staðar. Hlýjast
í innsveitum. » 10
SKOÐANIR»
Staksteinar: Hvað gera þeir nú?
Forystugrein: Jón svínar á neyt-
endum
Pistill: Goðsögn deyr – goðsögn lifir
Ljósvakinn: Sautján, bráðum átján
Reykjavíkurbréf: Skarpari línur –
ný vinnubrögð?
Léttari efni og litir laumast inn á
skrifstofuna með hækkandi sól
Vertu ekki algjör dóni í vinnunni
Konungur nafnspjaldanna
ATVINNA»
KVIKMYNDIR»
Bruno breytt vegna
dauða Jacksons »43
Sæbjörn Valdimars-
son segir Megan
Fox vera með því
besta sem Trans-
formers 2 hafi upp á
að bjóða. »42
KVIKMYNDIR»
Megan fær 3
stjörnur
FÓLK»
Ekkert gruggugt við
dauða poppkóngsins »46
TÍSKA»
Nördalegt útlit er aftur
komið í tísku. »41
Árni Matt fjallar um
danska rokk- og
popptónlist en mikil
endurnýjun á sér
stað þar í landi um
þessar mundir. »44
Endurnýjun
hjá Dönum
TÓNLIST Á SUNNUDEGI»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Gjalddagar útvarpsgjalds þrír
2. Gleymdi 1 árs dóttur í bíl
3. Bréf deCODE hækkuðu um 50%
4. Hætta leit í Atlantshafi
Á SUMRIN fara siglinganámskeiðin á fullt og á
þeim læra krakkar réttu handtökin þegar siglt
er um höfin blá. Á myndinni sjást siglingakappar
á námskeiði hjá Siglingaklúbbnum Þyt í Hafnar-
firði fá tilsögn í hvernig reisa skal við seglbát
sem hefur hvolft. Klúbburinn býður jafnan upp á
ýmis námskeið sem standa í tvær vikur í senn.
Námskeiðunum lýkur með því að allir hoppa í
sjóinn og slegið er upp ærlegri grillveislu.
BÁTNUM KOMIÐ AFTUR Á RÉTTAN KJÖL
Morgunblaðið/Ómar
„MÉR brá svolít-
ið við þetta en
frétti síðan að
bankinn væri
hættur og búið
að flytja mig yfir
til Kaupþings,“
segir Helga Guð-
mundsdóttir lág-
fiðluleikari í
París í viðtali
við Morgun-
blaðið. Í því segir hún af sjálfri
sér, starfi sínu sem tónlistarmanns
við óperurnar í París og af því
hvernig hún upplifði íslensku
kreppuna sem Íslendingur erlend-
is.
Helgu finnst undarlega hafa
verið staðið að ýmsu eftir banka-
hrunið.
„Ég ætlaði að greiða út af reikn-
ingnum mínum hjá SPRON en
skjárinn varð bara svartur og svo
kom villumelding,“ segir Helga.
„Ég prófaði að hringja í bank-
ann minn til margra ára en fékk
aðeins skilaboð um það á frönsku,
að símanúmerið væri ekki til ...
Mér barst engin orðsending um að
ég væri komin til annars banka!
Það finnst mér alveg ótrúlegt –
manninum mínum sem er franskur
fannst þetta ekkert fyndið.“| 18
Hrikalegt að
heyra ótíðindin
Helga
Guðmundsdóttir
Skoðanir
fólksins
’Þetta lán er búið að éta upp allaneignarhlut þeirra í húsinu ogrúmlega það og í dag sitja þau uppimeð skuldir sem þau ráða engan veg-inn við og hús sem selst ekki. Því
miður er þetta ekkert einsdæmi held-
ur eru margar fjölskyldur í svipaðri
stöðu. » 28
ELFA BJÖRK SIGURÐARDÓTTIR
’Það er eina leiðin út úr vand-anum. Hörmulegt er til þess aðvita ef þingmenn í stjórnarandstöðu,sem hefðu hiklaust greitt atkvæðimeð þessum samningi ef þeir hefðu
verið í stjórn, ætla nú að snúast gegn
honum af pólitískum þvergirðings-
hætti. » 28
VÉSTEINN ÓLASON
’Flóttamannastofnun SÞ hefurbeint þeim tilmælum til ríkja aðendursenda ekki hælisleitendur tilGrikklands á grundvelli Dyflinnar-reglugerðarinnar þar sem meðferð og
aðbúnaður þar stenst ekki lágmarks-
kröfur. » 29
GUÐRÚN DÖGG GUÐMUNDSDÓTTIR
OG KOLBRÚN BIRNA ÁRDAL
’Vinsældir norðurslóða verðastöðugt meiri, það sést best áþví að skemmtiferðaskipum hefurfjölgað mikið í Norður-Atlantshafi ogvið strendur Íslands. » 29
ÞÓRIR KR. ÞÓRISSON
’Ég vona að þeir framhaldsskólarsem velja nemendur eftir prófgetu beri gæfu til að breyta slíkunú þegar. Er ekki kominn tími til aðhleypa inn ferskum vindum og nýrri
hugsun hvað varðar uppbyggingu
og mat á menntun á okkar góða
landi? » 30
GRÓA FINNSDÓTTIR
’Ef ætlunin, sem virðist komafram í tilkynningunni, er aðleggja niður loftrýmiseftirlit og sam-starf í öryggismálum Atlantshafs-bandalagsríkjanna, er í raun verið að
leggja inn úrsögn okkar Íslendinga úr
Atlantshafsbandalaginu. » 30
STEINGRÍMUR B. GUNNARSSON