Morgunblaðið - 01.07.2009, Qupperneq 13
Fréttir 13INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009
FORSÆTISRÁÐHERRA hefur sett
á fót starfshóp til endurskoðunar á
upplýsingalögum. Starfshópnum er
m.a. ætlað að skoða hvernig megi
rýmka aðgengi almennings að upp-
lýsingum í fórum stjórnvalda.
Starfshópurinn skoði jafnframt
hvort möguleiki sé á að víkka út
gildissvið laganna, t.d. þannig að
þau nái til einkaaðila, þ.e. hluta-
félaga og sameignarfélaga sem eru
alfarið í eign hins opinbera. Starfs-
hópurinn taki mið af löggjöf í ná-
grannalöndum og leiti eftir viðhorfi
almennings og blaðamanna.
Í starfshópnum sitja Trausti
Fannar Valsson, lektor við Háskóla
Íslands, Þórður Vilhjálmsson lög-
fræðingur og Margrét Vala Krist-
jánsdóttir, dósent við Háskólann í
Reykjavík.
Auki aðgang að
upplýsingum
STUTT
FRIÐARHLAUPIÐ hringinn í
kringum Ísland hefst í dag með
opnunarathöfn í Laugardal kl 11.
Þar mun Katrín Jakobsdóttir
menntamálaráðherra setja hlaupið
á gervigrasvellinum. Því næst
hlaupa fulltrúar ÍSÍ og UMFÍ
ásamt 100 krökkum á leikj-
anámskeiði og 30 manna al-
þjóðlegu hlaupaliði frá 15 þjóð-
löndum fyrsta spölinn í gegnum
Laugardal.
Friðarhlaupið (World Harmony
Run) er alþjóðlegt kyndilboðhlaup
og er tilgangur þess að efla frið,
vináttu og skilning. Í ár verður
hlaupið hringinn í kringum Ísland,
1.-16. júlí, en þá munu 30 hlaup-
arar frá 15 þjóðlöndum hlaupa
með Friðarkyndilinn. Talsmaður
Friðarhlaupsins er nífaldur gull-
verðlaunahafi Ólympíuleikanna,
Carl Lewis. Meðal annarra sem
stutt hafa hlaupið má nefna Nel-
son Mandela og Móður Teresu.
Friðarhlaupið hefst
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
HAFT hefur verið eftir
Steingrími J. Sigfússyni
fjármálaráðherra að Ice-
save-samningarnir séu of
flóknir fyrir þjóðaratkvæði.
Í samtali við Morgun-
blaðið segir hann hið rétta
að hann telji vandkvæðum
bundið að leggja fyrir skýra
valkosti til að kjósa um,
ekki að hann telji kjósendur
ófæra um að mynda sér
skoðun. „Ég hafna því algerlega að ég hafi tal-
að niður til kjósenda með þessu,“ segir hann.
Engu að síður virðist nokkur viðsnúningur
hafa orðið hjá ráðherra, frá því að hann vildi
þjóðaratkvæði um stóriðju á Austurlandi.
Hinn ömurlegasti málflutningur
„Ekki getur það verið vandinn að nokkrum
manni í þessum sal, þingræðissinna, detti í
hug að þjóðin sé ekki fullfær um að meta
þetta mál sjálf og kjósa um það samhliða því
að hún kýs sér þingmenn. Stundum heyrist að
vísu einstaka hjáróma rödd um að sum mál
séu svo flókin að þau henti ekki í þjóð-
aratkvæði. Það er einhver allra ömurlegasti
málflutningur sem ég heyri. Menn geta alveg
eins haft ónefnd orð um gáfnafar þjóð-
arinnar, og það ætla ég a.m.k. ekki að gera,“
sagði Steingrímur á Alþingi um fyrirhugað
álver á Reyðarfirði, 4. mars 2003.
Aðspurður segir Steingrímur að það mál
hefði verið auðvelt að leggja í dóm þjóðar-
innar. „Annað hvort vildirðu byggja álverið
eða ekki. Icesave-vandinn verður hins vegar
ekki úr sögunni ef við höfnum samningnum.
Hvað tekur þá við? Þetta er mál af því tagi
sem er mjög flókið að leggja fyrir. Ég verð að
játa mig dálítið sigraðan í því hvernig ætti að
leggja kostina fyrir kjósendur,“ segir hann.
Hafin er undirskriftasöfnun á netinu til að
skora á forseta Íslands að skrifa ekki undir
lög um ríkisábyrgð vegna samninganna.
Icesave erfitt í þjóðaratkvæði
Var á allt öðru máli um
stóriðju á Austurlandi
Steingrímur J.
Sigfússon
Á borgarafundi í Iðnó í fyrradag, um Ice-
save, sagðist Steingrímur hafa meiri
áhyggjur af öðrum hlutum sem fást þyrfti
við. Þar átti hann ekki síst við það verk-
efni að ná jafnvægi í ríkisfjármálum og að
fjármagna nýtt bankakerfi. Árið 2011
blasa hins vegar einnig við 200 milljarða
króna gjalddagar á erlendum gjaldeyrisl-
ánum.
„Vissulega er þarna stór biti sem við
munum þurfa að reyna að endurfjármagna
og dreifa eitthvað. Ég held að öllum sé
ljóst að það verður ekki auðvelt að borga
það bara sisvona. Þetta er risavaxin súla
árið 2011, sem slík, en það á að geta verið
viðráðanlegt með þeim möguleikum sem
við höfum til að dreifa því,“ segir hann.
Risavaxinn gjalddagi 2011
ÞAU svör bárust
frá embætti for-
seta Íslands í
gær að tekin yrði
afstaða til beiðni
frá sérstökum
saksóknara, um
aðstoð við að fá
sjeikinn Al-Thani
til yfirheyrslu,
þegar og ef slík
beiðni bærist.
Embætti sérstaks saksóknara
vinnur nú að því að boða sjeik
Mohamed Bin Khalifa Al-Thani til
yfirheyrslu í tengslum við rannsókn
á hlutabréfakaupum hans í Kaup-
þingi, en hann er bróðir emírsins af
Katar. Grunur leikur á að um sýnd-
arviðskipti hafi verið að ræða.
Forsetinn var tvisvar á ferðinni í
Katar á síðasta ári í opinberum er-
indagjörðum. Emírinn af Katar er
fjölkvænismaður og Sheikha Mozah
sem er „aðal-eiginkona“ hans er
góð vinkona Dorritar Moussaieff
forsetafrúar. thorbjorn@mbl.is
Aðstoðar forsetinn
við rannsókn?
Ólafur Ragnar
Grímsson