Morgunblaðið - 01.07.2009, Blaðsíða 40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚLÍ 2009
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
FLOTTASTA
HASARMYND
SUMARSINS
Frá leikstjóranum Michael Bay ásamt
stórleikurunum Shia LaBeouf, John Torturo
og kynþokkafyllstu leikkonu heims Megan Fox
„STÆRRI, FYNDNARI, FLOTTARI ...
EF ÞÚ FÍLAÐIR FYRSTU MYNDINA,
ÞÁ ÁTTU EFTIR AÐ DÝRKA ÞESSA!“
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
„KRAFTMIKIL ADRENALÍNSPRAUTA
FRÁ UPPHAFI TIL ENDA.”
„RÚSSÍBANAMYND SUMARSINS ...”
S.V.
HEIMSFRUMSÝNING!
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
TRANSFORMERS 2 kl. 4D - 7D - 10D POWERS. KL. 10 10 DIGITAL
THE HANGOVER kl. 4 - 6D - 7 - 8D - 9:10- 10:20D 12 DIGITAL
CORALINE 3D m. ísl. tali kl. 43D L 3D DIGTAL
TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5:30 - 8D - 11D - Powersýning kl. 11 10 DIGTAL THE HANGOVER LÚXUS VIP kl. 3:40 - 5:50
TRANSFORMERS 2 kl. 8 - 11 - Powersýning kl. 11 LÚXUS VIP STAR TREK XI kl. 10:20 10
ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:303D - 3:403D - 5:503D L STÍGV. KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 L
ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 L HANNAH MONTANA kl. 5:50 L
THE HANGOVER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 8:10 - 8:30 - 10:20 - 10:30 - 11 12
Sem áhugamaður um rithöf-undinn Philip Kindred Dickþótti mér fengur að því á
sínum tíma að búið væri að kvik-
mynda eina af hans bestu bókum,
Do Androids Dream of Electric
Sheep?, en myndinni var valið heit-
ið Blade Runner.
Kvikmyndir lúta öðrum lög-málum en bókmenntir og
snjallir kvikmyndagerðarmenn
segja söguna á annan hátt og beita
öðrum brellum en rithöfundar. Því
verður ekki amast við því hér hve
kvikmyndin Blade Runner er frá-
brugðin bókinni Do Androids
Dream of Electric Sheep? eða hafð-
ir kveinstafir uppi um að hitt og
þetta og vanti í myndina sem hafi
skipt máli í skáldverkinu. Aftur á
móti má velta því fyrir sér hvers
vegna kvikmyndin Blade Runner
1982 er svo frábrugðin Blade Run-
ner 1982 – hin fyrri til sýningar
vestan hafs og seinni ætluð til sýn-
inga utan Bandaríkjanna. Við þetta
má svo bæta sérklipptri útgáfu fyr-
ir sjónvarp frá 1986, klippta vinnu-
eintakinu frá 1990-91, Ridley Scott
samþykktu leikstjóraútgáfunni (Di-
rector’s Cut) frá 1992 og lokaútgáf-
unni frá 2007 sem Ridley Scott
samþykkti einnig. Við ofangreint
má svo bæta vinnuútgáfunni frá
1982 og útgáfunni sem sýnd var í
San Diego í maí 1982 og svo aldrei
aftur.
Allar eru þessar útgáfur mis-munandi, hver á sinn hátt, og
misgóðar (ekki séð allar reyndar,
en flestar). Málum er því svo komið
að þegar maður heyrir einhvern
lofa kvikmynd er rétt að spyrja um
hvaða útgáfu hann sé eiginlega að
tala, því vel má vera að það sem
maður kann sjálfur svo vel að meta
í einhverri kvikmynd sé gerbreytt
eða hreinlega sleppt í næsta klippi.
Sumir leikstjórar hafa nefnileganýtt nýja klippingu til að búa
til styttri útgáfur mynda sinn, hert
á framvindunni eða klippt út það
sem þeir voru ekki sáttir við. Aðrir
virðast helst líta á það sem skyldu
sína að lengja myndirnar sem mest,
hrúga í þær atriðum sem ekki
þóttu nógu góð á sínum tíma, en
batna nú í skini gullsins. Dæmi um
myndir sem hafa lengst verulega
við það að komast í tæri við klipp-
araskærin að nýju er langlokan
Lord of the Rings; fyrsta myndin
fór úr 178 mínútum í 208, önnur úr
179 í 223 og þriðja úr 201 mínútu í
251.
Vitanlega er allt þetta klippirífyrst og fremst markaðslegt;
þeir sem þegar eru búnir að kaupa
Blade Runner 1982 kaupa líka leik-
stjóraútgáfuna frá 1992 og loka-
útgáfuna frá 2007 og svo allar sam-
an í einum pakka.
Stundum grípa aðdáendur líkatil sinna ráða, klippa mynd-
irnar eins og þeim hugnast og það
á örugglega eftir að verða algeng-
ara. Gott dæmi um það er The Mat-
rix Dezionized þar sem myndirnar
skelfilegu Matrix Reloaded og Mat-
rix Revolutions eru klipptar í eina
mynd meðal annars með því að
sleppa tilvísunum í borgina Zion,
bardaganum mikla, hallæris-
diskóinu og svo má lengi telja. Nið-
urstaðan: miklu skemmtilegri
mynd fyrir minn smekk. Kannski
fara menn brátt að gefa út áhorf-
endaútgáfur, ekki síður en leik-
stjóraútgáfur. arnim@mbl.is
Klipp, klipp og aftur klipp
AF LISTUM
Árni Matthíasson
» Aðrir virðast líta áþað sem skyldu að
hrúga í myndir atriðum
sem ekki þóttu nógu góð
á sínum tíma, en batna
nú í skini gullsins.
Klippa! Öll afbrigði kvikmyndarinnar Blade Runner eru augnakonfekt.
Úr kvikmynd