Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 2

Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ Útgefandi: Árvakur Umsjón: Svanhvít Ljósbjörg Guðmunds- dóttir svanhvit@mbl.is Blaðamenn: María Ólafsdóttir maria@mbl.is Svanhvít Ljósbjörg Guðmundsdóttir svanhvit@mbl.is Auglýsingar: Katrín Theodórsdóttir kata@mbl.is Forsíða: Kristinn Ingvarsson Prentun: Landsprent Haust og þróttur í hjarta Hlauparar hafa á mann frískandi áhrif þar sem þeir spretta léttir úr spori um göturnar í hressandi haustvindinum. Kannski væri nú ráð að drífa sig af stað, fara í hressandi göngu- ferð, skjótast í ræktina eða fá sér sundsprett. Haustið er tíminn til að láta sér líða vel með því að rækta líkama og sál. Lífið kemst aftur í rútínu eftir ferðalög og viðburðaríkt sumar þar sem öllu ægir saman í litríkum kokteil. Nú er kominn tími til að svitna, hamast og púla og heilsa hausti með þrótti og gleði í hjarta. Segja sleninu stríð á hendur, stíga upp úr sólstólnum og binda á okkur íþrótta- skóna. Fara og finna okkur spennandi tíma í líkamsræktarstöð eða hreyfa okkur úti við. Svo er að muna eftir grænmetinu góða og öllu því holla sem er svo gott fyrir kroppinn til að hann haldist í góðu ásigkomulagi á komandi vetri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.