Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 18
Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu
svanhvit@mbl.is
U ndanfarið hefur mikið verið rætt umJen Fe sem er nokkurs konar orku-skot sem ku gera gæfumuninn eferfiður dagur er framundan. Guð-
mundur Hafþórsson íþróttafræðingur er einn
af dreifingaraðilum Jen Fe og hann segir að
helsti kostur þess sé að auka daglega orku
þess sem tekur það inn. „Jen Fe er 60 ml
skot sem fólk tekur daglega en í því eru bara
náttúruleg efni. Það er til dæmis ginseng,
sem er öflugra en þetta hefðbundna kín-
verska ginseng, en það stuðlar að aukinni
kynorku, bætir þol og þrek og hjálpar lík-
amanum við að losa sig við eiturefni. Í
drykknum er líka aloa vera, sem styrkir
ónæmiskerfið, dregur úr liðagigt og örvar
hreinsun ásamt því að vera bólgueyðandi.
Auk þess er berjablanda í drykknum, en í
hana eru notuð alls kyns ber. Þar á meðal
eru ber sem róa hugann og næra hjartað,
bláber, sem eru full af andoxunarefnum,
vörtuber sem er fullt af c-vítamínum og mun
fleiri. Allt er þetta þó náttúrulegt og skað-
laust.“
Umtalað efni
Guðmundur segir að umtalaðasta efnið í
Jen Fe sé þó Resveratrol, sem er holla efnið í
rauðvíni. „Það er mikið fjallað um þetta efni í
Bandaríkjunum í dag og til að mynda hafa
Oprah og ABC-fréttastofan fjallað sér-
staklega um þetta efni. Það hefur líka verið
fjallað um tilraun með músum sem sýndu að
þær mýs sem fengu þetta efni voru með tvö-
falt meira úthald, fengu ekki krabbamein,
hjartasjúkdóma eða beinþynningu og lifðu 30
prósent lengur. Resveratrol á að hægja á
öldrun og yngja líkamann og það er jafnmikið
af Resveratrol í 60 ml af Jen Fe og er í 40
lítrum af rauðvíni. Jen Fe er eini drykkurinn
í heiminum, fyrir utan rauðvín, sem inniheld-
ur þetta efni,“ segir Guðmundur og bætir við
að það sé misjafnt hvernig fólk kjósi að taka
Jen Fe. „Sumir fá sér hálfan skammt tvisvar
yfir daginn á meðan aðrir taka einn skammt í
einu. Íþróttamenn taka þetta oftar en ekki
bara hálftíma fyrir álag því þetta gefur manni
kraft. Jen Fe er því rosalega gott fyrir líkam-
ann og hentar öllum, ekki bara íþróttafólki.“
Minni matarlyst
Guðmundur talar um að helsti kostur Jen
Fe sé hiklaust það að drykkurinn eykur dag-
lega orku. „Ég finn mikinn mun á sjálfum
mér. Áður fyrr fór ég á morgunæfingu og
þurfti að leggja mig og slaka vel á þegar ég
kom heim því ég vaknaði klukkan fjögur á
morgnana. Í dag tek ég Jen Fe áður en ég
fer á morgunæfingu, vinn alveg til hádegis og
legg mig síðan í klukkutíma en eiginlega bara
vegna þess að líkaminn þarf á svefninum að
halda þótt ég sé ekki þreyttur. Ég mæli með
því að fólk taki Jen Fe um hádegið því við
fáum ákveðna orku úr svefninum. Ásamt því
að auka orkuna minnkar matarþörfin og ein-
hvern veginn borðar maður minna. Ég finn
fyrir því að ég sækist ekki í skyndibitann eins
og ég gerði áður og ég borða minna í kvöld-
matnum. Konur sækja mikið í Jen Fe því
þær tala um að sykurþörfin minnki verulega
við inntöku þess.“
Orkuskot sem dugar út daginn
Guðmundur Hafþórsson íþróttafræðingur: „Resveratrol á að hægja á öldrun og yngja líkamann
og það er jafnmikið af Resveratrol í 60 ml af Jen Fe og er í 40 lítrum af rauðvíni.“
Jen Fe hefur verið mikið í um-
ræðunni undanfarið en það er
orkuskot sem á að auka orku og
allan kraft. Í Jen Fe er meðal
annars Resveratrol sem er holla
efnið í rauðvíni.
Jen Fe Orku-
skot sem ku
auka orku
ásamt því að
minnka matar-
lyst og sykur-
löngun.
»Konur sækja mikið íJen Fe því þær tala um
að sykurþörfin minnki
verulega við inntöku þess.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
jenfe.is
18 | MORGUNBLAÐIÐ
Flestir eiga einhverja að, og
jafnvel marga, sem vilja sjá
viðkomandi ná öllum tak-
mörkum sínum. Oft er þetta
fólk sem heldur sig á hliðarlín-
unum og fylgist vel með hvort
réttar ákvarðanir séu teknar
og hvort markmiðinu sé náð.
Þetta er fólkið sem hressir þig
við þegar eitthvað gengur
ekki upp og fólkið sem stend-
ur stolt við hlið þér þegar allt
gengur upp. Hins vegar er
ekki alltaf víst að þetta fólk
auglýsi stuðning sinn og því er
sjálfsagt að leita eftir honum.
Með því að segja öðrum frá
markmiðum og áætlunum er
auðveldara að standa við það
auk þess sem ástvinir geta þá
stutt viðkomandi á leiðarenda.
Oftar en ekki eru jafnvel ein-
hverjir sem vilja líka setja sér
markmið og eiga sjálfir ein-
hverja drauma í bakpokanum
sem bíða eftir því að rætast.
Stuðningur Markmið eru
misstór en gott er að fá
stuðning ástvins.
Að leita eftir
stuðningi
ROPE YOGA
námskeið
hefjast 31. ágúst
Við bjóðum upp á átta byrjendanámskeið,
eitt lyftingarnámskeið
og ástundunartímarnir verða áfram eins og áður.
Elín Sigurðardóttir
Skráning í síma 696-4419
eða á elin@elin.is
Allar upplýsingar á www.elin.is
Bæjarhraun 2, Hafnarfjörður