Morgunblaðið - 28.08.2009, Page 26
26 | MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
E lísabet Reynisdóttirnæringarþerapisti býðurfólki ráðgjöf um næringuog hjálpar því þannig með
ýmis vandamál en rétt næring
verður oft til þess að losa um
ákveðin höft í líkamanum og van-
líðan sem rangt mataræði getur
leitt af sér.
„Fólk leitar í raun til mín með
allt á milli himins og jarðar, sumir
þjást af ákveðnum óþægindum en
aðrir vilja bara láta sér líða betur
almennt. Næstum aldrei er ástæð-
an útlitsdýrkun enda gef ég mig
ekki út fyrir slíkt. Það er mikil-
vægast að finna jafnvægi í lífinu
og jafnvægi á milli sálar og lík-
ama. Sumir koma bara einu sinni
en aðrir oftar, allt eftir því hvað
fólki finnst það þurfa. Ég segi að
fólk eigi að láta matinn vera lyfið
og lyfið vera matinn,“ segir El-
ísabet sem útskrifaðist sem
næringarþerapisti frá CET, Cent-
er for ernæring og terapi, á síð-
asta ári. Um er að ræða þriggja
ára nám sem lýkur með lokarit-
gerð sem samsvarar B.Sc.-ritgerð.
Námið er byggt upp eins og hefð-
bundið háskólanám, það er í fyr-
irlestraformi og með verklegum
æfingum. Nemendur þurftu að
reyna allt sjálfir, svo sem að fasta
og fleira, sem Elísabet segir hafa
verið frábært og reynst vel. Hún
byrjaði í náminu eftir erfið veik-
indi og fann þannig sjálf hvað rétt
næring skiptir miklu máli og að
skortur á ákveðnum bætiefnum
getur leitt til alvarlegs slappleika.
Að komast út úr
vítahringnum
Elísabet skrifaði fyrirlesturinn
Borðaðu þig hamingjusaman sem
hægt verður að hlýða á í Yggd-
rasli og Baðhúsinu nú í haust. El-
ísabet segir að um sé að ræða létt-
an fyrirlestur til að hjálpa fólki að
koma mataræðinu í reglulegt horf.
Hún segir mjög algengt að fólk
finni fyrir þunglyndiseinkennum
og sleni en viti ekki hvað það á að
gera og sé þannig fast í fari sem
það vilji ekki vera í. „Þetta er
þerapíufyrirlestur um þennan
vítahring og hvernig við getum
breytt honum til að líkaminn fái
rétta næringu og hugurinn já-
kvæðara viðhorf. Ég fer ekki út í
öfgar eins og að borða bara eina
ákveðna fæðutegund heldur leið-
beini ég fólki við að borða rétt og
til dæmis tala ég dálítið um am-
ínósýrur sem byggingarefni í pró-
teinum en í þeim má finna lífs-
nauðsynlegt efni fyrir gleðihormón
líkamans. Ef maður borðar reglu-
lega yfir daginn og rétt sam-
ansettar máltíðir líður manni vel.
Ég læt alla mína viðskiptavini
skrifa niður hjá sér hvað þeir
borða því þannig er auðvelt að sjá
hvað fólk gerir vitlaust. Hvað mig
varðar, ef ég vakna illa upplögð á
morgnana get ég oft rakið það til
þess sem ég borðaði daginn áður.
Það getur tekið mismikinn tíma að
finna mun á sér og því er mikil-
vægt að fólk sé þolinmótt og finni
smám saman það jafnvægi sem
hentar líkamanum best,“ segir El-
ísabet.
Fituskortur algengur
Meðal algengustu mistakanna
sem fólk gerir segir Elísabet að sé
að fólk borðar ekki nóg og ekki
nógu hollt. Algengt sé að fólk
borði of kolvetnaríkan morgunmat
sem leiði til þess að blóðsykurinn
fari of hátt upp og síðan of langt
niður þegar líða tekur á daginn.
Morgunmatur er misjafn hjá fólki,
hún vilji helst að allir borði hafra-
graut á morgnana en sumir séu
orðnir svangir aftur eftir klukku-
tíma og þá hafi hún mælt með
eggjum eða próteindrykk úr líf-
rænt ræktuðu mysupróteini. Þá sé
fituskortur gegnumgangandi hjá
íslenskum konum en nauðsynlegt
sé að borða rétta og góða fitu.
Fituskorti getur meðal annars
fylgt mikill varaþurrkur, hárlos og
depurð en besta ráðið við slíku er
að taka lýsi og setja góðar og holl-
ar olíur á salatið.
Aukin meðvitund fólks
„Ég legg mikið upp úr því í
fyrirlestrinum að við borðum ekki
óhollan mat en veljum við eina slík
máltíð skömmum við okkur ekki
fyrir það því það er það versta
sem við gerum. Frekar eigum við
að hafa stjórnina og hugsa: „Þetta
valdi ég nú en á morgun get ég
gert margt til að bæta líkamanum
þetta upp“. Þá er gott að borða
fullt af grænmeti og ávöxtum til
að ná jafnvægi í líkamanum á ný.
Ég hélt að flestir væru sér með-
vitandi um samsetningu matarins
og hversu mikið á að innbyrða úr
hverjum flokki á dag en það er
alls ekki þannig og margt þarf að
útskýra fyrir fólki. Þar reyni ég
mitt besta en fólk getur spurt
spurninga á fyrirlestrinum og líka
fengið hjá mér einkatíma,“ segir
Elísabet.
Jafnvægi og hamingja líkamans
Til að geta borðað okkur hamingjusöm þarf hver
og einn að velja sér rétta fæðu til að finna jafn-
vægi eigin líkama. Rétt mataræði hefur mikið að
segja, bæði fyrir líkama og sál.
Létt í lund Elísabet með hundana sína Ask og Pjakk en Elísabet segir að mikilvægt sé að finna jafnvægi í lífinu og jafnvægi á milli sálar og líkama.
Morgunblaðið/Eggert
» Það er mikilvægt aðfinna jafnvægi sem
hentar líkamanum best.
8
Ungbarnanuddnámskeið
fyrir þig og barnið þitt
Uppl. í síma 896 9653
og á www.heilsusetur.is
3. september nk.