Morgunblaðið - 28.08.2009, Side 30
30 | MORGUNBLAÐIÐ
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
F ólk byrjar á því að panta sér tíma ogkoma í heyrnarmælingu og út frá þvíer síðan unnið. Það fer nokkuð eftirþví í hvernig hljóðheimi fólk starfar í
hvað það vill láta laga. Þeir sem starfa til
dæmis við kennslu, eru mikið á fundum eða
vinna í vélavinnu hafa allir ólíkar þarfir.
Tækin eru valin eftir því hvað þarf að bæta
og virkni þeirra er sniðin að þörfum hvers
og eins. Flestir fá síðan lánaðar eina eða
tvær gerðir tækja til að prófa við sínar að-
stæður. Í nokkra mánuði eftir það fer síðan
fram endurhæfing á heyrninni þar sem fólk
kemur og lætur stilla tækin öðru hvoru en
hækka má í þeim þegar hljóðin hafa vanist.
Það er mikilvægt að yfirfara tækin reglu-
lega og láta stilla þau svo bestur árangur
náist. Mjög margt hefur áhrif á heyrnina,
erfðir, aldurinn, hávaði og lyf og ýmsir
sjúkdómar. Heyrnin getur verið farin að
gefa sig um fertugt og jafnvel fyrr hjá
iPod-kynslóðinni,“ segir Ellisif Katrín
Björnsdóttir
Hálfrar aldar reynsla
Ellisif Katrín er útskrifaður heyrnarfræð-
ingur frá Gautaborgarháskóla og hefur þar
með hlotið löggildingu sænskra heilbrigð-
isyfirvalda. Hún opnaði ásamt fjölskyldu
sinni Heyrn ehf í Kópavogi fyrir um tveim-
ur árum og valdi sér sem samstarfsaðila
fyrirtækið ReSound í Danmörku. Hún segir
Danina hafa reynst einstaklega vel enda
hafi þeir yfir hálfrar aldar reynslu í að
hanna og smíða heyrnartæki. „Þegar ég hóf
nám fyrir tíu árum síðan var enn þá verið
að stilla flaumræn heyrnartæki með skrúf-
járni. Nú eru heyrnartæki orðin flottar staf-
rænar græjur og í raun bara fylgihlutur á
eyrað eins og ipod eða sími. ReSound fram-
leiðir margar tegundir tækja og af hverri
tegund eru nokkrar svo þetta er dálítið eins
og þegar maður velur sér bíl. Maður velur
sér tæki í samræmi við notkun og lit sem
fer manni vel. Danirnir eru flinkir í þessu
og líka smart í sinni hönnun,“ segir Ellisif
Katrín.
Nýjasta gerð heyrnartækjanna kallast be
by ReSound. Þau eru felld inn í hlustir, það
loftar með þeim og þau gefa skýra og eðli-
lega heyrn. Hljóðnemanum er komið fyrir í
skjól í ytra eyranu sem fangar hljóðið fyrir
hann og kemur í veg fyrir vindgnauð. Re-
Sound hlaut alþjóðleg verðlaun fyrir hönn-
un tækjanna og einnig dönsk nýsköp-
unarverðlaun. Þessi tæki hafa verið vinsæl
meðal yngsta notendahópsins, það á einnig
við um sérstakar heyrnasíur sem draga úr
hljóðstyrk en þær hafa verið vinsælar hjá
tónlistarmönnum hér á landi. „Að meðaltali
líða sjö ár frá því að fólk uppgötvar heyrna-
skerðingu þar til það leitar sér aðstoðar.
Þetta er ótrúlega langur tími en það fælir
kannski suma frá að hafa átt ömmu eða afa
með flaumræn heyrnartæki á eyrunum sem
voru eins og banani sem pípti í tíma og
ótíma. Fólk þarf að bregðast við heyrna-
skerðingu því heilinn er svo fljótur að
gleyma hljóðunum og þá venst fólk á að
heyra ekki ákveðin hljóð og bregður þegar
það fer að heyra á ný skrjáf í dagblöðum og
annað slíkt. Þegar ég hóf nám var talað um
að 10 prósent fólks væru heyrnaskert en
nýlegar evrópskar rannsóknir sýna aukn-
ingu upp í 16 prósent. Þegar kemur að tón-
leikum held ég að hér sé ríkjandi kæruleysi
og fólk spyr hvort það eigi virkilega að vera
með tappa í eyrunum þegar það vill hlusta
en heyrnarsíur sem settar eru í eyrun
draga einfaldlega úr hávaða án þess að loka
fyrir hann og tóngæðin batna“ segir Ellisif
Katrín.
Hönnun á heyrnartækjum fleygir fram
Morgunblaðið/Eggert
Aukin meðvitund Ellisif Katrín Björnsdóttir segir minnkandi fordóma hafa orðið til þess að fólk leiti sér hjálpar fyrr.
Dönsk hönnun Heyrnatækin frá Resound eru
afar nett og fást í ýmsum gerðum og litum.
Segja má að bylting hafi orðið í
hönnun heyrnartækja en þau eru
mörg hver orðin afar nett. Á
sama tíma hefur dregið úr
ákveðnum fordómum fólks gegn
eigin heyrnarskerðingu og það
leitar sér nú hjálpar fyrr.
» Þegar kemur að tón-
leikum hér á landi held
ég að sé ríkjandi kæru-
leysi og fólk spyr hvort
það eigi virkilega að vera
með tappa í eyrunum
þegar það vill hlusta.
Til eru ýmiss konar matvæli
sem búa líkamann undir hreyf-
ingu með því að fylla hann af
vítamínum og auka orkubirgðir
hans. Ómettaðar fitusýrur í
avókadó styrkja líkamann og
geta dregið úr verkjum en
rannsóknarmenn við háskólann
í Buffalo hafa fundið út að kon-
ur sem keppa í hlaupi og inn-
byrða minna en 20 prósent af
fitu voru mun líklegri til að
slasa sig heldur en þær sem
innbyrtu í það minnsta 31 pró-
sent. Mataræði hlauparana inni-
heldur gjarnan afar litla fitu
sem getur veikt vöðva og liða-
mót og því eru nokkrar sneiðar
af avókadó á dag mjög góð við-
bót við slíkt mataræði.
Sætt og hollt
Annað sem afar gott er að
hafa á matseðli dagsins eru ber
en þau eru stútfull af
andoxunarefnum. Handfylli af
bláberjum, hindberjum eða
brómberjum á dag eru góð und-
irstaða næringarefna fyrir lík-
amann sem geta verndað vöðva
gegn íþróttameiðslum. Appels-
ínur eru líka tilvalinn aukabiti
en þær innihalda allt það c vít-
amín sem konur þarfnast á degi
hverjum.
Heilsufóður Ómettaðar fitusýrur í avókadó styrkja líkamann.
Matur sem
styrkir líkamann
Tímar fyrir bæði byrjendur og lengara komna.
Litlir hópar, stöður, öndun, slökun og hugleiðsla
Námskeið hefjast 7. september.
Skráning og upplýsingar
kristinsjofn@simnet.is • www.kristinsjofn.is
gsm 899 7809 • Kristín Sjöfn jógakennari
Jóga og sjálfsskoðun
í Rósinni
SagaMemo
Mundu mig
www.sagamedica.is
Fáanlegt í lyfja- og heilsuvöruverslunum og völdum stórmörkuðum
SagaMemo inniheldur virk efni úr
ætihvönn og blágresi. SagaMemo er fyrir
þá sem vilja viðhalda góðu minni.
SagaMemo fyrir gott minni!
Nýtt!