Morgunblaðið - 26.09.2009, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 26.09.2009, Qupperneq 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is ÞÁTTTÖKUGJÖLD á ráðstefnum geta hlaupið frá því að vera engin og upp í nokkur hundruð þúsund, sé um alþjóðlegar ráðstefnur að ræða. Mönnum ber þó saman um að lítill sem enginn beinn ágóði sé af ráð- stefnugjöldunum sjálfum, heldur séu aðrar tekjur sem hljótast af veru ráðstefnugesta hérlendis gríðarlega mikilvægar fyrir ferðaþjónustuna. Dæmi um þátttökugjald á ráð- stefnu sem nýlega lauk í Reykjavík er 69.000 krónur. Slíkar upphæðir geta staðið í kreppuhrjáðum Íslend- ingum en á hinn bóginn má ætla að slíkt skili drjúgum skildingi til lands- ins í gjaldeyristekjum, komi margir ráðstefnugestir frá útlöndum. Jón Hákon Magnússon, fram- kvæmdastjóri KOM almanna- tengsla, segir ráðstefnugjöld geta verið frá núll og upp í nokkur hundr- uð þúsund, allt eftir lengd og eðli ráðstefnunnar. „En jafnvel þótt ráð- stefnur séu dýrar standa ráðstefnu- gjöldin yfirleitt ekki undir þeim og því eru oft kostunaraðilar, s.s. fyr- irtæki eða opinberir aðilar, sem standa að þeim að auki.“ Ástæðan er mikill kostnaður við að fá erlenda fyrirlesara til landsins; þeir taki margir hverjir háar upphæðir fyrir sína vinnu, auk þess sem hár kostn- aður fylgi ferðum og uppihaldi þeirra. Undir þetta tekur Erna Hauks- dóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Þau eru sam- mála um að virði ráðstefnumark- aðarins felist fyrst og fremst í því hversu mikið ráðstefnugestir skilja eftir sig í peningum. Þar sem fyr- irtæki kosti iðulega ferðirnar fljúgi þeir á betri farrýmum, búi á dýrum hótelum, fari á dýra veitingastaði og versli gjarnan töluvert á ferðum sín- um. „Þeir eyða miklu meiri pen- ingum en venjulegir túristar,“ segir Jón Hákon. Þá eru ótaldir fjármunir sem koma í hlut fyrirtækja sem sér- hæfa sig í skipulagningu ráðstefna sem og ráðstefnuhótela. Erna bendir á að áætlað sé að beinar tekjur af þriggja daga ráð- stefnu sem 1.500 manns sækja séu milli 240 og 250 milljónir króna. Það sé því til mikils að vinna að ná sem flestum ráðstefnum hingað til lands og í því sé unnið markvisst. „Nú horfum við fram á að tónlistar- og ráðstefnuhúsið klárist, sem mun auðvitað gjörbreyta allri aðstöðu hér á landi því við höfum í raun ekki ver- ið með neina stóra ráðstefnusali, á alþjóðlegan mælikvarða.“ Fundahöld til fjár Ráðstefnur eru geysimikilvægar fyrir ferðaþjónustuna enda stuðla þær að betri nýtingu á hótelum og fundaraðstöðu og skilja eftir mikla peninga í hagkerfinu Morgunblaðið/Ómar Opnað 2011 Áríðandi er að drífa í ákvörðun um opnunardag tónlistar- og ráðstefnuhússins svo hægt sé að fara að bóka ráðstefnur í húsið, segir Erna. Ein alþjóðleg ráðstefna haldin hérlendis getur hæglega skilið eftir sig 250 milljónir í beinum tekjum. Tekjurnar eru fyrst og fremst út af neyslu ráðstefnu- gesta, ekki þátttökugjöldum. Í HNOTSKURN »Ráðstefnur eru yfirleitthaldnar utan háannatíma og eru því mikilvægur þáttur í betri nýtingu hótela og ann- arrar aðstöðu hér á landi. »Slegið hefur verið á aðvelta ráðstefnumarkaðar- ins sé um 12 milljarðar dollara á heimsvísu og að Ísland sé í dag með um 0,3% hlutdeild af honum. KATRÍN Jak- obsdóttir menntamála- ráðherra mun á næstunni kynna frumvarp til laga um fjölmiðla. Verður frum- varpið sett á vef menntamála- ráðuneytisins áð- ur en það fer í þinglega meðferð. Að sögn Katr- ínar er í frumvarpinu gert ráð fyrir stofnun fjölmiðlastofu sem m.a. er ætlað að sinna eftirliti með fjöl- miðlum. Nú eru í gildi prent- og útvarps- lög en ekki eru til ein lög sem ná yf- ir alla fjölmiðlaflóruna, að sögn Katrínar. Þau ná einnig yfir nýja miðla, svo sem netmiðla, sem ekki voru til þegar eldri lög voru sett. Að sögn Katrínar er í frumvarp- inu að finna ákvæði sem lýtur að ritstjórnarlegu sjálfstæði fjölmiðla og að gagnsæi ríki um eignarhald á fjölmiðlum. Ekki liggur nákvæm- lega fyrir hvenær frumvarpið verð- ur kynnt en það verður öðru hvoru megin við mánaðamót. Fólki gefst kostur að kynna sér frumvarpið á netinu áður en það verður rætt á Alþingi. Það verður sérstaklega kynnt fyrir þingflokkum og hags- munaaðilum, svo sem fjölmiðlunum sjálfum, og óskað eftir áliti frá þeim. guna@mbl.is Fjölmiðlastofa hafi eftirlit með miðlunum Katrín Jakobsdóttir HVALUR hf. er að kanna með flutning á afurðum af langreyð- unum 125 sem veiddust í sumar til Japans. Þangað verða flutt um 1.500 tonn af kjöti, rengi og ýmsum öðrum afurðum. Í sumar unnu 150- 160 manns við hvalveiðarnar og verkun kjötsins. Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., sagði að það væri markaður í Japan fyrir hval- kjötið. „Við værum ekki að þessu annars, það segir sig sjálft,“ sagði Kristján. „Við erum að sjóða rengi og súrsa svo það verði orðið klárt fyrir þorrablótin,“ sagði Kristján. Reng- ið þarf að liggja í mysu í þrjá mán- uði áður en það er tilbúið til átu. Leyft var að veiða 150 lang- reyðar. Þær 25 sem ekki veiddust flytjast yfir á næsta sumar. Kristján sagði að á öldinni sem leið hefðu hvalveiðar venjulega byrjað um 1. júní og yrði stefnt að því að hefja veiðar á þeim tíma næsta sumar. Reiknað er með að tveir hval- bátar verði við veiðarnar. gudni@mbl.is 1..500 tonn af hval- kjöti og rengi verða send til Japans Hvalveiðar 125 langreyðar veiddust. ICELAND Express hefur áætl- unarflug til Lúxemborgar næsta sumar. Flogið verður tvisvar í viku, á þriðjudögum og fimmtudögum. Þar með fjölgar áfangastöðum fé- lagsins í 22. Nýverið tilkynnti félag- ið um áætlunarflug til Birmingham og Mílanó. Áætlunarflug til Lúxemborgar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.