Morgunblaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 30
30 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009
ÞORSTEINN Már Aðalsteinsson
heldur því m.a. fram í grein í
Morgunblaðinu hinn 20. sept-
ember að það sé stefna LÍÚ sé að
flytja eigi allan
fisk óunninn úr
landi. Þetta er
fjarri sanni, en
því miður enn
eitt dæmið um
þær rangfærslur
sem einkenna
umræðu um ís-
lenskan sjávar-
útveg. Stærstur
hluti þess afla
sem veiddur er á Íslandsmiðum er
unninn í fiskvinnslum hér á landi
eða um borð í íslenskum vinnslu-
skipum.
Íslenskir útvegsmenn vilja veg
íslenskrar fiskvinnslu sem mestan.
Það lýsir sér vel í því að fyrr á
árinu studdu þeir lagasetningu um
að útgerðir bjóði fisk, sem þær
hyggjast selja á erlendum fisk-
mörkuðum, fyrst til sölu innan-
lands. Lítil viðskipti hafa hins veg-
ar átt sér stað og áhugi virðist
ekki hafa verið mikill af hálfu fisk-
kaupenda.
Það má ekki gleymast að í Evr-
ópu eru mikilvægir ferskfiskmark-
aðir sem þarf að rækta með stöð-
ugu framboði. Hér um að tefla
viðskiptasambönd sem ná marga
áratugi aftur í tímann og skipta
íslenskan sjávarútveg miklu máli.
SIGURÐUR
SVERRISSON,
upplýsinga- og
kynningarfulltrúi LÍÚ.
Rangfærslur í
umræðu um íslenskan
sjávarútveg
Frá Sigurði Sverrissyni
Sigurður
Sverrisson
BRÉF TIL BLAÐSINS
ÖLLUM er ljóst að við endurreisn
íslensks þjóðfélags eftir hrun eru
ábyrgir fjölmiðlar höfuðnauðsyn.
Að hér sé komið á opnara, gegn-
særra og réttlátara þjóðfélagi.
Nú hefur stjórn Árvakurs ákveð-
ið að ráða sem ritstjóra blaðsins
þann mann sem öðrum fremur
kveikti þá elda sem nú brenna á
þjóðinni allri – og hellti síðan olíu á
eldinn með veru sinni í Seðlabank-
anum og margfaldaði þar það tjón
sem lendir á börnum okkar af
bankahruninu. Sami maður hefur
um árabil stundað aðferðir í pólitík
sem einkennast af skrumskælingu,
útúrsnúningi og smjörklípum
ásamt dæmafárri langrækni og
hefnigirni.
Með þessari ákvörðun hefur
Morgunblaðið endanlega dæmt sig
úr leik í því verkefni að stuðla að
uppbyggingu og trausti í samfélag-
inu. Hún er gerð til að þjóna þröng-
um sérhagsmunum en er um leið
stríðsyfirlýsing við þá viðleitni að
byggja hér upp heilbrigðara þjóð-
félag. Mikil er þar ógæfa hinna
seinheppnu eigenda blaðsins. Trú-
verðugleiki er vitaskuld verðmæt-
asta eign hvers fjölmiðils. En hér
eftir verður því naumast treyst að
ein einasta frétt, umfjöllun eða
áhersla blaðsins sé fram sett undir
formerkjum ómengaðrar blaða-
mennsku.
Ég kæri mig altént ekki um slíka
sendingu inn á heimili mitt og
minna framvegis.
Vinsamlegast,
HALLGRÍMUR HELGI
HELGASON,
Unnarbraut 5, Seltjarnarnesi.
Ég segi upp áskrift
að Morgunblaðinu
Frá Hallgrími Helga Helgasyni
ÉG FAGNA ákvörðun eigenda Ár-
vakurs að fá til ritstjórnarstarfa
Davíð Oddsson
fyrrum forsætis-
ráðherra og
Seðlabanka-
stjóra. Með Davíð
mun Morg-
unblaðið taka
framförum og
verða betri þátt-
takandi í þjóð-
félagsumræðu
allri og málefnum
landsmanna.
Davíð Oddsson er einn reyndasti og
virtasti stjórnmálamaður Íslands,
stefnufastur, mælskur og litríkur.
Þótt pólitískum andstæðingum hans
hafi tekist um stundarsakir að telja
ýmsum trú um, að heimskreppu
linni með því einu að víkja Davíð úr
stól Seðlabankastjóra, þá á sama
fólk ekki gott veður yfir höfði sér
með aukinni skattbyrði, auknu at-
vinnuleysi, niðurskurði fjárlaga og
almennu ráðaleysi í efnahagsmálum.
Það er sérstaklega ánægjulegt að fá
Davíð sem ritstjóra Morgunblaðsins
eftir áralanga baráttu við einveldi
fjársterkra auðmanna sem fengu
bæði Samfylkingu og forseta Íslands
í lið með sér til að stöðva lög þáver-
andi ríkisstjórnar um tryggingu lýð-
ræðis í fjölmiðlum landsins. Ég
hlakka til að lesa greinar Davíðs sem
nú getur frjáls sagt hug sinn í einum
virtasta miðli þjóðarinnar. Fyrir
mér er Davíð í forystu „The Unto-
uchables“, það er að segja hópi
þeirra víkinga sem hafa unnið og
vinna af eindregni og heilindum fyr-
ir þjóð vora alla. Hafa aðrir fyrrum
eða núverandi háttsettir ráðamenn
lýðveldisins greint frá mútutilraun-
um sem þeir hafa staðið af sér? Ekki
tíst frá gullslegnum „Baugsstöðum“.
Á vettvangi Morgunblaðsins fær
Davíð verðskulduð tækifæri að láta
staðreyndirnar tala á sinn eigin
skemmtilega hátt. Þjóðin á eftir að
sjá gegnum huluna, þegar arkitekt
íþróttaleikvangsins er kennt um að
heimaliðið beið ósigur.
Sem forsætisráðherra leiddi Dav-
íð Oddsson Ísland á braut fremstu
þjóða í veröld allri í velmegun og vel-
sæld. Hann opnaði leiðir fyrir frelsi
einstaklinga og einkaframtaks sem
færði Íslendingum árangur sem fáar
aðrar þjóðir geta státað af. Við skul-
um öll hafa í huga, að þátttaka lítils
eyríkis í fyrsta skipti á alþjóðafjár-
málamörkuðum er eins og fyrir barn
að lyfta hlassi. Mistök hafa verið
gerð, mörg í góðri trú, nokkur af
misjöfnum ráðum. Allt er þetta skóli
dýrmætrar reynslu fyrir framtíðina.
Það boðar gott, að Davíð Oddsson er
í dag ritstjóri Morgunblaðsins. Ég
óska þér, Davíð Oddsson, alls braut-
argengis í nýja starfinu.
GÚSTAF ADOLF SKÚLASON,
smáfyrirtækjarekandi.
Góðs viti að Davíð Oddsson
verði nýr ritstjóri Morgunblaðsins
Frá Gústaf Adolf Skúlasyni
Gústaf Adolf
Skúlason
HLUTUR stjórn-
valda og eftirlitsstofn-
ana í aðdraganda
gengishruns og
bankafalls er meðal
þess sem helst má
læra af þegar litið er
til baka.
Örlagaríkar
ákvarðanir
Hart er deilt á
Fjármálaeftirlitið (FME) og Seðla-
bankann fyrir eftirlit þeirra með
fjármálakerfinu árin sex frá einka-
væðingu bankanna og fram að
þroti þeirra í október í fyrra. Við
búum við það fyrirkomulag að
Seðlabankanum ber að fylgjast
með lausafjárstöðu fjármálafyr-
irtækja, en Fjármálaeftirlitið eig-
infjárstöðu og rekstri að öðru
leyti. Þar með er eftirliti með
bankakerfinu skipt á milli stofn-
ana og ráðuneytasviða, sem er af-
leitt fyrirkomulag. Ekki síst í ljósi
þess hversu samskipti á milli
manna og stofnana geta verið stirð
af pólitískum eða persónulegum
ástæðum. Þetta kom skýrt fram
um „Glitnishelgina“ í september
þegar ákveðið var að taka yfir
75% hlutafjár í bankanum í stað
þess að lána honum til þrautavara.
Lengi má deila um gjörninginn
sjálfan, en þetta var
umdeilanleg stjórn-
sýsla. Sú atburðarás
var undirbúin án sam-
ráðs eða þátttöku við-
skiptaráðuneytisins
og eru það óviðunandi
vinnubrögð.
Slíkar ákvarðanir
er fráleitt að taka án
eðlilegrar aðkomu
fagráðuneytis. Því á
enginn ráðherra að
una og blasir glöggt
við í baksýnisspegl-
inum nú.
Við verðum að setja stjórnsýsl-
unni svo skýrar leikreglur að ör-
lagaríkar ákvarðanir sé ekki hægt
að taka án þess að ferlið sé hafið
yfir vafa og pólitískar deilur.
Veikar stofnanir
Fjármálakerfið á Íslandi tífald-
aðist að vöxtum á sex árum. Það
gerðist ekki bara fyrir atorku
bankamanna sjálfra, heldur lá
pólitísk hvatning að baki útrás
bankanna. Verkefni FME og
Seðlabanka jukust í samræmi við
vöxt bankanna án þess að þessum
stofnunum væri gert kleift að axla
aukna ábyrgð. Sérstaklega var
FME vanbúið að starfsfólki og að-
stöðu til að fylgja bönkunum eftir
á fluginu. Vorið 2007 var tekin um
það pólitísk ákvörðun að efla
FME, meðal annars með helmings
hækkun fjárframlaga og nýju fólki
til stjórnarsetu sem hafði mjög
skýr markmið í huga. En þetta
var alltof seint. Á því bera and-
varalausir stjórnmálamenn alla
ábyrgð.
Óhamin útrás
Ein grundvallarspurning er af
hverju ekki voru sett bönd á útrás
bankanna, heldur þeir hvattir til
hennar frá einkavæðingu og árin á
eftir.
Eftir að ríkisstjórn Geirs
Haarde tók við völdum og váboðar
erfiðleikanna gerðu vart við sig
reyndum við að koma böndum á
þróunina, en ekki af nægilegri
festu. Með íhlutan viðskiptaráðu-
neytis og Fjármálaeftirlits var þó
komið í veg fyrir að Kaupþing
keypti hollenska bankann NIBC
sem hefði enn stækkað bankann
gríðarlega. Hins vegar hefðum við
án vafa átt að ganga harðar fram í
því að þrýsta á bankana til að
selja eigur erlendis. Þá hefði tilurð
innstæðureikninganna í útibúum
erlendis átt að verða stjórnvöldum
tilefni harðvítugri aðgerða. Vöxtur
og viðgangur þeirra ber vott um
ábyrgðarleysi þeirra sem til stofn-
uðu og andvaraleysi stjórnvalda.
Hér heima var tilurð t.d. Icesave
árið 2006 fagnað á mörgum stöð-
um og valinn hópur íslenskra hag-
fræðinga valdi reikningana í þriðja
sæti sem viðskiptaævintýri ársins
2007. Landsbankinn þurfti ekkert
leyfi frá FME eða viðskiptaráðu-
neytinu til að stofna til Icesave-
reikninganna. Til þess hafði hann
fulla heimild á íslensku starfsleyfi
sínu samkvæmt ákvæðum EES-
samningsins um frjálsa fjármagns-
flutninga. Icesave-starfsemin hófst
því með einfaldri tilkynningu
Landsbankans til FME um að hún
væri í farvatninu haustið 2005.
Nokkrir mætir menn sáu hætt-
una sem hér var á ferðinni. Meðal
þeirra var Jón Sigurðsson, fyrr-
verandi seðlabankastjóri og ráð-
herra, sem ég skipaði stjórnar-
formann FME í upphafi árs 2008.
Hann lýsti því yfir í blaðaviðtölum
að það væri forgangsverkefni
FME að koma starfsemi bankanna
í útibúum erlendis í dótturfélög.
Að þessu var unnið sleitulaust
fram eftir árinu 2008 og um þetta
fjallað meðal annars á fundi með
Alistair Darling, fjármálaráðherra
Breta, síðsumars 2008. Skömmu
síðar hófst alþjóðleg atburðarás
með keðjuverkunaráhrifum sem
allir þekkja.
Aðalvandinn er enn óleystur
Alþjóðlega fjármálakreppan og
sú ákvörðun Bandaríkjastjórnar
að forða ekki falli Lehman Broth-
ers hinn 15. september markaði
fall íslenska fjármálakerfisins.
Ástæðan fyrir því að okkar kerfi
fór fram af var kerfislæg: Stórt
fjármálakerfi, agnarsmár gjald-
miðill og vangeta til þrautavaral-
ána í lausafjárþurrð. Samevr-
ópskur fjármálamarkaður án
sameiginlegs eftirlits og trygg-
ingakerfis dýpkuðu síðan brestina
til muna. Í alþjóðlegri fjármála-
kreppu þar sem lokaðist fyrir
laust fé gátum við með engu móti
stutt svo stórt bankakerfi. Það
hefur alltaf blasað við og burtséð
frá einstökum athöfnum bankanna,
siðleysi þeirra, lögleysu eða hroka,
þá er þetta meginstaðreyndin.
Kostirnir voru aðeins tveir: Að
gerast aðilar að stærra myntsvæði
eða draga viðskiptalíf okkar út úr
alþjóðlegum umsvifum.
Við stöndum enn frammi fyrir
þessari lykilákvörðun. Það er enn
einn lærdómurinn frá liðnu ári. Í
þriðju og síðustu grein fjalla ég
m.a. um þann pólitíska veruleika
sem við blasti eftir hrunið
Aðalvandinn er enn óleystur
Eftir Björgvin G.
Sigurðsson » Slíkar ákvarðanir er
fráleitt að taka án
eðlilegrar aðkomu fag-
ráðuneytis. Því á enginn
ráðherra að una og blas-
ir glöggt við í baksýnis-
speglinum nú.
Björgvin G. Sigurðsson
Höfundur er alþingismaður.
MATVÆLASTOFNUN Sameinuðu
þjóðanna minnir á mikilvægi og holl-
ustu mjólkur og mjólkurvara fyrir
þroska og viðhald
beina hjá börnum
og unglingum.
Ákveðin aldurs-
skeið virðast sér-
staklega mik-
ilvæg með tilliti
til vaxtar og
þroska beina. Frá
fæðingu til
tveggja ára ald-
urs á mikill vöxt-
ur sér stað. Einnig taka beinin mik-
inn vaxtarkipp á unglingsárum, um
11 til 14 ára aldurinn hjá stúlkum og
13 til 17 ára hjá drengjum.
Á þessum árum er því mjög mikil-
vægt að huga vel að þeim þáttum
sem hafa jákvæð áhrif á beinin svo
sem góðri næringu. Einn fæðuflokk-
ur öðrum fremur er einstaklega rík-
ur í kalki. Hér er að sjálfsögðu átt
við mjólkurflokkinn sem jafnframt
er auðugur af fleiri mikilvægum
beinmyndandi næringarefnum svo
sem próteinum, fosfór, kalíum,
magnesíum og sinki. Börn sem
neyta ekki mjólkur eiga oft í erf-
iðleikum með að neyta nægilegs
kalks og í ljós hefur komið að „bein-
heilsa“ barna sem neyta ekki mjólk-
ur er almennt lélegri en þeirra sem
hennar neyta og þau eru einnig lág-
vaxnari.
Að sjálfsögðu getur fólk nálgast
nægilegt kalk þótt það neyti ekki
mjólkur eða mjólkurafurða en stað-
reyndin er sú að það krefst gjarnan
meiri vinnu og næringarþekkingar.
Samkvæmt niðurstöðum kannana á
mataræði barna og unglinga hér á
landi hefur m.a. komið í ljós að kalk-
neysla flestra íslenskra barna og
unglinga er rífleg. En því miður hef-
ur einnig komið fram að sér í lagi
neyta margar stelpur á unglings-
aldri minna en ráðlagður dag-
skammtur af kalki segir til um og er
ástæðan ekki síst sú að ungar stúlk-
ur draga gjarnan úr mjólkurneyslu á
unglingsárum.
Ráðlagður dagskammtur af kalki
á dag er 1000 mg fyrir unglinga og
sem dæmi má nefna að í hálfum lítra
af mjólk er hátt í 600 mg af kalki.
Lengi býr að fyrstu gerð og þar sem
vel nærður líkami elur af sér sterk
bein felst besta forvörnin í því að
temja sér góðar neysluvenjur frá
fyrstu tíð og mjólk í skólanestið hef-
ur sitt að segja fyrir beinin.
ÓLAFUR G. SÆMUNDSSON,
næringarfræðingur.
Skólamjólkin leggur grunn
að sterkum beinum
Frá Ólafi G. Sæmundssyni
Ólafur G.
Sæmundsson