Morgunblaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 26.09.2009, Blaðsíða 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009 ✝ Valdimar Ein-arsson fæddist á Siglufirði 5. ágúst 1991. Hann lést á Freeman Hospital í Newcastle í Eng- landi 14. september sl. Valdimar var þriðji í röðinni af fimm systkinum. Foreldrar hans eru Jóhannes Einar Guð- mundsson, stýrimað- ur og skipstjóri, f. í Reykjavík 1959 og uppalinn þar, sonur Lovísu Jóhannesdóttur, f. 1936, og Guðmundar Jónssonar, f. 1935, d. 1998, og Sævör Þorvarð- ardóttir, póstmeistari og hús- móðir, f. í Grundarfirði 1964 og uppalin þar, dóttir Ásdísar Valdi- marsdóttur, f. 1933, og Þorvarðar Lárussonar, f. 1938, d. 2001. Systkini Valdimars eru Sævarður, stærðfræðinemi í HR, f. 1986, Jó- hannes Fannar, verkfræðinemi í HÍ, f. 1989, unnusta Sigurlín Sum- arliðadóttir, guðfræðinemi í HÍ, Jón Þór, nemi í FSN, f. 1993, og Snædís Ólafía, f. 1995. Fjölskyldan flutti frá Reykjavík til Siglufjarðar árið 1990 og bjó þar allt til ársins 2005 að hún flutti til Grund- arfjarðar. Valdimar var mik- ill áhugamaður um bíla og vinnuvélar og undi sér aldrei betur en við stjórn- völinn á einhverju ökutækinu, auk þess sem hann var harður Liverpool-aðdáandi. Langvarandi veikindi settu mark sitt á hann og dvaldi Valdimar síðustu vikurnar á sjúkrahúsi í Newcastle þar sem hann und- irgekkst aðgerð til að reyna að vinna bug á veikindum sínum. Valdimar verður jarðsunginn frá Grundarfjarðarkirkju í dag, 26. september, og hefst athöfnin klukkan 14. Meira: mbl.is/minningar Valdimar Einarsson fæddist 5. ágúst 1991 á fæðingardeildinni á Siglufirði. Þann dag hófst hans við- burðaríka en stutta ævi. Valdimar var alltaf mikill grallari þegar hann var yngri, og það var oft foreldrum okkar til mikils ama. Það byrjaði strax þegar hann var rétt byrjaður að geta labbað sjálfur, þá gátu foreldrar okkar ekki litið af honum, því þá var hann stunginn af á vit ævintýranna niður í bæ og þurftu foreldrar okkar oft að sækja barnið sitt niður í búð, skömmustuleg á svip. Kom þeim loks það snjallræði í hug að binda drenginn í hundaband svo hann slyppi ekki í burtu. Uppátæki hans voru fleiri og tæki það heilt blað að telja þau öll upp. Fótbolti var eitt af aðaláhugamál- um Valdimars og var hann harður Liverpool-stuðningsmaður alla tíð og studdi hann alltaf við bakið á sínum mönnum. Hafði hann mikið gaman af því að sjá gömlu kallana bölva yfir leikjunum á Kaffi 59. Þegar hann var 13 ára greindist Valdimar með sjúkdóm og mótaði sjúkdómurinn líf hans mikið. Hann var oft lengi inni á spítala og var mik- ið á flakki þar inn og út. Barátta hans við sjúkdóminn tók mikið á hann og fjölskyldu okkar. En Valdimar var ákveðinn og stefndi að betra lífi, en mottó hans var „Betra líf eða ekkert líf“ og lifði hann samkvæmt því. Hann ætlaði sér að fara að lifa lífinu og fara að vinna eins og venjulegur maður, en ekki vera álitinn sjúklingur. Í sumar hófst svo það sem allir vonuðust til að yrði upphafið að hinu nýja lífi. Beinmergsskiptunum fylgdi vissulega áhætta, en það var til mik- ils að vinna ef allt gengi vel, nefnilega allt sem Valdimar hafði óskað sér. Hetja hefur hann alltaf verið í okk- ar augum, því mikið hugrekki þarf til þess að ganga í gegnum þær raunir sem herjuðu á hann. Það var samt alltaf stutt í grínið og baneitraðar at- hugasemdir þegar vel lá á honum. Mikið af góðum minningum eigum við um bróður okkar. Helst má nefna Bandaríkjaferð fjölskyldunnar þar sem við fjölskyldan fórum í Univer- sal og Disney og skemmtum okkur konunglega. Þá var hann mjög hress og náði að njóta lífsins vel. Valdimar var alltaf mikill vinnu- þjarkur og vann alltaf eins þrekið leyfði honum. Hann var búinn að ná sér í bílpróf og eignast bíl sem hann rúntaði mikið á. Hann var nefnilega með ágætis bíladellu drengurinn. Hann var meira að segja búinn að ná sér í vinnuvélaréttindi og gerði meira en margur hefði búist við af honum. Valdimar lést hinn 14. september á Newcastle Freeman Hospital, eftir að hafa leitað betra lífs. Með miklum söknuði kveðjum við bróður, hetju og baráttumann og minnumst þeirra góðu stunda sem við áttum saman. You’ll Never Walk Alone. Jóhannes og Sævarður. Elsku Valdimar okkar, Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Fyrst sigur sá er fenginn, fyrst sorgar þraut er gengin, hvað getur grætt oss þá? Oss þykir þungt að skilja, en það er Guðs að vilja, og gott er allt, sem Guði er frá. Nú héðan lík skal hefja, ei hér má lengur tefja í dauðans dimmum val. Úr inni harms og hryggða til helgra ljóssins byggða far vel í Guðs þíns gleðisal. (V. Briem) Elsku Einar, Sævör og börn. Guð gefi ykkur styrk á þessum erfiðu stundum. Þínar föðursystur, Hulda, Þórunn og fjöldskyldur. Ég á erfitt með að trúa því að þú sért farinn frá okkur, þetta er búin að vera erfið barátta í langan tíma og þú sýndir okkur svo sannarlega að þó að það gangi ekki alltaf allt upp þá á maður alltaf að líta á björtu hlið- arnar, berjast og sigrast á því sem fyrir mann kemur. Ég er svo stolt af þér, ég er stolt af því að hafa fengið að kynnast þér og ég er svo stolt af fjölskyldunni þinni. Það eru ekki allir sem hafa þennan ótrúlega kraft til að geta gengið í gegnum þann feril sem þið hafið þurft að ganga í gegnum saman, og alltaf jafn jákvæð og lituð á hvert áfall sem verkefni sem þyrfti að leysa og þið fóruð létt með það. Þú hélst allan tímann í vonina og varst alltaf svo glaður og alltaf með húmorinn í lagi, það vantaði ekki. Þrátt fyrir þína hetjulegu baráttu fyrir betri heilsu tókst það ekki, en þú ert kominn á annan stað og vona ég að þér líði betur. Þegar ég byrja að hugsa um minn- ingarnar okkar saman þá kemur Danmerkurferðin okkar frænd- systkinanna fyrst í hugann, þú varst nú kominn með nóg af verslunaræð- inu og ljóskuskapnum í okkur frænk- unum. Og hvað okkur fannst gaman á vespunni og í ferðinni okkar í skemmtigarðinn. Þetta eru minning- ar sem ég mun aldrei gleyma. Minning um góðan og baráttuglað- an frænda lifir, þú ert sannkölluð hetja í mínum augum og þín verður sárt saknað. Hafdís Dröfn. Elsku Valdimar. Sofðu, engill, sofðu, því nú er komin nótt, sjálfsagt eru fleiri sem sofa einnig rótt. Ekki fæ ég skilið hvað ræður öllu hér og ekki heldur hvers vegna var sótt, einmitt að þér. Sofðu engill sofðu, við biðjum fyrir þér svo drottins höndin leiði þig hvar sem hann er Við varðveitum með lotningu minninguna um þig er vörðuð verður leið þín upp á æðra stig. Sofðu, engill, sofðu, við þökkum auðmjúk þér sem gafst okkur svo mikið í jarðvist þinni hér. Við eigum bara erfitt með að sætta okkur við það að þú sért tekin burtu og flutt á annan stað. Sofðu, engill, sofðu, og hvíldu þig rótt svona fagrir englar eiga af ástríki gnótt. Þeir bera okkur gleði, bjartsýni og von eins og Drottinn forðum er hann sendi eigin son. Sofðu, ljúfasti, kæri, ég hugsa hlýtt og bið þá veit ég, þú ert kominn og ert við mína hlið. Ég trúi að allir þarna geti litið við um stund og átt með sínum ástvinum ljúfan endurfund. Sofðu bara engill og lúrðu undir sæng megi Drottinn geyma þig undir hlýjum væng. Við hittumst bara aftur þegar húmar aftur að og Drottinn vill fá fleiri á þennan ljúfa stað. (Þorbjörg Gísladóttir) Guðmundur Þór og Bryndís Erla. Má ég setjast hjá þér? var ég spurður fyrir nokkrum árum er ég sat uppi á Kaffi 59 og var að horfa á leik í ensku knattspyrnunni. Það var Valdimar sem spurði, en hann kom alltaf þegar hann gat til að fylgjast með enska boltanum og þá sérstak- lega sínum mönnum í Liverpool. Eft- ir þetta sátum við oft saman og fylgdumst með leikjunum og og ræddum saman, en hann var ótrú- lega fróður um liðin og leikmenn. Og var það ekki ónýtt fyrir okkur fé- lagana sem mættum til að horfa á leiki að hafa Valdimar og geta spurt hann um þennan og hinn leikmann- inn sem við vissum ekkert um því alltaf gat hann frætt okkur af sinni einstöku hógværð og kurteisi. En nú hefur dómarinn sem öllu ræður kall- að Valdimar af velli alltof snemma, en eins og í knattspyrnunni er það dómarinn sem ræður þótt við séum ekki alltaf sátt við það. Við félagarnir sem höfðum þá ánægju að kynnast Valdimar kveðjum góðan dreng sem tekinn var út af svo til í byrjun leiks og erum vissir um að hann sé núna klæddur í sína rauðu Liverpool- treyju og farinn að láta til sín taka hjá þeim sem öllu ræður. Að endingu viljum við senda for- eldrum, systkinum og öllum aðstand- endum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. F.h. fótboltastrákanna á Kaffi 59, Guðmundur Gíslason. Kveðja. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra :,:veki þig með sól að morgni:,: Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta :,:vekja hann með sól að morgni:,: Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. svefnsins draumar koma fljótt. :,:Svo vöknum við með sól að morgni:,: (Bubbi Morthens) Hvíldu í friði elsku Valdimar og guð geymi þig. Elsku Sævör, Einar og börn, megi guð styrkja ykkur í þessari erfiðu sorg. Sigurður Ólafur, Sjöfn og börn. Það var ekki skemmtilegt símtal sem við fengum mánudaginn 14. september þegar okkur var tilkynnt að hann Valdi væri orðinn mjög al- varlega veikur og líkurnar á að hann mundi lifa þetta af væru ekki miklar. Erfiðir tímar voru framundan og síð- ar um daginn kom símtalið um að hann væri dáinn. Til margra ára höfum við fjöl- skyldan fylgst með Valda og hann átti athvarf á heimili okkar þegar hann fékk útivistarleyfi frá spítala- vist sinni. Okkur fannst alltaf gott að fá sím- tal frá honum eða mömmu hans og fá að heyra orðin „ég er svangur og langar í eitthvað gott að borða“. Þá vissum við að kallinn var að hressast og stukkum til og að sjálfsögðu var eldað eftir hans pöntun. Það var ótrúlegt að fylgjast með hvað þið fjölskyldan sýnduð mikinn styrk og lituð alltaf á hverja spítala- ferð sem verkefni sem þyrfti að leysa. Við munum sakna Valda og geyma minningar og hans skemmtilega húmor í brjósti okkar. Sendum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Jóna Fanney, Þorsteinn, Tekla og Saga Líf. Í hjarta okkar er mikil sorg því í dag kveðjum við jafnaldra okkar og skólabróður, Valdimar eða Valda eins við stundum kölluðum hann okkar á milli. Hve ósamgjarnt það er og okkur mikil ráðgáta að svona ung- ur maður skuli vera tekinn burt úr þessum heimi eftir svo skamma við- dvöl sem raun er, en þegar illvígir sjúkdómar ráðast á líkamann verður stundum eitthvað undan að láta. Í þeirri dapurlegu staðreynd huggum við okkur við að hann er laus við allar þjáningar, kominn á góðan stað þar sem hans hefur örugglega verið þörf. Valdimar var alltaf svo rólegur og góður. Ljóminn í bekknum með stórt hjarta, bros út í annað og vildi öllum vel. Hann var líka bráðskemmtilegur og aldrei með neina stæla við okkur stelpurnar enda vildum við alltaf fá að dansa við hann í danstímum. Hann var svona strákur sem allir vildu eiga sem vin. Valdimar flutti til Grundarfjarðar og hittumst við sjaldnar eftir það en þó kom hann reglulega til Siglufjarð- ar og svo áttum við samskipti við hann í tölvunni. Öll fylgdumst við með veikindum hans og í okkar aug- um var hann algjör hetja. Skarð Valdimars verður ekki fyllt og verð- ur hans sárt saknað. Minning hans mun lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð, björt og hrein. Viljum við að endingu votta fjöl- skyldu Valdimars okkar dýpstu samúð og vitna í ljóð Steins Steinars með von um að boðskapur þess megni að lina örlítið hinn mikla sárs- auka ástvina hans. En þar segir: Svo dreymdi okkur drauminn um ljósið eina nótt, þegar myrkrið var þyngra og svartara en nokkurt sinn áður Það var eitthvað, sem streymdi og rann með sælutitrandi sársauka gegn um sál okkar. Og augu okkar störðu sturluð og undrandi á fölleitan glampa, sem flökti um sviðið í óra fjarlægð. Og einn okkar spurði í feiminni ákefð: Hvað er það? Og annar svaraði fagnandi rómi: Ljósið, ljósið! Fyrir hönd árgangs 1991 á Siglufirði Erla Gunnlaugsdóttir. Valdimar Einarsson, vinur okkar, er fallinn frá eftir hetjulega baráttu við erfið veikindi. Við vorum svo lán- söm að kynnast honum þegar hann flutti til Grundarfjarðar frá Siglu- firði og hóf skólagöngu í Grunnskóla Grundarfjarðar. Valdimar var prúð- ur, hægur og þægilegur í allri fram- komu og hafði góða nærveru. Hann fylgdist vel með í tímum eftir því sem heilsan leyfði og var góður námsmaður. Þegar hann byrjaði í skólanum virtist hann falla strax vel inn í hóp- inn og var vel liðinn af skólafélögum sínum. Hann var fremur fámáll en það var alltaf stutt í húmorinn hjá honum og í fallega, hlýja brosið. Það kom svo skemmtilegur kímnis- glampi í augun þegar hann laumaði út úr sér skondnum athugasemdum. Þrátt fyrir veikindi Valdimars og töluverða fjarveru frá skóla var hann alltaf jákvæður og bjartsýnn og kvartaði aldrei. Hann gaf mikið af sér þrátt fyrir ró sína og hlédrægni og það var aðdáunarvert að sjá hvernig Valdimar tók veikindum sín- um af æðruleysi og var sterkur þrátt fyrir öll áföllin sem dundu yfir vegna þeirra. Það gladdi okkur mjög að sjá Valdimar keyra um bæinn nýkominn með bílpróf, heilsandi þeim sem urðu á vegi hans. Hann heimsótti vinnu- staði, hjálpaði til og hafði greinilega gaman af að stússast í einhverri vinnu eftir því sem hann treysti sér til. Nú í sumar þeysti hann um á Grænu hættunni og sló tún, okkur og öðrum til ánægju. Alltaf héldum við í vonina um að Valdimar væri að hressast og myndi hrista þessi veik- indi af sér en því miður varð hann að lúta í lægra haldi. Við vottum fjölskyldu og aðstand- endum Valdimars okkar dýpstu samúð en aðdáunarvert er hve sterk og heilsteypt hún hefur verið í þeim erfiðu veikindum sem hún hefur þurft að glíma við. Minningin um Valdimar lifir í hugum okkar, ljóslif- andi mynd af dreng með kímið bros og glettnisblik í auga. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. svefnsins draumar koma fljótt. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Fyrir hönd starfsfólks Grunnskóla Grundarfjarðar, Anna Bergsdóttir, skólastjóri. Valdimar Einarsson Sofðu, unga ástin mín, – úti regnið grætur. Mamma geymir gullin þín, gamla leggi og völuskrín. Við skulum ekki vaka um dimmar nætur. Það er margt sem myrkrið veit, – minn er hugur þungur. Oft ég svarta sandinn leit svíða grænan engireit. Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur. Sofðu lengi, sofðu rótt, seint mun bezt að vakna. Mæðan kenna mun þér fljótt, meðan hallar degi skjótt, að mennirnir elska, missa, gráta og sakna. (Jóhann Sigurjónsson) Dýpsta sæla og sorgin þunga svífa hljóðlaust yfir storð. Þeirra mál ei talar tunga tárin eru beggja orð. (Ólöf Sigurðardóttir frá Hlöðum) Þín elskandi amma, Lovísa. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.