Morgunblaðið - 26.09.2009, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009
Í DAG, laug-
ardag, heldur
Samfylkingin
flokksstjórn-
arfund í Fjöl-
brautaskólanum
í Garðabæ undir
yfirskriftinni
„Sókn til betra
samfélags“.
Fundurinn
hefst kl. 13.00
með ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra og formanns
Samfylkingarinnar. Síðan flytja
ræðu þau Árni Páll Árnason félags-
og tryggingaráðherra og Katrín
Júlíusdóttir iðnaðarráðherra.
Samfylkingin með
flokksstjórnarfund
Jóhanna
Sigurðardóttir
HAGSMUNASAMTÖK heimilanna
segja að tillögur ASÍ um skulda-
vanda heimilanna séu smá-
skammtalækningar sem taki ekki á
þeim forsendubresti sem hefur
stökkbreytt skuldastöðu heim-
ilanna. Tillögurnar hafi því engin
áhrif á boðað greiðsluverkfall sem
hefst hinn 1. október nk.
Tillögur ASÍ duga ekki
ÁRLEG velta í kjötiðnaði á Íslandi
er um 20-25 milljarðar króna. Talið
er að þar af tapist a.m.k. 5% eða
1.000-1.250 milljarðar vegna rýrn-
unar sem verður áður en varan
kemst í hendur neytenda. Hægt að
spara háar fjárhæðir ef tekst að
koma í veg fyrir þessa rýrnun.
Þetta kom fram á fundi í gær um
niðurstöður verkefnisins „Umbæt-
ur í virðiskeðju matvæla“. Fundinn
sóttu á sjötta tug starfsmanna úr
framleiðslu og dreifingu matvæla.
Milljónum sóað
NÝ heimasíða, www.beintfrabyli.is,
hefur litið dagsins ljós. Á síðunni
getur fólk nálgast íslenskar land-
búnaðarvörur á auðveldan og skil-
virkan hátt. Þar er hægt að leita að
vörum eftir landshlutum eða
ákveðnum bæ.
Að heimasíðunni standa sam-
tökin „Beint frá býli, félag heima-
vinnsluaðila“, sem er félag bænda
sem stunda eða hyggjast stunda
sölu afurða beint frá býli bóndans.
Markmið félagsins er að tryggja
neytendum gæðavöru þar sem ör-
yggi og rekjanleiki er í fyrirrúmi
og að hvetja til varðveislu hefð-
bundinna framleiðsluaðferða.
Morgunblaðið/Golli
Stunda beina sölu
af býli bóndans
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur
samþykkt að Byr sparisjóður verði
vörsluaðili viðbótarlífeyrissparn-
aðar fyrrverandi viðskiptavina
SPRON og nb.is. Færist sparnaður-
inn sjálfkrafa til Byrs, þeim að
kostnaðarlausu, hálfum mánuði eft-
ir að þeim berst bréf þess efnis.
Færist til Byrs
STUTT
Traustur valkostur
í húsnæðismálum
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
Peysur, pils og
skokkar í úrvali
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
gallabuxur
Aðeins 9.900 kr.
Snið: Cindy • Str. 36-56
Eddufelli 2, sími 557 1730
Opið í dag kl. 10-14
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Opið í dag kl. 10-16
Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, Sími: 562 2862
LOKA–SALA
17.-27. september
ALLT Á AÐ SELJAST
HÆTTIR
Lin Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
Nýtt kortatímabil
Aðeins þessa einu helgi
www.lindesign.is/lagersla
Úrval rúmfatnaðar í mörgum stærðum og gerðum.
Einnig púðar og barnarúmfatnaður ásamt ýmsu öðru
með 40–80% afslætti.
Vandaður rúmfatnaður frá kr. 3.990 kr.
Lagersalan er á Malarhöfða 8, í brekkunni fyrir aftan
Ingvar Helgason. Opið laugardag & sunnudag 10–16.
LAGERSALA
LÍN DESIGN
www.gisting.dk/gisting.html
sími: 499 20 40 (Íslenskt símanúmer)
Ódýr gisting í Kaupmannahöfn
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 1200
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Tweed haustfatnaður
Holl mjólk
hraustir krakkar
Á alþjóðlega skólamjólkurdeginum, 30. september, býður Mjólkur-
samsalan öllum 50.000 grunnskólabörnum landsins upp á mjólk í skól-
unum. Með deginum vill íslenskur mjólkuriðnaður vekja athygli barna,
foreldra og starfsfólks skólanna á mikilvægi mjólkur í fæði barnanna.
Mjólk er
góð!
„VIÐ MEGUM ekki til þess hugsa
að fólk verði borið út í stórum
stíl,“ segir Þórður B. Sigurðsson,
formaður Hagsmunasamtaka
heimilanna. Það voru samtökin
sem í febrúar sl. lögðu til við
stjórnvöld að nauðungarsölum yrði
frestað til 31. október. Að öllu
óbreyttu hefjast uppboð á þeim
eignum sem meðferð var frestað í
byrjun nóvember. Þær voru 855 á
öllu landinu í lok síðasta mánaðar.
Þórður segir að tillagan hafi
verið hugsuð þannig að stjórnvöld
fengju tíma til að ná mynd af stöð-
unni og gætu útvegað skuldurum
úrræði. Það hafi
hins vegar ekki
gengið eftir og
því þurfi að
framlengja frest-
inn.
Í Morg-
unblaðinu í gær
var greint frá því
að hjá sýslu-
manninum í
Reykjavík hefði
uppboði á 328 eignum verið frest-
að og 146 hjá sýslumanninum í
Keflavík. Ástandið er litlu betra í
umdæmi sýslumannsins í Hafn-
arfirði. Þar hefur uppboði á 144
eignum verið frestað og í Kópa-
vogi eru eignirnar 85.
Á Selfossi hafa hins vegar verið
seldar um 200 eignir það sem af
er ári og uppboði frestað á 35
eignum. Kemur það til vegna mik-
ils fjölda sumarhúsa en ekki var
hægt að fara fram á frest vegna
þeirra. Hjá öllum sýslumannsemb-
ættum sem Morgunblaðið hafði
samband við fengust þær upplýs-
ingar að fleiri eignir hefðu verið
seldar það sem af er þessu ári en
á sama tíma í fyrra og jafnvel allt
árið í fyrra.
Engin úrræði fyrir þá sem frestuðu
Þórður B.
Sigurðsson
Stórfréttir
í tölvupósti