Morgunblaðið - 26.09.2009, Síða 24
24 Daglegt líf
ÚR BÆJARLÍFINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009
Skrýtin vegmerking Hinn nýi vegur fyrir Ósa-
botna, sem var lagður fyrir um tveimur árum
og tengir Sandgerði og Garð við veginn út á
Reykjanes, hefur nú loksins verið merktur af
Vegagerðinni. Vegurinn tengist við Stafnesveg
sem var lagður um 1930, en nú hefur Vega-
gerðin sett upp merki við Hafnarveg sem á
stendur „Hvalsnes 11 km“. Ferðamenn sem
ætla sér ef til vill til Sandgerðis átta sig ekki oft
á hvert þessi vegur liggur þar sem Hvalsnes er
almennt ekki merkt á kortum. Það er vonandi
að Vegagerðarmenn sjá sóma sinn í því og bæti
við merkingu, „Sandgerði 16 km“.
Eftir að vegurinn var tekinn í notkun hefur
ferðamönnum til Sandgerðis fjölgað og á sjálf-
sagt eftir að fjölga enn ef vegurinn verður rétt
merktur.
Svona er fótboltinn Meistaraflokkur knatt-
spyrnufélagsins Reynis í Sandgerði hefur verið
á mikilli siglingu í sumar. Þeir héldu lengi vel
toppsætinu í annarri deild og léku til úrslita við
nágrannana úr Njarðvík á Sandgerðisvelli 19.
september. Grannaslagurinn var hreinn úr-
slitaleikur um hvort liðið léki í fyrstu deild að
ári. Aðsóknarmet var sett á Sandgerðisvelli á
leiknum, sem endaði með jafntefli á síðustu
mínútum, og það dugði Njarðvíkingum til að
komast í fyrstu deild við mikinn fögnuð stuðn-
ingsmanna. Reynismenn voru að sjálfsögðu
svekktir, en það gengur bara betur næst.
Ný skólabygging hefur verið tekin í notkun við
grunnskóla Sandgerðis. Byggingin, sem er um
tvö þúsund fermetrar á tveimur hæðum, teng-
ist við eldri byggingar og íþróttamiðstöðina.
Fjöldi kennslustofa er í byggingunni ásamt
heimilisfræðistofu, stórum fjölnota sal, glæsi-
legri starfsmannaðstöðu og skrifstofum. Öll að-
staða nemenda, sem eru um 270, og kennara er
mjög góð. Skólalóðin var líka lagfærð og er
skólasvæðið allt til fyrimyndar.
Vel heppnaðir Sandgerðisdagar voru haldnir
nýlega. Dagskráin var fjölbreytt og spannaði
nokkra daga þar sem allir fundu eitthvað við
sitt hæfi. Skreytingagleði bæjarbúa var með
mesta móti og setti mikinn svip á bæjarfélagið.
Veðrið var gott, sól og blíða alla dagana.
Minnisvarði um strand togarans Jóns forseta
RE 108, sem fórst við Stafnes í febrúar 1928,
var afhjúpaður á Sandgerðisdögum. Minnis-
varðinn er við Stafnesvita og er mynd af togar-
anum skorin í ryðfrítt stál ásamt plötu með
texta um slysið.
Strand Jóns forseta var á sínum tíma mikið
áfall fyrir íslensku þjóðina. Jón forseti var
fyrsti togarinn sem var smíðaður fyrir Íslend-
inga. Minnisvarðinn samanstendur af einum
stórum steini, þar sem mynd skipsins er, og
fimmtán minni steinum, sem raðað er umhverf-
is stóra steininn. Í þessu slysi fórust 15 menn
og 10 björguðust. Það var sonur síðasta manns-
ins sem bjargaðist af skipinu í strandinu, Hösk-
uldur Frímannsson, sem afhjúpaði minnisvarð-
ann. Kristinn Ólafsson, framkvæmdastjóri
Slysavarnafélagsins Landsbjargar, flutti ávarp
og sagði frá því þegar afi hans var skipstjóri á
Jóni forseta er hann strandaði við Stafnes.
Nýr sóknarprestur séra Sigurður Grétar Sig-
urðsson hefur verið valinn til starfa við Útskála-
prestakall. Hann kemur til starfa 1. nóvember.
Séra Sigurður mun þjóna Útskálakirkju og
Hvalsneskirkju ásamt safnaðarheimilinu í
Sandgerði. Séra Elínborg Gísladóttir sinnir
prestsstörfum þar til séra Sigurður tekur til
starfa.
SANDGERÐI
Reynir Sveinsson fréttaritari
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Togari Minnisvarði um strand togarans Jóns
forseta RE-108 sem strandaði við Stafnes.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Það eru þrjátíu og fimm sjálf-boðaliðar sem vinna hér íbúðinni hjá mér, konur áöllum aldri, sumar undir
þrítugu en aðrar yfir sjötugt. Það er
mjög gefandi að vinna hérna, við
mætum mikilli velvild frá sjúkrahús-
inu og starfsfólkinu hér. Þetta er
mjög þakklátt starf og hver einasti
dagur er skemmtilegur, því það er
mjög góður andi hér á sjúkrahús-
inu,“ segir Sigríður Hanna Krist-
insdóttir sem er verslunarstjóri litlu
búðarinnar sem er á fyrstu hæðinni
á Borgarspítalanum. Verslun þessi
er á vegum kvennadeildar Rauða
krossins í Reykjavík og allur ágóði
af sölunni rennur til sjúkrahúsanna
og ýmissar góðgerðarstarfsemi.
„Þetta eru því dýrmæt störf sem
sjálfboðaliðarnir vinna hér.“
Hvetur karlmenn til að koma
Sigríður Hanna segir að sér finn-
ist frábært hversu vel gangi að fá
konur til að vinna sjálfboðastörf.
„Sumar konurnar sem vinna hér í
búðinni eru á föstum vöktum hjá
mér en aðrar koma kannski einu
sinni í mánuði og enn aðrar vilja láta
hringja í sig þegar vantar mann-
eskju. En vissulega vantar okkur
nokkrar konur í viðbót til að manna
allar vaktir, bæði hér og í búðinni á
Landspítalanum en systir mín er
verslunarstjóri þar. En ég tek það
fram að karlmenn eru líka velkomnir
til starfa hjá okkur,“ segir Sigríður
Hanna og bætir við að vissulega hafi
sjálfboðaliðum fjölgað þegar at-
vinnuleysið skall á.
Allt nema karlanærbuxur
Í litlu búðinni fæst allt milli him-
ins og jarðar, ekki aðeins gott í
gogginn og eitthvað til að svala
þorsta, heldur einnig gjafavörur,
leikföng, sokkar, vettlingar og húf-
ur, snyrtivörur, skartgripir og ým-
islegt nytsamlegt. „Eitt af því fáa
sem ekki fæst hér eru karlmanns-
nærbuxur, en ég er með kven-
nærbuxur og líka sokkabuxur. Aftur
á móti er ég með rakáhöld fyrir karl-
menn því oft lendir fólk í því að
leggjast óvænt inn á spítala og vant-
ar helstu nauðsynjar fyrir daglega
umhirðu, tannbursta, krem, sjampó,
gleraugu og annað slíkt. Við erum
líka með símakort, frímerki, stíla-
bækur og blýanta og ótal margt
fleira. Starfsfólkið hérna er stór
hluti viðskiptavina og margir kaupa
jólagjafirnar meira að segja hérna
hjá okkur.“
Kort sem innihalda
peningagjöf
Fyrir rúmu ári impraði formaður
kvennadeildar Rauða krossins á því
við Sigríði hvort hún væri til í að
hanna gjafakort þar sem kaupand-
inn ræður hversu mikið hann greiðir
fyrir kortið, þó aldrei minna en þús-
und krónur, en hver sem upphæðin
er þá rennur hún óskipt til kvenna-
deildarinnar. „Ef fólk vill ekki gjafir
á stórum stundum, hvort sem það
eru afmæli eða annað, þá er tilvalið
að gefa þeim svona kort sem inni-
heldur peningagjöf sem rennur til
líknarmála. Ég held það hljóti að
vera notalegt að fá gjöf sem er gjöf
til þeirra sem minna mega sín.“ Hún
segir að verkefnið hafi verið
skemmtileg áskorun fyrir hana og
hún tók sér góðan tíma í hugmynda-
vinnuna. „Núna eru kortin nýkomin
úr prentun og þau fást hér í búðinni
hjá mér og í búðinni á Landspít-
alanum sem og á skrifstofu kvenna-
deildar Rauða krossins á Laugavegi
120,“ segir Sigríður Hanna sem er
lærður leirkerasmiður en hún hefur
líka sótt námskeið í Myndlistarskóla
Reykjavíkur og eins lærði hún
blómaskreytingar í Danmörku.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gefandi Sigga Hanna Kristinsdóttir glaðbeitt í vinnunni í litlu búðinni á Borgarspítalanum þar sem allt fæst.
Vantar alltaf fleiri sjálfboðaliða
Litla búðin á fyrstu hæð-
inni á Borgarspítalanum
er rekin á vegum kvenna-
deildar Rauða krossins í
Reykjavík og allur ágóði
af sölunni rennur til
sjúkrahúsanna og góð-
gerðarmála.
Gjafakort Eitt af kortunum sem
Sigríður hannaði en ágóðinn rennur
til líknarmála.
„Þetta er mjög þakklátt
starf og hver einasti dagur
er skemmtilegur, því það
er mjög góður andi hér á
sjúkrahúsinu.“
Mataræði: Börnum og unglingum sem æfa
íþróttir, stundum oft og lengi í einu, er ráðlagt
að mæta þörfinni fyrir meiri næringu (þ.m.t.
aukinni orkuþörf) með því að borða fjölbreyttan
mat í samræmi við orkuþörf. Þannig eiga þau
einnig að geta fengið næringarefnin sem þau
þarfnast. Undantekning frá þessu er þó D-
vítamín, því fáar fæðutegundir eru góðir D-
vítamíngjafar, og þess vegna er ráðlagt að taka
eina teskeið (5 ml) af þorskalýsi (krakkalýsi)
daglega.
Viðbótarprótein: Fæða íslenskra barna og ung-
linga er að öllu jöfnu próteinrík og því er engin
þörf á að þau neyti viðbótarpróteins í formi pró-
teindufts eða próteinstanga. Þau prótein hafa
ekki neina kosti framyfir prótein úr matnum en
góðir próteingjafar eru fiskur, kjöt, mjólk-
urvörur, hvers konar hnetur, baunir og fræ.
Það hefur engan ávinning í för með sér að borða
umframmagn próteina, þau nýtast ekki í annað
en orkuforða og ofneysla þeirra getur verið
skaðleg heilsunni.
Vatn er besti svaladrykkurinn
Vatn: Lögð er áhersla á að börn og ungmenni
drekki vatn við þorsta – hollasta svaladrykkinn.
Mikilvægt er að drekka vel af vatni fyrir og eft-
ir æfingar og meðan á þeim stendur. Íþrótta-
drykkir: Ástæðulaust er að gefa börnum og
ungmennum íþróttadrykki. Þeir sem æfa leng-
ur en 90 mínútur í einu gætu þurft á aukanær-
ingu að halda í drykkjarformi og fyrir þennan
hóp er bent á að 100% hreinn ávaxtasafi þynnt-
ur með vatni getur komið í stað íþróttadrykkja.
Orkudrykkir: Orkudrykkir innihalda örvandi
efni, m.a. koffín, og henta því börnum alls ekki.
Slíkir drykkir geta haft ýmis óæskileg áhrif
sem börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir. Sér-
staklega er varhugavert að drekka þá samhliða
mikilli líkamlegri áreynslu.
Sykraðir svaladrykkir: Forðast ætti að drekka
sykraða svaladrykki, íþróttadrykki, orkudrykki
og gosdrykki í tengslum við keppnisferðir og
íþróttaæfingar því sykurinn eykur orku ein-
ungis í stutta stund en síðan fellur blóðsykurinn
hratt og líkaminn verður orkulaus. Hitaein-
ingainnihald þessara drykkja er hátt en nær-
ingargildi nánast ekkert auk þess sem sykurinn
getur valdið tannskemmdum. Að auki eyða
ávaxta- og rotvarnarsýrur í drykkjunum gler-
ungi tannanna.
Ráðleggingar fyrir
íþróttafélög og -mannvirki
Lýðheilsustöð hefur nýlega gefið út tillögur
fyrir íþróttafélög og íþróttamannvirki um æski-
legt framboð á matvörum. Ráðleggingarnar er
hægt að skoða á heimasíðu stofnunarinnar,
www.lydheilsutod.is – útgefið efni.
Börn og ungmenni sem stunda íþróttir …
Þurfa ekki að neyta viðbótarpróteins í formi
próteindufts eða próteinstanga – borða heldur
fjölbreytt fæði.
Þurfa ekki íþróttadrykki, þynntur ávaxtasafi
getur gert sama gagn.
Orkudrykkir henta börnum alls ekki, þeir
gera verið varhugaverðir, drekka heldur vel af
vatni.
hollráð um heilsuna
Morgunblaðið/Frikki
Fæða Þeir sem borða fjölbreytta og holla fæðu
þurfa ekki á viðbótarpróteinum að halda.
Börn og unglingar
Elva Gísladóttir og Hólmfríður Þorgeirsdóttir,
verkefnisstjórar næringar hjá Lýðheilsustöð.