Morgunblaðið - 26.09.2009, Qupperneq 41
Dagbók 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009
Sudoku
Frumstig
6
1 7
9 4 3
7 3 6 5
2
8 3 1
8 6 3 2 4
6 9
5 4
5 3 1
7 5
6 9
3 1 7
6 8
5 3 2
3 1
7 4 6
8 5
8
5 6
3 2
4 2
3 8 5 9 1
4 5 8
9 4 3 7
7 6
3 7 4
8 6 3 4 2 1 9 5 7
9 2 4 7 5 3 6 8 1
1 5 7 8 9 6 4 3 2
2 7 9 3 8 5 1 4 6
6 3 1 9 4 2 8 7 5
5 4 8 6 1 7 3 2 9
7 1 6 2 3 4 5 9 8
3 9 2 5 6 8 7 1 4
4 8 5 1 7 9 2 6 3
5 1 2 7 8 4 9 6 3
4 3 6 9 1 2 5 8 7
9 7 8 6 3 5 2 4 1
7 5 4 2 6 1 3 9 8
8 9 1 3 4 7 6 2 5
2 6 3 8 5 9 7 1 4
1 2 9 5 7 8 4 3 6
6 4 7 1 9 3 8 5 2
3 8 5 4 2 6 1 7 9
1 4 3 7 2 9 8 5 6
6 5 7 8 3 1 4 2 9
2 8 9 5 4 6 1 3 7
9 6 8 3 5 2 7 4 1
4 3 1 6 8 7 5 9 2
5 7 2 1 9 4 3 6 8
8 2 6 4 7 3 9 1 5
3 1 5 9 6 8 2 7 4
7 9 4 2 1 5 6 8 3
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist töl-
urnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 26. september,
269. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik
en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyr-
ir vini sína. (Jh. 15, 13.)
Víkverji telur sjálfum sér trú umað hann taki ekki þátt í þjóðar-
íþrótt Íslendinga, orðhengilshætt-
inum. Íslendingar eru snillingar í því
að rífast þótt þeir séu sammála,
vegna þess að orðnotkun og mál-
fræði yfirtaka samræður þeirra.
Málefni kynferðisafbrota eru þar
síst af öllu undantekning.
x x x
Víkverja var tjáð um daginn aðhann mætti ekki tala um „kyn-
ferðislega misnotkun“ á börnum.
Þar sem ekki sé hægt að nota börn
kynferðislega sé ekki heldur hægt
að misnota þau þannig. Víkverji sá
ekkert röklegt samhengi í þessu. Til
dæmis getur vont fólk misnotað
börn á margan hátt og ekki alltaf
kynferðislegan. Andlega, með bar-
smíðum, láta þau betla, selja eiturlyf
eða stela fyrir sig. Þannig mætti
áfram telja. Þar að auki hefur það
aldrei verið skilyrði fyrir því að
hægt sé að misnota að það sé hægt
að nota. Þetta er orðhengilsháttur.
x x x
Í bókinni Á mannamáli, eftir Þór-dísi Elvu Þorvaldsdóttur, er
komið nokkuð inn á þetta. Við lest-
urinn rembdist Víkverji við að vera
ósammála Þórdísi Elvu, þegar hon-
um fannst hún föst í orðhengils-
hætti. En þegar á bókina leið varð
ljóst að hún hefur alveg rétt fyrir
sér. Og hennar málflutningur snýst
ekki um málfræði. Hún notar sterk-
ustu orðin sem völ er á hverju sinni,
orð sem varpa sökinni þangað sem
hún á heima. Hún gefur ekki senti-
metra eftir í þeirri umræðu og reyn-
ir að minnka gráa svæðið sem er til
trafala í svo mörgum kynferðis-
afbrotamálum. Annaðhvort ertu of-
beldismaður eða ekki. Annaðhvort
fremurðu glæpinn eða ekki.
x x x
Víkverji er þess vegna alveg sam-mála því að hann ætti ekki að
tala um kynferðislega misnotkun
barna. Ekki út af málfræðilegum
rökum um merkingarsvið orða, held-
ur vegna þess að það kostar ekkert
að nota sterkari orð. Orð eins og of-
beldi. Eða glæpur. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 sjóðvitlaus, 8
sporið, 9 svali, 10 endir,
11 setja í óreiðu, 13 nið-
urfelling, 15 viðlags, 18
reiðar, 21 streð, 22
ósönnu, 23 smágerði, 24
handavinna.
Lóðrétt | 2 ákvað, 3
ávöxtur, 4 tæla, 5 snag-
inn, 6 ólmar, 7 tölustaf-
ur, 12 hrós, 14 illmenni,
15 gleðskap, 16 ráfa, 17
frétt, 18 duglegar, 19
dáni, 20 sleit.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 Sævar, 4 borða, 7 féllu, 8 lagin, 9 fes, 11 ræða,
13 saur, 14 kaggi, 15 fána, 17 frek, 20 fró, 22 lifur, 23
lofar, 24 sætum, 25 Ránar.
Lóðrétt: 1 sófar, 2 volað, 3 rauf, 4 bols, 5 rugga, 6 agnar,
10 elgur, 12 aka, 13 Sif, 15 felds, 16 nefnt, 18 rófan, 19
kærar, 20 fróm, 21 ólar.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. cxd5 exd5
5. Rc3 c6 6. Dc2 Be7 7. Bg5 O-O 8. e3
Re4 9. Bf4 f5 10. Bd3 Rd7 11. h3 g6 12.
g4 g5 13. Bh2 fxg4 14. Rxe4 Hxf3 15.
Rd6 Rf8
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem í Montreal í Kanada. Bandaríski
stórmeistarinn Varuzhan Akobian
(2626) hafði hvítt gegn þýska kollega
sínum Arkadij Naiditsch (2697). 16.
Bxh7+! Kg7 svartur hefði einnig tapað
eftir 16…Rxh7 17. Dg6+ Kh8 18.
Be5+. 17. Be5+ Bf6 18. hxg4 Bxg4 19.
Bf5 Bxe5 20. dxe5 Da5+ 21. Kf1 Bxf5
22. Rxf5+ Kf7 23. Rd4 og svartur gafst
upp. Staða efstu manna mótsins varð
þessi: 1. Arkadij Naiditsch (2697) 7 1/2
v. af 11 mögulegum. 2. Etienne Bacrot
(2721) 7 v. 3. Sebastien Maze (2546) 6
1/2 v. 4.-5. Anton Kovalyov (2557) og
Sergei Tivjakov (2674) 6 v.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Ekki er allt sem sýnist.
Norður
♠Á1098
♥9
♦G64
♣ÁK1042
Vestur Austur
♠32 ♠D5
♥DG862 ♥ÁK10743
♦7 ♦Á10952
♣98765 ♣–
Suður
♠KG764
♥5
♦KD83
♣DG3
Suður spilar 5♠ doblaða.
Satt að segja líta 5♠ hreint ágætlega
út: vörnin á rauðu ásana og svo þarf
bara að finna drottninguna í trompi.
Ekki aldeilis.
Spilið er frá umferðakeppni HM og
féll víða í 5♠ dobluðum, 1100 niður!
Vörnin er sáraeinföld: tígull út upp á
ásinn, ♥Á tekinn og ♦2 spilað til að
kalla í laufi. Síðan er trompað á víxl og
sagnhafi fylgist með mótherjunum
taka fjóra slagi á tromp.
A-V vinna 5♥ og slemmu ef ekki
kemur út spaði. Bandarísku konurnar
Sanborn og Levitina fóru sjálfviljugar í
6♥, en Sanborn kjaftaði frá laufeyð-
unni og út kom spaði. Hún var í austur
og sýndi rauðu litina með 2G yfir lauf-
opnun norðurs. Suður doblaði og Le-
vitina stökk í 5♥, sem hún meinti sem
hindrun, en Sanborn tók sem áskorun
og sagði 6♣ í sjöleit. Ekki gott.
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er algjörlega undir sjálfum
þér komið hvort hamingjan er þér hliðholl
eða ekki. Allt gengur betur ef takturinn
er rólegur.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Sestu niður, farðu í gegnum málin
og settu þér takmörk. Vertu varkár því að
öðrum kosti getur farið illa.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Hver tilviljunin á fætur annarri
birtist þér. Innlegg frá maka reynist
hrein snilld. Hlustaðu á þær skýringar,
sem þér eru gefnar, og virtu skoðanir
annarra þótt þú sért ekki á sama máli.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það skiptir engu máli hvernig
viðrar hið ytra ef þið gætið þess að hafa
sól í sinni. Ekki hvika frá settu marki því
þú kannt að fá vilja þínum framgengt.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú getur ekki neitað að axla þinn
hluta ábyrgðarinnar þegar þú hefur
stofnað til samstarfs með öðrum. Gættu
þess að öryggið geri þig ekki yfirlætis- og
einstrengingslega/n.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Ferskar hugmyndir og ný nálgun
munu koma þér að gagni í dag. Hristu
þetta slen af þér og gakktu öruggur til
móts við ný og spennandi verkefni.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Aukinn dugnaður þinn gæti ógnað
núverandi samböndum. Hagnýt heim-
ilisverk hjálpa þér við að vera til staðar.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Metnaði þínum eru engin tak-
mörk sett í dag. Sestu nú niður, skrifaðu
verkefnalista og raðaðu hlutunum í for-
gangsröð.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Bogmaðurinn gerir allt sem
ástvinur biður hann um. Reynið því að
nýta hann til skynsamlegra verka í stað
þess að sitja með hendur í skauti.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú hefur látið ýmsa hluti reka á
reiðanum en nú er komið að skuldadög-
um. Farðu út á meðal fólks og ræddu mál-
in því þá færðu ferskar hugmyndir.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú gætir fengið óvænta gjöf
eða glaðning í dag. Vertu því ekki að
dragnast þetta áfram heldur hristu af þér
slenið og komdu þér að verki.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú átt aldrei eftir að sjá eftir þeim
tíma sem þú verð til menntunar. Flokk-
aðu niður það sem viðkemur vinnunni, fé-
lagsstörfum og þér prívat svo þú fáir
heildarmyndina.
26. september 1930
Kvæðakver Halldórs Laxness
kom út. Elsta kvæðið var frá
árinu 1922 (Bráðum kemur
betri tíð) og eitt það yngsta
(Alþingishátíðin) ort sumarið
1930. Kverið hefur verið end-
urútgefið nokkrum sinnum,
með viðbótum.
26. september 1970
Fokker Friendship-flugvél frá
Flugfélagi Íslands hf. fórst á
Mykinesi í Færeyjum. Þrjátíu
farþegar voru með vélinni og
fjögurra manna áhöfn. Átta
manns létust, þar af einn Ís-
lendingur.
26. september 1999
Martha Ernstsdóttir setti Ís-
landsmet í maraþonhlaupi
kvenna í Berlín. Hún hljóp
42,195 kílómetra á 2 klukku-
stundum, 35 mínútum og 15
sekúndum. Metið stendur enn.
26. september 2006
Tíu til fimmtán þúsund manns
tóku þátt í göngu Ómars
Ragnarssonar frá Hlemmi nið-
ur á Austurvöll til að mótmæla
framkvæmdum við Kára-
hnjúkavirkjun.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Sigríður María Sólnes húsfreyja
og Júlíus Sólnes, prófessor em-
eritus og fyrrverandi ráðherra,
áttu fimmtíu ára brúðkaupsafmæli
25. september síðastliðinn.
Gullbrúðkaup
KRISTJÁN Árnason, þýðandi og fyrrverandi dós-
ent í bókmenntafræði við Háskóla Íslands, fagnar
75 ára afmæli sínu í dag og segist af því tilefni
jafnvel ætla að fara úr bænum með konu sinni,
Ingu Huld Hákonardóttur, sagnfræðingi og
rithöfundi.
Aðspurður segir hann afmælisdaga sína í barn-
æsku hafa verið eftirminnilega þar sem hann
deildi afmæli með nafna sínum Kristjáni 10. Dana-
konungi, sem þá bar einnig titilinn konungur Ís-
lands. „Það var flaggað á afmælisdaginn og ég
hélt að það væri fyrir mér. Það var afskaplega
gaman að eiga afmæli 26. september,“ segir Kristján.
Aðspurður segist Kristján bæði lesa og skrifa mikið. Grískar og
latneskar bókmenntir eru sérstakt áhugamál hans en hann kenndi
jafnan fornaldarbókmenntir við HÍ. „Ég hef verið í því að þýða grísk-
ar bókmenntir og kynna gríska menningu,“ segir hann en að auki hef-
ur hann skrifað fjölda ritgerða og erinda um bókmenntir og heim-
speki, sent frá sér tvær ljóðabækur; Rústir og Einn dag enn, og þýtt
ljóð frá ýmsum tímum. Í október verður gefin út þýðing Kristjáns á
verki sem á íslensku nefnist Ummyndanir. ylfa@mbl.is
Kristján Árnason, þýðandi og fv. dósent, 75 ára
Deildi degi með Danakóngi
Nýirborgarar
Akranes Elín Eygló fædd-
ist 8. desember kl. 12.57.
Hún vó 3.125 g og var 52
cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Alda Leif Jóns-
dóttir og Sigurður Ágúst
Þorvaldsson.
Reykjavík Bergrós
María fæddist 29. apríl
kl. 2.57. Hún vó 3.500 g
og var 52 cm löng. For-
eldrar hennar eru Sig-
rún Jónsdóttir og Leifur
Þór Leifsson.
Reykjavík Marsibil fædd-
ist 11. maí kl. 9.28. Hún
vó 4.305 g og var 52 cm
löng. Foreldrar hennar
eru Eygló Jónsdóttir og
Guðbrandur Þór Braga-
son.