Morgunblaðið - 26.09.2009, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 26.09.2009, Qupperneq 44
44 Menning MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009 Fólk Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is ÞEKKTASTI diskódúett Íslands, Þú og ég með þeim Helgu Möller og Jóhanni Helgasyni, fagnar 30 ára starfsafmæli um þessar mundir. Af því tilefni ætlar sveitin að halda dansleiki víðsvegar um land ásamt hljómsveitinni Buff og byrjar gamanið á skemmtistaðnum Players í Kópavogi 2. októ- ber. Allir helstu smellirnir, s.s. Í Reykjavíkurborg, Dans dans dans og Villi og Lúlla, verða spilaðir og þótt eng- um sögum fari af því hvort gömlu diskógallarnir verði dregnir fram segir Helga að þau hafi engu gleymt og er miklu stuði lofað. „Við erum mjög spennt fyrir þessum tímamótum,“ segir Helga. Upphaflega var ráðgert að halda tónleika en eftir nánari umhugsun komust hún og Jóhann að því að slíkt hæfði tónlistinni ekki. „Þetta er tónlist sem fólk vill hreyfa sig við, ekki tónlist þar sem þú situr á rassinum og hlustar. Þess vegna ákváðum við að hafa dansleiki, ekki tónleika,“ útskýrir hún. Helga segir það alltaf koma jafnmikið á óvart hversu margir þekkja lögin sem voru hvað vinsælust um og upp úr 1980. Dans dans dans þekkja flestir en Helga segir að lagið Villi og Lúlla hafi unnið á í gegnum árin. „Það er nostalgía í kringum það lag og fólk hefur gaman af því. Svo virðist sem mörg lög hafi lifað með þjóðinni og þau verða öll á prógramminu.“ Uppáhaldslag Helgu sjálfrar er Í Reykjavíkurborg en það er fyrsta lagið sem hún söng inn á fyrstu plötu sveitarinnar, Ljúfa líf, sem kom út í október 1979. „Í raun mætti ég í stúdíó og söng fyrir Gunnar Þórðarson og var ráðin í dúettinn á staðnum þegar hann heyrði mig syngja þetta lag og upptakan stóð í þessum prufutíma svo mér þykir mjög vænt um það lag.“ Dans, dans, dans í Reykjavíkurborg  Fjölmiðlakonan Ellý Ármanns er ekki við eina fjölina felld, kemur fram í útvarpsleikritinu Guð blessi Ísland sem frumflutt verður á Rás 1 á morgun kl. 14. Ellý er sögumaður í verkinu sem tekur fyrir bús- áhaldabyltinguna en inn í hana fléttast leikritin Kardemommubær- inn og Milljarðamærin snýr aftur. „Leikendur“ í verkinu eru auk Ellý- ar þau Gísli S. Einarsson, Geir Jón Þórisson, Vésteinn Gauti Hauksson, Lilja Árnadóttir, Bragi Krist- jónsson, Kjartan Ragnarsson og Vignir Rafn Valþórsson. Verkið var búið til úr hljóð- upptökum við fyrrnefnt fólk og hljóðum frá búsáhaldabyltingunni, allt bútað niður og raðað upp eftir handriti Símons Birgissonar sem lauk í vor námi í fræðum og fram- kvæmd við Listaháskóla Íslands. Sögusviðið er lítill bær á Íslandi. Þar hefur verið framinn glæpur og þeir seku ganga enn lausir. Við kynnumst bæjarbúum sem allir hafa sínar hugmyndir um glæpinn. Í Bæjarleikhúsinu er verið að sýna Kardemommubæinn og leikritið Milljarðamærin snýr aftur í leik- stjórn Kjartans Ragnarssonar. Leikritið verður rauði þráðurinn í sögu bæjarbúa. Það vantar ekki hugmyndaflugið hjá Símoni! Ellý Ármanns og Geir Jón í útvarpsleikriti  Það gekk víst mikið á, á sér- stakri sýningu RIFF á kvikmynd- inni Rocky Horror Picture Show í fyrrakvöld. Leikstjóri kvikmyndar- innar Hundstönn var enn að svara áhorfendum í salnum sem sýna átti myndina í, þegar komið var að sýn- ingartíma, og börðu aðdáendur Rocky Horror æstir á dyr og vildu komast inn hið snarasta. Þá skelltu leiklistar- og dansnemar í Lista- háskólanum sér upp á svið í miðri mynd, klæddir í viðeigandi bún- inga, og léku eftir það sem var að gerast í myndinni. Mun atriðið hafa verið þaulskipulagt og vel vandað til búninga. Kannski hluti af list- náminu? Börðu æstir á dyr og dönsuðu uppi á sviði „ÉG hef verið að elta heilbrigð- isráðherrann ykkar, Ögmund Jón- asson, um í tvo daga,“ segir norski kvikmyndagerðarmaðurinn Hå- vard Bustnes spurður hvað hann sé að gera hér á landi. „Við erum að vinna að heimildarmynd um heilsu fólks á Vesturlöndum og hækkandi kostnað í heilbrigðiskerfinu sem er vandamál alls staðar í Evrópu. Nú horfum við á Ísland sem er í mjög sérstakri stöðu vegna efnahags- hrunsins, hér verður að skera mikið niður í heilbrigðiskerfinu og við ræddum mikið við Ögmund um það. Hann er hræddur um að bilið milli fátækra og ríkra aukist,“ segir Bustnes sem stefnir að því að ljúka við myndina sumarið 2010. „Þetta er mikilvægt umfjöllunarefni, nor- ræna velferðarkerfið er einstakt og það er í hættu. Við þurfum að vinna í því að halda því eins og það er.“ Bustnes er einn virtasti heim- ildamyndaleikstjóri Norður- landanna og er líka staddur hér á landi vegna kvikmyndahátíð- arinnar Nordisk Panorama þar sem hann er dómari í flokki heim- ildamynda. En mynd hans Big John vann í þeim flokki á hátíðinni í fyrra. „Nordisk Panorama hátíðin er mjög mikilvæg fyrir kvikmynda- gerð og það mikilvægasta sem ger- ist á Norðurlöndunum fyrir heim- ildamyndagerðarmenn. Ég kom hingað á þessa hátíð í fyrsta skipti fyrir um tíu árum síðan og það var mér mjög mikilvægt að hitta aðra í bransanum,“ segir Bustnes og bæt- ir við að hann eigi ekki auðvelt starf fyrir höndum. „Norrænar heimildarmyndir eru mjög góðar og því er ekki auðvelt starf að sitja í dómnefnd en mjög spennandi.“ Håvard Bustnes Sigraði á Nordisk Panorama í fyrra en er nú dómari. Verðlaunaleikstjóri elti Ögmund um í tvo daga Norsarinn Håvard Bustnes er dómari á Nordisk Panorama Diskódúettinn Þú og ég. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is UNGLINGSSTELPUR Íslands hafa fengið sitt eigið tímarit. Nýlega kom út fyrsta tölublaðið af Júlíu, nýju unglingatímariti sem Birtingur gefur út. „Eftir að hafa skoðað markaðinn fannst okkur vanta tíma- rit sem væri beint að þessum unga hópi. Unglingsstelpurnar sækja í tímarit sem eru ætluð eldri les- endum og þar eru tískuþættir og förðunarráð sem eru ekki ætluð þeim. Við ákváðum því að gefa út blað sem vonandi sameinar það sem stelpur sækja í á þessum aldri,“ seg- ir Halldóra Anna Hagalín, ritstjóri Júlíu. Halldóra hefur ekki komið að ritstjórn slíks tímarits áður en hún hefur verið í markaðsmálunum hjá Birtingi. Fegurð, tíska og heilsa Spurð hvort unglingar sæki sér ekki samskonar efni á netið segir Halldóra að það geti verið en það hafi vantað tímarit miðað að íslensk- um stelpum, með uppbyggilegu efni. „Miðað við móttökunar sem fyrsta tölublaðið hefur fengið erum við að svara eftirspurn.“ Halldóra segir að Júlía sé blað fyrir heilbrigða unglinga og fjalli um það sem er að gerast í heimi þeirra; fegurð, tísku og heilsu. „Við reynum að setja efnið þannig fram að það efli sjálfstraustið og við viljum að stelp- urnar hugsi fyrir sjálfar sig og treysti á sig.“ Í sumar óskaði Júlía eftir for- síðustúlku á blaðið og fékk fjöldann allan af umsóknum. Fyrsta tölublað- ið prýðir hin 15 ára Berglind María Ólafsdóttir. „Við vorum ekki að leita að fyrirsætum heldur venjulegum ís- lenskum stelpum sem yrðu góðar fyrirmyndir. Sex stelpur urðu fyrir valinu og prýða þær forsíðuna til skiptis við erlendar stjörnur,“ segir Halldóra að lokum. Júlía er sjálfstæð stelpa  Fyrsta tölublaðið af Júlíu, tímariti fyrir heilbrigðar unglingsstelpur, er komið út  Fyrirmyndin að blaðinu kemur frá Svíþjóð  Miðað að íslenskum stelpum Morgunblaðið/Heiddi Halldóra Anna Hagalín Ritstýran segir blaðið fyrir heilbrigða unglinga. Fyrirmyndin að Júlíu kemur frá Svíþjóð að sögn Halldóru. „Júlía er upprunalega sænskt blað og er okkar Júlía afsprengi af því. Blaðið er þegar gefið út í Svíþjóð, Nor- egi, Finnlandi og Danmörku þar sem það heitir reyndar Olivía. Úr sænska blaðinu fáum við hluta af efninu eins og viðtal við erlendar stjörn- ur. Þannig að efnið í Júlíu er að hluta til þýtt og að hluta til framleitt hér heima. Svip- að útlit er líka á blöðunum. Við skoðuðum mörg erlend unglingatímarit og okkur fannst þetta henta best,“ seg- ir Halldóra. Hún man ekki til þess að svipað blað hafi áður verið á markaði hérlendis. „Ég man náttúrlega eftir Æskunni, mér fannst alltaf skemmtilegast að lesa lífs- reynslusögurnar og spurt og svarað. Svo af erlendu blöð- unum var Bravo voða vinsælt þegar ég var unglingur.“ Fyrirmyndin er sænsk www.juliaogvinir.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.