Morgunblaðið - 26.09.2009, Page 46
Íþriðju kvikmynd gríska leikstjóransGiorgos Lanthimos, Hundstönn, erbrugðið upp mynd af „fjölskyldulífi“sem kallast á ógnvænlegan hátt á við
hryllingssögur úr samtímalegum veruleika.
Leikstjórinn nálgast efnið á klínískan máta, úr
fjarlægð og með köldu, rannsakandi en hlut-
lausu auga, sem eykur slagkraft myndarinnar
og gerir hana á köflum erfiða áhorfs en að
sama skapi sérstæða og knýjandi. Segir hér
frá fjölskyldu sem býr í rúmgóðu einbýlishúsi
í úthverfi með stóran, innilokaðan og afgirtan
garð bak við húsið. Snemma verður ljóst að
börnin þrjú, sem virðast öll vera um tvítugt,
hafa aldrei komið út fyrir landareignina og
foreldrar þeirra, heimavinnandi „húsmóðir“
og heimilisfaðirinn, yfirmaður í verksmiðju,
halda þeim föngnum og hafa skapað einskonar
hliðarveruleika, tilbúinn heim, sem börnin lifa
sínu lífi í. Þessi tilbúni heimur samanstendur
af „goðsögnum“ sem réttlæta rökvísi hins
daglega lífs, kennslustundum þar sem börnin
leggja á minnið villandi og kolranga „þekk-
ingu“ og tungumálakennslu sem miðar við al-
gjörlega sjálfbæran og öfugsnúinn málheim.
Aldrei er fullskýrt hvað vakir fyrir foreldr-
unum, hinu mesta rólyndisfólki að því er virð-
ist í fyrstu, utan við það að þau virðast tor-
tryggin í garð umheimsins og „áhrifa“ hans.
Að sumu leyti er hér því um að ræða tilraun til
að „rækta“ hina fullkomnu fjölskyldu, tilraun
sem fer herfilega úrskeiðis eins og vænta má í
framrás myndarinnar. Eini utanaðkomandi
aðilinn sem fær inngang í einkaheim fjölskyld-
unnar er kvenkyns öryggisvörður í verksmiðj-
unni sem faðirinn borgar fyrir að stunda kyn-
líf með syninum. En það er einmitt þessi
erindreki umheimsins sem kemur veröld
barnanna úr jafnvægi og brátt tekur að hrikta
í stoðum þessa skelfilega falsheims sem aðeins
verður verri og verri eftir því sem foreldrarnir
þurfa að bregðast við auknu áreiti frá full-
orðnum „börnum“ sínum. Ekki er hægt að
horfa á Hundstönn án þess að tengja atburða-
rásina við mál á borð við þau sem kennd eru
við hinn austurríska Jósef Fritzl og sér-
staklega hina bandarísku Jaycee Dugard.
Slíkt skírskotunarkerfi veruleikatengir meta-
fórískar hliðar verksins á máta sem kann að
hafa verið fjarri ætlun leikstjórans en dregur
ekki úr áhrifamætti þess. Þetta er mynd sem
greinilega er ætlað að stuða og vekja óhug, og
hvort tveggja tekst, en myndin heldur handan
einfaldrar ögrunar og á vit tilvistarlegrar
martraðar, hún skapar tilfinningu fyrir hræði-
legu misgengi í mannlegum samskiptum en
tengir svo hina innilokuðu atburðarás ein-
staklingsbundinnar vitfirringar við þjóðfélags-
legar spurningar á liðlegan og úthugsaðan
máta.
Að hleypa heimdraganum
Háskólabíó, RIFF 2009
Hundstönn (Kynodontas)
bbbbm
Leikstjórn: Giorgos Lanthimos. Aðalhlutverk:
Christos Stergioglou, Michele Valley, Aggeliki Pap-
oulia, Christos Passalis. Grikkland, 90 mín.
HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR
KVIKMYND
Hundstönn Myndin heldur handan einfaldrar ögrunar og á vit tilvistarlegrar martraðar.
RIFF | ALÞJÓÐLEG KVIKMYNDAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009
47.000 manns
í aðsókn!
SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í SMÁRABÍÓISÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Íslens
kt
tal
650kr.
Uppáhalds BIONICLE®-hetjurnar
vakna til lífsins í þessari nýju
og spennandi mynd
Yfir 50.000 manns
í aðsókn!
STÚLKA
N SEM L
ÉK SÉR
AÐ ELD
INUM
FRUMSÝ
ND 2. O
KTÓBER
FORSAL
A Í FULL
UM GAN
GI Á MI
DI.IS
AÐEINS
5 DAGA
R EFTIR
!
Blóðugur spennutryllir
frá handritshöfundi Juno
Hin sjóðheita Megan Fox
leikur kynþokkafulla og
vinsæla menntaskólastelpu
sem vill aðeins
óþekka stráka!
Með Amanda Seyfried
(úr Mamma Mia).
SÝND Í SMÁRABÍÓI
BYGGÐ Á METSÖLUBÓK
STIEG LARSSON
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef
SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Þú færð 5%
endurgreitt
í HáskólabíóSími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Bionicle (ísl. tal) kl. 4 LEYFÐ
Jennifer‘s Body kl. 6, 8 og 10 B.i. 16 ára
The Ugly Truth kl. 8 B.i. 14 ára
The Final Destination kl. 10 B.i. 16 ára
Indversk helgi: GHAJINI kl. 4 (FRÍTT)
NORDISK PANORAMA
25–30 SEPTEMBER
Í REGNBOGANUM
DAGSKRÁ ER AÐ FINNA Á:
NORDISKPANORAMA.COM