Morgunblaðið - 09.10.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-19 s: 522 4500 www.ILVA.is
©
IL
V
A
Ís
la
n
d
20
0
9
Fjöldi afmælistilboða
Komdu og gerðu frábær kaup
Afmælishátíðinni
lýkur sunnudaginn
11. október
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin
Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
300 MANNS tóku á rás klukkan átta í gærkvöldi
við gervigrasvöll Fylkismanna þegar ræst var í
svokölluðu Powerade-hlaupi. Þessir vösku
hlauparar þurftu sannarlega að setja undir sig
hausinn því veðrið var fremur slæmt, hvassviðri,
slydda og skítakuldi eins og sumir orðuðu það.
En hluti af hlaupaánægjunni er að takast á við
Kára, í hvaða skapi sem hann er, og ekkert nema
hressandi að láta rokið rífa almennilega í sig.
Vetrarveður stoppaði ekki keppendur í Powerade-hlaupinu í gærkvöldi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bleytukafald og vindveggur mættu hlaupurum
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
Í LJÓSI þess að ekki hafa verið
gerðar nauðsynlegar breytingar á
lögum um framleiðslu, sölu og verð-
lagningu búvara um niðurfellingu
Fóðursjóðs telur sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytið að leggja
þurfi sjóðnum til 1.285 milljónir
króna. Þetta kemur fram í grein-
argerð ráðuneytisins með frumvarpi
til fjáraukalaga fyrir árið 2009.
Í fjárlögum fyrir árið 2008 var
gert ráð fyrir að Fóðursjóður yrði
lagður niður í áföngum á þremur
árum. Fjárheimild til fóðursjóðs var
615 milljónir árið 2007 en 300 millj-
ónum lægri árið eftir. Í fjárlögum
þessa árs var gert ráð fyrir lækkun
frá fyrra ári um 200 milljónir og var
heildarframlagið því 115 milljónir.
Gert er ráð fyrir því að innflutn-
ingsgjöld af fóðri verði 1.400 millj-
ónir á ári.
Þá er lagt til að fjárheimild vegna
verðtilfærslugjalds á mjólk verði
hækkuð um 312 milljónir. Frum-
varp Jóns Bjarnasonar, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, um
niðurfellingu verðtilfærslugjalda
hefur ekki náð fram að ganga á Al-
þingi „og því þarf að hækka fjár-
heimild liðarins sem nemur áætl-
uðum tekjum af gjöldunum“ eins og
orðrétt segir í greinargerð ráðu-
neytisins.
Í frumvarpinu kemur fram að ráð
sé fyrir því gert að fjárheimildir rík-
issjóðs vegna þessa árs verði aukn-
ar um 26,9 milljarða. Það er nokkru
minna en árið 2008 en þá voru fjár-
heimildir ríkissjóðs auknar um rúm-
lega 33 milljarða króna.
Stærsti einstaki liðurinn sem tal-
inn er kalla á frekari útgjöld rík-
isins eru vextir. Í greinargerð með
frumvarpinu segir að aukna vaxta-
byrði megi rekja til endurfjármögn-
unar bankanna, sem gert er ráð fyr-
ir að verði fjármagnaðir með útgáfu
nýrra ríkisskuldabréfa.
1,6 milljarða króna hækkun
Fóðursjóður þarf 1.285 milljónir í viðbót og 312 milljónir þarf vegna verðtilfærslugjalds á mjólk
Stærsti einstaki liðurinn í frumvarpi til fjáraukalaga er 17 milljarðar vegna vaxtabyrði
„MÉR finnst allt benda til þess að
Aðalsteini [Baldurssyni] verði gert
að víkja sem formaður matvæla-
sviðsins. Hann hefur staðið sig gríð-
arlega vel. Það er forkastanlegt ef
forystan [í verkalýðshreyfingunni,
innsk. blm.] ryður honum burtu,“
segir Vilhjálmur Birgisson, formað-
ur Verkalýðsfélags Akraness.
Líklegt er talið að Aðalsteinn
Baldursson, formaður verkalýðs-
félagsins Framsýnar á Húsavík og
sviðsstjóri matvælasviðs Starfs-
greinasambands Íslands (SGS),
muni láta af síðarnefnda embættinu
á þingi SGS í dag.
Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,
framkvæmdastjóri Bárunnar á Sel-
fossi, hefur verið orðuð við stöðuna.
Sérstök uppstillingarnefnd, sem í
sitja Guðmundur Þ. Jónsson frá
Eflingu, Hjördís Þóra Sigurþórs-
dóttir frá Afli, Ásgerður Pálsdóttir
frá Samstöðu og Kolbeinn Gunn-
arsson frá Hlíf, mun gera tillögu um
helstu forystumenn um hádegisbil í
dag.
Uppstillingarnefndin gerir tillögu
um forystumenn allra sviða sam-
bandsins. Vilji þingfulltrúar bjóða
sig fram í kosningum á móti þeim
sem nefndin gerir tillögu um þá
fara þær fram eftir að niðurstöður
nefndarinnar hafa verið kynntar.
Matvælasvið SGS hefur verið
nokkuð áberandi í umræðu um
verkalýðsmál að undanförnu en
samtals heyra um 10 þúsund starfs-
menn fyrirtækja í landinu undir
sviðið.
Aðalsteinn vildi ekki tjá sig um
hvort hann hygðist bjóða sig fram
til áframhaldandi starfa fyrir SGS
þegar Morgunblaðið náði tali af
honum í gærkvöldi.|16
„Forkastanlegt ef forystan
ryður honum burtu“
Spenna vegna
fyrirhugaðra
breytinga hjá SGS
Morgunblaðið/Kristján
Í fiski Starfsfólk í fiskvinnslu heyrir
undir matvælasvið SGS.
„ÞEIR [sósíal-
demókratar]
leggja áherslu á
að það hafi aldrei
komið nein form-
leg beiðni frá rík-
isstjórn Íslands,
hvorki nú né áð-
ur, um að fara
aðra leið en þessa
AGS-leið,“ sagði
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, í samtali við mbl.is í
gær. Hann er nú staddur í Noregi
ásamt Höskuldi Þórhallssyni, þing-
manni flokksins. Þeir hafa hitt full-
trúa allra flokka á norska þinginu til
þess að kanna hug þeirra til mögu-
legrar fjárhagsaðstoðar við íslenska
ríkið. Viðbrögðin hafa verið jákvæð,
að sögn Sigmundar. Hann segir ljóst
að jafnaðarmennirnir norsku, þ.e.
sósíaldemókratarnir, bíði eftir frum-
kvæði frá félögum sínum hér heima
á Íslandi í Samfylkingunni. Ljóst sé
að ríkisstjórn Noregs muni ekki
taka það upp að eigin frumkvæði að
bjóða Íslendingum lán.
Engin
beiðni
Sigmundur D.
Gunnlaugsson
Jákvæðar viðtökur
flokka í Noregi
Í fjárlögum fyrir árið 2009
var ráð fyrir því gert að at-
vinnuleysi yrði 5,4 prósent á
árinu og framlög ríkisins í At-
vinnuleysistryggingasjóð
yrðu eftir því. Áætlanir gera
nú ráð fyrir að atvinnuleysið
á árinu verði að meðaltali 8,6
prósent. Samkvæmt frum-
varpi til fjáraukalaga þarf því
um 7,7 milljarða króna til við-
bótar í sjóðinn. Þetta er
stærsti einstaki liðurinn í
frumvarpinu að undan-
skildum útgjöldum vegna
aukinnar vaxtabyrði.
Atvinnuleysi meira
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Í sveitinni Auka þarf framlög til
landbúnaðarmála mikið.
Rúmlega 1,6 milljarða þarf til við-
bótar í liði sem eru undir sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðu-
neytinu. Í heild þarf 26,9
milljarða til allra málaflokka skv.
fjáraukalagafrumvarpi 2009.