Morgunblaðið - 09.10.2009, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009
Tebollur
með rúsínum og með súkkulaðibitum
Íslenskur gæðabakstur
ný
tt
Fara yfir viðbrögð við áreiti
Viðbragðskerfi þegar upp koma ásakanir um kynferðisofbeldi á meðferðarheimilum verður yfirfarið
Eftirlit Barnaverndarstofu fær góða umsögn í skýrslu félagsmálaráðuneytisins um rannsókn á Árbót
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
EFTIRLIT Barnaverndarstofu með líðan og
aðbúnaði barna á Árbót, meðferðarheimili fyrir
börn með alvarlegar hegðunarraskanir, fær
góða umsögn í úttekt Urðar Njarðvík sálfræð-
ings, sem telur þó ýmislegt ámælisvert.
Þetta kemur fram í greinargerð félagsmála-
ráðuneytisins um starfsemi heimilisins og
eftirlit með því, sem unnin var vegna kvörtunar
Félagsþjónustu Kópavogs (FK) um starfshætti
Barnaverndarstofu í kjölfar meints brots
starfsmanns þess gegn stúlku sem þar var vist-
uð á vegum FK. Áður hafði ríkissaksóknari lát-
arstofu. Enn fremur hafi staðsetningin áhrif á
möguleika heimilisins á að „ráða fjölbreyttan
hóp starfsmanna“. Starfsfólk sé flest ófaglært
og karlar. Hvort tveggja óæskilegt.
Verndarákvæði og réttur togast á
Með greinargerðinni fylgir álit Láru V.
Júlíusdóttur lögfræðings en í umsögn hennar
segir að verndarákvæði barnaverndarlaga og
réttur starfsmannsins togist á í málinu.
Maðurinn hefði getað átt bótakröfu vegna
ólögmætrar uppsagnar hefði honum verið vikið
úr starfi. Viðbrögð Barnaverndarstofu hafi
verið í fullu samræmi við lög og reglur, og tek-
ur félagsmálaráðuneytið undir þetta álit.
Félagsþjónustu Kópavogs og harmar ráðu-
neytið að þau hafi ekki verið sem skyldi.
Urður gagnrýnir einnig að endurmenntun,
þjálfun og handleiðslu starfsfólks Árbótar
skuli hafa verið „afar illa sinnt síðastliðin ár og
eftirlit með því brugðist“. Barnaverndarstofa
er sögð taka undir margar athugasemdir sál-
fræðingsins og vinna að úrbótum í samvinnu
við forstöðumenn í Árbót, þótt hún dragi „fram
nokkuð aðra mynd af fræðslustarfinu“.
Í framhaldi er bent á að Árbót er staðsett úti
á landi – í Aðaldal í S-Þingeyjarsýslu – og því
séu tækifæri starfsfólks til að sækja námskeið
um þarfir barna og tilfinningalíf þeirra að
miklu leyti bundin við námskeið Barnavernd-
ið ásakanir tveggja stúlkna um kynferðisbrot
mannsins gegn sér niður falla.
Urður finnur að því að ekki sé fylgt eftir
þeirri reglu að upplýsingar úr sakaskrá liggi
fyrir um alla starfsmenn heimilisins.
Viðbragðsáætlun verði endurskoðuð
Þá gerir hún athugasemdir við leiðbeiningar
í Handbók Barnaverndarstofu um meðferðar-
heimili um hvernig brugðist skuli við þegar upp
komi ásakanir um kynferðislegt ofbeldi eða
áreitni á meðferðarheimilum, og tekur ráðu-
neytið undir það álit hennar. Þessi viðbrögð
þurfi að endurskoða í samstarfi við Barnahús.
Vikið er að samskiptum Barnaverndarstofu og
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karl-
mann í fjögurra og hálfs árs fangelsi
fyrir að hafa nauðgað barnsmóður
sinni. Staðfesti Hæstiréttur dóm
Héraðsdóms Suðurlands yfir mann-
inum, sem einnig var dæmdur til að
greiða konunni 1,2 milljónir króna í
bætur.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar,
að maðurinn var ákærður fyrir að
hafa ráðist að konunni nótt eina í
mars á síðasta ári, og hrint henni í
stofugólfið þar sem hann sparkaði í
hana, veitti henni fjölda hnefahögga í
höfuð og líkama, reif í hár hennar og
sló höfði hennar ítrekað í gólfið. Þá
þvingaði hann hana til samræðis með
ofbeldi.
Þá var maðurinn ákærður fyrir lík-
amsárás að morgni sama dags þegar
hann veittist að konunni á ný í eldhúsi
og sló hana mörgum hnefahöggum,
einkum í kvið, bak og höfuð, auk þess
að trampa á henni þar sem hún var í
hnipri á eldhúsgólfinu. Við þetta
hlaut hún fjölda áverka.
Hæstiréttur taldi að frásögn kon-
unnar fyrir dómi hefði verið í öllum
atriðum á sama veg og hjá lögreglu,
neyðarmóttöku og þeim lækni, sem
skoðaði hana strax næsta dag eftir að
atburðirnir áttu sér stað. Var fram-
burður hennar metinn trúverðugur
en framburður mannsins, sem neitaði
sök, ótrúverðugur. Taldi dómurinn að
lögfull sönnun hefði verið færð fram
um að maðurinn hefði gerst brotlegur
eins og ákæra sagði til um.
Við ákvörðun refsingar var litið til
þess að maðurinn braut gegn konunni
á heimili hennar og árásin stóð yfir í
langan tíma. Miklir áverkar voru á
konunni eftir árásina, sem var hrotta-
leg og unnin á heimili hennar að nóttu
til, og var henni haldið þar nánast í
gíslingu með rétt ársgamalt barn sitt.
Fjögurra og hálfs árs
fangelsi fyrir nauðgun
Morgunblaðið/Kristinn
MAÐUR, sem hafði verið vísað úr
landi og var í fimm ára end-
urkomubanni, komst inn í landið í
vor og þáði síðan atvinnuleysis-
bætur í fjóra mánuði hér á landi í
sumar.
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnu-
málastofnunar, sagði að maðurinn
hefði komist inn í landið í apríl og í
framhaldi af því hefði hann sótt um
atvinnuleysisbætur. Hann hefði
framvísað vinnuveitendavottorði,
skattkorti og öðrum nauðsynlegum
gögnum og fengið réttindi sín stað-
fest og bætur í fjóra mánuði.
Þá hefðu Vinnumálastofnun bor-
ist upplýsingar frá lögreglu um
ólöglega dvöl hans hér á landi og í
framhaldi af því hefði verið gripið til
viðeigandi ráðstafana gagnvart
manninum. Gissur sagði að þetta
mál hefði leitt til aukinnar samvinnu
lögreglu og Vinnumálastofnunar.
Meðal annars hefði verið kannað
hvort hugsanlega væru fleiri dæmd-
ir brotamenn á atvinnuleysisbótum,
en svo hefði ekki verið.
Var í banni en fékk greiddar bætur.
Ólöglegur
í landinu
fékk bætur
í 4 mánuði
ÞEIR gengu rösklega og undir fríðum fánum
þátttakendurnir í göngunni sem Gigtarfélagið
stóð fyrir í miðbæ Reykjavíkur í gær.
Gengið var frá Lækjartorgi upp á Skólavörðu-
holt undir kjörorðinu „Vinnum saman“ til að
vekja athygli á því að ungir jafnt sem aldnir
glími við gigtarsjúkdóma. Gangan endaði við
Hallgrímskirkju þar sem hlustað var á orgelspil.
Gigtarfélagið segir rannsóknir á gigtarsjúk-
dómum undirstöðu bættra úrræða fyrir sjúk-
linga en í tilkynningu frá félaginu segir að 10 til
14 börn greinist með alvarlega gigtarsjúkdóma
á ári. Úrræði við gigtarsjúkdómum séu fjárfest-
ing, enda atvinnuþátttaka gigtarsjúklinga á
Norðurlöndunum hvergi meiri en á Íslandi.
Gigtarfélagið minnir á góðan árangur
Undir blaktandi fánum í þágu málstaðarins
Morgunblaðið/Árni Sæberg