Morgunblaðið - 09.10.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009
ÁTTA sýktust af
völdum E. coli-
baktería undir
lok september.
2-3 þessara til-
fella reyndust
vera innbyrðis
tengd en hin
ekki. Fulltrúar
landlæknis, Um-
hverfisstofnunar
og Matvælastofnunar funduðu um
málið í fyrradag. Þar kom fram að
ekkert hefði fundist í matvælum
sem skoðuð voru og engin ný til-
felli komið fram. Haraldur Briem
sóttvarnalæknir sagði að sýni
hefðu verið send til sóttvarnastofn-
unar ESB til nákvæmrar grein-
ingar. Þegar niðurstaðan berst
kann að finnast tenging við E. coli-
smit annars staðar í Evrópu.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
NÍU hafa þurft að leggjast á
sjúkrahús hér á landi vegna
A(H1N1)-inflúensunnar, svína-
inflúensu, það sem af er. Þar af
hafa 6-7 tilfelli komið upp á síð-
ustu tveimur vikum, að sögn Har-
aldar Briem sóttvarnalæknis.
Tveir af þessum níu hafa þurft á
gjörgæsluvist að halda og annar
er nú á gjörgæslu.
Haraldur segir þá sem hér um
ræðir vera allt frá eins árs aldri
til 64 ára. Yfirleitt er fólkið með
undirliggjandi sjúkdóma.
Leggst á yngra fólk
Haraldur hélt í gær hádegisfyr-
irlestur í Háskóla Íslands um
heimsfaraldur inflúensu 2009 og
vöktun og viðbrögð hans vegna.
Hann sagði þar meðal annars að
inflúensufaraldurinn væri í raun
að hefjast nú og væri langt frá því
að vera yfirstaðinn. Hann benti á
að það sem skildi heimsfaraldur
frá árstíðabundinni inflúensu væri
það hversu miklu fleiri veiktust í
heimsfaraldri. Að jafnaði fá um
5% fólks árstíðabundna flensu en í
heimsfaraldri getur helmingur
fólks eða jafnvel hærra hlutfall
veikst. Jafnvel þótt inflúensa legg-
ist ekki þyngra á fólk í heimsfar-
aldri en árstíðabundna flensan, þá
veikjast svo miklu fleiri í heims-
faraldri að vandamálin verða fleiri.
Árstíðabundna flensan leggst fyrst
og fremst þungt á gamalt fólk.
Heimsfaraldursflensan leggst hins
vegar frekar á yngra fólk.
Bóluefni væntanleg
Um níu af hverjum tíu sýnum
sem nú berast vegna inflúensu eru
vegna svínainflúensu. Því eru afar
miklar líkur á því að þeir sem nú
fá inflúensulík einkenni hafi smit-
ast af A(H1N1)-veirunni.
Bóluefni gegn svínainflúensunni
er væntanlegt hingað til lands
undir lok mánaðarins. Haraldur
sagði að bólusetning myndi hefjast
í byrjun nóvember.
Fólki verður forgangsraðað við
bólusetninguna. Í fyrsta mark-
hópnum sem verður bólusettur
eru um 70 þúsund manns. Þar á
meðal eru allir sex mánaða og
eldri sem eru með undirliggjandi
sjúkdóma, allar þungaðar konur,
heilbrigðisstarfsmenn og þeir sem
viðhalda nauðsynlegri samfélags-
þjónustu, til dæmis lögregla,
hjálparsveitir, slökkvilið og
sjúkraflutningamenn.
Haraldur telur líkamann vera
búinn að byggja upp varnir gegn
inflúensuveirunni 10-14 dögum
eftir bólusetningu.
Svínaflensan er rétt að byrja
Níu hafa lagst á sjúkrahús hér vegna
svínaflensu, þar af tveir á gjörgæslu á 100 þús. íbúa skv. skráningu heilbrigðisþjónustu
29. júní 4.okt.
100
80
60
40
20
0
Inflúensulík einkenni frá lokum júní
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
LANDSBYGGÐIN
Í KJÖLFAR væntanlegra manna-
breytinga í íslensku utanríkisþjón-
ustunni á næstunni munu nokkrir
sendiherrar láta af störfum og nýir
taka við. Þeirra á meðal er Tómas
Ingi Olrich, sendiherra Íslands í
Frakklandi, sem mun láta af störf-
um um næstu mánaðamót vegna
aldurs. Þórir Ibsen, fyrrverandi
skrifstofustjóri varnarmálaskrif-
stofu, mun taka við stöðunni. Hann-
es Heimisson, sendiherra í Finn-
landi, mun snúa aftur til Íslands til
að starfa hjá utanríkisráðuneytinu,
en Elín Flygenring, sem var fasta-
fulltrúi hjá fastanefnd Íslands hjá
Evrópuráðinu í Strassborg, mun
taka við sendiherrastöðunni í Hels-
inki. Sveinn Björnsson, sendiherra
Íslands í Vín í Austurríki, mun láta
af störfum vegna aldurs. Stefán
Skjaldarson tekur við af honum.
Sendiráð Íslands á Indlandi hefur
verið sendiherralaust í nokkra
mánuði en Gunnar Pálsson, sem var
sendiherra þar, fór til New York,
þar sem hann er nú fastafulltrúi Ís-
lands hjá Sameinuðu þjóðunum.
Guðmundur Eiríksson, sem hefur
starfað í utanríkisráðuneytinu,
mun taka við embætti sendiherra
Íslands á Indlandi. Benedikt Jóns-
son, sem verið hefur ráðuneyt-
isstjóri í utanríkisráðuneytinu, hef-
ur tekið við sendiherrastöðunni í
London. Sverrir Haukur Gunn-
laugsson, fyrrverandi sendiherra í
London, fer til Brussel þar sem
hann mun starfa hjá Fríversl-
unarsamtökum Evrópu (EFTA).
Morgunblaðið/Einar Falur
Tilfæringar Nokkrar mannabreyt-
ingar verða í utanríkisþjónustunni.
Breytingar
í utanríkis-
þjónustu
Tveir sendiherrar
munu láta af störfum
Í VIKUNNI hófust framkvæmdir við byggingu
tæplega 1.400 fermetra geymsluhúss Samgöngu-
minjasafnsins í Skógum undir Eyjafjöllum. Húsið
nýja leysir úr brýnni þörf safnsins fyrir geymslu-
húsnæði og skapar sömuleiðis möguleika á því
að skipta út einstaka munum fyrir aðra sem gera
ætti sýningarhald fjölbreyttara, en í samgöngu-
safninu má meðal annars sjá vinnuvélar, tal-
stöðvar og bíla, auk þess sem sögu og starfi
björgunarsveitanna eru gerð sérstök skil. Sökkl-
ar verða steyptir í vetur og húsið svo reist næsta
sumar. Allt verður unnið á staðnum en hugsunin
með því er að skapa sem mesta vinnu fyrir þá
sem að þessum framkvæmdum koma, sem eru
allt heimamenn undir Eyjafjöllum.
Stækka Samgönguminjasafnið í Skógum undir Eyjafjöllum
Morgunblaðið/RAX
Geymsla fyrir gullmolana
CATALINA Mikue Ncogo neitaði sök þegar op-
inbert mál gegn henni var þingfest í Héraðsdómi
Reykjaness í gær. Bornar eru sakir á hana um að
hafa stundað mansal, hótanir og nauðung þegar
hún notfærði sér útlenda konu kynferðislega. Einn-
ig að hafa haft atvinnu eða viðurværi sitt af vændi.
Catalinu er gefið að sök að hafa fengið útlenda
konu til landsins með ólögmætum blekkingum í
júní 2008. Það gerði hún undir því yfirskini að kon-
an væri að koma hingað í frí. Hún hýsti konuna á
tveimur stöðum í Hafnarfirði og neyddi hana til að
stunda vændi með líflátshótunum, líkamsmeiðing-
um og því að taka af henni föt og skilríki.
Catalina er einnig ákærð fyrir að hafa haft at-
vinnu eða viðurværi af vændi ofangreindrar konu
og fleiri kvenna á árunum 2008-2009. Þá hafði hún
milligöngu um að fjöldi manna hafði samræði eða
önnur kynferðismök við konurnar gegn 20-25 þús-
und króna greiðslu. Catalina leigði íbúðarhúsnæði
á fjórum stöðum í Hafnarfirði og Reykjavík undir
vændið. Þá lét Catalina taka myndir af umræddum
konum og auglýsti vændi þeirra á vefsíðum.
Íslenskur karlmaður er ákærður fyrir hlutdeild í
brotum Catalinu með því að hafa uppfært auglýs-
ingar um vændið á vefsíðum og að hafa tekið ljós-
myndir af konunum. Fyrir það þáði hann peninga
frá Catalinu. Hann neitaði sök.
Þrír brotaþolar gerðu kröfu um miskabætur frá
Catalinu, að upphæð 800 þúsund krónur hver. Ca-
talina hafnaði bótakröfunum. gudni@mbl.is
Kona ákærð um hórmang og
mansal neitaði sök fyrir dómi
Þrír brotaþolar ákærðu krefjast miskabóta upp á 800.000 krónur hver
Í HNOTSKURN
»Catalina var handtekin vegna grunsum vændisstarfsemi í febrúar síðast-
liðnum. Þá lék grunur á að hún hefði gert
út konur um nokkurn tíma og hafði verið
fylgst með konunni og starfsemi hennar.
Hún var síðar úrskurðuð í farbann.
»Aðalmeðferð málsins hefst 20. októbernæstkomandi. Einn brotaþola mun hafa
óskað eftir lokuðu þinghaldi og verður tek-
in afstaða til þess síðar.
Enn er leitað upp-
runa nýlegra sýk-
inga vegna E. coli
Haraldur Briem