Morgunblaðið - 09.10.2009, Blaðsíða 18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
TOGARINN Lómur II hefur legið í
Kópavogshöfn síðan í júní í fyrra.
Rafmagn hefur nú verið tekið af skip-
inu vegna vangoldinna hafnargjalda,
en skuldin nemur um hálfri annarri
milljón. Hætta er á að skemmdir
verði á skipinu í vetrarkuldum, en
það er mjög skuldsett. Í fyrrahaust
virtust samningar um sölu skipsins
vera klárir en þá hrundi bankakerfið.
Guðmundur Svavarsson útgerðar-
maður, segir að í fyrrasumar hafi bil-
un orðið í vél skipsins samhliða því að
olíuverð hækkaði upp úr öllu valdi.
Landsbankinn, sem var viðskipta-
banki hans, fann síðsumars kaupanda
að skipinu í Kanada og var kaupverð-
ið um 320 milljónir króna.
Lán sem hvíldu á skipinu, alls um
170 milljónir, áttu að fylgja með skip-
inu og Landsbankinn ætlaði jafn-
framt að fjármagna kaupendur. „Síð-
an dróst að ganga frá þessu eins og
gengur og síðan einfaldlega hrundi
bankinn yfir skipið og þar með þessi
viðskipti,“ segir Guðmundur Svav-
arsson um sína hlið á málinu.
Hann segir að nú séu lánin sem
hvíli á skipinu komin í tæplega 300
milljónir vegna gengisbreytinga, við-
skiptin við Kanadamennina séu löngu
fyrir bí og það sé alveg á mörkum að
hægt sé að selja skipið upp í skuldir,
finnist þá kaupandi. Lómurinn hefur í
tíu ár verið skráður í Tallinn í Eist-
landi og sótti rækju á
Enginn hefði hagnast
meira en bankinn
Guðmundur segir að hann hefði
viljað halda til veiða í janúar. „Ef
bankinn hefði greitt fyrir því hefði
skipið verið búið að veiða fyrir meira
en hálfan milljarð í ár og enginn hefði
hagnast meira á því en bankinn,“ seg-
ir Guðmundur. Hann segist líka hafa
verið með verkefni í Grænlandi, en
bankinn hafi fryst allt slíkt.
Lómur II er um fimmtíu ára gam-
alt skip, en það hefur verið mikið
endurbyggt frá kili og upp úr. Síðast í
Póllandi árið 2005 er nýtt stál var sett
í dekkið. Skipið fór mest átta túra á
ári og aflaði yfir þrjú þúsund tonna.
Eftir hvern túr var landað yfir 400
tonnum af frystum afurðum. Sjálfur
segist Guðmundur vera búinn að
leggja 150 milljónir króna með skip-
inu og hluti af skuldunum var tryggð-
ur með bakveði í öðrum eignum hans.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kópavogshöfn Lómur hefur verið bundinn við bryggju síðan í júní í fyrra. Nú hefur rafmagn verið tekið af skipinu.
Hrunið lenti á Lómnum
Búið var að selja skipið í fyrra Viðskiptin fyrir bí og skuldir
safnast upp Skráð í Tallinn og sótti rækju á Flæmska hattinn
Eftir Líneyju Sigurðardóttur
Þórshöfn | Miklar vonir eru bundn-
ar við menntasetur á Þórshöfn.
Katrín Jakobsdóttir menntamála-
ráðherra opnaði setrið með form-
legum hætti. Meðal viðstaddra voru
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra, starfsfólk Þekkingarset-
urs Þingeyinga og Framhaldsskól-
ans á Laugum auk heimamanna.
Menntasetrið er staðsett í við-
byggingu félagsheimilisins og er
samstarfs- og þróunarverkefni
Langanesbyggðar, Þekkingarseturs
Þingeyinga og Framhaldsskólans á
Laugum í Reykjadal. Með mennta-
setrinu opnast nýir menntunar-
möguleikar fyrir íbúa í Langanes-
byggð en Þekkingarsetur Þing-
eyinga er þar einnig með nýja
starfsstöð og verkefnastjóra, Grétu
B. Jóhannesdóttur. Þekkingarsetrið
mun standa fyrir námskeiðum, há-
skóla- og rannsóknarþjónustu og
ýmsir möguleikar eru í boði fyrir
fyrirtæki og einstaklinga til sam-
starfs eða aðstoðar vegna verkefna
og annarra hugmynda, að sögn
Grétu. Öflug nettenging brúar einn-
ig fjarlægðir og býður upp á mögu-
leika til stærri fjarfunda og nám-
skeiða, sem um leið sparar þeim sem
nýta sér það umtalsverðan ferða-
kostnað.
Framhaldsnám í heimabyggð
Stærsti áfanginn í huga margra er
þó sá að á menntasetrinu hefur verið
opnuð deild frá Framhaldsskólanum
á Laugum þar sem nemar á fyrsta
ári stunda nú framhaldsnám sitt í
heimabyggðinni. Valgerður Gunn-
arsdóttir, skólameistari á Laugum,
greindi frá aðdraganda þess að Þórs-
hafnardeildin var stofnuð en um er
að ræða tilraunaverkefni til eins árs.
Sagðist hún hafa fulla trú á því að
framhald yrði á verkefninu og starfið
hingað til lofi mjög góðu. Heimafólk
bindur vonir við það að fyrsta árið sé
aðeins byrjunin og núverandi nem-
endur framhaldsdeildarinnar geti
einnig sinnt næsta námsári hér
heima. Það hefur alltaf verið mik-
ilvægt að unglingar geti sinnt námi
sínu í heimabyggð í stað þess að
þurfa að fara að heiman með þeim
mikla tilkostnaði sem því fylgir, auk
þess sem hætturnar leynast víða,
eins og kom fram í máli Valgerðar.
Ráðherrarnir Katrín og Stein-
grímur tóku undir þá skoðun og
sagði Steingrímur það m.a. stuðla að
bættum búsetuskilyrðum ef nem-
endur gætu stundað framhaldsnám
sitt fyrstu tvö árin á heimaslóðum
jafnframt því að það sé í raun hluti af
mannréttindum að eiga þess kost.
Sex nemendur í Langanesbyggð
eru nú við nám í Þórshafnardeild
Framhaldsskólans á Laugum í dag-
skóla undir handleiðslu verkefn-
isstjóra síns, Önnu Þorsteinsdóttur,
en eina viku í mánuði fara bæði nem-
endur og verkefnisstjóri í Lauga-
skóla og ganga þar inn í skólastarfið,
svo þarna er bæði um að ræða stað-
og fjarnám. Þessi nýja framhalds-
skóladeild á Þórshöfn vekur upp
spurningar um kostnað hins op-
inbera vegna þess en vissulega er
hann einhver, þó ekki stórvægilegur
þar sem á móti koma kostnaðarliðir
sem falla út.
Binda miklar vonir við
menntasetur á Þórshöfn
Morgunblaðið/Líney Sigurðard
Fagna nýju Menntasetri Ráðherrarnir tveir fagna ásamt starfsfólki.
Málefni útgerðar Lómsins ll eru
til meðferðar hjá Skilanefnd
Landsbankans. Páll Benedikts-
son, upplýsingafulltrúi, sagði í
gær að málið væri í eðlilegu ferli
og sagðist ekki tjá sig um það
efnislega fyrr en einhver niður-
staða fengist. Hann sagðist
hafna því að málið hefði tekið
óeðlilega langan tíma, það hefði
verið í gamla bankanum og væri
flókið viðfangs.
Í eðlilegu ferli
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Meðal efnis verður:
Vetrarklæðnaður á börn og fullorðna.
Góðir skór fyrir veturinn.
Húfur, vettlingar, treflar, lopapeysur og fl.
Snyrtivörur til að fyrirbyggja þurra húð.
Flensuundirbúningur, lýsi, vítamín og fl.
Ferðalög erlendis.
Vetrarferðir innanlands.
Bækur á köldum vetrardögum.
Námskeið og tómstundir í vetur.
Heitir pottar og sundlaugar góð afslöppun
Bíllinn tekinn í gegn.
Leikhús, tónleikar og ýmisleg afþreying.
Útilýsingar – góð ljós í myrkrinu.
Þjófavörn fyrir heimili og sumarbústaði.
Mataruppskriftir.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16
mánudaginn 19. október.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út
glæsilegt sérblað um
Vertu viðbúinn vetrinum
föstudaginn 23. október.
Vertu viðbúinn
vetrinum