Morgunblaðið - 09.10.2009, Page 22

Morgunblaðið - 09.10.2009, Page 22
milli kl. 10 og 13 með börn sín sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni. Þá geta þau lært á hjóla- bretti í friði og fengið leiðsögn. Hjólabrettagarður Reykjavíkur er opinn milli kl. 17 og 22 alla virka daga og um helgar frá 13-18. Aðgangseyrir er 500 kr. en meðlimir í félaginu geta keypt mánaðarkort og þá kostar skiptið 390 kr. Hægt er að afla sér upplýsinga um allt sem er að gerast í Bretta- félagi Reykjavíkur og Snjóbretta- sambandi Íslands inn á brettafelag.is. H jólabrettagarður Reykjavíkur var opnaður aftur síðasta laugardag eftir sumarlokun. Garðurinn er við Loftkastalann í Héðins- húsinu en hann er á vegum Brettafélags Reykjavíkur. „Fólkið sem mætir er allt frá grunnskólakrökkum upp í menntaða tannlækna og markaðsfræðinga,“ segir Ingólfur Már Olsen, með- limur í stjórn Brettafélagsins. Ingólfur segir að garðurinn hafi verið starfræktur í mörg ár á hinum og þessum stöðum. Félagið fékk af- hent húsnæðið í Héðinshúsinu þarsíðasta sumar og við tók mikil smíðavinna og endurbætur. Garðurinn var opnaður í febrúar sl., hjólabrettaunnendum til mikillar ánægju, en að sögn Ingólfs hefur alltaf vantað al- mennilega aðstöðu fyrir fólk sem vill renna sér innan- dyra. ÍTR styrkir Brettafélagið sem nemur kostnaði við leigu og rafmagn en öll smíðavinna er unnin í sjálf- boðavinnu. „Áður en við gátum opnað garðinn sl. febr- úar vorum við í sjálfboðavinnu 2-3 sinnum í viku í fjóra mánuði,“ segir Ingólfur og enn er smíðavinnunni ekki lokið því eftir er að leggja lokahönd á stærsta ramp- pallinn sem Ingólfur segir alla bíða eftir. Vonast er til að hann verði tilbúinn fyrir jól en vinnan við hann hef- ur tafist vegna þess hve byggingarefni er dýrt. Eins og fyrr segir var garðurinn lokaður í sumar. „Á sumrin er fólk meira úti að leika sér og það tekur því ekki að reyna að reka húsnæði þegar svo fáir nýta að- stöðuna. Það stendur hinsvegar til að reyna að gera eitthvað með garðinn á sumrin, t.d. halda þar leikja- námskeið fyrir krakka sem hafa gaman af öðru en boltaíþróttum.“ Til stendur að vera með „old boys“-kvöld, fyrir 25 ára og eldri, einu sinni í viku í brettagarðinum. Þá geta foreldrar komið á laugardags- og sunnudagsmorgnum Á ferð og flugi Það er mikið líf í húsnæði Bretta- félags Reykjavíkur. Morgunblaðið/Golli Rúllað á römpum í brettagarði Kúnstir Í brettagarðinum má sjá fólk á öllum aldri leika listir sínar. Það er ekkert grín þegar maður viðurkennir að mað- ur hefur ekki gaman af flestu því sem aðrir hafa gaman af. Ég hef séð fólk breytast í eitt stórt spurningamerki og setja upp skrýtinn svip þegar ég segi að mér finnist bjór bragðast eins og skólp á bragðið (ekki það að ég hafi drukkið skólp, en þið skiljið hvað ég meina), að ég hafi hvorki horft á Næturvaktina né Dagvaktina (þó ég viðurkenni að hafa smitast af „sæll!“-frasanum enda erfitt að forð- ast það) og loks það síðasta, sem yfirleitt er erfiðast að viðurkenna fyrir fólki, að mér finnst sumarið ekki neitt sérstaklega skemmtileg árstíð. Þá er það orðið opinbert. Mér finnst sumarið ofmetið, svona svipað og áramótin og bjór, og er fegin þegar haustið mætir í allri sinni dýrð. Þó ástæðurnar fyrir þessari skoðun minni skipti ekki öllu máli get ég talið nokkrar upp: Ég er ekki hrifin af miklum hita, það er of bjart á sumrin og maður má ekki slaka á innandyra án þess að fá samviskubit yfir því að vera ekki úti og nýta góða veðrið, þar sem það er svo fátítt á þessu landi okkar. Það er nánast ætlast til þess að maður eyði hverri helgi í sumarbústað eða tjaldi, ferðist út á land, klífi fjöll, fari í göngur og eyði hverri sólarstund í sund- laug svo fæturnir breytast næstum í sporð og tálkn byrja að myndast í andlitinu. Það sem skiptir hinsvegar máli er að fólk nánast sættir sig ekki við þessa skoðun mína og tekur ástæðurnar ekki gildar (m.a.s. við skrif þessa pistils var ég vænd um að vera „klikkuð“ og afstaða mín sögð „sjúk“!). Það myndi gleðja mig mikið ef fólk hætti að spyrja mig hvort ég vildi ekki vera frekar úti, þegar ég segist vilja vera inni, hvort ég vilji ekki verða brún, þegar mig langar ekki í sund, eða hví ég ætli ekki úr bænum, þegar ég vil halda mig heima. Maður er nú einu sinni orðinn fullorð- inn, ef mig langaði að gera eitthvað þá væri ég full- komlega fær það. Og hananú! HeimurYlfu ’Mér finnst sum-arið ofmetið, svona svipað og áramótin og bjór 22 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009 Annað kvöld ætlar hópur af dubstep tónlistarmönnum og plötusnúðum að halda opnunarpartí fyrir heimasíðuna Dubstep.is á Akranesi. Plötusnúð- arnir Maggi B, Gunni Ewok og Árni Skeng ásamt ofurhljóðkerfi sjá um að halda partíinu gangandi og fólkinu sveittu fram til 4 um nóttina. Að sögn Árna Skeng er dubstep tónlistarstefna frá London sem hefur verið að þróast hratt á seinustu fimm árum og er nú í dag orðin mjög vin- sæl meðal ungmenna hér á landi. Auk þess að halda úti heimasíðunni ætla þeir félagarnir í vetur að gefa tónlist og halda klúbbakvöld víðsvegar um landið. Rúta ferjar mannskapinn upp á Skaga um kl. 22 og kostar 1.000 kr. í hana, fram og tilbaka. Ballið byrjar svo kl. 23 og kostar 500 kr. inn. Ald- urstakmark er 18 ár. Dubstep partí á Akranesi Lofa sveittu dubstep partíi Alice In Chains Tribute tónleikar verða haldnir í kvöld á Sódóma Reykjavík. Um söng sjá Jens Ólafsson (Brain Police) og Kristófer Jensson (Lights on the Highway), á gítar eru Franz Gunnarsson (Dr. Spock), Bjarni Þór Jensson (Cliff Clavin) og Emil Rafn Jónsson, Þórhallur Stefánsson (Lights on the Highway) sér um trommusláttinn og Jón Svanur Sveinsson (Númer Núll) plokkar bassann. Þá munu einnig troða upp hljóm- sveitirnar Hoffman, Cliff Clavin og Shogun. Húsið opnar kl. 21 en tón- leikarnir hefjast kl. 22:30. Miðar kosta 1.500 kr. í forsölu í versluninni Havarí í Austurstræti en 2.000 kr. að- gangseyrir sé borgað í hurðinni. Að- göngumiðinn á þessa tónleikaveislu er í senn happdrættismiði. Aldurs- takmark er 18 ár. Tribute tónleikar á Sódómu Rokka eins og Alice in Chains Læknirinn David Henry tekur á móti tvíburunum sínum, dreng og stúlku. Hann fagnar heil- brigðum syni en bregður illilega þegar hann sér að stúlkan er með Downsheilkenni. Semsagt gallað eintak af manneskju, telur læknirinn. Til að hlífa konu sinni við áfallinu tek- ur hann þann kost að segja henni að dóttir þeirra hafi dáið. Dóttirin elst síðan upp annars staðar. Dóttir myndasmiðsins eftir Kim Edwards er dramatískt en um leið einkar læsilegt verk um afdrifaríka ákvörðun sem leiðir ekki til góðs. Bók sem vekur ótal siðferðilegar spurn- ingar hjá lesandanum. Þessi fyrsta skáldsaga höfund- arins rataði á metsölulista New York Times og hlaut lesendaverðlaun í Bretlandi á síðasta ári. kolbrun@mbl.is Bækur Gallað eintak af manneskju? Áhugaverð bók. Hvað viltu lesa? Sendu okkur tölvupóst á daglegtlif@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.