Morgunblaðið - 09.10.2009, Side 24

Morgunblaðið - 09.10.2009, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Það er svomargt, efað er gáð, sem um er þörf að ræða. Þessi sönglína á svo sem við á öllum tímum en þörfin er þó ríkari nú en endranær. En þá bregður svo við að pukrið hefur aldrei verið annað eins. Það lítur helst út fyrir að pukrið sé pólitísk lífsskoðun þeirra sem lofuðu gegnsæi og ær- legri upplýsingagjöf til al- mennings í upphafi ferils síns. Icesave-málið er graf- alvarlegt mál. En pukrið í kringum það hefur gert illt verra, alið á tortryggni og eyðilagt upplýsta umræðu, sem er þó brýnni en nokkru sinni. Á meðan á samninga- ferlinu stóð var ekkert vitað hvað fram fór. Samninga- menn, sem enginn vissi hvernig voru valdir eða hvaða umboð höfðu, þreif- uðu aldrei á viðhorfum stjórnarandstöðu eða upp- lýstu hana um eitt eða neitt. Þegar samningaferlinu var lokið með fullkominni upp- gjöf var því haldið fram að samningslok væru langt undan. Daginn eftir var sagt að samningar lægju fyrir! Þó mætti ekki segja þingi og þjóð frá hvað í þeim fælist því Bretar og Hollendingar bönnuðu það! Síðar kom á daginn að sú fullyrðing var ósönn. Fjöldi gagna fékkst ekki fram nema með úrtölum og allt of seint og sum hafa aldrei verið birt. Tor- tryggni óx því dag frá degi og grunsemdir vöknuðu um að ekki væri allt með felldu. Fjármálaráðherrann, sem hafði sagt að „frábærir samningar“ væru í burð- arliðnum gældi við að fá ríkisábyrgð samþykkta við samninginn óséðan. Sjálf- sagt hefur það ekki þótt óeðlilegt því þingflokks- formaður vinstri grænna hefur upplýst að rík- isstjórnin hafi sjálf sam- þykkt þá án þess að líta á þá! Og nú er Steingrímur J. kominn frá Tyrklandi og spunameistarar ráðuneyt- isins segja að hann hafi átt 20 fundi með hinum og þessum, þar á meðal æðstu mönnum AGS og fjár- málaráðherrum andstæð- inganna í Icesave-málinu. Það er ágætt að ráðuneytið sýnir að það kann að telja upp á tuttugu, sem svo sem var ekki efast um, en hvað sögðu menn? Og hvað sagði Stein- grímur við sína viðmælendur? Hann hlýtur að hafa greint þeim frá því að hvorki þing né þjóð vildu samþykkja hinn „frábæra“ samning. Það er sjálfsagt snúið að rökstyðja að fólkið manns frábiðji sér frábæra samninga! En nú verður pukrinu að ljúka. Það verður að upplýsa hvað fór fram á þessum fundum. Utanríkismálanefnd verður þegar í stað að fá að sjá fundargerðir og minnisblöð frá þeim því frásagnir ráð- herrans eru þokukenndar og yfirborðslegar og mjög ótrúverðugar. Við bætist að sporin þeirra Indriða hræða. Steingrímur vildi láta þjóðina ábyrgjast nauða- samningana óbreytta og skilyrðislaust. Þegar hann komst ekki upp með það sagði hann að fyrirvarar Al- þingis væru til bóta og rúm- uðust innan samninganna. Þegar Bretar og Hollend- ingar voru á öðru máli lypp- aðist kappinn niður. Þá var síðasta úrræðið að koma heim aftur og kyssa Ög- mund! Minnti óneitanlega á annan koss og frægari. Enn segir fjármálaráð- herrann að ekki megi segja frá sjónarmiðum Breta og Hollendinga. Þeir banni það. Sú fullyrðing reyndist röng síðast. Ekki megi segja frá samtölum við Rússa. Þeir banni það! Og það virðist heldur ekki mega segja frá samtölum við forystu AGS og ekki heldur við fjármálaráðherra Breta og Hollendinga. Hver bannar það? Framkoma fjármálaráðuneytisins í þessu mikla hagsmunamáli þjóðarinnar er ámælisverð í ótal atriðum. En þó er pukrið og læðupokahátt- urinn verstur. Þar birtast ótvíræð merki um að trún- aðarmenn íslensku þjóð- arinnar hafi vonda sam- visku og sú tilfinning vaknar að störf þeirra þoli ekki dagsins ljós,. Augljóst var á fréttum ríkissjónvarpsins sl. mið- vikudagskvöld að sú frétta- stofa unir sæl í almyrkva upplýsingaleysis. En það gera ekki aðrir og allra síst þjóðin. Pukrið burt. Það er það heillaráð sem stjórn- völd eiga að þiggja. Og kannski er það ekki of seint. Hreinskilni og gegnsæi vantar. Því var lofað.} Pukrið eitrar umræðuna Líklega hafa fáir Bandaríkjaforsetar verið jafn umdeildir og George W. Bush. Vissulega átti maðurinn sína verjendur og stuðnings- menn, en fjölmargir gagnrýnendur hans lögðu mikla fæð á hann og stefnumál hans. Var hann gagnrýndur fyrir að hafa sett á stofn fangabúðirnar við Guantanamo á Kúbu, fyrir að hafa ráðist inn í Írak, fyrir að hafa þráast við að undirrita Kyoto-bókunina og fyrir að troða fótum skoðanir alþjóðasam- félagsins og veikja vinabönd við aðrar þjóðir. Þá var hann gagnrýndur fyrir að hafa við- haldið svokallaðri „don’t ask, don’t tell“-stefnu í bandaríska hernum. Sú stefna felur í sér að samkynhneigt fólk getur ekki þjónað í hern- um nema það feli kynhneigð sína. Með kosningu Baracks Obama virtist gagn- rýnendum Bush sem nýir tímar væru í nánd, enda var mikið lagt upp úr hugtökunum „von“ og „breyt- ingar“ í kosningabaráttu Obama. Lítið hefur þó verið um efndir í mörgum helstu bar- áttumálum Obama þrátt fyrir að demókratar hafi skot- heldan meirihluta í báðum deildum þingsins. Fyrsta verk hans sem forseta var að fyrirskipa lokun búðanna við Guantanamo, en þær eru ennþá opnar og allt útlit er fyrir að þær verði það enn um næstu áramót. Aðalsamningamaður Bandaríkjanna í umhverfismálum hefur sagt að ekki komi til greina að samþykkja Kyoto- bókunina óbreytta og notaði hann við það tilefni svipuð rök og stjórn Bush notaði á sínum tíma. Obama reitti Pólverja og Tékka til reiði um daginn þegar hann ákvað að hætta við upp- byggingu eldflaugavarnakerfis í löndunum. Ekki bætti úr skák að Pólverjar fengu að vita af stefnubreytingunni á 70 ára afmælisdegi innrásar Sovétríkjanna í landið. Stjórn Obama hefur heldur betur sett í bakkgírinn hvað varðar „don’t ask, don’t tell“-stefnuna og sagt forsetann of önnum kafinn til að geta gert þessa breytingu, í bili að minnsta kosti. Þá stendur ekki til að af- nema hina umdeildu patriot-löggjöf, sem veitir stjórnvöldum umfangsmiklar heimildir til að fylgjast með borgurunum. Í kosningabaráttunni lagði Obama áherslu á að stríðið í Afganistan væri mun mikilvæg- ara en Íraksstríðið, enda væri þar verið að berjast við raunverulega hryðjuverkamenn. Sagðist hann vilja fjölga bandarískum hermönnum í landinu og knýja fram sigur í stríði, sem nú hefur staðið yfir í að verða átta ár. Hershöfðingjar í Bandaríkjaher komu fyrir skömmu fram og sögðu að yrði ekkert að gert væri raunveruleg hætta á ósigri í Afganistan. Lítið hefur verið um viðbrögð frá forsetanum, enn sem komið er að minnsta kosti, þótt mannfall í ár sé það mesta frá því að stríðið hófst árið 2001. Kannski er ósanngjarnt að gagn- rýna Obama fyrir að hafa ekki komið fleiru í verk en raun ber vitni, en athyglisvert er hins vegar hve þöglir þeir eru sem fyrir ári síðan gagnrýndu Bush fyrir sömu aðgerðir og aðgerðaleysi. bjarni@mbl.is Bjarni Ólafsson Pistill Lítið um efndir hjá Obama STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon Sameining hjá sam- göngustofnunum Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is K ristján L. Möller hefur í kynningum sínum á skýrslum nefndanna talað fyrir sameiningu Keflavíkurflugvallar ohf.og Flugstoða ohf. og því að koma á fót stjórnsýslustofnun samgöngu- mála, þar sem sameinist Umferð- arstofa, Flugmálastjórn og stjórn- sýsluþátturinn úr Vegagerðinni og Siglingastofnun. Framkvæmdaþátt- ur Vegagerðar og Siglingastofnunar verði síðan í einni framkvæmda- stofnun. Hugmyndin er fyrst og fremst að bæta þjónustuna og segir ráðherra að hann sé vongóður um að hagræðingin hafi ekki í för með sér uppsagnir starfsfólks, en ekki sé hægt að útiloka neitt í þeim efnum. Tæplega 1.200 manns starfa hjá þessum fyrirtækjunum og stofn- unum. Samgönguráðherra segir að næsta skref sé að starfshópur for- stöðumanna stofnananna undir for- ystu Ragnhildar Hjaltadóttur ráðu- neytisstjóra, með áherslu á þátttöku og samráð fulltrúa starfsmanna, taki til starfa og sjái um nánari skilgrein- ingu og áætlanagerð fyrir verkefnið. Í því felist að skilgreina hlutverk breyttra stofnana, meta hagræð- inguna, setja fram áætlun um hvern- ig breytingum verði hrint í fram- kvæmd og tímasetja þær. Kristján L. Möller leggur ríka áherslu á að breytingarnar verði gerðar í fullu samráði við starfs- menn, því þar sé fólk sem hafi víð- tæka þekkingu á málum. Þessu fólki verði gefinn kostur á að koma sjón- armiðum sínum á framfæri og marg- ir hafi þegar nýtt sér það, en starfs- hópurinn fari yfir allar tillögur. Sameining sem fyrst Starfshópurinn sem fjallaði um mögulega sameiningu Flugstoða og Keflavíkurflugvallar telur rétt að stefna að sameiningu sem fyrst og nefnir komandi áramót í því sam- bandi. Kristján L. Möller segir að innan skamms verði nýtt félag stofn- að og því sett stjórn. Hópurinn leggur til að rekstrinum verði skipt í flugvallarsvið, flugleið- sögusvið og stjórnunar- og fjár- málasvið. Lögð er áhersla á að félagið verði virkur þátttakandi í uppbyggingu ferðaþjónustu í landinu. Í því sam- bandi er bent á áður fram komnar hugmyndir um að Keflavík- urflugvöllur geti orðið miðstöð fyrir Grænlandsflug og að skoðaðir verði möguleikar á auknu samstarfi í sam- bandi við flug til og frá Færeyjum. Hópurinn vill afnema skatta af starfsemi flugvalla og taka þess í stað upp þjónustugjöld, rétt eins og starfshópur um fjármögnun flug- valla hefur lagt til. Gjaldtaka á flug- völlum verði í samræmi við rekstr- arkostnað, ríkið greiði fyrir tilgreinda þjónustu eins og til dæmis slökkviþjónustu, flugvernd og flug- umferðarþjónustu, en annar rekstr- arkostnaður greiðist með þjón- ustugjöldum notenda. Fram kemur að með breyttu fyr- irkomulagi á rekstri flugvalla megi ná niður kostnaði hins opinbera. Þá vill hópurinn að gjaldtaka á flug- völlum verði í samræmi við rekstr- arkostnaðinn. Ljósmynd/Jóhannes Tómasson Kynning Kristján L. Möller samgönguráðherra, Gísli Gíslason, Ragnhildur Hjaltadóttir og Sigurður Helgason á fundi hjá Flugmálastjórn í gær. Stefnt er að breytingum á fram- tíðarskipan samgöngustofnana og hefur Kristján L. Möller sam- gönguráðherra kynnt tillögur tveggja nefnda í viðkomandi stofnunum undanfarna tvo daga. KRISTJÁN L. Möller samgöngu- ráðherra skipaði tvær nefndir í byrjun líðandi árs. Annarri þeirra var falið að meta kosti og galla þess að sameina opinberu hlutafélögin Flugstoðir og Keflavíkurflugvöll. Hinni var gert að koma með til- lögur að framtíðarskipan stofnana samgöngumála, þ.e. Siglingastofn- unar Íslands, Umferðarstofu og Vegagerðar. Síðar var Flug- málastjórn einnig tekin til skoð- unar í nefndinni. Í nefndinni um sameiningu Flug- stoða og Keflavíkurflugvallar voru Jón Karl Ólafsson formaður, Mar- grét S. Björnsson og Ólafur Nils- son. Ólafur Nilsson var hópnum til aðstoðar og ráðgjafar. Í hinni nefndinni voru Gísli Gísla- son formaður, Jóhann Antonsson, Edda Rós Karlsdóttir og Dagný Jónsdóttir. Sigurður H. Helgason var verkefnastjóri. TVEIR HÓPAR ››

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.