Morgunblaðið - 09.10.2009, Page 31
Umræðan 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009
HRÓS mitt fær
Kristján L. Möller
sem viðurkenndi á
síðasta ári austur á
Seyðisfirði að gerð
hefðu verið ein verstu
mistök í samgöngu-
málum Austfirðinga
þegar einbreiðu Odd-
skarðsgöngin sem eru
með tveim litlum út-
skotum voru grafin
fyrir meira en þremur
áratugum í 620 m hæð og teljast
ólögleg samkvæmt reglum ESB og
sömuleiðis vegurinn á Fjarðarheiði.
Síðustu tvo áratugina hafa verið
gerð nokkur jarðgöng sem eru
milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar, á
norðanverðum Vestfjörðum, undir
Hvalfjörð, Almannaskarð og milli
Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar.
Stigið hefur verið fyrsta skrefið til
að tengja suðurfirðina enn betur
við byggðakjarna Mið-Austurlands
að loknum framkvæmdum við Fá-
skrúðsfjarðargöngin. Lausleg um-
ferðarspá sem kynnt var vegna
arðsemisútreikninga á þessari leið
gerði ráð fyrir að umferðin yrði
um 400 bílar á dag. Annað hefur
nú komið í ljós þrátt fyrir allar
hrakspár sem runnið hafa út í
sandinn. Meira en 1000 bílar á sól-
arhring hafa farið í gegnum Fá-
skrúðsfjarðargöngin sem stytt hafa
vegalengdina milli Mið-Austur-
lands, Fjarðabyggðar og suður-
fjarðanna um 35 km. Þegar Alþingi
tók ákvörðun um þessi nýju veg-
göng fyrir einum áratug var talið
að arðsemi þeirra myndi aukast
eftir því sem unnt yrði að spara í
öðrum framkvæmdum á móti. Hjá
Vegagerðinni fengust þau svör að
þetta hefði átt við um Breiðdals-
heiði, Hvalnes-, Þvottár- og Vatt-
arnesskriður og Öxi sem þykir allt-
of snjóþung og illviðrasöm í 530 m
hæð. Veðurhæð sem farið getur í
meira en 30 metra á sekúndu og
sex til tíu m djúp snjóþyngsli er
vonlaust að stöðva með upp-
byggðum vegi á snjóþungum svæð-
um. Sama á við um enn fleiri fjall-
vegi hér á landi sem geta staðið
300 til 400 metrum neðar.
Sjálfgefið verður það aldrei að
hálkan í brekkunni fyrir ofan
brúna á Hemru hverfi með þessum
heilsársvegi sem fulltrúar fortíð-
arinnar taka fram yfir jarðgöng.
Hér skal ósagt látið hvort snöggar
veðrabreytingar eyðileggja allar
tilraunir til að tryggja heils-
árstengingu Djúpavogs við Egils-
staði og Fljótsdalshérað með upp-
byggðum Axarvegi eða ekki. Það
leiðir tíminn í ljós.
Öll rök mæla nú gegn því að
framkvæmdir við 7,8 km löng veg-
göng milli Eskifjarðar og Norð-
fjarðar sem eiga að leysa af hólmi
gömlu Oddskarðsgöngin geti beðið
mikið lengur. Þarna verður stigið
fyrsta skrefið til að rjúfa alla vetr-
areinangrun Fjórðungssjúkrahúss-
ins við heimamenn
sem búa utan Norð-
fjarðar, þótt meira
þurfi til.
Hugmynd sem til er
í Jarðgangaáætlun
Vegagerðarinnar um
4,2 km löng veggöng
undir Oddskarð hefur
nú verið afskrifuð sem
betur fer. Talað var
um að þessi göng yrðu
tekin úr 340 m hæð
Eskifjarðarmegin og
kæmu út í 300 m.y.s. í
Seldal í Norðfirði. Þá
hefði slysahættan af umferðinni í
gegnum íbúðarhverfið á Eskifirði
þrefaldast þótt vetrarsamband
hefði orðið öruggara. Til stóð að
veggöngin sem búið er að ákveða í
stað gömlu Oddskarðsganganna
yrðu 6 km löng.
Ákvörðun liggur nú fyrir um að
lengja göngin um 1,7 km áður en
þau verða grafin vestan við nýja
íbúðarhverfið á Eskifirði og úr
Fannardal í Norðfirði sunnan
Kirkjubóls í 10 til 20 m hæð.
Skammarlegt er að fyrrverandi
þingmenn Austfirðinga skuli aldrei
hafa séð ástæðu til að fylgja þessu
máli eftir í samgöngunefnd Alþing-
is strax og framkvæmdir hófust í
Vestfjarðagöngunum fyrir tæpum
tveimur áratugum.
Eftir stendur einn farartálmi
sem mikilvægt er að losna við til
að heimamenn á Egilsstöðum og
Héraði fái öruggara vegasamband
við Fjórðungssjúkrahúsið. Það er
Fagridalur sem þykir alltof ill-
viðrasamur, snjóþungur og síður
en svo öruggur fyrir snjóflóðum. Í
stað Mjóafjarðarganga kæmist
Fjórðungssjúkrahúsið fyrr í örugg-
ari heilsárstengingu við Egils-
staðaflugvöll ef grafin yrðu 6 km
löng jarðgöng undir Eskifjarð-
arheiði sem kæmu út í Tungudal á
Héraði hvort sem byggð í Mjóa-
firði leggst af eða ekki.
Ný Norðfjarðargöng strax
Eftir Guðmund
Karl Jónsson » Öll rök mæla nú
gegn því að fram-
kvæmdir við 7,8 km löng
veggöng milli Eski-
fjarðar og Norðfjarðar
... geti beðið mikið leng-
ur.
Guðmundur Karl
Jónsson
Höfundur er farandverkamaður.
Stórfréttir
í tölvupósti Sett upp í samstarfi við:
SAGA SEM VERÐUR AÐ SEGJA!
MIÐASALA Í SÍMA 4 600 200, Á WWW.LEIKFELAG.IS OG Á WWW.MIDI.IS
MAGNAÐ VERK EFTIR JÓN GUNNAR ÞÓRÐARSON
BYGGT Á SÖNNUM ATBURÐUM.
ÓTRÚLEG SAGA UM BÖRN, FÁTÆKT, VÆNDI, ÁST OG SVIK
NÆSTU SÝNINGAR
Fös. 09. okt. kl. 20.00 - Uppselt
lau. 10. okt. kl. 20.00 - Uppselt
Sun. 11. okt. kl. 20.00 - Uppselt
Fim. 15. okt. kl. 20.00 - Uppselt
Fös. 16. okt. kl. 20.00 - Uppselt
Lau. 17. okt. kl. 20.00 - Uppselt
Sun. 18. okt. kl. 20.00 - Uppselt
Fim. 22. okt. kl. 20.00 - Uppselt
Fös. 23. okt. kl. 20.00 - Uppselt
Lau. 24. okt. kl. 20.00 - Uppselt
Sun. 25. okt. kl. 20.00 - Uppselt
Fös. 30. okt. kl. 20.00 - Uppselt
Lau. 31. okt. kl. 20.00 - Uppselt
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA!