Morgunblaðið - 09.10.2009, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 09.10.2009, Qupperneq 42
42 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009 Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „JÁ, ég ætla að reyna að kíkja,“ svarar lista- konan Yoko Ono þegar blaðamaður spyr hvort hún ætli að mæta á tónleika til heiðurs John Lennon í Hafnarhúsi í kvöld. Ono er furðu- hress miðað við að hafa þegar veitt íslenskum fjölmiðlum tvö viðtöl og vera um það bil að hefja það þriðja þegar blaðamaður mætir á svæðið. Aðstoðarkona Ono kemur aðvífandi með skál af girnilegum, íslenskum jarðar- berjum og listakonan lifnar öll við, fer að tína upp í sig berin. Í kvöld kl. 20 verður Friðar- súlan tendruð í Viðey, á afmælisdegi Lennon, og Ono er að sjálfsögðu komin til að fylgjast með því. Ekki dómsdagur Þið Lennon börðust ötullega fyrir friði á tímum Víetnamstríðsins og nú er þetta merki- lega friðartákn komið út í Viðey. Finnst þér mannkynið einhverju nær friði núna en þá? „Já, það er engin spurning. Það er margt skelfilegt að gerast núna og fólk veinar og seg- ir dómsdag kominn (Ono leikur það með til- þrifum). Það er undir okkur komið hvort dómsdagur er upp runninn, hann þarf ekki að vera það. Það er svo margt fallegt að gerast núna sem var ekki að gerast á 7. áratugnum. Við höfum komist að ýmsu um stofnfrumur, kjarnsýrur og að við getum klónað fólk út frá einu hári,“ svarar Ono, innblásin af framþróun í vísindum. Hægt sé að nýta sér tækniþekk- ingu til góðra verka, t.d. nýta jarðvarma til orkuframleiðslu í stað þess að beita aðferðum sem valda mengun. Nú hefurðu persónulega reynslu af stríði, þú varst í Japan þegar Bandaríkjamenn vörp- uðu sprengjum á Hiroshima og Nagasaki … „Og það skrýtna er að John fæddist í miðri loftárás,“ bætir Ono við. „Ég var í Japan og gekk í gegnum margt skrítið en þegar maður er barn er það eini veruleikinn sem maður þekkir og því líður manni ekkert of illa yfir því. Þetta er bara lífið.“ Bjó í fílabeinsturni Þú hefur upplifað margt dramatískt um æv- ina, heldurðu að það hafi haft mikil áhrif á verk þín? „Ég ætla svo sannarlega að vona það,“ segir Ono og hlær. „Ég vona að ég hafi ekki verið svo tilfinningalaus að leiða hjá mér eigin ævi,“ heldur hún áfram og hlær og blaðamanni líður hálfkjánalega að hafa spurt hana að þessu. Hefur viðhorf þitt til lista breyst með ein- hverjum hætti frá því þú varst að hefja feril þinn fyrir mörgum áratugum? „Já, þegar ég var að byrja var ég elítisti, bjó í fílabeinsturni. Ef einhver var að búa til tón- list sem mér fannst óáhugaverð þá lítilsvirti ég hana. Núna er ég hins vegar þakklát öllum sem búa til tónlist..“ Umburðarlyndari? „Umburðarlyndari, já.“ Þú hefur verið iðin við gjörningalist og tón- leikarnir sem þú heldur með hljómsveit þinni sverja sig nokkuð í ætt við gjörninga … „Já og auðvitað er Friðarturninn gjörn- ingur, Óskatréð er gjörningur o.s.frv. Það er mjög mikilvægt að við gerum ekki innhverfa íhugun að einhverju sérstöku, að maður þurfi að sitja á stórum púða og sitja með krosslagða fætur í tvær klukkustundir. Asísk menning byggist á íhugun, þar er alltaf verið að íhuga,“ bendir Ono á og vísar í fósturjörð sína, Japan. „Bænin er hluti af lífi okkar. En maður get- ur líka íhugað á meðan maður borðar; að snæða felur í sér íhugun, að ganga felur í sér íhugun, að hugsa felur í sér íhugun. Ef þú tal- ar við Asíubúa, spyrð hann að einhverju en svarið kemur ekki alveg strax, þá er ástæðan sú að hann er að íhuga. Það er í fínu lagi.“ Það er ágætt að hugsa áður en maður talar. „Já, já, ég geri ekki nóg af því,“ segir Ono kímin. Telurðu að hið skapandi, listræna ferli sé til- finningalegt og þarfnist engra útskýringa við? „Að skapa eitthvað er tilfinningaleg þörf og því læturðu þörfina stjórna þér.“ Ono segir líf sitt hafa verið eina heljarinnar rússíbanareið en hún hafi getað skýlt sér fyrir árásum og áreiti með því að einbeita sér að vinnu sinni. „Ég var í mínum eigin heimi þann- ig að þetta var ekki eins sárt og það hefði get- að verið,“ segir hún og vísar m.a. í ásakanir þess efnis að hún hafi splundrað Bítlunum. Þær séu alrangar. „Já“ frekar en „nei“ Nú kynntust þið Lennon í kjölfar þess að hann lét heillast af verki þínu „Ceiling Paint- ing“, klifraði upp tröppur og notaði stækkun- argler til að lesa orðið „yes“ áletrað í loftið. Hann langaði að kynnast listamanninum … „Hann sagði að ef það hefði staðið „nei“ hefði honum ekki líkað verkið. Þetta voru nátt- úrlega ekki persónuleg, rómantísk skilaboð til Johns,“ segir Ono og hlær. En það er gaman að velta því fyrir sér að þetta orðaval, að velja já frekar en nei, hafi haft þetta mikil áhrif á líf ykkar. „Já, það er áhugavert, ekki satt?“ segir Ono og virðist hugsi. Af hverju valdirðu „já“? „Af því ég vildi fá leyfi frá almættinu.“ Leyfi fyrir hverju? „Leyfi fyrir lífinu almennt.“ Mojo kom á óvart Ono er önnum kafin kona, orðin 76 ára en lætur engan bilbug á sér finna, flakkar um heiminn og kemur fram á tónleikum og mynd- listarsýningum auk þess að berjast fyrir friði. Ono hlaut tvenn verðlaun í ár fyrir ævistarfið, heiðursverðlaun Feneyjatvíæringsins fyrir myndlist og tónlistartímaritið Mojo veitti henni verðlaun fyrir tónlistarsköpun. Ono segir verðlaunin á tvíæringnum gríð- arlega mikinn heiður en hún hafi vart trúað því þegar hún heyrði að Mojo ætlaði að heiðra hana, í ljósi neikvæðra skrifa um hana í gegn- um árin í ýmsum tónlistarritum. Að því leyti hafi Mojo-verðlaunin verið gleðilegri en hin. Í september sl. kom út breiðskífa með Ono og hljómsveitinni The Plastic Ono Band, Bet- ween My Head and the Sky, en seinasta hljóð- versskífa hennar með þeirri sveit kom út fyrir margt löngu, árið 1973. Sonur hennar Sean leiðir sveitina og framleiddi plötuna. Platan hefur fengið glimrandi dóma í virtum tónlist- artímaritum, fullt hús stiga nánast alls staðar. Þetta er þrælgóð plata og hljómsveitina skipa virkilega færir tónlistarmenn … „Já, ég veit. Ég er mjög heppin með hvað sonur minn er góður tónlistarmaður og tónlist- arframleiðandi, hann kallaði það besta fram í sveitinni,“ segir Ono, stolt af syninum. Blaða- maður bendir á að líkurnar á því að tveir hæfi- leikaríkir listamenn eignist barn með listræna hæfileika séu þónokkrar. Ono tekur undir það. Eilíft líf Ætlarðu að halda áfram að gefa út plötur næstu áratugi? „Ég vona það,“ svarar Ono og veltir því fyr- ir sér í kjölfarið hvort fólk muni hafa þann möguleika í framtíðinni að lifa að eilífu, í ljósi stofnfrumurannsókna og annarrar þróunar í læknavísindum sem er henni greinilega hug- leikin. „Ef við vildum gætum við haldið okkur ung- um og lifað að eilífu. Ég hef enga ástæðu til þess að vilja það ekki, ég held að það væri frá- bært að lifa að eilífu,“ svarar Ono, spurð að því hvort hún hafi áhuga á eilífu lífi. Hvaðan færðu alla þessa orku, þú ert á sí- felldum þeytingi. Eru það jarðarberin? „Já, kannski eru það jarðarberin. En veistu hvað heldur mér líka gangandi? Fólk er alltaf að kvarta yfir rigningu og roki og hinu og þessu. En hvað er meira heillandi við norðrið en stormurinn og regnið? Ég nýt þess. Og jarðarber, veistu að maður fær þau ekki á Ta- hítí? Þetta er mjög norrænt.“ Morgunblaðið/Kristinn Ono í Reykjavík „Að skapa eitthvað er tilfinningaleg þörf og því læturðu þörfina stjórna þér,“ segir Ono um listsköpun en hún hlaut í sumar heiðursverðlaun Feneyjatvíæringsins fyrir ævistarfið. Leyfi frá almættinu  Listakonan og friðarsinninn Yoko Ono segist umburðarlyndari í garð listarinnar en hún var á árum áður  Telur að það væri frábært að lifa að eilífu og sækir sér orku í íslensk jarðarber Yoko Ono fæddist 18. febrúar 1933 í Tókýó í Japan. Eftir að seinni heimsstyrjöld lauk flutti hún með fjölskyldu sinni til New York. Þar dróst hún að listamönnum borgarinnar og bóhemlífi þeirra. Ono var í hópi áberandi framúrstefnulistamanna í borginni í upphafi 7. áratugarins, listamanna sem lögðu meiri áherslu á að vekja upp spurningar en að búa til áþreifanleg listaverk. Þessi hópur fékk síð- ar heitið Fluxus en þó var ekki um eiginlega hreyfingu að ræða þar sem engin var stefnu- yfirlýsingin. Ono var nýverið heiðruð á Fen- eyjatvíæringnum fyrir ævistarfið og sögð ein af frumkvöðlum konseptlistarinnar og áhrifa- mikil þykir hún þegar kemur að gjörningalist. Af gjörningum Ono má nefna „Cut Piece“ sem hún flutti árið 1964 í Sogetsu-lista- miðstöðinni í Tókýó. Verkið fólst í því að hún leyfði áhorfendum að klippa utan af sér fötin þar til hún stóð nakin eftir, krjúpandi á gólf- inu. Ono hefur fengist við ýmsar listgreinar, ekki aðeins myndlist heldur einnig kvik- myndagerð og tónlist, þó svo að mörkin á milli séu oft óljós. Síðast en ekki síst var hún eiginkona Bítilsins Johns Lennons og vann að tónlist með honum á fjölda platna. Leyfði áhorfendum að klippa fötin utan af sér AP Lennon og Ono í New York árið 1980.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.