Morgunblaðið - 09.10.2009, Page 43
Menning 43FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 2009
TILKYNNT var í
Stokkhólmi í gær
að þýski rithöf-
undurinn Herta
Müller hljóti
Nóbelsverðlaunin
í bókmenntum í
ár. Müller er
fædd í Rúmeníu
árið 1953 og er
kunn fyrir skáld-
sögur, ljóð og
greinar þar sem hún hefur iðulega
fjallað um lífið og harðræðið í Rúm-
eníu undir alræðisstjórn Ceauces-
cus. Þá hefur hún verið ötull bar-
áttumaður fyrir málfrelsi. Nóbels-
nefndin segir í tilkynningu að Müller
fá verðlaunin í og með sökum þess
hvernig hún hefur skrásett „lands-
lag hinna landlausu.“ Móðir Müller
var send í sovéskar vinnubúðir, þar
sem henni var haldið í fimm ár, og þá
var hún sjálf ofsótt af rúmensku
leynilögreglunni fyrir að neita að
gerast uppljóstrari. Fyrsta bók
hennar, smásagnasafnið Nieder-
ungen, kom út árið 1982. Þar og í
skáldsögunni Drückender Tango,
sem kom út tveimur árum síðar,
skrifaði hún um kúgun og bælingu í
þýskumælandi þorpi í Rúmeníu.
Nóbelsverðlaunin nema um 20
milljónum króna.
Müller hlýt-
ur Nóbelinn
Fulltrúi landlausra
Rithöfundurinn
Herta Müller
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
BLÁA gullið, nýtt íslenskt leikverk um vatn,
verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu á morgun,
laugardag. Opið út, sjálfstætt starfandi leikhús,
með Charlotte Bøving í
broddi fylkingar, setur sýn-
inguna upp í samvinnu við
Borgarleikhúsið. Leikarar
eru þrír, þau María Páls-
dóttir, Sólveig Guðmunds-
dóttir og Víkingur Krist-
jánsson.
Markmiðið með sýningunni
er að sýningargestir sjái vatn
í nýju ljósi; upplifi marg-
breytileika, mikilvægi og
töfra bláa gullsins. Þrír trúð-
ar leiða áhorfendur um sögusvið vatnsins sem
hefur verið á stöðugu ferðalagi um jörðina í ár-
þúsundir; undir og á yfirborði hennar, í öllu líf-
verum og um himingeiminn. Trúðarnir varpa
fram ýmsum spurningum um eðli og uppruna
vatnsins á fræðandi en trúðslegan hátt. Ragn-
hildur Gísladóttir annast hljóðmynd og Gjörn-
ingaklúbburinn um leikmynd og búninga.
Fylgja vatnsmólikúli gegnum tímann
„Það hefur verið spennandi áskorun að búa
til leiksýningu um vatn. Ég og leikararnir fór-
um í dásamlegan uppgötvunarleiðangur,“ skrif-
ar Charlotte í leikskrá, en hún er höfundur
verksins ásamt leikhópnum. „Ósk mín var að
skapa leikhúsupplifun fyrir börn og foreldra
sem væri eilítið frábrugðin því sem við eigum
að venjast hér á Íslandi. Lærdómsríka, heim-
spekilega og ljóðræna sýningu sem ekkert
endilega hefði söguþráð, heldur væri margræð
og gæfi kost á að sjá, heyra og skynja vatn frá
mörgum sjónarhornum.“ Hún segir að Bláa
gullið brotakennda sýningu, en öll atriðin teng-
ist vatni, hvort sem um dans, hljóðmynd eða
miðaldir, og lendir líka í vatnskeri hjá Jesú,“
segir Charlotta og má vera ljóst að víða er
komið við.
„Þetta er öðruvísi sýning en fólk er vant að
sjá, sýning fyrir níu ára börn sem 99 ára börn,“
segir hún.
lýsingu sé að ræða. „Við fylgjum vatnsmólikúli
sem heitir HHO og trúðarnir þrír leika þau H,
H og O. Trúðarnir fara inn í þetta vatnsmólikúl
sem fer í hringrás en líka gegnum tímann. Við
byrjum í upphafi tímans og svo fer vatnsmólik-
úlið inn í risaeðlu og áfram í tímanum inn í
Öðruvísi sýning um vatn
Bláa gullið frumsýnt í Borgarleikhúsinu á morgun Leikstjórinn og höfund-
urinn Charlotte Bøving vildi skapa sýningu sem er ólík því sem fólk á að venjast
Leikararnir í Bláa gullinu „Ég og leikararnir fórum í dásamlegan uppgötvunarleiðangur.“
Leikstjórinn
Charlotte Bøving
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Listmunauppboð
í Galleríi Fold
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
fer fram mánudaginn 12. október,
kl. 18.15 í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
Magnús Kjartansson
Á uppboðinu er úrval góðra verka,
meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna
Verkin verða sýnd:
í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17, sunnudag 12–17 og mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Og ég er komin á þá
skoðun að þetta
séu nú bara alveg ágætis
plötur. 44
»
SMEKKUR bresku þjóðarinnar á
skáldskap hefur tekið miklum breyt-
ingum á undanförnum árum, ef
marka má nýja könnun BBC þar
sem spurt var um eftirlætisskáld
hlustenda. Árið 1995 varð Rudyard
Kipling efstur í sambærilegri könn-
un en á þeim 14 árum sem liðin eru
virðast Bretar hafa hneigst meira að
módernismanum.
The Guardian greindi frá því í gær
að samkvæmt nýrri könnun sigraði
T.S. Eliot „naumlega“ er hann
skreið fram úr John Donne. Aðrir
sem ná inn á lista þeirra tíu vinsæl-
ustu eru „rastafarian dub-skáldið“
Benjamin Zephaniah, sem er eini lif-
andi maðurinn á listanum, Wilfred
Owen, Philip Larkin, William Blake,
William Butler Yeats, John Betj-
eman, John Keats og Dylan Thomas.
Engin kona var á meðal þeirra vin-
sælustu.
T.S. Eliot
vinsælastur
HÖNNUNARSAFN Íslands
býður upp á leiðsögn á síðasta
degi sýningarinnar í núverandi
húsnæði safnsins, á sunnudag-
inn, 11. október, klukkan 15.
Í leiðsögn um þessa geymslu-
sýningu Hönnunarsafnsins
mun Arndís S. Árnadóttir
hönnunarsagnfræðingur greina
frá helstu áföngum í sögu ís-
lenskrar húsgagnasmíði og
hönnunar á síðustu öld og
tengja við gripi safnsins.
Arndís lauk MA prófi í hönnunarsögu frá De
Montfort háskólanum í Bretlandi.
Hönnunarsafn Íslands er að Lyngási 7 í Garða-
bæ. Aðgangur er ókeypis
Hönnun
Fylgd um
Hönnunarsafnið
Arndís S.
Árnadóttir
SÝNINGIN Trommarinn 2009
verður á morgun, laugardag, í
sal Tónlistarskóla FÍH við
Rauðagerði á milli 13 og 18.
Á sýningunni verða hljóð-
færaverslanir með allt það nýj-
asta til sýnis í trommum og
slagverki, íslenskir trommu-
smiðir sýna afurðir sýnar og
mikið af gömlum trommusett-
um og stökum trommum verða
til sýnis.
Heiðursgestur verður Guðmundur Stein-
grímsson og verður honum veitt heiðursviður-
kenning fyrir ævistarf sitt í þágu tónlistar á Íslandi.
Nokkrir landsþekktir trommu- og slagverksleik-
arar stíga á svið.
Tónlist
Trommarar
sýna sig og sitt
Guðmundur
Steingrímsson
HAUSTTÓNLEIKAR söng-
sveitarinnar Fílharmóníu
verða haldnir í Seltjarnar-
neskirkju á morgun, laugar-
daginn 10. október, og á sunnu-
dag og hefjast tónleikarnir
klukkan 16 báða dagana.
Fílharmónía flytur tvö kór-
verk frá tuttugustu öldinni,
hina vinsælu messu Misa Cri-
olla eftir argentínska tón-
skáldið Ariel Ramirez, og Fjöl-
menningarmessu eftir sænsk-úrúgvæska
tónskáldið Yamandú Pontvik. Einsöngvarar eru
Einar Clausen og Hafsteinn Þórólfsson en auk
þess leikur rytmahljómsveit með kórnum. Tón-
leikunum stjórnar Magnús Ragnarsson.
Tónlist
Kórverk á haust-
tónleikum
Söngsveitin
Fílharmónía
ÍSLENSKI flautukórinn heldur tón-
leika á 15.15 tónleikaröðinni í Nor-
ræna húsinu á sunnudaginn kemur,
11. október. Á tónleikunum mun
flautukórinn flytja verk eftir Þuríði
Jónsdóttur, Þorkel Sigurbjörnsson,
Giancarlo Scarvaglieri, Maríu Ce-
derborg og nýjan einleikskonsert,
LUX, eftir Huga Guðmundsson. Ein-
leikari á tónleikunum verður Mel-
korka Ólafsdóttir.
Tónleikar Íslenska flautukórsins í
Norræna húsinu koma í kjölfarið á
tónleikum sem honum var boðið að
halda á alþjóðlegri ráðstefnu The
National Flute Association í New
York í ágúst síðastliðnum, en ráð-
stefnan er sú stærsta sinnar teg-
undar og áætlað að um 2500 flautu-
leikarar hvaðanæva úr heiminum
hafi sótt hana. Tónleikum Íslenska
flautukórsins var vel tekið og vöktu
mikla athygli ráðstefnugesta. Hefur
kórnum þegar verið boðið að koma
fram á næstu ráðstefnu NFA sem og
á flautuleikarahátíð í Belgíu.
Íslenski flautukórinn var stofn-
aður árið 2003. Hópurinn er skip-
aður 20 flautuleikurum sem allir
taka virkan þátt í íslensku tónlistar-
lífi. Efnisskrá flautukórsins sam-
anstendur að mestu leyti af nútíma-
tónlist og hefur hann frumflutt þó
nokkur ný verk.
Íslenski flautukórinn
í Norræna húsinu
Blásið af list Íslenski flautukórinn æfir.