Morgunblaðið - 22.10.2009, Síða 1

Morgunblaðið - 22.10.2009, Síða 1
F I M M T U D A G U R 2 2. O K T Ó B E R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 287. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «DAGLEGTLÍF FINNST GAMAN AÐ HÖNDLA MEÐ GAMLA HLUTI MEÐ SÁL «SINFÓNÍUHLJÓMSVEITÍSLANDS Flytur verk John Williams á tónleikum Stjórnarmenn fyrirtækja bera allir ábyrgð á ákvörðunum sem reynast refsiverðar. Þó verður að taka tillit til þess hvort þeir höfðu allir sömu upplýsingar og möguleika til að hafa áhrif á ákvörðunina. Þá þarf að sanna sök hvers og eins. Viðskipti Stjórnarmenn bera ábyrgð Fleiri þættir geta haft áhrif til veik- ingar á gengi krónunnar en styrk- ingar. Veikist gengi krónunnar á samningstíma Icesave-samningsins við Breta og Hollendinga getur það aukið til muna vaxtabyrðar rík- issjóðs. Veik króna eykur vaxtabyrði ríkisins ALÞINGISMENN voru bólusettir í gær vegna árlegu inflúensunnar. Mörg er þingmanns raunin og þó að nálastungur séu sárar er ekki annað í stöðunni en bíta á jaxlinn, eins og Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði. Ættu Tryggva, rétt eins og þingheimi öllum, nú að vera leiðir greiðar því sprautan er góð vörn gegn pestinni sem svo marga bítur. Flest flensutilfelli undanfarið hafa verið svínaflensa enda eru einkenni hennar og árlegu flensunnar – sem getur komið á tímabilinu september til apríl – um margt lík. MÖRG ER ÞINGMANNS RAUNIN Morgunblaðið/Ómar HINN 22. janúar síðastliðinn skýrði Bjarni Benediktsson alþingismaður Geir H. Haarde formanni Sjálf- stæðisflokksins frá því að hann íhugaði að gefa kost á sér við for- mannskjör á landsfundi, sem þá stóð fyrir dyrum. Þetta kemur fram í bók Styrmis Gunnarssonar, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, Umsátrið – Fall Íslands og endurreisn, sem kemur út hjá bókaforlaginu Veröld í byrj- un nóvember. Styrmir byggir í bók sinni á upplýsingum úr innsta hring stjórnmála-, banka- og embættis- manna og gögnum sem ekki hafa verið gerð opinber. Þá hefur hann átt einkasamtöl við fjölmarga þeirra sem stóðu í miðju þessarar ör- lagaríku atburðarásar. Óánægja nokkurra yngri þingmanna Í bók sinni segir Styrmir að til- efni ákvörðunar Bjarna Benedikts- sonar á þeim tíma hafi verið óánægja nokkurra yngri þingmanna Sjálfstæðisflokksins með það sem þeir töldu vera aðgerðarleysi for- mannsins. Þeir töldu sig hafa gert ítrekaðar tilraunir til að knýja fram frekari aðgerðir ríkisstjórnar Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar en á þá væri ekki hlustað. Tveimur dögum fyrir fund þeirra Bjarna hafði Geir fengið staðfest- ingu á alvarlegum veikindum sín- um. Í framhaldi af því tók hann ákvörðun um að draga sig í hlé í stjórnmálum en aðeins fjölskylda hans og nánustu samstarfsmenn vissu af henni. Geir tók áskorun Bjarna rólega, kvaðst mundu vinna kosningu þeirra í milli og að hann hefði ekk- ert við það að athuga að slík kosn- ing færi fram. Daginn eftir fund þeirra Bjarna skýrði Geir frá því opinberlega að hann væri á leið úr stjórnmálum. Bjarni ætlaði í formannsfram- boð gegn Geir Bjarni Benediktsson Geir H. Haarde GRÆNN TILBÚINN TIL NOTKUNAR . RAUÐUR TILBÚINN TIL NOTKUNAR R. HVÍTUR TILBÚINN TIL NOTKUNAR GULUR TILBÚINN TIL NOTK UNAR lsi 3 - 11 0 R. Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is ÁREKSTRARHÆTTA myndaðist á milli tveggja flugvéla í um 1.500 metra hæð norður af Viðey skömmu eftir hádegi 30. september í fyrra, samkvæmt nýrri skýrslu Rannsókn- arnefndar flugslysa um atvikið. „Það var bara tilviljun að þær flugu ekki saman,“ segir Bragi Baldursson, stjórnandi rannsóknarinnar. 30 manns í vélunum Tildrög málsins eru þau að Cessna-vél með flugkennara og flug- nema var á innleið um Skaga og var í sambandi við Reykjavík um aðflug. Á sama tíma var Dash-8-106 vél með 25 farþega og þriggja manna áhöfn að koma frá Egilsstöðum og var hún líka í sambandi við Reykjavík um að- flug. Í skýrslunni kemur fram að lóð- réttur aðskilnaður hafi sennilega verið minnstur um 56 fet, um 17 metrar. Atvikið kom flugmönnum vélanna og flugumferðarstjóra að óvörum en viðbrögð flugmanns far- þegavélarinnar voru að hækka flug- ið til þess að forða árekstri. Í niðurstöðum nefndarinnar segir að sex atriði hafi myndað orsaka- keðju og leitt til atviksins. Í fyrsta lagi getur verið erfitt að greina fjar- lægðir úr flugturni þegar horft er í þessa átt. Í öðru lagi var ratsjárvari Cessnunnar bilaður. Í þriðja lagi var áhöfn farþegaflugvélarinnar sam- bandslaus stutta stund. Í fjórða lagi var umferðarmynd flugmanna og flugumferðarstjóra röng. Í fimmta lagi veitti flugumferðarstjóri ekki upplýsingar um flug vélanna. Í sjötta lagi heimilaði flugumferð- arstjóri farþegavélinni að lækka flugið niður fyrir 2.000 fet með minni vélina á sjónflugsleið 1 í 1.500 fetum. Bragi segir að hægt sé að minnka möguleika á að svona atvik end- urtaki sig. Því geri nefndin nokkrar tillögur í öryggisátt varðandi breyt- ingar á reglugerðum í sambandi við lágmarksbúnað loftfara og flug- umferð í kringum flugvelli. Auk þess beinir hún því til flugmanna að skrá bilanir ávallt í tæknibók. „Tilviljun að þær flugu ekki saman“ Talið að aðeins um 56 fet hafi verið á milli flugvéla við Viðey Aðflugið við Viðey Áætluð afstaða flugvélanna að mati flugkennara. Ekki var til líkan af Dash-8 og því er ATR-72 vél sýnd í staðinn í skýrslunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.