Morgunblaðið - 22.10.2009, Side 11

Morgunblaðið - 22.10.2009, Side 11
Fréttir 11INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2009 Morgunblaðið/Golli Fjármálaráðherra Steingrímur J. Sigfússon vill kanna framlengingu. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is STEINGRÍMUR J. Sigfússon fjár- málaráðherra telur einboðið að skoða beri hvort framlengja eigi þann tíma sem sparifjáreigendur geti leyst út inneign sína af séreign- arsparnaði og þannig notað féð til aðkallandi hluta. Steingrímur gerði grein fyrir þessari skoðun sinni í fyrirspurn- artíma um útgreiðslur séreignar- sparnaðar á Alþingi í gær þar sem Steinunn Valdís Óskarsdóttir var málshefjandi, en hann taldi aðgerð- ina vel heppnaða og að skoða þyrfti hvort einstaklingar gætu fengið hærri upphæð greidda út. „Þá er að lokum spurningin hvort ástæða sé til þess nú þegar að fara að huga að því að rýmka þess- ar reglur eða framlengja þær vegna þess að nú styttist í að þeir fyrstu komist á endastöð út níu mánaða útgreiðslutímann […] og mitt svar er það að það er einboðið að mínu mati að skoða það.“ Hátt í 40.000 einstaklingar Fram kom í máli ráðherra að 15. október sl. höfðu alls 38.835 ein- staklingar óskað eftir heimild til út- greiðslu séreignarsparnaðar. Samkvæmt skattaframtölum hefðu tæplega 155.000 ein- staklingar greitt í séreignarlífeyr- issjóði undanfarin ár þannig að reikna mætti með að um 25% þeirra sem ættu inneign í séreignarsparn- aði hefðu þegar ákveðið að nýta sér þessa heimild. Heildarupphæðin næmi um 24 milljörðum króna en reiknað hefði verið með að heildarútgreiðslurnar gætu numið frá 40 til 50 milljörðum miðað við allt umsóknartímabilið. Steinunn Valdís var sem fyrr seg- ir fyrirspyrjandi í umræðunum en hún minnti á að lög um séreign- arsparnað hefðu aðeins verið í gildi í um áratug. Framlenging verði skoðuð  Fjármálaráðherra tekur vel í hugmyndir um að lengja tímabilið sem hægt verði að taka út séreignarsparnað  Útgreiðslur gætu numið 50 milljörðum Morgunblaðið/Ómar Ögmundur kveður Eftir 21 ár sem formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja kvaddi Ögmundur fyrir fullu Háskólabíói í gær. FRÉTTASKÝRING Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „BÚUM við í verkalýðshreyfingunni sjálfum okkur sömu réttindi og kjör og við semjum um fyrir félagsmenn okkar? Er allt gagnsætt hjá okkur? Erum við eftir allar þjóðarsáttirnar ef til vill orðin of nátengd gagnaðilum okkar? Eru aðilar vinnumarkaðar í fleirtölu að verða aðili í eintölu?“ Þess- ar spurningar komu fram í ávarpi Ög- mundar Jónassonar, fráfarandi for- manns BSRB, við setningu 42. þings bandalagsins í gær. Hann fór í ítarlegu máli yfir stétta- baráttuna á umliðnum árum, hlutverk verkalýðsfélaganna og mikilvægi líf- eyrissjóðanna í ræðu sinni. Verkalýðs- hreyfingin megi aldrei gera of mikið úr skipulagi. „Ég tel að verkalýðs- hreyfingin sé í verulegri hættu að fjarlægjast rót sína, gerast stofnun meira upptekin af skipulagsformum en baráttumarkmiðum. Mér varð það áhyggjuefni þegar samtök launafólks komu að gerð stöðugleikasáttmálans, sem svo er nefndur, síðastliðið vor hve sammála samtökin og samtök at- vinnurekenda – sem var minna undr- unarefni – voru kröfum Alþjóðagjald- eyrissjóðsins um niðurskurð, einnig í velferðarmálum með þeirri einu und- antekningu að vilja þenja út ný fé- lagsleg úrræði undir handarjaðri aðila vinnumarkaðar. Þetta þykir mér vera vísbending um að sú hætta sé fyrir hendi, og mjög raunveruleg, að verka- lýðshreyfingin stofnanavæðist og verði meira umhugað um sjálfa sig og eigin stofnanir en hina almennu vel- ferð sem ekki er vinnumarkaðstengd. Þessi nálgun er afturhvarf til 20. ald- arinnar öndverðrar þegar réttindi voru meira og minna vinnumark- aðstengd,“ sagði Ögmundur. Hann fjallaði einnig um ávinn- ingana í uppbyggingu lífeyriskerfisins og sagðist vilja að lífeyrissjóðir lánuðu ríki og sveitarfélögum fé til að draga úr hinum bratta niðurskurði velferð- arkerfisins. Nú vildu menn stofna fjárfestingarsjóð á vegum lífeyrissjóð- anna til að efla atvinnu hér innan- lands. Fráleitt að skera á þessi tengsl „Gott og vel. En er ekki sú hætta fyrir hendi að fyrir barðinu verði verkefni ríkisins og sveitarfélaganna? Ekki er nóg með það að ríkissjóður sé tómur, hann er rekinn með geigvæn- legum halla. Sama á við um sveit- arsjóðina. Þetta eru sjóðirnir sem fjármagna velferðina, skólana, sjúkrahúsin, stofnanir fyrir fatlaða, löggæsluna, slökkviliðin, sjúkraflutn- ingana, vatnsveiturnar, stofnanir fyr- ir aldraða, sjálfa innviði samfélagsins. Ég vil láta minn lífeyrissparnað renna þangað, til að verja innviðina, svo ekki verði grafið undan velferðinni. Aldrei er hennar meiri þörf en í kreppu.“ Hann sagði einnig að aðkoma líf- eyrisþega að málefnum lífeyrissjóð- anna væri mjög mikil og fráleitt að skera á þessi tengsl undir því yf- irskyni að „eigendur sjóðanna eigi að geta valið stjórnarmenn. Það gera þeir nú á lýðræðislegan hátt í gegnum sín samtök hvort sem þau heita ASÍ, BSRB, BHM, KÍ eða SÍB“. Lífeyririnn verji velferðina Ögmundur Jónasson, fráfarandi formaður BSRB, sagðist við setningu þings BSRB, telja að verkalýðshreyfingin væri í verulegri hættu að fjarlægjast rót sína Morgunblaðið/Golli Hlýddu á Ögmund Um 280 þingfulltrúar sitja þriggja daga þing BSRB. Meðal gesta við setningu þingsins voru Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Í HNOTSKURN »Ögmundur Jónasson læturaf formennsku á þingi BSRB en hann hefur gegnt því starfi í rúm 21 ár. »Hann var kjörinn formað-ur BSRB á þingi banda- lagsins haustið 1988 og tók við formennskunni af Kristjáni Thorlacius. »Nýr formaður verður kjör-inn á morgun, á lokadegi þingsins, og hafa fjórir þegar gefið kost á sér til formanns. »BSRB er stærstu samtökopinberra starfsmanna hér á landi. Aðildarfélögin eru 27 talsins og fjöldi félaga rúm 20 þúsund. Ögmundur Jónasson kvaddi fé- laga sína í BSRB eftir 21 árs for- mennsku í ítarlegri ræðu á þingi bandalagsins. Hann varaði við að verkalýðshreyfingin væri í veru- legri hættu á að fjarlægjast rót sína. GYLFI Arn- björnsson, forseti ASÍ, flutti ávarp við setningu þings BSRB í gær að af- lokinni ræðu Ög- mundar Jón- assonar. Sagðist hann vera sam- mála Ögmundi „um að nú er enn ein atlagan að hefjast að okkar lífeyr- iskerfi, að okkar grundvallarrétt- indum,“ sagði Gylfi. „Við verðum að standa saman um að hrinda henni eins og endranær,“ bætti hann við. Gylfi fjallaði einnig um nánara samstarf launþegasamtakanna um fræðslumál fyrir félagsmenn. Tryggja þurfi nægt fjámagn frá rík- isvaldinu um þau verkefni sem sam- komulag hefur orðið um í starfs- mennta- og fræðslumálum hreyfingarinnar, og takast verði að efla þau mál. Gylfi minnti á að árs- fundur ASÍ hefst í dag og er haldinn samhliða þingi BSRB. „Það er mik- ilvægt að við köllumst á og látum í okkur heyra.“ Enn ein atlagan að hefjast Þing BSRB og árs- fundur ASÍ samhliða Gylfi Arnbjörnsson FJÓRIR stjórn- armenn í VR hafa samþykkt yfirlýsingu þar sem þeir skora á ársfund ASÍ, sem hefst í dag, að styðja tillögu Verkalýðsfélags Akraness á árs- fundinum um stóraukið lýðræði við val á stjórnarmönnum lífeyr- issjóðanna, þar sem stjórnarmenn verði kosnir beinni kosningu af sjóð- félögum lífeyrissjóðanna. Í tillög- unni segir að ársfundur ASÍ feli miðstjórn umboð til að gera þær breytingar á samningi ASÍ og at- vinnurekenda um lífeyrismál sem tryggi, að launafólk yfirtaki stjórnun lífeyrissjóða innan ASÍ. Einnig verði unnið að breytingum á reglugerðum sjóðanna þannig að sjóðsfélagar kjósi stjórnarmenn í beinni kosningu. Launafólk yfirtaki stjórn ÁRNI Johnsen, þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, fór mikinn í um- ræðum um stöðu landsbyggðar- innar á Alþingi í gær og fullyrti að skipstjórnar- menntun væri í uppnámi. „Innan tíu ára má kannski reikna með að Kínverjar eða Spánverjar verði skipstjórar á íslenskum skip- um […] Það er ekki góð þróun,“ sagði Árni, sem sakaði ríkisstjórnina um að „hjakka á landsbyggðinni“. Þá gagnrýndi hann að verið væri að véla um að fækka sýslumönnum, skattstjórum og lögregluumdæm- um. „Þetta er óvirðing við lands- byggðina, sem vinnur daga og næt- ur, fast og ákveðið að gjaldeyrisöflun fyrir þjóðina.“ Steingrímur J. Sigfússon, fjár- málaráðherra, sagði ekki hægt að ræða aðstæður á Íslandi eins og ekk- ert hefði gerst. Þá sagði hann þenn- an málflutning fara þingmönnum Sjálfstæðisflokksins sérstaklega illa. Kínverskir skipstjórar? Árni Johnsen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.