Morgunblaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 22.10.2009, Blaðsíða 20
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2009 OKKUR verður öllum á í lífi og starfi. Við bregðumst trausti og tiltrú og þurfum þess vegna á hvert öðru að halda til að bæta fyrir það sem aflaga fer, byggja upp og eflast í sátt og sam- starfi til allra góðra verka. Þjóðkirkja Íslands er að stórum hluta fólkið í landinu og þess vegna hrærist innan vébanda hennar mann- lífið sjálft, ófullkomnir einstaklingar sem vilja lúta leiðsögn höfundar trú- arinnar Jesú Krists og þurfa á fyr- irgefningu að halda. Þetta er í senn styrkleiki þjóðkirkjunnar og van- máttur, þetta er krafturinn sem full- komnast í veikleikanum. Í þeim skiln- ingi er þjóðkirkjan ekki valdastofnun og má aldrei líta á sig sem slíka. Emb- ætti prestsins og annarra starfs- manna hennar er þjónustuhlutverk eins og ljóst er samkvæmt orðanna hljóðan. Það er ekki fólgið í því að deila og drottna heldur að hugga, græða, leiðbeina og styrkja, fylgja Kristi og standa vörð um þá sem eru vanmegna og varnarlausir og þjóna lífinu. Börnin eru sérstaklega auðsær- anleg og þess vegna tekur Kristur sér stöðu með þeim. Hann notaði bæði orð og athafnir til að undirstrika það, tók þau sér í fang og lagði hendur yfir þau. Við sjáum hann beita áþekkum að- ferðum þegar hann reisir við þá sem fallið hafa og rýfur einangrun þeirra sem samfélagið hafnar. Hann notar ásamt með öðru snertingu orða og at- hafna til að hugga, græða, styrkja og fyrirgefa. Það er sálgæsluaðferð hans. Ef einhver er dómbær á það sem er viðeigandi, þá er það sá sem þarf á hjálpinni að halda. Að káfa á þeim og kyssa þau sem treysta á að fá brauð í stað steina er alltaf óviðurkvæmilegt. Þjónn kirkjunnar ber þar mikla ábyrgð. Brjóti hann trúnað bregst hann þeim sem síst skyldi. Honum ber þá að stíga til hliðar og hafa það sem spor til sátta og leita þannig fyrirgefn- ingar þeirra sem hann hefur brotið á. Þolendur hafa margt að erfa við brota- manninn, en það er möguleiki að bæta fyrir sig og fyrsta skrefið er að horfast í augu við sjálfan sig með Guðs hjálp og góðra manna. Það hefði óneitanlega skipt miklu í þessu máli öllu, ef sr. Gunnar hefði borið gæfu til þess að biðja stúlk- urnar fyrirgefningar á gjörðum sín- um gagnvart þeim, í stað þess að lýsa því yfir að hann bæri ekki kala til þeirra, vegna þess sem gerðist. Það er í raun að snúa sannleikanum á hvolf, því ekki höfðu þær brotið neitt af sér. Hegðan prestsins olli því hins vegar að frá þeim var tekin bæði frelsi og gleði fermingarársins, þar sem traust, velvild, skilningur og til- litssemi ætti að vera í hávegum höfð, svo sem endranær. Ef það er skilningur sr. Gunnars á siðareglum PÍ (Prestafélags Íslands) að það sé hluti sálgæslu að ástunda „snertingu“ af því tagi sem hann leyfði sér, þá er það mikill misskiln- ingur. Siðareglur PÍ orða umgegni í sálusorgun ekki með þeim hætti. Hins vegar eru í þeim ákvæði eins og þetta: „Sálgæsla byggist á virðingu og trúnaðartrausti og er því sér- staklega viðkvæm og vandmeðfarin. Prestur má ekki undir neinum kring- umstæðum misnota aðstöðu sína sem sálusorgari eða ógna velferð skjól- stæðings, s.s. með kynferðislegri áreitni, né vanvirða tilfinningar hans og tiltrú með öðrum hætti.“ (2.4.) Þar af leiðandi getur skjólstæðing- urinn sem þiggur sálgæsluna, hugg- unina, ekki verið presturinn, því hann er sálusorgarinn. Um þetta eru allir prestar einhuga og hafa margsinnis samþykkt þessar reglur, til að undir- strika þann siðferðisgrunn sem prestastéttin setur sér, þegar kemur að sálgæslu. Ef landslög ná ekki til þessara mikilvægu atriða er með þessum siðareglum PÍ tryggt að þær geri það. Þegar biskup grípur til þess ráðs að færa sr. Gunnar til í starfi er það í samræmi við þær starfsreglur sem prestar þjóðkirkjunnar eiga og ætla að miða þjónustu sína við. Það er einlæg von okkar að sr. Gunnar Björnsson þiggi rausnarlegt boð biskups Íslands, flytji sig um set í auðmýkt og vinni síðan að þeim verk- efnum sem honum farast vel úr hendi og innan þeirra marka sem hann þekkir best og virðir. BIRGIR ÁSGEIRSSON prestur Hallgrímskirkju HERDÍS EINARSDÓTTIR sálfræðingur á Landspítala SIGFINNUR ÞORLEIFSSON sjúkrahúsprestur á Landspítala Sáttaboð á Selfossi Frá Birgi Ásgeirsssyni, Herdísi Ein- arsdóttur og Sigfinni Þorleifssyni Í BRÉFI til biskups Íslands, dag- settu 12. september 2009 frá sex starfandi prestum og fjórum prest- um sem hættir eru störfum, er gagnrýnd sú ákvörðun að færa sóknarprestinn á Selfossi til í starfi. Þar er einkum byggt á þeim rökum að með því sé ekki farið eftir þeim lögum sem í landinu ríkja og þar af leiðandi verði til fordæmi á þá leið að auðvelt gæti reynst að koma presti úr embætti með jafnvel tilefn- islausum ákærum. Við lýsum okkur ósammála þessu bréfi og þeirri rök- semdafærslu sem þar birtist. Málefni Selfosssafnaðar hafa ver- ið í brennidepli um þó nokkurn tíma. Ákvörðun biskups um að færa sókn- arprestinn í starfi byggir hann m.a. á að upp hafi komið trúnaðarbrestur og komi sóknarprestur aftur til starfa yrði erfitt að halda uppi eðli- legu safnaðarstarfi. Undir þessa ákvörðun tökum við heilshugar. Sú ákvörðun mun ekki byggð á geð- þótta heldur er þvert á móti í anda þeirra starfsreglna sem þjóðkirkjan hefur sett sér um meðferð kynferð- isafbrota innan hennar sem og nið- urstaða þeirra nefnda sem um málið hafa fjallað innan kirkjunnar, þ.e. úrskurðunarnefndar þjóðkirkj- unnar sem og siðanefndar Presta- félags Íslands. Segir úrskurð- arnefnd m.a.: „Úrskurðarnefnd telur að ekki verði hjá því komist að telja þá háttsemi sem gagnaðili sýndi unglingsstúlkunum tveimur og sem hann sjálfur hefur staðfest fela í sér ótvírætt siðferðisbrot í skilningi tilvitnaðra laga og reglna.“ Í umfjöllunum sínum ber þessum nefndum saman því siðanefnd segir m.a.: „Það er samdóma álit siða- nefndar að hegðun [NN] í ofan- greindum tilvikum brjóti í bága við siðareglur PÍ, einkum greinar 2.3 og 2.4.“ (http://kirkjan.is/pi/sidareglur ) Það er ávallt erfitt fyrir kærendur kynferðisbrota að koma fram í dags- ljósið. Sönnunarkröfur í slíkum mál- um eru afar miklar og er það langt í frá þannig að öll kærð mál endi fyrir dómstólum. Rétt er að halda því til haga hér að fimm kærur hlutu lög- reglurannsókn, þrjár voru felldar niður vegna fyrningar og tvær kærur hlutu dómsmeðferð. Réttilega er með farið að ákærði hafið hlotið sýknun samkvæmt skilningi laga. Hins vegar er ógerningur að líta framhjá þeim starfsreglum sem kirkjan hefur sjálf sett sér. Það væri ekki síður fordæmisgefandi ef þjóð- kirkjan hefði að engu starfsreglur sem kirkjuþing hefur samþykkt, sem æðsta vald í málefnum þjóðkirkj- unnar innan lögmæltra marka. Hinir tíu prestar sem ritað hafa biskupi bréf telja að þjóðkirkjan sé með ákvörðun biskups að leitast við að skapa sér nýjar réttarreglur sem geti vakið guðfræðilegar spurningar. Undirrituð eru sammála bréfriturum um að tilfærslu séra Gunnars Björnssonar í starfi beri að skoða í ljósi guðfræðinnar, en ólíkt þeim telj- um við að hin guðfræðilegu sjón- armið snúist um kirkju- og mann- skilning sem tekur mið af siðferðilegum álitamálum nútímans. Við teljum að þjóðkirkjan vitni um grundvöllinn sem hún þjónar þegar hún stendur vörð um öryggi barna og ungmenna sem henni er treyst fyrir. Kirkja sem er trú slíkri guð- fræði hefur börnin í forgrunni sem Kristur kallaði til sín, og varnar þeim eigi. Sú ákvörðun að færa sóknarprest- inn til í embætti er að okkar mati óumflýjanleg. Hún er einnig í sam- ræmi við þá ályktun sem samþykkt var samhljóða á prestastefnu sem haldin var í Kópavogi í apríl 2009 þar sem biskup Íslands var hvattur til að nýta þær leiðir sem hann hefur til lausnar í málefnum Selfosssafnaðar. Við vonum og biðjum að með skýrri ákvörðun biskups fáist langþráður friður svo að sóknarnefnd sem er ein- huga um málið geti staðið vörð um uppbyggjandi safnaðarstarf í kirkju sem ber að vera öruggt skjól fyrir sóknarbörn sín og hver þau sem þangað leita. Guðbjörg Arnardóttir, Hildur Eir Bolladóttir, Arnfríður Guðmunds- dóttir, Sigrún Óskarsdóttir, Guðný Hallgrímsdóttir, Sigríður Guðmars- dóttir, Gunnar Rúnar Matthíasson, Þórhallur Heimisson, Halldóra Þorvarðardóttir, Magnús Erlings- son, Guðbjörg Jóhannesdóttir, Guðrún Karlsdóttir, Ingileif Malm- berg, Jóna Lovísa Jónsdóttir, Vigfús Bjarni Albertsson, Petrína Mjöll Jóhannesdóttir, Íris Kristjánsdóttir, Arna Grétarsdóttir, Elínborg Sturlu- dóttir, Sigríður Munda Jónsdóttir, Toshiki Toma, Sigurður Grétar Sigurðsson, Gunnar Jóhannesson, Sigfús Kristjánsson. Kirkjunni ber að vera öruggt skjól Frá prestum ÉG FÓR þrisvar út á land í sumar akandi á mínum einkabíl. Það er því miður orðið lífshættulegt að aka á vegum landsins vegna umferðarómenn- ingar landans. Það var sama þótt ég keyrði á hámarkshraða sem er 90 km/klst úti á landi þá keyrðu allflestir fram úr mér jafnvel þó þeir væru með tjaldvagna, hjólhýsi eða annað í eftirdragi. Þrisvar gerðist það á vikutíma að farið var fram úr mér (ég á hámarkshraða) á óbrotinni línu jafnvel þótt blindhæð væri framundan eða stór rúta að koma á móti. Ég er mest hissa á því að ekki skuli verða fleiri slys í umferðinni. Ökumenn geta teflt lífi sínu í tvísýnu en að leika sér með líf og limi annarra er ófyrirgef- anlegt. Landinn virðist óagaður og eft- irlitslaus í umferðinni. Menn virð- ast halda að umferðarreglur séu til þess að brjóta þær. Allir eru að flýta sér og enginn virðist hafa tíma. Lögregluna sér maður nánast bara orðið á 17. júní og öðrum tylli- dögum. Hún virðist ákaflega lítið sinna umferðareftirliti og gæslu, því miður. Það liggur við að maður þurfi áfallahjálp eftir að vera í umferð- inni, t.d. í Reykjavík fara margir yfir á rauðu ljósi og enn fleiri eru í símanum við aksturinn, þ.e.a.s. ekki með handfrjálsan búnað. Mér er gjörsamlega nóg boðið, hér verður að bæta úr áður en al- varleg slys verða, fólk deyr eða lim- lestist. Tökum okkur á, landsmenn og yfirvöld, með lögum skal land byggja. SKÚLI BALDURSSON, Reykjavík. Umferðar- ómenning Skúli Baldursson Frá Skúli Baldurssyni AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 – meira fyrir áskrifendur Jólahlaðborð Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Meðal efnis verður : Jólahlaðborð á veitingahúsum. Hvað er annað í boði en jólahlaðborð. Jólahlaðborð heima skemmtilegar uppskriftir. Fallega skreytt jólahlaðborð. Tónleikar og aðrar uppákomur. Ásamt mörgu öðru spennandi efni. Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00 mánudaginn 26. október. Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105, kata@mbl.is Morgunblaðið gefur út glæsi- legt sérblað um jólahlaðborð 30. október. Fjöldinn allur af veitingahúsum bjóða upp á jólahlaðborð og sérrétti á aðventunni og mikið í boði fyrir þá sem vilja gera sér glaðan dag á þessum skemmtilega tíma ársins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.