Morgunblaðið - 22.10.2009, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 22.10.2009, Qupperneq 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 2009 Guðjón Magnússon tók þátt í stofnun Fé- lags íslenskra lækna gegn kjarnorkuvá 1983. Það var á tímum kalda stríðsins og þeirrar ógnar sem vofði yfir þjóðum heimsins vegna víg- búnaðarkapphlaups stórveldanna. Félagið var aðili að alþjóðasamtökum sem beittu sér fyrir fræðslu meðal al- mennings um afleiðingar kjarnorku- stríðs, þar sem engin lækning myndi að gagni koma ef það brytist út. Því var forvarnarstarf eina raunhæfa lausnin og stefna samtakanna að út- rýma öllum kjarnorkuvopnum úr heiminum. Alþjóðasamtökin fengu síðar friðarverðlaun Nobels. Við vor- um saman í stjórn þessa félags og það var gott að vinna með Guðjóni, hann var aðstoðarlandlæknir og lét sig fé- lagsleg málefni skipta þá sem ævin- lega síðar. Nokkrum árum seinna hittumst við á förnum vegi og snæddum saman hádegisverð og ég sagði honum tíð- indi af mánaðarlangri ferð minni til Bandaríkjanna 1990 þar sem mér hafði gefist kostur á að heimsækja margar móttökur og þjónustur sem sinntu börnum og fullorðnum sem höfðu verið beitt kynferðislegu of- beldi. Fyrir lá skýrsla svonefndrar nauðgunarmálanefndar þar sem mælt var með því að sett yrði á lagg- irnar Neyðarmóttaka vegna nauðg- unar til að veita skipulegt, faglegt lið- sinni og stuðning. Guðjón var á þessum tíma skrifstofustjóri í heil- brigðisráðuneytinu og það var tví- mælalaust fyrir hans atbeina að tekin var sú ákvörðun í ráðuneytinu að hefja undirbúning að slíkri þjónustu sem opnuð var 1993. Guðjón var víðsýnn og velviljaður, röskur framkvæmdamaður og ég hitti hann ætíð glaðlegan, áhugasam- an og jákvæðan í viðmóti. Hann hafði lagt drjúgan skerf til góðra verka í mörgum löndum og enn var mjög sóst eftir þátttöku hans, enda starfs- orkan óbiluð. Snöggt og óvænt fráfall hans skilur eftir stórt skarð og að honum er mikil eftirsjá. Mestur er missir eiginkonu, sona, móður og fjölskyldu hans og vottum við Helgi þeim einlæga sam- úð. Guðrún Agnarsdóttir. Það er með sárum trega og eftirsjá sem við kveðjum kæran vin og sam- starfsmann okkar, Guðjón Magnús- son. Óvenjulega stórt skarð hefur verið höggvið í hópinn okkar. Svo óvænt. Svo sárt. Fyrir deildina okk- ar, Háskólann í Reykjavík, íslenskt og alþjóðlegt heilbrigðiskerfi og fræðasamfélag. Fyrir alla sem urðu þeirrar gæfu aðnjótandi að verða á vegi Guðjóns Magnússonar og þeir voru fjölmargir, víðs vegar um heim- inn. Það var ómæld gæfa okkar við Kennslufræði- og lýðheilsudeild Há- skólans í Reykjavík þegar Guðjón féllst á að taka að sér stöðu prófess- ors og leiða uppbyggingu nýrrar námsbrautar í lýðheilsufræði; þeirrar fyrstu sinnar tegundar á Íslandi. Guðjón hafði þegar hann gekk til liðs við okkur sinnt fjölmörgum leiðtoga- hlutverkum á sviði heilbrigðis- og menntamála bæði á Íslandi og er- lendis. Við þekktum glæsilegan feril Guðjóns og mátum mikils þann heið- ur sem fólginn var í því að fá hann í okkar hóp. Frá fyrsta degi lék hann lykilhlutverk í uppbyggingu deildar- innar, lýðheilsunámsins og ekki síst í framþróun Háskólans í Reykjavík í heild. Allir leituðu til Guðjóns um ráð og leiðsögn, hvort sem var innan deildar eða utan; hvort sem fólk var staðsett við Háskólann í Reykjavík eða við samstarfsskóla okkar í Bandaríkjunum og Evrópu. Haustið Guðjón Magnússon ✝ Guðjón Magn-ússon fæddist í Reykjavík 4. ágúst 1944. Hann varð bráðkvaddur á heim- ili sínu í Kaupmanna- höfn 4. október sl. og fór útför hans fram frá Hallgrímskirkju 15. október. 2008 hófst nýtt nám við Háskólann í Reykjavík ætlað leiðtogum í heil- brigðisþjónustu. Það nám er byggt á hug- myndum Guðjóns um að heilbrigðiskerfi heimsins horfist nú í augu við viðfangsefni sem kalli á ný viðhorf, ný vinnubrögð og nýja hugsun; reynslu hans og sýn á mikilvægi þess að breytingar séu framkvæmdar af fag- fólki á sviði heilbrigð- ismála, sem hlotið hafi menntun og þjálfun í að leiða og stýra. Síðustu daga höfum við reynt að átta okkur á því hversu stórt skarðið hans Guð- jóns sé. Þessa einstaka manns sem á sérkennilega hæglátan, hlýjan og lát- lausan máta miðlaði, hvatti og deildi með sér. Var allt í senn kjölfesta, akk- eri, stýri og mótor. Okkur berast kveðjur víðs vegar að; frá Karolinska, Columbia háskóla, Mayo clinic, ASP- HER, EUPHA, Norræna lýð- heilsuháskólanum og svo mætti lengi telja. Alls staðar er fólk í sárum. Hví- lík forréttindi að fá að starfa með honum; að eiga hann að vini. Mikið ótrúlega munum við sakna hans; í samverustundum í hádeginu, þegar hann af nærgætni og réttsýni deildi með okkur þekkingu sinni og reynslu sem lærifaðir og kennari, fræðimað- ur fullur visku en ekki síður hug- sjónamaður og áhugamaður um allt sem mannlegt er. Hann deildi óhikað sögum af sér og Sigrúnu, ástinni sinni um áratugaskeið, af sonunum sem hann var svo stoltur af og barnabörn- unum sem voru líf hans og yndi. Elsku Sigrún. Við þökkum þér fyrir að fá að deila tíma Guðjóns með þér og ykkur síðustu árin hans. Við mun- um halda í heiðri allt það sem hann kenndi okkur. Í anda hans munum við leggja okkur fram við að rækta mannskilning okkar og samhygð, leggja okkur fram við að lesa fólk og leyfa okkur að finna til með þeim sem standa höllum fæti. Fyrir hönd vina og samstarfsfólks við Kennslufræði- og lýðheilsudeild Háskólans í Reykjavík, Inga Dóra Sigfúsdóttir. Nú er skarð fyrir skildi lýðheilsu á Íslandi – hann Guðjón er allur. Svo ólíklega sem það hljómar í eyrum okkar sem þekktum hann þá er þetta sú staðreynd sem við stöndum frammi fyrir og við fáum ekki breytt. Ég hef lengi þekkt til Guðjóns og starfa hans, bæði hér heima og er- lendis. Hann var í huga okkar allra sem höfum áhuga á lýðheilsu helsti sérfræðingur Íslendinga á því fræða- sviði. Þrátt fyrir búsetu erlendis leit- uðum við sem störfuðum í fyrstu stjórn Félags um lýðheilsu iðulega ráða hjá honum og hann studdi starf félagsins alveg frá upphafi með ráð- um og dáð. Þegar hann var hér heima gaf hann sér alltaf tíma til skrafs og ráðagerða. Það var í störfum hans sem pró- fessor við kennslufræði- og lýðheilsu- deild Háskólans í Reykjavík sem ég kynntist Guðjóni í daglegu samneyti við hann. Hann var fjölfróður, um- ræðugóður, lausnamiðaður. Hver sem vandinn var þá var hann krufinn til mergjar og mögulegar lausnir fundnar. Hann var góður hlustandi með næmt eyra og hjarta fyrir mönn- um og málefnum og fjölbreytt litróf mannlífsins vakti forvitni hans. Hann var fullur lífsgleði sem hreif alla með sér. Hann var samtímis kíminn og glettinn og sá iðulega spaugilegar hliðar daglegs lífs. Á grunni þekkingar sinnar af fjöl- breyttum starfsvettvangi sá hann lengra og betur en flestir aðrir sem ég þekki hvað varðar heilbrigðismál og skipulag þeirra hér á landi. Á al- þjóðlegum vettvangi var hann vel metinn, eins og við fundum sem feng- um tækifæri til að ferðast með hon- um. Einn vitnisburður þessa er að hann hefur einn manna verið heiðr- aður með einstaklingsbundinni aðild að sömtökum evrópskra lýðheilsu- skóla (ASPHER – Association of Schools of Public Health in the Euro- pean Region). Fyrir lýðheilsunám hér á Íslandi var það mikill fengur að fá Guðjón til starfa við Háskólann í Reykjavík. Með honum kom reynsla og þekking sem hefur reynst ómetanleg við upp- byggingu námsins við skólann. Hann naut sín við kennslu og gat í reynd tekið hvaða málefni innan lýðheilsu- fræðanna til umfjöllunar, krufið það og miðlað af persónulegri reynslu sinni. Á löngum ferli hafði hann fylgst með helstu straumum og stefnum sem gaf nauðsynlega dýpt við skipu- lag námsins og miðlun þekkingar. Hann trúði því að aukin þekking á lýðheilsu sem fræðigrein og efling lýðheilsustarfs væru nauðsynleg til að efla heilbrigðisþjónustu hér á Ís- landi. Því var hann í forustu um að bjóða upp á sérstakt lýðheilsunám við Háskólann í Reykjavík fyrir stjórn- endur í heilbrigðisþjónustu. Lítill en vaxandi hópur lýðheilsu- fræðinga og áhugafólks um lýðheilsu hefur með fráfalli Guðjóns misst sinn fremsta liðsmann. Missir Sigrúnar, barna og barnabarna er þó mestur enda missa þau eiginmann, föður og afa langt fyrir aldur fram. Auk þess er hugur minn hjá öldruðum foreldr- um hans. Ég og Jónína sendum Sig- rúnu og fjölskyldunni allri hugheilar samúðarkveðjur og þökkum Guðjóni samfylgdina. Minning hans lifir með okkur og hvetur okkur til dáða. Geir Gunnlaugsson. Guðjóns Magnússonar er saknað meðal okkar sem vinnum að þróun- armálum í Malaví. Guðjón gerðist ráðgjafi við stórt heilsugæsluverk- efni í Mangochi-héraði í upphafi árs 2008. Ég var þá nýr í starfi umdæm- isstjóra og eitt mitt fyrsta verk var að taka á móti Guðjóni og félaga hans Geir Gunnlaugssyni lækni til að hefja úttkekt og endurmat á spítalaverk- efni okkar. Þær tvær vikur sem þá fóru í hönd slógu tón fyrir einstak- lega gefandi og gott samstarf við þá félaga. Við fórum víða og ræddum við heimamenn, gengum um hvern krók og kima á sjúkrahúsinu sem Íslend- ingar byggðu við Apaflóa, rýndum í skjöl og fórum út á mörkina til að skoða heilsugæslustöðvar í fátækum sveitum. Eftirminnilegastar eru þó umræðurnar kvölds og morgna og alltaf þegar andrúm gafst – og leitin að lausnunum. Yfirburða þekking og reynsla Guðjóns kom sér vel, en mestu skiptu mannkostirnir. Hann kunni að hlusta, vega og meta, og gerði sér far um að leggja það til sem ætla mætti samtímis að góð sátt væri um og kæmi verkefninu til góða. Þessi fyrstu skref til að þróa verk- efnið frekar mótuðust af hæfileikum Guðjóns. Ennfremur tókst góð vin- átta sem blómstraði þegar tóm gafst til gleðistunda og frjóar og stundum háfleygar umræður hófust þar sem veröldin öll var undir. Síðasta sumar gafst einmitt slík stund með þeim Guðjóni og Sigrúnu konu hans, þökk sé Geir og Jónínu – stund sem gaf verkefni okkar og vináttu byr undir báða vængi og fyrirheit um gott framhald. Elja Guðjóns og áhugi leyndi sér ekki, fyrir nokkrum dögum skiptumst við á hugmyndum um úr- bætur því hann var vel vakandi yfir því sem hann tók að sér. Kynni okkar Guðjóns voru alltof stutt, en framlag hans dýrmætt. Guð- jón var heimsmaður í besta skilningi, með djúpar rætur í íslensku sam- félagi en víða yfirsýn og reynslu er- lendis. Mig grunar að hann skilji víð- ar eftir sig spor en við sjúkrahúsið okkar við Apaflóa því ferill hans var fjölbreyttur og gifturíkur. Ég hygg að fleiri kunni frá því að greina hve heill hann var í samskiptum, og hve öflugur hann var í lífi og starfi fyrir því sem við köllum almannaheill. Með kveðju og þökk frá Malaví, Stefán Jón Hafstein, umdæmisstjóri ÞSSÍ. Það er áminning um hverfulleik lífsins þegar hæfileikaríkir starfs- samir menn falla frá – langt um aldur fram. Guðjón Magnússon var einstak- lega áhugasamur um heilbrigði fólks á víðum grunni. Samvinna þeirra Guðjóns sem þá var aðstoðarland- læknir og Ólafs Ólafssonar, fyrrum landlæknis, á níunda áratugnum var um margt einstök. Þeir réðust fram af hugrekki til þess að leiðrétta kjör hvað varðar almennt heilsufar en ekki minnst á hinum félagslega vett- vangi. Guðjón var vel menntaður í heilbrigðisfræðum og hafði breiða og samúðarríka sýn á samfélagið, Hann hafði sterka réttlætiskennd og stóð eins og Ólafur fast að baki þeim er lakar standa. Það er ekki alltaf auðvelt að sinna embættislækningum þegar myndin af læknum er sú að þeir sinni fyrst og fremst sjúkdómavinnu og veiku fólki. Guðjón kom víða að störfum kollega sinna og reyndist mörgum hjálpleg- ur. Á tímum þegar erfið átök stóðu í læknishéraði þar sem ég starfaði um árabil kom Guðjón til sögunnar sem sáttamaður með farsælar lausnir. Leystust mál venjulega vel í höndum Guðjóns. Guðjón var mér góður og vinsam- legur ráðgjafi í námi mínu og starfi. Við sátum nýverið ráðstefnu á vegum Læknafélagsins þar sem fjallað var um heilbrigði, einkum um það sem hægt er að gera til að auka heilsu og lífsgæði fólks, mest um það hvað við getum gert til þess að efla vitund um ábyrgð á eigin heilsu. Á ráðstefnunni kom skýrt fram hve framsýnn og vel- viljaður Guðjón var. Hann hafði skýr- ar tillögur um hvernig varðveita mætti heilbrigðiskerfi okkar og efla. Ég sendi fjölskyldu Guðjóns inni- legar samúðarkveðjur á sorgar- stundu. Missir þeirra er mikill en íslenskt samfélag hefði svo sannarlega þurft á kröftum þessa vandaða og hæfileika- ríka manns að halda – um langa hríð. Jón Gunnar Hannesson. Guðjón Magnússon læknir og hug- sjónamaður er látinn. Slík harma- fregn fyllir mann auðmýkt og þörf fyrir að líta yfir farinn veg. Glæst ævistarf Guðjóns á sviði heilbrigðis-, mennta- og mannúðarmála bæði inn- an lands og utan mun lengi halda merki hans á lofti. Ég hef verið svo lánsamur að vera samtímamaður og samstarfsmaður Guðjóns. Þar er eftirminnilegur þátt- ur Guðjóns í mótun og uppbyggingu heilsugæslunnar hér á landi, einkum eftir að ný lög um heilsugæslustöðvar tóku gildi árið 1974. Rannsóknir hans á þeim árum í Svíþjóð á nýtingu heilsugæslu og bráðamóttöku sjúkra- húsa vöktu strax athygli og voru gott veganesti fyrir mótun heilbrigðis- þjónustu utan sjúkrahúsa hér á landi. Árlegra funda átta héraðslækna landsins með ráðuneyti, landlækni og aðstoðarlandlækni á árunum 1980-90 var alltaf beðið með mikilli eftirvænt- ingu enda stefnumótunarfundir um uppbyggingu heilsugæslu. Þar skiptu skoðanir og framtíðarsýn Guðjóns af- ar miklu máli. Þá áttum við á svipuðum tíma sam- leið sem kennarar í samfélagslækn- ingum með aðstöðu í Sóltúni 1, þar sem Guðjón sinnti kennslu og fræða- störfum sem dósent í félagslæknis- fræði og við hin með heimilislækn- isfræði og heilbrigðisfræði. Hann var þar sem annars staðar afburða leið- togi svo eftir var tekið. En forystu- hlutverk eru ekki alltaf öfundsverð og stundum stóð styr um ýmis mál. Þar minnist ég helst „gulu skýrslunn- ar“ frá 1993, sem Guðjón stóð fyrir og varðaði framtíðarskipan sjúkrahús- mála og heilsugæslu á landsbyggð- inni. Í áliti nefndarinnar kemur fram að minni sjúkrahús á landsbyggðinni muni í framtíðinni ekki standast kröf- ur sérhæfðra sjúkrahúsa. Lagt var til að þau nefndust hjúkrunarsjúkrahús og störfuðu í nánum tengslum við heilsugæsluna. Þessi skýrsla endur- speglaði alþjóðlega framtíðarsýn Guðjóns og áræði. Hann og aðrir nefndarmenn þorðu að taka afstöðu sem var byggð á raunsæi og mikilli þekkingu. Tillögur nefndarinnar ógn- uðu mörgum og leiddu því til faglegra átaka. Nú 16 árum síðar sýnist mér að flest hafi gengið eftir sem nefndin sá fyrir eða lagði til varðandi hlutverk minni sjúkrahúsa og heilsugæslu á landsbyggðinni. Ekki er alltaf ljóst hvert brautryðjendur sækja kjarkinn og orkuna. Það kæmi mér ekki á óvart að uppspretta orkulindar Guð- jóns ætti rætur að rekja til Sigrúnar konu hans og fjölskyldunnar allrar. Ég votta Sigrúnu, Arnari Þór, Hall- dóri Fannar, Heiðari Má og fjöl- skyldum þeirra innilega samúð. Jóhann Ágúst Sigurðsson. Guðjón: Þú varst svo stór í auð- mýkt þinni. Þínir djúpu viskubrunn- ar, skarpa greiningarhæfni og fáguðu miðlunarhæfileikar, svo fáum gefnir. Fræðasvið þitt víðfeðmt en þú um- vafðir það allt þínum örmum af æðru- leysi þess sem veit, en kann líka að hlusta. Tengslin við heiminn, sem á síðustu árum leitaði svo ákaft í ljós þitt. Þú hlustaðir á alla af jöfnuði og virðingu. Virðingu sem þú naust til baka sökum þess að þú sóttir hana ekki. Þú varst svo kjarngóð og heil- steypt manneskja. Að þér er missir fyrir samfélag manna og þjóða. Við kynntumst árið 2004 þegar ég hóf störf fyrir Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunina (WHO) í Kaup- mannahöfn. Þar varst þú yfirmaður. Okkar leiðir lágu saman þar í fjögur ár og svo hér á Íslandi í þrjú. Þú varst mikilis metinn og virtur í stofnunni. Kapphlaup og samkeppni um völd og áhrif sem gjarnan eru innan alþjóð- legra stofnana virtust ekki snerta þig. Alltaf yfirvegaður og rólegur. Svo fastur í þínum innra, staðfasta punkti mennskunnar. Ég var stoltur af því að vera Íslendingur er ég starf- aði og fylgdist með þér. Þú varst svo góð fyrirmynd. Ég vissi um marga sem hefðu yfirgefið stofnunina hefðir þú ekki verið í stjórnendateyminu. Okkar leiðir héldu áfram að liggja saman eftir að þú komst heim og við störfuðum saman á sviði lýðheilsu- mála innan heilbrigðisráðuneytisins og Háskólans í Reykjavík. Alltaf varstu til staðar. Þú bjóst yfir afar mikilli reynslu og djúpu innsæi á heil- brigðismál, aðhylltist félagslega or- sakatengda nálgun að lýðheilsu. Það áttum við sameiginlegt. Þau voru ófá skiptin sem við hittumst og ræddum hugmyndafræði, stefnumótun, pólitík og Ísland eftir heimkomu. Ég vil þakka þér fyrir þau skipti. Ég vil þakka þér fyrir að vera alltaf til stað- ar. Fyrir að brúa öll bilin sem þú gerðir hvort sem það var hér heima eða erlendis. Ég vil þakka þér fyrir þann skilning sem þú hafðir á stöðu jaðarhópa í samfélagi. Ég vil þakka þér að vera svo stór en jafnframt svo mannlegur. Ég heyrði í þér í síma föstudaginn 2. október og við ákváðum að hittast um leið og þú kæmir heim. Þú varst svo ánægður með að WHO hafði leitað til þín eftir starfslok þar og nýtt sér hæfni þína og þekkingu. Þú varst svo ánægður með hve vel þér hafði tekist til í Ga- stein Austurríki þar sem þú sast í lokapallborði á stórri ráðstefnu um heilbrigðismál í tímum efnahags- þrenginga. Ljósið þitt logaði svo glatt enda sóttu margir í að vera nærri þér. Tveimur dögum seinna varstu farinn án fyrirboða. Við sem áttum svo margt órætt. Guðjón, við höldum áfram. Heilsu- stefnan sem við hófum að skrifa árið 2007 en náðum ekki að ljúka, með út- gangspunkti í félagslegum orsaka- þáttum heilsu mun verða skrifuð. Það verður hins vegar erfiðara án þín. Þú skildir eftir mörg fræ hér heima, sér- staklega innan HR, þau munu vaxa og dafna og bera ævistarfi þínu vitni og bera eldinn áfram. Elsku Guðjón, þakka þér fyrir að vera alltaf til staðar fyrir mig. Sig- rúnu og synina þrjá og afkomendur þína alla bið ég Guð að styrkja í því sorgarferli er nú er framundan. Far í friði, stóri maður. Héðinn Unnsteinsson. Fallinn er frá langt um aldur fram sá merki og mæti maður Guðjón Magnússon. Honum kynntist ég í kringum 1990 þegar ég hóf störf fyrir Rauða kross Íslands en hann var þá formaður félagsins. Það var svo árið 1993 þegar ég tók við starfi fram- kvæmdastjóra Rauða krossins að kynni okkar urðu meiri og samstarf okkar nánara. Við áttum gott og ánægjulegt samstarf þann tíma sem Guðjón gegndi formennsku. Ég hreifst af krafti, eldmóði, snerpu og greind Guðjóns, og er æv-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.